Tíminn - 06.04.1976, Page 17

Tíminn - 06.04.1976, Page 17
Skagamönnum Breiöabliks-liðið liefur komið skeinmtilega á óvart i Litlu-bik- arkeppninni i knattspyrnu. Blik- arnir byrjuðu keppnina með þvi að leggja bikarmeistara Kefla- vikur að velli (2:1) i Keflavik — ogá laugardaginn unnu þeirsigur (3:2) yfir islandsmeisturunum frá Akranesi, i Kópavogi. Blik- arnir stefna nú að sigri i keppn- inni, i fyrsta skipti. Gisli Sigurðsson kom Blikunum á bragðið — með þvi að skora úr vitaspyrnu, en siðan varð Bjarni Bjarnason fyrir þvi óhappi að skora sjálfsmark og jafna (1:1) fyrir Skagamenn. Bræðurnir Hin- rik og Einar bórhallssynir svör- uðu fyrir Blikana, með tveimur góðum mörkum fyrir leikhlé. Skagamenn minnkuðu muninn i siðari hálfleik — þegar Jón Guð- laugsson skoraði með þrumufleyg af löngu færi. Bæði liðin sýndu góð tilþrif i leiknum, þrátt fyrir sterkan vind og blautan völl — og lofa liðin góðu fyrir sumarið. Danir sigur- sælir Danir urðu sigursælir á Norður- iandamóti pilta, sem háð var i Laugardalsböllinni um helgina. Þeir tryggðu sér Norðurlanda- meistara titilinn með þvi að vinna stórsigur (17:8) yfir ís- lendingum i siðasta leik móts- ins, en áður höfðu þeir sigrað (10:9) Svia, scm uröu i öðru sæti. tslenzka liðið olli miklum von- brigðum — það var einhæft og lék kerfisbundinn handknatt- leik, sem strákarnir réðu greinilega ekki við. Þá vantaði meirikraft i liðið, bæði i sókn og vörn. Eins og fyrri daginn, þá var markvarzlan mikill höfuð- verkur hjá unglingalandsliðinu. Framarar og Valsmenn tryggðu sér þrjú stig Framarar unnu sigur (4:0) yfir Þrótturum i Reykja- víkurmeistaramótinu i gærkvöldi á Melavellinum og þar með tryggðu þeir sér þrjú stig — tvö fyrir sigurinn og eitt aukastig fyrir að skora meira en þrjú mörk í leik. Kristinn Jörundsson u Marka- Kiddi" var á skotskónum — skoraði 2 mörk, en Mar- teinn Geirsson, vitaspyrna, og Pétur Ormslev skoruðu hin mörk leiksins, sem var frekar þunglamaiegur og litt spennandi. Valsmenn tryggðu sér einnig þrjú stig, þegar þeir mættu Ár- menningum á laugardaginn — með þvi að sigra 4:0. Guðmundur Þorbjörnsson, hinn marksækni miðherji, var hetja Valsmanna — hann skoraði 2 mörk og varð fyrstur til að skora mark i Reykjavikurmótinu. Atli Eð- valdsson og Kristinn Björnsson skoruðu önnur mörk Valsmanna. í kvöld ’verður þriðji leikur Reykjavikurmótsins — þá mæt- ast KR og Vikingur á Melavellin- um kl. 19. —SOS — skelltu Þeir fengu eitt aukastig fyrir að sigra (4:0) andstæðinga sína í Reykjavíkurmótinu í knattspyrnu Blikar í ham IKRISTINN ÍNGASON... sést hér skora mark gegn Dönum. (Timamynd Róbert). Strákarnir sigruðu enn (18:11) og Finna 17:15, en töpuðu (13:15) fyrir Svíum og 8:17 fyrir Dönum. Danir fengu öll aukaverölaun mótsins: — Jörgen Hertzsprung var kosinn bezti markvörður- inn, Henrik Pedersen var kosinn bezti varnarleikmaðurinn og Keld Nielsen var kosinn bezti sóknarleikmaðurinn. Sviinn Sten Sjörgren, Lugi, var mark- hæstur — 18 mörk. Lokastaðan á mótinu varð þessi: Daumörk.......4 4 0 0 62 42 8 Sviþjóð........4 3 0 1 60 45 « isiand.........4 2 0 2 56 58 4 Noregur........4 1 0 3 42 55 2 Finntand......4 0 0 4 4 8 68 0 Ljótör tölur fró Svíþjóð Arangur islenzka kvennalands- liðsins i handknattleik, skipað stúlkum undir 23ja ára aldri, á Norðurlandamótinu, sem fór fram i Kaelstad, er vægast sagt lélegur. Stúlkurnar töpuðu þremur leikjum mcð miklum mun.en sigruöu Finna 11:8. Svi- ar, sem sigruðu islenzku stúlkurnar 20:14, urðu Norður- landameistarar. Islenzku stúlk- urnar töpuðu (12:20) fyrir Dön- um og 12:17 fyrir Norðmömuiin. Það er greinilegt á þessum stór- töpum, að stúlkurnar hafa ekki liaft nægilegt úthald — cn is- lenzkt kvennalið hefur ekki fyrr tapaö mcð svona stórum mun á Noröurlandamóti. ,.Eg hef stefnt að þessu í allan vetur" — sagði Sigurður Horaldsson, eftir að hann hafði tryggt sér sigur í einíiða- og tvíliðaleik á Meistaramótinu f badminton ★ „Gull Haraldur" varð að gera sig ónægðan með silfur SIGURÐUR Haraldsson var heldur betur í essinu sínu á islandsmeistaramótinu í badminton, sem háð var á Akranesi um helgina. Sigurður, sem er nú ókrýndur konungur badminton á islandi, stöðvaði sigurgöngu Haralds „Gull Haralds" Korneliussonar, með því að sigra hann i úrslitaleik einliðaleiksins — 18:15 og 15:9. Sigurður og bráöefnilegur ungur spilari, Jóhann Kjartans- son — sonur Kjartans Magnús- sonar. læknis. fyrrum landsliðs- manns i handknattleik, urðu sigurvtgarar í tviliðaleik. Þeir byrjuðu með þvi að sigra félag- ana llarald Korneliusson og Stcinar Peterseni undanúrslitum 15:13, 11:15 og 15:13 i æsispenn- andi leik, og siðan sigruðu þeir þá Sigfús Ægi Árnason og Ottó Guð- jónsson i úrslitaleiknum — 15:13 og 15:8. Sigurður og Jóhann léku mjög vel saman og er greinilegt að þeir eiga mikla framtið fyrir sér i tvílíðaleik — oft er eins og þeim sé stjórnað frá sama heila. Haraldur, sem varð þrefaldur meistari 1975, þurfti að horfa á eftir þriðju gullverðlaununum, þegar hann og llanna Lára Páls- dottir löpuöu lyrir Lovísu Sigiirðardóltur og Steiuari i úr- slitaleik i tvenndarkeppninni — 8:15. 15:9 og 17:18. Lovisa var hetja meistaramótsins, þvi að hún vann þrenn gullverðlaun i tvenndarkeppninni, einliðaleik. þar sem hún sigraði Ilönnu Láru örugglega 11:1 og 11:1, og siðan báru þær Lovisa og llanna Lára sigur úr býtum i tviliðaleik, með þvi að sigra Svanbjörgu Pálsdótt- urog Ernu Franklinúr KR— 15:8 og 15:5. JÓHANN KJARTANSSON og SIGURÐUR HARALDSSON... voru mjög góðir saman og sigr- uöu i tviliðaleiknum.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.