Tíminn - 06.04.1976, Síða 3

Tíminn - 06.04.1976, Síða 3
Þriðjudagur 6. aprll 1976. TÍMINN 3 Rekstrarerfiðleikar RKÍ: Sjúkrasamlagið greiði % hluta flutningsgjalda Gsal-Reykjavik — Ég tel vist að við munum notfæra okkur þær reglur almannatryggingarlag- anna, að viðkomandi sjúkrasam- lög endurgreiði 3/4 hluta sjúkra- fiutningsgjaldanna, og það liggur i augum uppi að Sjúkrasamlag Reykjavikur getur ekki verið undanskilið þessum reglum, sagði Árni Björnsson, læknir i samtali við Timann i gær, en eins og frá hefur verið greint I Timan- um á Reykjavikurdeild Rauða krossins, sem sér um rekstur sjúkrabifreiða á Stór-Reykja- vikurs væðinu, nú við mikla rekstrarörðugleika að etja. Reykjavikurdeild Rauða kross- ins hefur fram að þessu ekki fært sér i nyt áðurnefnda reglu al- mannatryggingarlaganna. Tim- inn innti Árna Björnsson eftir þvi, hvort hann teldi að rekstur sjúkrabifreiðanna yrði tryggður, ef Sjúkrasamlag Reykjavikur greiddi 3/4 hluta kostnaðar af sjúkraflutningum. — Með þvi móti að við fáum inn allar greiðslur vegna sjúkraflutn- inga — og þá miða ég við nýgerða útreikninga okkar — þá tel ég, að það sé nægilegt til þess að reka sjúkrabifreiðárnar. En það er hins vegar önnur saga, hvort þetta nægir til þess að endurnýja bilakostinn, sagði Árni Björns- son. Fulltrúar Reykjavikurdeildar Rauða krossins hafa átt viðræður við heilbrigðisráðuneytið að und- anförnu vegna þessara erfiðleika. Páll Sigurðsson, ráðuneytisstjóri sagði i samtali við Timann i gær, að sá háttúr væri viðast hvar við- hafður úti á landsbyggðinni, að sá sem annaðist sjúkraflutninga léti fólk greiða sinn fjórðung kostnað- ar str.ax, en fengi siðan 3/4 hluta hjá sjúkrasamlagi endurgreidda. Páll sagði að einnig væri hægt að hafa þann hátt á, að sá sem sjúkraflutninga annaðist, léti fólk greiða allan kostnað strax, og það fengi siðan endurgreitt hjá sjúkrasamlagi. Eins og frá var greint i Timan- um s.l. fimmtudag er nýr neyðar- bill kominn til landsins á vegum Reykjavikurdeildar Rauða kross- ins. Fyrir þann bil þurfti Reykja- vikurdeildin að greiða 1,8 millj. kr. i aðflutningsgjöld og tolla — en i mörgum tilvikum eru þessi gjöld felld niður, þegar um sjúkrabifreiðar er að ræða. — Astæðan fyrir þvi, að ekki var i þessu tilviki hægt að fella niður þessi gjöld var sú, að beiðni Reykjavikurdeildarinnar þar að lútandi kom of seint fram, sagði Páll. Samkvæmt lögum verður slik niðurfelling að koma inn i fjárlög, og það hafði verið gengið frá þeim er umrædd beiðni kom fram. Hins vegar teldi ég eðlileg- ast að inn i lög væri sett almenn heimild fyrir ráðherra að veita slikar undanþágur, sagði ráðu- neytisstjórinn. Hafrannsóknarstofnunin: VILL STÖÐVA RÆKJUVEIÐI í ARNARFIRÐI OG EKKI LEYFA HANA Á BREIÐAFIRÐI — 65% undirmálsrækja í Arnarfirði og mikið af ungýsu á rækjumiðum í Breiðafirði Oó-Reykjavik. Allt útlit er á, að rækjuveiðar á Breiðafirði geti Ingvar Vaidimarsson FELL 40 METRA í GLJÚF- UR OG SLAPP ÓMEIDDUR O Ó— Reykjavik. Flug- björgunarsveitin i Reykjavik fór til æfinga i Tindafjöll um s.l. heigi, en þangað fer Flug- björgunarsveitin oft i þessum tilgangi og á þar skála. A sunnu- dag var ætlunin að ganga á Ými, sem er tindur i Tinda- fjallajökli. Lagt var af stað snemma morguns i góðu og björtu veðri, en þegar leið á morguninn fór að hvessa og þykkna upp og hriðarveður skall á svo að vart sá út úr aug- um. Gekk ferðin upp fjöllin hægt og þurfti fulla aðgát til að lenda ekki i ógöngum. Þá gerðist það, að fremsti maður i röðinni, Ingvar Valdimarsson formaður Flugbjörgunarsveitarinnar, gekk á skiðum sinum fram af hengju og hrapaði niður i djúpt gljúfur, 30 til 40 metra fall og Flugbjörgunar- sveitarmenn á æfingu. tókst svo veltil að hann stóð upp ómeiddur. Leiðangursmenn voru ekki bundnir saman þar sem snjór var mikið frosinn og hætta var á að allir hröpuðu ef einn færi i gljúfur eða sprungu. Ingvar féll niður um 30 metra og þar var undir snarbrött brekka sem hann lenti á og fleytti kerlingar áfram niður og dró það smátt og smátt úr fallinu og er það ástæðan til þess að ekki fór verr. Þeir sem stóðu uppi á hengjunni og sáu grilla á eftir Ingvari niður i gljúfrið töldu að hann hafi verið 40-50 metra fyrir neðan þá er hann stanzaði. Félagar Ingvars komust fyrir hengjuna og niður i gljúfrið og hittu hann þar kátan og hressan eftir flugferðina. ekki hafizt fyrr en liður á vor eða jafnvel siðar. Astæðan er sú, að mikið er af smáýsu á rækju- miðunum og munu rækjuveiðar skaða þann stofn smáfisks sem þarna er að vaxa. Ekki hefur áður orðið vart við svo mikið smáýsu- magn inni á Breiðafirði. Þá munu vera erfiðleikará að halda áfram rækjuveiði i Arnarfirði þótt enn sé langt frá, að búið sá að veiða upp í þann kvóta sem þar má taka. 1 Arnarfirðinum eru erfiðleikarnir þeir, að mikið er af undirmáls- rækju i aflanum og þvi óráðlegt ■ að halda áfram veiðum þar. Mun Rannsóknarstofnun sjávarút- vegsins fara fram á það við sjávarútvegsráðuneytið að veiðin verði stöðvuð þar. A Breiðafirði eru veiðar dcki ennhafnaren vertiðinni aðljúka i Arnarfirði. Unnur Skúladóttir fiskifræðingur, sagði i gær, að ráðuneytinu verði bráðlega send beiðni um að veiðin i Arnarfirði verði stöðvuð. 1 haust var settur kvóti á rækjuveiði þar og sam- kvæmt honum mátti veiða 500 tonn í vetur. En nú hefur komið fram mjög sterkur árgangur, frá 1974, s?m er þarna á miðunum og er 65% af veiðinni undirmáls- rækja. Er smáa rækjan út um all- an f jörð en ekki á neinum sérstök- um svæðum, svo að ekki er hægt að undanskilja nein svæði frá friðuninni. Þegar svona er orðið mikið af undirmálsrækju i aflan- um, nýtisthann illa og kemur sér auk þess miklu betur að veiða rækjuna þegar hún er orðin stærri. Rækjuveiðin i Arnarfirði hefur verið sæmileg i vetur og heldur skárri en i fyrra. Fyrirsjáanlegt er að 500 tonna kvótanum verður ekki náð. Þótt ráðuneytið gefi nokkurn frest þannig, að ekki verður hætt að veiða strax og reglugerð verður gefin út, mun hann ekki duga til að veiða upp i kvótann. Má reikna með að veidd verði um 350 tonn áður en bannið gengur i gildi. Nýverið er búið að rannsaka rækjumiðin á Breiðafirði. Þar hefur komið upp vandamál sem er annars eðlis en i Arnarfiröi. Breiðafjarðarrækjan er stór og góð, en innan um hana er mikið af ungýsu, eins til tveggja ára. Mun rannsóknarstofnunin leggja til að veiði verði ekki hafin þar að sinni. Verður fylgzt með miðunum og rækjuveiöi ekki leyfð fyrr en ljóst verður að ungfiski stafi ekki hætta af þeim veiðum. Að sögn Unnar er ómögulegt að segja neitt um það á þessu stigi hvort eða hvenær ungfiskurinn gengur af rækjumiðunum. Arið 1974 kom upp svipað vandamál í ísafjarðardjúpi. Þar var aðallega ungþorskur, sem gekk á rækjumiðin. Það virðast áraskiptiá þvi hvert ungfiskurinn gengur, þvi þetta hefur ekki kom- ið fyrir áður á Breiðafirði siðan rækjuveiðar hófust þar. Þar hefur verið friður á rækjumiðum fyrir ungfiski fyrri hluta vors, en frem- ur yfir sumarið sem fiskurinn hefur gengið þar inn. Rannsóknir á fiski á fyrsta ári hafa verið stundaðar i fáein ár og f fyrra virtist svo sem þá væru t.d. sér- staklega litlir árgangar af þorski. En rannsóknirnar á fiski sem ekki er orðinn ársgamall fara Framhald á bls. 15 LÍKFUNDUR Gsal-Reykjavik — Lik af karlmanni kom upp með trolli á Griiidavikur- dýpi siðdegis á sunnudag og var sýnilegt að það hafði legið i sjó um nokkurn tima. Ekki er vitað af hverjum likið er. Það var um kl. 18 á sunnudag að togarinn Arnar HU-l frá Skaga- strönd var að draga inn trollið á Grindavikurdýpi, og kom þá lik af karlmanni upp með trollinu. Vélbáturinn Kári fór til móts við Arnar, er fréttist af likfundinum, og flutti likið til Grindavikur. I lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllUllllllllllllllllllli Loðnuvertíöin: Sigurður RE aflahæstur — heildaraflinn um 120 þús. tonnum minni en í fyrra E gébé Rvik — Eftir þvi sem = i sjómenn segja, er loðnuveið- = = in að fjara út. Þau fáu skip, j| E sem enn eru að veiðum, = = höfðu nánast ekki fengið p = neitt i gærdag, en þau eru út = = af Snæfellsnesi. Fengu skipin = = ekki nema 20-40 tonn i kasti. i 1 A miðnætti hinn 3. aprfl var = heildaraflinn orðinn 334.786 = = tonn, sem er tæplega 120 þús- = = und tonnum minna en á = S sama tima i fyrra. Sigurður = = RA er langhæstur með 13.309 = = tonn, en alls hafa 76 skip = = fengið afla á þessari loðnu- = E vertið. Mestu hefur verið = E landað i Norglobal eða sam- EE E tals 60.249 tonnum. = Tvö skip tilkynntu loðnu- e = neftid um afla á sunnudag, = 1 en það voru Eldborgin og e = Gisli Arni og voru með sam- = H tals á fimmta hundruð tonn. = = Veður hamlaði veiðum nokk- = E uð um helgina. Skipin hafa = = að undanförnu farið inn til = E hafnar á kvöldin og aðeins = = veitt á daginn. Vikuaflinn i E fyrir siðustu viku varð litill, = = aðeins 7.874 tonn sem 18 skip § E fengu. Nú munu aðeins sex = i skip vera að veiðum, en voru 1 = 76 þegar flest var. i Mest hefur verið landað i E i bræðsluskipið Norglobal, i = sem nú er farið frá landinu, E = eða samtals 60.249 tonnum, i i þá koma Vestmannaeyjar j| E með 40.263 tonn, Reykjavik e | með 30.038 tonn og Seyðis- § i fjörður með 26.153 tonn. = Þau skip sem höfðu fengið = i yfir sjö þúsund tonna afla E E laugardag 3. aprfl: tonn | | SigurðurRE4 13.309 = = Guðmundur RE 29 11.759 i = Grindvikingur GK 606 10.104 = | BörknrNK 122 10.042 | i Gisli Arni RE 375 9.671 E | Eldborg GK 13 9.498 i = Helga Guðmundsd. BA i 77 9.448 = | Hilmir SU 171 8.898 | i LofturBaldvinsson EA | 24 8.711 | i Asberg RE 22 7.812 i i Fffill GK 54 7.590 | ! Hákon ÞH 230 7.368 | i RauðseyAK14 7.210 = i Öskar Magnússon AK | 177 7.145 i 18111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111181 Drengirnir sem drukknuðu Gsal-Rvik — Drengirnir tveir, sem drukknuðu i Bakkatjörn á Seltjarnarnesi að kvöldi s.l. föstudags hétu Geir Jóhannsson og Kristján Geir Þorsteinsson til heim- ilis að Þórshamri Seltjarnar- nesi. Drengirnir voru bræðrasynir, Geir átta ára, og Kristján sjö ára.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.