Tíminn - 06.04.1976, Qupperneq 4
4
TÍMINN
Þriðjudagur 6. april 1976.
Frumlegir frumsýningargestir ^
Ekki alls fyrir löngu var söng-
leikurinn Tommy frumsýndur i
Hollywood. Engar fregnir hafa
okkur borizt af þvi, hvemig sýn-
ingin tókst, en myndirnar þær
arna sýna áhugasama frum-
sýningargesti. Eftir þeim að
dæma eru það ekki lengur fin-
heitin sem gilda við sli"k tæki-
færi, heldur það að vera sem
frumlegastur i klæðaburði.
Konanmeð ljósa faxið og strúts-
fjaðrirnar er ekki Mae gamla
West, heldur einhver, sem
greinilega hefur lagt hart að sér
til þess að likjast henni sem
allra mest. Og auðvitað til-
heyrði myndarlegt vöðvabúnt
gervinu. A hinni myndinni eru
tveir ungir menn i ákaflega æs-
andi klæðnaði. Sjálfsagt hefði
blessaður jólasveinninn vakið
litla athygli á sliku grimuballi.
Hugmynd skólastjórans dr. Al-
brecht Bahr i Hamborg er ihug-
unarverð. Nemendum hans
ieiddist oft i friminútum. Þeir
reyktu og slógust hver við
annan. Skólastjórinn sá, að eitt-
hvaðþurfti að gera, svo aðhann
brá við skjótt og keypti 100
tennisborð og jafnmarga litla
plastbolta. Og bráðlega höfðu
allir nóg að gera. Jafnt piltar
sem stúlkur sögðu: — Þetta er
stórfint. Uppeldisfræðingar og
sálfræðingar hafa lengi haldið
þvi fram að seta á skólabekkj-
um og basl við úrlausnir á
námsefni tlmum saman byggi
upp heilmikla orku, sem þarfn-
aðist útrásar. Þess vegna hafa
þeir mælt með þvi að þessi um-
framorka sé virkjuð með góðri
likamlegri hreyfingu. Margir
nemendurnir við fyrrnefndan
skála hafa tekið sliku ástfóstri
við tennisborðin, að þau eru orð-
in uppáhaldstómstundagaman
þeirra. Á myndinni er stúlka að
leika tennis.
o
DENNI
DÆMALAUSI
,,Átt þú nokkurn bróður eða syst-
ur?” „Nei ekki ennþá, en ég bið
enn eftir að eignast þau.”