Tíminn - 06.04.1976, Blaðsíða 6
6
TÍMINN
Þriðjudagur 6. april 1976.
VHABCCC
SUNDABORG Klettagörðum 1 Simi 8-66-80
Gísli Jónsson & Co. hf.
Sundaborg — Klettagöröum 11 — Simi 86644
Eigendur sumardvalarsvæðastofna félag
Framreiðslumenn
Aðalfundur félags framreiðslumanna
verður haldinn á morgun, miðvikudaginn
7. april kl. 14,30 að Óðinsgötu 7.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Stjórnin.
FÖSTUDAGINN 26. marz var
fundur haldinn að Hótel Sögu, til
undirbúnings stofnun félags
sumardvalarsvæða á íslandi. Til
fundarins boðuðu áhugamenn um
rekstur tjald- og hjólhýsasvæða
og stuðning við útilif almennings.
Formaður Ferðamálaráðs, Lúð-
vík Hjálmtýsson, annaðist undir-
búning fundarins og stýrði hon-
um.
Fundinn sóttu fulltrúar ýmissa
stofnana og annarra aðila, sem
eiga og reka tjaldsvæði viða um
land, eða láta sig varða ferða- og
útivistarmál.
Á fundinum var ákveðið að
stofna Félag sumardvalarsvæða
og kosin bráðabirgðastjórn. For-
maður hennar er Eirikur
Eyvindsson, Laugarvatni. Þá var
rætt um þörf fyrir fleiri og betri
tjaldsvæði ibyggðum landsins, og
æskilega aðstoð þess opinbera við
þau, enda er hér um menningar-
starf að ræða, sem reynslan hefur
sýnt að ekki verður unnið svo
sómi sé að, nema með almennri
aðstoð. Innan vébanda félagsins
eru i upphafi 17 tjaldsvæði og
sumardvalarsvæði viða um land.
Tilgangur félagsins er að vinna
að aukinni og bættri ferðamenn-
ingu og þjónustu við almenning á
tjaldsvæðum, gera tillögur um
samræmdar reglur og gjaldskrá i
samræmi við nýsetta reglugerð
um tjald- og hjólhýsasvæði, vera
félögum sinum til ráðuneytis og
málsvari þeirra.
Stefnt er að þvi að halda fram-
haldsstofnfund i tengslum við
ferðamála ráðstefnu , sem
væntanlega verður haldin að
hausti.
Kaupmenn — Innkaupastjórar
Páskaegg fyrirliggfandi
til afgreiðslu strax
Sœlgætisgerðin Víkingur
Ráðherrafundur um náttúruverndar-
og umhverfismál:
Nauðsynlegt að samræma
reglur um friðun farfugla
RAÐHERRAR, er fara með nátt-
úruverndar- og umhverfismál i
aðildarrikjum Evrópuráðsins eða
fulltrúar þeirra, komu saman til
fundar i Brussel dagana 23. og 24.
sl. Einnig tóku fulltrúar Finn-
lands, Kanada, Júgósiaviu,
Lichtenstein, Portúgals og Spán-
ar þátt i fundinum. Er þetta i ann-
að sinn sem Evrópuráðið efnir til
ráðherrafundar um þessi efni, en
fyrri fundurinn var i Vinarborg
1973. Sameinuðu þjóðirnar héldu
alþjóðlega ráðstefnu um þessi
efni i Stokkhólmi 1972. Umhverf-
ismálum er. nú æ meiri gaumur
gefinn, einkum i þéttbýlum iðn-
aðarlöndum, þar sem margs kon-
ar mengun hefur valdið þungum
búsifjum.
Á fundinum i Brussel var lögð
áherzla á að i atvinnumálum yrði
tekið tillit til náttúruverndar og
almenningi tryggður aðgangur að
þjóðgörðum og öðrum friðuðum
svæðum, og einnig var mikil á-
herzla lögð á verndun jurta- og
dýralifs, þar sem einstaka teg-
undir kynnu að vera i útrýming-
arhættu. Var i þessu sambandi
rætt um nauðsyn á friðun og
verndun farfugla, ekki einungis i
sumarlöndum þeirra, heldur
hvarvetna þar sem leið þeirra
lægi um, en friðunarreglur i þessu
efni eru mjög mismunandi frá
landi til lands, og strangastar i
Norður-Evrópu, bæði að þvi er
varðar löggjöf og viðhorf almenn-
ings. Samstarf stjórnvalda og á-
hugamannasamtaka um náttúru-
verndarmál var talið mjög æski-
legt.
Stefnt er að þvi að samræma
löggjöf um umhverfismál og nátt-
úruvernd og framkvæmd hen ar,
svo sem eðlilegt telst og tök eru á.
Af tslands hálfu var á fundinum
gerð grein fyrir meginþáttum i
náttúruverndarstarfi á tslandi og
lögð áherzla á að stefna tslend-
inga i þessum efnum væri friðun
og ræktun i stað rányrkju og bent
á að tslendingar hefðu á alþjóða-
vettvangi haft forystu á sumum
sviðum i þvi efni, svo sem um.
verndun fiskstofna.
Af tslands hálfu tóku þátt i
fundinum Birgir Thorlacius ráðu-
neytisstjóri, Knútur Hallsson
skrifstofustjóri og Eyþór Einars-
son varaformaður Náttúruvernd-
arráðs.
A föstudag útskrifuðust tólf nýir þroskaþjálfar úr Þroskaþjálfaskóianum á Kópavogshælinu. Þetta er i
fimmtánda sinn, sem skólinn útskrifar nemendur, og bætast nú enn velkomnir kraftar i starfsgrein, þar
sem brýn þörf er fyrir þá. Þetta er annað skólaárið, sem skólinn starfar samkvæmt nýrri reglugerð.
Þroskaþjálfanám tekur nú 2 1/2 ár og er bæði verklegt og bóklegt. Oddný Jóhannesdóttir náði beztum
námsárangri af þeim, sem að þessu sinni útskrifuðust.
Tlmamynd Róbert
Undirmenn á kaupskipum:
Samningar undir
ritaðir
gébé Rvik — Seint á þriðjuaags-
kvöld voru undirritaðir samning-
ar milli undirmanna á kaupskip-
um og útgerða kaupskipanna, hjá
sáttasemjara rikisins. Samning-
arnir voru undirritaðir með þeim
fyrirvara að þeir yrðu bornir upp
á ielagsfundi undirmanna og
hefst atkvæðagreiðsla I dag á
skrifstofu Sjómannafélags
Reykjavikur og að sögn Guö-
mundar Hallvarössonar mun at-
kvæðagreiðslan hugsanlega
standa yfir i þrjár vikur, svo hægt
verði að ná til sem flestra.
Afangahækkanir eru hinar
sömu að hundraðshluta og á sömu
timum og samið var um milli ASI
og Vinnuveitenda og er verð-
trygging kaups einnig i samræmi
við þann samning. Meginbreyt-
ingin ásamningum undirmanna á
kaupskipum er sú, að þegar
undirmenn vinna að losun eða
lestun á farmi á ströndinni, i
tengslum við verkamenn sem
vinna samkvæmt bónuskerfinu,
þeim
fái þeir sérstaka greiðslu
tilvikum.
Guðmundur Hallvarðsson, Sjó-
mannafélagi Reykjavikur sagði,
að samningafundir hefðu staðið i
um 160 klukkustundir, en kröf-
urnar voru lagðar fram 24. febrú-
ar sl.
Húsmæðrafélagið mótmælir
hækkunum
Framkvæmdanefnd Húsmæðra-
félags Rvikur, mótmælir harð-
lega þeim gegndarlausu verð-
hækkunum sem orðið hafa á
nauðsynjavörum undanfarið.
Nefndin telur að launahækkanir
þær sem fengust i siðustu kjara-
samningum séu þegar far^ar út i
verðlagið og vel það. Það er stað-
reynd að stórvægilegar hækkanir
á hita, rafmagni, og sima, sem
eru nauðsynlegir liðir á hverju
heimili, ásamt hækkunum á
nauðsynlegum matvælum koma
verst niður á þeim heimilum sem
sizt þola.
Það er óraunhæft að ætla að t.d.
ellilifeyrisþegar geti greitt hús-
næði með rafmagni og hita keypt
ofan i sig mannsæmandi fæði
hvað þá fengið sér nauðsynlegan
fatnað, miðað við verðlag i dag.
Vélsleoa-
SÝNING
Hvar:
Hjá okkur í
Sundaborg.
Hvenær:
Dagana
5. til 12. apríl.
Hvað sýnt:
SKI-DOO ALPINE
2ja belta, 65 hö.
SKI-DOO TNT
ARTIC CAT PANTHER
HARLE Y-DAVIDSON.
Ef veður er
hagstætt verður
mönnum lofað að
prufukeyra.
Einnig sýnum
við:
Aftan-i-sleða.
Áttavita.
Burðargrindur.
Yfirbreiðslur HD.
Margt fleira.
Til flutnings á
sleðunum:
kerrugrindur og
jeppakerrur.
Sýningin
verður opin:
Virka daqa frá 9-6.
Laugardag 10/4 frá 10-6.
Sunnudag 11/4 frá 2-6.