Tíminn - 06.04.1976, Síða 7
Þriðjudagur 6. aprii 1976.
TÍMINN
7
Óheppilegt að fréttir um fyrirhugaðar
fargjaldahækkanir Strætisvagna
Reykjavíkur skuli berast út löngu
fyrirfram
Fyrir nokkru sóttu borgaryfir-
völd Reykjavlkur um fargjalda-
hækkun fyrir Strætisvagna
Reykjavikur. Óskað var eftir 35%
hækkun á öli fargjöld. Þessi
beiðni hefur enn ekki verið sam-
þykkt. — Eftir að fjallað var um
þessa beiðni I borgarráði, og hún
varð opinber, jókst glfurlega
eftirspurn cftir afsláttarkortum,
sem seld eru á Hlemmi og á
Lækjartorgi.
A 5 dögum seldust kort fyrir 7
milljónir króna, en eðlileg sala
hefði verið um 2 milljónir króna.
Þegar kaupæðið hófst, áttu SVR
mánaðarbirgðir af 1000 króna
kortum. og var gripið til þess ráðs
að skammta 2 kort á mann.
Farþegar fundu hins vegar auð-
velda leið til að fara i kringum
þessa skömmtun, fóru á milli
sölustaða og keyptu kort.
SVR ætlaði að reyna að láta af-
sláttarkortin endast út marz-
mánuð, en vonazt hafði verið til
að hækkun tæki gildi 1. aprll.
Gripið var til þess ráðs, að selja
hálfmiða af 100 króna kortum.
Þeir voru uppseldir að kvöldi 2.
april, og verða engir slikir miðar
til sölu þar til svar fæst um hækk-
un. Hins vegar verða 300 króna
miðar til sölu á Hlemmi, Lækjar-
torgi og hjá vagnstjórum.
Hækkun kemur ekki að
sama gagni
Þessi óvenjumikla sala á af-
sláttarkortum hefur haft ýmis
vandræði i för með sér.
Afgreiðslustúlkur SVR hafa orðið
fyrir áreitni, óþægindum og
skömmum, en stofnunin hefur
gert allt, sem i hennar valdi
stendur, til að sinna þörfum
farþega.
Sporvagninn Girnd í
ailra síðasta sinn
Annað kvöld (iniðvikudagskvöld 7. apríl) eru allra siðustu forvöð
að sjá hið vinsæla leikrit Tennessee VViliiains SPORVAGNINN
GIRNP, sem sýnt hefur verið frá þvi i haust við miklar vinsæid-
ir. Sýningar eru nú orðnar 30 talsins. islenzkir ieikhúsgestir
virðast kunna vei að meta þctta verk og hafa lokið miklu lofsorði
á sýninguna og leikarana i aðalhlutvcrkunum: Þóra Friðriks-
dóttir leikur hið erfiða hlutverk Blanche, Erlingur Gislason er
Stanley Kowalski, Margrét Guðmundsdóttir Stelia, kona hans,
og Róbert Arnfinnsson leikur Mitch. Leikstjóri sýningarinnar er
Gisli Alfreðsson.
Myndin er af Þóru og Róbert.
Lestrardeildir undir
landspróf
Vegna fjölda áskorana og óska
nemenda og foreldra þeirra hefur
Halldór Þorsteinsson ákveðið að.
halda eins og sjö undanfarin ár
námskeið i skóla sinum i þyngstu
landsprófsgreinunum, þ.e.a.s. is-
lenzkri málfræði, stafsetningu og
setningafræði, stærðfræði, ensku
og dönsku. Auk þess verður
landsprófsnemendum kennd
eðlisfræði.
Námskeiðin hefjast i april og
lýkur 8. mai.
Kennslutilhögun öll er i eins
fullkomnu samræmi við próftöfl-
una og frekast er unnt. Reyndir
kennarar undirbúa nemendur
undir þetta stórpróf.
Kort fyrir 7 milljónir
seldust á 5 dögum
Sú staðreynd, að fréttir um
fyrirhugaðar fargjaldahækkanir
SVR skuli berast út löngu áður en
stofnunin fær heimild til hækkun-
ar, veldur þvi, að hækkunin kem-
ur ekki að því gagni, er efni
standa til. Afsláttarkort á lægra
verði eru seld fyrir milljónir
króna, og eru notuð löngu eftir að
hækkanir taka gildi.
Þetta er þvi bagalegra þegar
króna á þessu ári, svo að hægt sé
að reka strætisvagnakerfið.
Á siðasta ári gekk rekstur
vagnanna örlitlu betur en gert
var ráð fyrir i áætlun. Framlag
borgarsjóðs var áætlað 216
milljónir, en varð i raun 205
milljónir. Fargjaldatekjur voru
um 280 milljónir króna, og greiðir
þvi borgarsjóður nálega helming
hvers fargjalds.
finna mest fyrir. — SVR-farþegi
greiðir um 3 krónur fyrir hvern
ekinn kilómetra, eða 30 krónur
þessa sömu vegalengd. Þetta eru
jafnaðartölur.
3 nýir vagnar i umferð
Að undanförnu hefur mikil
áherzla verið á það lögð, að
endurnýja vagnakost Strætis-
þess er gætt, að mikill halli er á
rekstri SVR. Aðrar opinberar
stofnanir fá hækkanir fyrirvara-
laust, eða að rekstri þeirra er
þannig háttað, að ekkert er hægt
að ,,hamstra”.
Hefði þurft 70% hækkun
Til að standa undir daglegum
reksturskostnaði SVR, að frátöld-
um vöxtum og afskriftum, hefðu
Strætisvagnar Reykjavikur þurft
að fá 70% hækkun. Fái stofnunin
35% hækkun, verður borgarsjóð-
ur að leggja fram 210 milljónir
30 krónur og 100 krónur
Félag islenzkra bifreiðaeig-
enda hefur reiknað út, að það
kosti 32 krónur og 50 aura að aka 1
kilómetra i einkabifreið af við-
miðunargerð. Er þá allt reiknað
með, tryggingar, afskriftir og
fleira. Bensinkostnaður á hvern
ekinn kilómetra er nálægt 10
krónum i bæjarakstri i einkabif-
reið af meðalstærð.
Að aka úr Breiðholti og niður i
miðbæ kostar þvi um 100 krónur,
ef eingöngu er miðað við bensin-
kostnaðinn, sem bifreiðaeigendur
vagna Reykjavikur. Vagnarnir
hafa aldrei verið betri en nú.
Meðalaldur þeirra er 3-4 ár og
hafa allir nýsmiðaðir vagnar nú
verið innleystir.
Um þessar mundir er verið að
ganga frá þrem nýjum vögnum,
sem væntanlega verða komnir i
notkun i þessum mánuði. Eftir
það verða til dæmis eingöngu nýir
vagnar á leið 5. Frágangur allra
þessara vagna er eins góður og
bezt verður á kosið , og er smiði
þeirra miðuð við það bezta, sem
þekkist i Vestur-Evrópu.
Oili Elín Sandström sýnir að Hallveigarstöðum
DAGANA 1,—4. april stendur yfir
sýning finnsku listakonunnar Oili
Elinar Sandström að Hallveigar-
stöðum við Túngötu i Reykjavik.
Er þetta fyrsta sýning listakon-
unnar hérlendis á þessu ári, en á
liðnu ári hélt hún 3 sýningar hér, i
Hveragerði. Keflavik og i Vest-
mannaeyjum.
Elina Sandström hefur verið
búsett hérlendis i 9 ár en býr nú i
Norður-Finnlandi. Hún hefur
stundað listmálun yfir 25 ár og
hefur náð sérstökum árangri i
gerð ..miniatyrer” eða litlum
oliumálverkum. Að þessu sinni
sýnir hún 58 oliumálverk. málaö-
ar i ..naturalisma” bæði islenzkt
og finnskt landslag og blóma-
myndir.
Sýningin hófst kl. 17 fimmtu-
daginn 1. april. en föstudag til
sunnudag er opið frá kl. 14—22.
Aðgangur er ókeypis.
DYR OG GOÐUR
Bráðnar vel og því
hentugur til matargerðar.
Byggjum upp borðum
Bragðgóður á
brauði, enda gerður úr
Gouda og Óðalsosti.
Skerið hann helst með
strengskera.
ostur
eykur orku
léttir lund