Tíminn - 06.04.1976, Síða 9
Þriðjudagur 6. apríl 1976.
TÍMINN
9
Hlutur Æskulýðsráðs verður
sífellt stærri meðan f ramlög
til íþróttamála standa í stað
"Vil vara við þeirri þróun", sagði Alfreð Þorsteinsson borgarfulltrúi, sem
jafnframt sagði, að fþróttafélögin og önnur félög gætu annað æskulýðsstarfinu
í borginni, ef þau fengju fjármagn Æskulýðsráðs
Alfreð Þorsteinsson borgarfull-
trúi.
A næstsiðasta borgar-
stjórnarfundi, þegar
f járhagsáætlun Reykja-
víkurborgar var til af-
greiðslu, gerði Alfreð
Þorsteinsson íþrótta- og
æskulýðsmálin að um-
ræðuefni og varaði við
þeirri þróun, sem nú á sér
stað. En hann sagði, að
starfsemi Æskulýðsráðs
Reykjavíkurborgar væri
sifellt að aukast og verða
fyrirferðarmeiri á sama
tima og framlög til bygg-
inga iþróttamannvirkja
stæðu í stað eða jafnvel
dregið úr þeim.
„Þetta sést greinilega með
þvi að gera samanburð á fjár-
framlögum til þessara mála-
flokka á undanförnum árum”,
sagði Alfreð. „Það kemur
greinilega í ljós, að það stefnir
óðfluga i þá átt, að Æskulýösráð
og starfsemi þess verði lang-
fyrirferðarmesti þátturinn i
sambandi við æskulýösstarf-
semi i borginni.”
Siðan sagði Aifreð:
Æskulýðsróð að
verða að nýrri
félagsmólastofnun
„Ef við gerum samanburð á 4
árum og byrjum á 1970, þá er
áætlað til eignabreytinga til
æskulýðsmálá 1.5millj. kr.,en til
iþróttamála 19.5 millj. kr. 1973
er það þannig, aö til æskulýðs-
mála fara 2.3 millj., en til
iþróttamála 50.0 millj., 1974 eru
það 16.6 millj., sem fara til
æskulýðsmála, en 60.0 millj. til
iþróttamála, 1976, þ.e.a.s. i
þeirri áætlunn, sem hér liggur
frammi, þá er gert ráð fyrir að
framlag til æskulýðsmála
þ.e.a.s. til eignabreytinga, sé
tæplega 40.0 millj., en til
iþróttamála 50.0 millj. Af þessu
sést hvert hin nýja félagsmála-
stofnun, sem Æskulýðsráð er
óneitanlega að verða, stefnir.
Ég óttast, að það muni koma að
þvi áður en langt um liður, að
Æskulýðsráð og sú starfsemi,
sem fer fram á þess vegum,
hreinlega gieypi bróðurpartinn
af þvi fjármagni, sem varið er
til æskulýðsmála i borginni. Ég
vil spyrja hvort þetta sé nú
heppileg þróun. Er það heppileg
þróun að byggja upp nýja stofn-
un af þessu tagi, sem Æskulýðs-
ráð er, með tilheyrandi launuðu
starfsfólki, á sama tima og
iþróttahreyfingin og ýmsir aðrir
aðilar, sem vinna að æskulýðs-
málum eins og skátahreyfing,
K.F.U.M., bindindisfélög og
ýmsir aðrir aðilar, eiga i mikl-
um erfiöleikum með sinn
rekstur og geta ekki vegna fjár-
skorts sinnt þeim verkefnum,
sem þau gætu annars leyst?
Fjórmagnið yfir
til félaganna
Ég tel þessa þróun ákaflega
neikvæöa og alvarlega ekki sizt
vegna þess, að starfsemi þeirra
félaga, sem ég hef nefnt áður
er að minu mati mun jákvæðari
og uppbyggilegri að mörgu leyti
en sú starfsemi, sem fer fram á
vegum Æskulýðsráðs Reykja-
vikurborgar, sem ber keim. af
rikisrekstri, ef svo má segja.
Með tilliti til þess, hversu seint
fjárhagsáætlunin er á dagskrá,
þá mun ég ekki leggja fram
breytingartillögu við fjárhags-
áætlunina varðandi þetta atriði,
en ég er þeirrar skoðunar, að
það ætti að flytja meginhluta
þess fjármagns, sem Æskulýðs-
ráð hefur til meðferðar, yfir til
hinnna félaganna, vegna þess,
að þessi félög geta séð yngstu
borgur.um Reykjavikur fyrir
þeirri starfsemi, sem æskileg er
á sviði æskulýðsmála.
Getur ekki staðið
við gefin fyrirheit
Ég vil i þessu sambandi vekja
athygli á þvi, hvað raunveru-
lega litið verður framkvæmt i
iþróttamálum á þessu ári.
Borgarstjóri hefur upplýst að nú
væri fyrirhugað að hætta við
framkvæmd á velli i Laugardal,
sem ákveðið var að vinna að i
sumar. Það má benda á þaö, að
það eru mörg félög sem eru að
vinna að framkvæmdum á sin-
um félagssvæðum. Það má
nefna t.d. K.R., sem er að
byggja nýja grasvelli, það má
nefna Þrótt, sem er að hefja
framkvæmdir við nýtt félags-
heimili. Vikingur og Valur eru
aö byggja sina grasvelli, og þaö
er alveg ljóst, að Reykjavikur-
borg mun ekki geta staðið við
þau loforð sem hún hafði gefið
þessum félögum þannig að það
er útilokað að þau geti haldið
þessum framkvæmdum áfram
eins og þau höfðu óskað.
Lítill kraftur
Þab er einnig á öðrum sviðum
sem framkvæmdir i iþrótta-
málum hafa dregizt saman.
Sundlaug Vesturbæjar er á dag-
skrá og mun framkvæmdum við
hana loksins ljúka á þessu ári.
Fyrirhugaö er að byggja nýtt
vallarhús i Arbæjarhverfi, og
um einhverjar framkvæmdir
eöa lagfæringar á Laugardals-
svæðinu verður að ræða. En
það er staðreynd, að það er litill
kraftur i þessum málum og við
höfum t.d. aldrei verið eins
langt frá þvi takmarki okkar og
nú að byggja skautahöll, sem
hefur verið á dagskrá hér i
mörg mörg herrans ár.
Það er sem sé einsýnt, að
fjármagn til iþróttahreyfingar-
innar verður i rýrara lagi á
sama tima og ekkert er sparað
til að byggja upp þennan rikis-
rekna æskulýðsbúskap hjá
Æskulýðsráði Reykjavikur sem
ég vii kalla svo. Ég mun hér á
eftir láta bóka svohljóðandi:
„Ég vil vara við þeirri stefnu-
breytingu i iþrótta- og æsku-
lýðsmálum, sem fram kemur i
þessari fjárhagsáætlun! Hlutur
Æskulýðsráðs verður sifellt
stærri á sama tima og sam-
dráttur er i framkvæmdum við
iþróttamannvirki. Þessi stefna
mun leiða til erfiöleika fyrir
iþróttafélögin i borginni og
'ýmis önnur félagasamtök, sem
vlnna að æskulýðsmálum, t.d.
skátahreyfinguna, bindindis-
félög, skákfélög og K.F.U.M.
þar sem siaukin starfsemi
Æskulýðsráðs mun óhjákvæmi-
lega taka til sin bróðurpartinn
af þvi fjármagni, sem hægt er
að verja til þessarar starfsemi.
Þessi stefna er röng að minu
mati, auk þess sem hún verður
miklu kostnaðarsamari fyrir
Reykjavikurborg, þar sem allt
starfslið æskulýðsráðs er laun-
að.”
BFÖ efnir til
Keppni í vélhjólaakstri og
góðakstri víða um land
FB-Reykjavík. 1 sumar er ætlun-
in að efna til námskeiðs og keppni
i góðakstri fyrir þá, sem eiga vél-
hjól. Námskeið þetta og keppni
verða haldin á vegum Bindindis-
félags ökumanna, og verður það
sniðið eftir sænskri fyrirmynd.
Sænskur maður er væntanlegur
hingað til þess að aðstoða BFÖ-
menn i undirbúningnum, að sögn
Sigurðar Jónmundssonar hjá A-
byrgð.
Sigurður sagði, að starfsemi
sem þessi væri viða i tengslum
við skóla i Sviþjóð, og stæði hún i
nokkurn tima. Unglingarnir
fengju jafnvel fri úr skólum til
þess að sækja námskeiðin og
keppa. Hér verður þetta hins veg-
ar minna i sniðum, og sennilega
aðeins haldið yfir helgi, laugar-
dag og sunnudag.
— Unglingar, sem eiga vélhjól,
hafa mikla löngun til þess að
spreyta sig á ýmiss konar þraut-
um, sagði Sigurður enn fremur. —
Strákar hér fara gjarna inn i
sandgryfjur, og reyndar hvert
sem er, til þess að reyna sig við
brattar brekkur á hjólunum. Þess
vegna höldum við, að þetta eigi
eftir aðfá mikinn og góðan hljóm-
grunn, en um leið og þetta verður
keppni, er ætlunin að hafa
fræðslu, og keppnin verður einnig
i formi spurninga, sem svara þarf
um tæknileg atriði og umferðar-
reglur og þvi um likt.
Ekki er endanlega ákveðið,
hvort vélhjólakeppni þessi verður
haldin viða um land, eða hvenær
hún verður, en Sigurður sagðist
búast við að hún yrði á Akureyri,
auk þess sem hún yrði hér i
Reykjavik.
Þá er ætlunin að BFÖ efni til
góðaksturskeppni i sumar — og
verður hún haldin á einum tiu
stöðum úti á landj. og i Reykja-
vik. Sigurvegararnir frá hverjum
stað munu svo taka þátt i loka-
keppni, svo að lokum verður kjör-
inn „góðakstursmeistari Islands.
Vélbundið hey
til sölu
Upplýsingar að Belgsholti, Melasveit.
Simi um Akranes.
Violet sófasettið
Nútímastíll, sem stenst þó tímans tönn, enda er *
settið byggt til að endast lengi.
Valið efni, frábær
fagvinna, úrval áklæða.
.Skeifán____________________
m KJÖRGARÐI SÍMI16975 SMIDJUVEGl 6 SÍMI44544