Tíminn - 06.04.1976, Síða 18

Tíminn - 06.04.1976, Síða 18
18 TÍMINN Þriðjudagur 6, april 1976. Snillingar Partizan til Islands Miklar likur eru á þvi að júgóslavneska meistaraliðið i handknattleik, Partizan Bjelovar komi hingað til lands- ins nú i vikunni i boði Vals og leiki hér tvo leiki i Laugardals- höllinni um næstu helgi gegn Valsmönnum og islandsmeist- urum Fii. Leikmenn Partizan Bjelovar með hina frábæru leikmenn Hroje Horvarth og Miroslava Pribanic, eru miklir snillingar. Þetta er ekki i fyrsta skipti sem þetta fræga félag kemur hingað, — það hefur komið hingað tvisv- ar sinnum áður. Fram lék gegn Partizan í Evrópukeppninni 1967 og gerði þá jafntefli 16:16 i Laugardalshöllinni — en siðan fékk Fram-liðiö skell i Júgó- slaviu — 9:24. FH-ingar léku aukaleik gegn Júgóslövunum og tapaði FH-liðið þá 16:22. Siðan léku FH-ingar gegn Partizan i Evrópukeppninni 1971 og máttu þá þola stórtöp — fyrst 14:28 i Laugardalshöllinni og siðan 8:27 i Jugóslaviu. Partizan Bjelovar varð siðan Evrópumeistari 1972, með þvi að vinna sigur yfir Gumm- ersbach — 19:14 —- i Dortmund i V-Þýzkalandi. —sos. GERD MULLER. er koininn i gifurlegan ham og þá er hann óstöðvandi. ..Bomber"á skotskónum GERD „Bomber" Muller var heldur betur á skotskónum, þega r Bayern Munchen vann sigur (5:2) i leik gegn 1. FC Köln i v-þýzku bikarkeppninni á laugar- daginn. Þessi marksækni leik- maður skoraði „hat-trick" — þrjú mörk og átti hann stórkostlegan leik og er kominn i mikinn viga- hug, eins og þulur v-þýzka út- varpsins sagöi. Þessi stórsigur Bayern vakti mikla athygli, þar sein Kölnar-liðið er geysilega öflugt á heimavelli og tapar þar sjaldan leik. Dieter Muller skoraði bæði mörk 1. FC Köln. en mörk Bayern skoruðu — Gerd Muller (3), lluli llöness og bakvörðurinn Fermann. Með sigrinum tryggði Bayern sér sæti i undanúrslitum bikarkeppninnar, en úrslitin i 8-liða úrslitunum urðu þessi á laugardaginn i v-þýzku bikar- kepþninni: l.FCKöln — Bayern ........2:5 Kaisersl.—Dusseldorf......3:0 Homburg—Hamburger.........1:2 Hertha—VVölkinger.........1:1 • • • Bayern, 1. FC Kaiserslautern og Hamburger SV, sem vann sigur yfir Saar-liðinu Homburg, leika i undanúrslitum, en 1. deild- arliðið Hertha Berlin þarf að leika aukaleik gegn Wölkinger — um, hvort liðið leiki i undanúrslit- um. —SOS Ás- skor- aði... Guðgeir á við meiðsli að stríða ÁSGEIR Sigurvinsson kom Standard Liege á bragðið gegn Baringen, þegar Standard-liðiö vann góöan sigur (3:2) á útivelli. Ásgeir skoraði fyrsta mark leiks- ins, sem var stórglæsilegt. Guðgeir Leifssongat ekki leikið meö Charleroi, þar sem hann á við meiðsli i ökla að striða. Charleroi-liðið fékk skell (1:5) á útivelli, þegar það mætti FC Brugge — efsta liðinu i Belgiu. Charleroi er nú i mikilli fallhættu —-er i þriðja neðsta sætinu, þrem- ur stigum á eftir fjórða neðsta lið- inu — Beringen. Charleroi mætir F.C. Liege á miðvikudaginn, en þá situr Beringen yfir og siðan mætir Charleroi Beringen á laug- ardaginn kemur. Með sigri i þess- um tveimur leikjum, nær Charleroi að skjótast upp fyrir Beringen. —SOS. GORDON HILL....hinn leikni út- herji United. QPR siglir hrað- byri að meistara- titlinum — eftir góðan sigur (2:1) gegn Newcastle á St. James Park LUNDCNÁLIÐIÐ Queens Park Rangers siglir nú hraðbyri að Eng- landsmeistaratitlinumjeikmenn liðsins komu á laugardaginn við á St. James Park i Newcastle, þar sem þeir skipuðu um borð tveimur dýr- mætum stigum i safn sitt. Það var Stan Bowles sem tryggði þeim þau, • með þvi að skora sigurmarkið (2:1) gegn Newcastle, rétt fyrir leikslok. Newcastle-liðið byrjaði leikinn, þegar Alan Gowling skoraði sitt 30. mark á keppnistimabilinu. Stuttu siðar kom fyrir umdeilt at- vik—þegar Malcolm MacDonald var felldur fyrir innan vitateig Lundúnaliðsins. Allir bjuggust viö vitaspyrnu, — en hvað gerð- ist? Jú, dómarinn lét leikinn lialda áfram, eins og ekkert hefði i skorizt. Það voru allir mjög undr andi yfir þessum viðbrögöum dómarans — leikmenn Q.P.R. voru mest undrandi, enda var greinilegt á þeim, að þeir bjugg- ust viö vitaspyrnu. En leikurinn hélt áfram og fyrir leikhlé jafn- aði (1:1) gamla kempan Frank McLintock.fyrrum fyrirliði Arse- nal, fyrir Lundúnarliðið — hans fyrsta deiidarmark i meira en 2 ár. Og eins og fyrr segir, þá skor- aði Stan Bowles sigurmark Queens Park Rangers-liðsins, 1. DEILD Arsenal.......(0) OTottenham ... (2) 3 John Pratt John Duncan sem á mikla möguleika á að hljóta Englandsmeistaratitilinn i fyrsta skipti i sögu félagsins. Hinn 19 ára David Fairclough er nú orðinn dýrlingur á Anfield Road. — Þessi ungi leikmaður, sem skoraði bæði mörk (2:0) Liverpool gegn Burnley á dögun- um, eftir að hann hafði komið inn á sem varamaður fyrir Steve Hcighway.var hetja Liverpool á laugardaginn, þegar Mesey-liðin mættust. Fairclough.sem kom þá einnig inn á sem varamaður, skoraði sigurmark Liverpool gegn Everton, þegar aðeins 2 minútur voru til leiksloka. Hann sundraði þá varnarvegg Ever- ton-liðsins, með þvi að leika á 3 varnarmenn og sendi knöttinn með þrumufleyg i netamöskva Everton-marksins. Stuttu siðar fengu leikmenn Liverpool tæki- færi til að skora annað mark — en þá misnotaði Phil Neal vita- spyrnu. Leeds liðið átti i mikiu basli með Burnley á Elland Road. Dun- can McKenzic skoraði fyrst fyrir Leeds, en Ray Ilankin jafnaði (1:1) fyrir Burnley — og siðan var FRANK McLINTOCK... skoraði þýðingarmikið mark fyrir Q.P.R. mikill barningur á vellinum, eða þartil rétt fyrir leikslok, að nýlið- inn Peter Hamptontryggði Leeds sigur. Trevor Francis tryggði Birmingham góðan sigur (3:2) yfir Aston Villa á St. Andrews — þegar hann skoraði gott mark með skalla, rétt fyrir leikslok. Mikil slagsmál brutust út á Highbury i Lundúnum, eftir að leik Arsenal og Tottenham lauk þar. Það voru ekki leikmenn lið- anna sem tóku þátt i þeim, heldur áhangendur þessara frægu Lundúnaliða. —Þeir börðust með kjafti og klóm eftir leikinn og þurfti lögreglan að sjálfsögðu að skerast i leikinn — og þegar Lundúnalögreglan er komin á skrið, þá getur enginn stöðvað hana. Það var að sjálfsögðu lög- reg.lan sem bar sigur úr býtum i slagsmálunum, með þvi að sundra mannfjöidanum. _soS (1) 3 Aston Villa.. Andyíiray. Kay (iraydon .(1)2 Birmingham Tcrry N'ihhitt. Kcn Hurns, Trcvor Krancis Coventry........(0) 0 Leicester.... (1) 2 Keith Wcller, Hoh Lee Leeds...........(1) 2Burnley.........(1) 1 Muncan McKen/.ie, Kay llankin. Peler llampton Liverpool.... (0) 1 Everton.........(0) 0 David KairclouRh Middlesbrough. (1)2 Ipswich...........(0) C STAÐAN Á TOPPNUM (í) have Armstroni; -q.p.r...........m/ Krank Mcl.intock. David Mills, Newcastle.. Alan (iowlinn Stan Howles Norwich... I’hil Boyer Jolin Slainrod Tonv í'urrie Stoke.........(0) 0 Man City....(0) ! West Ham......(0)0 Wolves.......(0)0 . (1) 1 Sheff. Utd ... ('liris (iulhrie. (3)3 QUEENS PARK RANGERS stendur bezt að vigi i baráttunni um Englandsmeistaratitilinn — liöið á nú eftir aö leika fjóra leiki og þar al' þrjá á heimavelli. Staða fjögurra efstu liðanna sem bcrj- ast um meistaratitilinn, er nú þessi: Q.P.R...... 38 21 Liverpool ...37 19 Derby.......37 20 Man. Utd. .. .36 20 Þessi lið eiga eftir að leika eft- irtalda leiki: • • 11 6 57:27 13 5 54:27 10 7 63:46 10 6 62:35 53 51 50 50 Q.P.R.: — Middlesbrough (H), Norwich (0), Arsenal (H) og Leeds (H). LIVERPOOL:—- Aston Villa (Ú), Leicester (H). Stoke (H), Man- chester City (Ú) og Wolves (Ú). DERBY: — Manchester City (Ú), Leicester (H), Aston Villa (Ú), Everton (H) og Ipswich (Ú). MANCHESTER UNITED: — Manchester City (H), Ipswich (Ú), Everton (H), Burnley (Ú), Stoke (H) og Leicester (Ú). HILL VAR OSTOÐVANDI I STRAKARNIR hans Tommy Docherty tryggöu sér farseðilinn á Wembley, þegar þeir unnu góðan sigur (2:0) yfir Derby i I ensku bikarkeppninni. Manchest- er United, sem hefur möguleika á | að vinna „Double” — bæði 1. deildar- og bikarkeppnina i Eng- landi, mætir Dýrlingunum frá ' Southampton i úrslitaleiknum á . Wcmbley. Gordon Hill var hetja Manchester United — þessi eld- | fljóti og leikni útherji skoraði bæði mörk United. Hill skoraði I fyrra markið eftir aðeins 12 min. — Þá varð Derby-leikmanninum Colin Todd á ljót mistök. Hann 1 sendi knöttinn til Gerry Daly.sem ■ dró að sér vamarmenn og sendi knöttinn svo aftur til Hill, sem skoraöi með óverjandi 'skoti frá I vftateig — knötturinn hafnaði efst þegar Manchester United tryggði sér farseðilinn á Wembley, þar sem liðið mætir Dýrlingunum frá Southampton upp i vinstra markhorninu. Eftir þetta mark tóku leikmenn United-liösins leikinn i sínar hendur og Gordon Hill og Stcve Coppell voru óstöðvandi á könt- unum, þeir léku hina sterku varnarleikmenn Derby oft grátt, með leikni sinni og hraða. Stemmningin var geysileg á áhorfendapöllunum og að sjálf- sögðu voru áhangendur United i meirihluta og sungu kröftuglega og hvöttu sina menn. Þegar 10 min. voru til leiksloka brauzt út gifurleg fagnaðarbylgja — þá gulltryggði Gordon Hill United-liðinu farseðilinn á Wembley, með góðu marki — beint úr aukaspyrnu. Hill var brugðið rétt fyrir utan vitateig — hann var fljótur að stilla knettin- um upp og láta skotið riða af. Knötturinn skall i einum varnar- manni Derby og þaðan skauzt hann i netið — og fögnuðurinn var mikill hjá áhorfendum og hinum ungu leikmönnum United-liðsins. Southampton tryggði sér einnig farseðilinn á Wembley, þegar Dýrlingarnir frá hafnarborginni frægu við suðurströnd Englands, lögðu (2:0) Crystal Palace, að velli á Stamford Bridge i Lundún- um. Leikurinn var mikill baráttu- leikur og sást litið þar af góðri knattspyrnu. Það voru ekki nema 15. minútur til leiksloka, þegar Dýrlingarnir gerðu út um leikinn. PeterOsgood sundraði þá varnarvegg Palace-liðsins og sendi knöttinn til Paul Gilchrist, sem skoraði, Stuttu siðar var Mick Channon brugðið inn i vita- teigi Crystal Palace og vita- spyrna dæmd — úr henni skoraði David Peach Þar með var Southampton komið i úrslit i fyrsta skipti siðan 1902, eða i 74 ár. Southampton hefur tvisvar sinnum leikið til úrslita i bikar- keppninni og i bæði skiptin tapað — fyrir Bury 1900 og Sheffield United 1902. — SOS

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.