Tíminn - 06.04.1976, Qupperneq 24

Tíminn - 06.04.1976, Qupperneq 24
it.lUlkUA þeytidreifarinn góð vinn$lubreidd nákvæmar stillingar einnig fyrir sáningu Guðbjörn Guðjónsson Heildverzlun Siðumúla 22 Símar 85694 & 85295 SÍS-IÓMJK SUNDAHÖFN Óeirðirnar í Peking í gær kenndar Hægrisinnum Hæstiréttur hafnar áfrýjun Calleys Reuter, Washington — Hæstiréttur Bandarikjanna neitaði i gær að taka fyrir áfrýjun, þar sem William Calley, fyrrverandi liðþjálfi i bandariska hernum, fór þess á leit að dómur yfir honum vegna fjöldamoröa i Viet- nam yrði gerður ógildur. Dóminn hlaut Calley fyrir morð á aö minnsta kosti tuttugu og tveim Vietnömsk- um borgurum i fjölda- moröunum i My Lai árið 1968. Þessi ákvörðun hæstarétt- ar rekur endi á langa röð réttarhalda og áfrýjana, sem upphófust eftir að hersveit, undir stjórn Calleys myrti nær alla ibúa þorpsins My Lai i Vietnam. Neitun réttarins staðfestir þann dóm að Calley hafi ver- ið sekur af ákærunum sem á hann voru bornar, en breytir engu um þaðað hann heldur frelsi sinu. Frá þvi að her- réttur dæmdi Calley til h'fs- tiðarvistar i fangelsi, fyrir fimm árum hefur hann ekki i fangelsi komið. Calley byggði áfrýjun sina á þvi, að umtal það sem at- burðirnir i My Lai vöktu, hefðu gert það ómögulegt að réttarhöldin yfir honum yrðu réttlát. Einnig hefur hann haldið þvi fram að herinn hafi notað hann sem söku- dólg, þarsem yfirstjórn hans hafi viljað fria sjálfa sig af allri ábyrgð. NTB/Reuter, Peking. — Borgar- stjórinn i Peking, Wu Teh, for- dæmdi i gær óeirðir þær sem urðu i miðborg Peking, þar sem tug- þúsundir manna kveiktu i opin- berri byggingu og mörgum bif- reiðum. Óeirðir þessar eru hinar alvarlegustu sem orðið hafa frá þvi i menningarbyltingunni fyrir tiu árum. Borgarstjórinn sendi frá sér orðsendingu, sem lesin var upp i útvarp og í hátalara við torg hins himneska friðar, eftir að óeirð- irnar höfðu staðið þar allan dag- inn i gær. Þær enduðu með þvi að múgurinn kveikti i opinberri byggingu, þar sem öryggisþjón- ustan er til húsa, og fólk úr hópn- um sem gat troðið sér inn i bygg- inguna kastaði húsgögnum og skjölum niður i logana. Að minnsta kosti tiu manns slösuðust alvarlega i óeirðum þessum, þegar til beinna átaka kom milli mótmælenda og lög- reglu. Margir erlendir frétta- Framhald á bls. 15 Bandaríkin: Carter gæti náð ör- uggrí forystu í dag Reuter, New York. — Demó- kratarnir Jimmy Carter og Henry Jackson, sem keppa að útnefriingu flokks sins sem for- setaframbjóðendur i komandi kosningum, voru taldir liklegir til að vinna mikilsverða sigra i forkosningunum i Wisconsin og New York, sem fram fara i dag. Forkosningarnar i þessum tveim fylkjum gætu gefið Carter, sem áður var fylkis- stjóri i Georgia, afgerandi for- ystu i baráttunni um framboðs- útnefninguna. Carter iagði meginþungann á kosningarnar i Wisconsin, þar sem hann er talinn liklegur til sigurs. Ef svo fer,er hugsanlegt að Morris Udall, þingmaður frá Arizona, neyðist til að hætta kosningabaráttu sinni, en hann hefur einnig lagt mikla áherzlu á baráttuna i Wisconsin. með góðum sigri í Wisconsin og sæmilegu fylgi í New York Henry Jackson, öldunga- deildarþingmaður, er talinn lik- legur til sigurs i kosningunum i New York, en spurningin er hversu mikinn sigur hann vinn- ur. New York fylki sendir tvö hundruð sjötiu og fjóra fulltrúa á þing Demókrataflokksins i júli, en þar þarf frambjóðandi að hljóta atkvæði fimmtán hundruð og fimm fulltrúa til að verða útnefndur forsetaefni flokksins. Wisconsin sendir aftur á móti aðeins sextiu og átta fulltrúa á þingið. Jackson og stuðningsmenn hans telja að hann muni vinna mikinn sigur i New York i dag, sem þýðir að þeir telja hann fá að minnsta kosti hundrað full- trúa. Enda hefur hann lagt mun meiri áherzlu á kosningabarátt- una þar en nokkur annar fram- bjóðandi og hefur varið til henn- ar um sex hundruð þúsund doll- urum. Udall vonast til að verða ann- ar i kosningunum i New York, en Carter nýtur þar greinilega ’ fylgis meðal frjálslyndra kjós- enda flokksins. Brezki Verkamannaflokkurinn: Callaghan kosinn formaður í gær En fylgi Foot virðist gefa til kynna óánægju með valið meðal þingmanna NTB/Reuter, London. — James Callaghan, hinn sextiu og fjög- urra ára gamli utanrikisráðherra Breta, var i gær kjörinn form. Verkamannaflokksins brezka og tók hann við þvi embætti af Har- old Wilson i gær. Callaghan tók þá ennfremur við embætti forsætisráðherra lands- ins. Endanleg úrslit i kosningunum til formanns flokksins fengust i gær, eftir þrjár atkvæðagreiðsl- ur. Callaghan hlaut þá atkvæði 176 þingmanna verkamanna- flokksins i neðri deild brezka þingsins, en helzti keppinautur hans, Michael Foot, verkalýðs- málaráðherra, fékk 137 atkvæði. Callaghan á að baki langan feril i brezkum stjórnmálum og hefur meðal annars gegnt þrem af helztu ráðherraembættum lands- ins: utanrikisráðherra-, fjár- málaráðherra og innanrikisráð- herra... Að mörgu leyti þykir Callaghan liklegur til að halda flokkseining- unni innan Verkamannaflokks- ins, en þó hefur baráttan um for- mannssætið verið harðari en i upphafi var búizt við. Talið er að Foot hafi hlotið það fylgi sem at- kvæðatölur sýna fyrst og fremst vegna þess að margir þingmanna flokksins hafi ekki talið Callag- han nógu afgerandi og harðan. Callaghan hefur einu sinni áður tekið þátt i kosningum til for- manns flokksins, er hann bauð sig fram á móti Wilson árið 1963, en þá varð hann þriðji, á eftir Wil- son og George Brown. Time: Israelar voru reiðubúnir að nota kjarnorkuvopn sín þegar illa gekk á vigstöðvunum við Suez og Gólan 1973 Gaf hún fyrirskipun um að kjarnorkuvopn skyldu notuð gegn Egyptum og Sýrlending- um, þegar ísraelsmönnum gekk iila i Yom Kippur-striðinu? NTB/Reuter, Washington. — ísraelsmenn voru reiðubúnir til að nota atómvopn gegn herjum Sýrlands og Egyptalands i október árið 1973, þegar her ísra- els var aðþrengur á tveim vig- stöðvum, eftir þvi sem Time segir i gær. Alls þrettán kjarnorkusprengj- ur voru settar saman i flýti i Isra- el þá, en áður en til þess kom að þær yrðu notaðar, tókst herjum Israels að snúa vörn i sókn og þær voru fjarlægðar úr flugvélum ísraels á ný. Talsmaður israelska sendi- ráðsins i Washington hefur borið þessi ummæli Time til baka, og segir að þau séu aðeins imyndun. — Israel er ekki kjarnorku- veldi og við verðum ekki fyrstir til að nota kjarnorkuvopn i Mið-Austurlöndum, sgði talsmað- urinn. 1 siðastliðnum mánuði héldu aðilar innan bandarisku leyni- þjónustunnar þvi fram, að ísra- elsmenn ættu milli tiu og tuttugu kjarnorkusprengjur, sem tilbún- ar væru til notkunar. Times skýrði einnig frá þvi á mánudag, að hver sprengja tsra- elsmanna um sig væri af svipaðri stærð og þær sem lögðu japönsku borgirnar Hiroshima og Naga- saki i rúst árið 1945. Það þýðir að hver þeirra samsvarar um 20 þúsund tonnum af sprengiefninu TNT að sprengiorku. Þær má flytja til sprengistaðar hvort heldurermeö sprengjuþotum eða israelsku Jericho-eldflaugunum. Spreng jurnar þrettán voru sett- ar saman á sjötiu og átta klukku- stunda timabili i upphafi Yom Kippur-styrjaldarinnar, þegar Israelski herinn var aðþrengdur á vigstöðvunum við bæði Suez- skurðinn og á Gólan-hæðum. Time segir að þáverandi for- sætisráðherra tsraels, Golda Meir,hafigefiðfyrirskipunum að sprengjurnar yrðu settar saman, eftir að aðrir ráðherrar, meðal annars Moshe Dyan, þáverandi varnarmálaráðherra landsins, hafi lýst þvi yfir að herstaða tsra- els væri slæm. Jafnóðum og sprengjurnar voru tilbúnar voru þær fluttar i flugvélarsem biðu eftir þeim. Að- ur en flugvélarnar hófu sig til flugs náðu herir Israels þó að rétta sinn hlut á báðum vigstöðv- um og þvi voru sprengjurnar ekki notaðar. MlltftSHORNA . Á IVHLLI Palme i Sovét NTB, Moskvu. — ólof Palme, forsætisráðherra Sviþjóðar, kom i gær i opinbera heimsókn til Sovétrikjanna. Þar mun hann ræða við nokkra sovézka leiðtoga, en vafasamt er talið að hann fái viötal við Bréznjev aðalritara sovézka Kommúnistaflokks- ins. Það var Aleksej Kosygin, forsætisráðherra Sovétrikj- anna, sem tók á móti Palme á flugvellinum. Aðspuröur um það, hvort hann myndi koma á framfæri þeirri gagnrýni sem hann hefur undanfariö haft á takteinum um Sovétrikin, svaraði Palme að hann myndi sjá til. Ernir i Noregi NTB, Þrándheimi. — Norsku stofnarnir af Kóngaerni og Haferni eru líklega það stórir að þeir myndu ekki vaxa þdtt alfriðun gengi i gildi. Sam- kvæmt skýrslu frá eftirlits- stofnun með villidýrum og ferskvatnsfiski i Noregi, eru nú að minnsta kosti um átta hundruð verpandi arnarpör i landinu og ef ungir fuglar eru taldir með, munu arnarstofn- arnir telja um þrjú þúsund fugla i allt. Talið er að arnarstofnarnir tveir hafi haldizt nokkurn veg- inn i jafnvægi undanfarin fimmtiu ár og að stærð þeirra sé nú sú sem náttúran sjálf á- kveður þeim. Aftur á móti er varaö við veiðumáörnum,sem geti leitt til óeðlilegrar fækkunar stofn- anna, jafnvel eyðingar. Tilbrigði um stef... Reuter, Paris. — Tuttugu og sex ára gamall Parisarbúi framdi sjálfsmorð i siðustu viku með þvi að láta pianó falia á höfuð sér. Lögreglan segir að hann hafi komið pianóinu upp á undirstöður, sparkað þeim siðan i burtu og látið hljóðfær- ið falla á sig. Þota fórst i Alaska. Reuter, Ketchikan. Flugvél frá flugfélaginu Alaska Air- lines, hrapaði og brotnaði i þrennt skammt frá Ketchikan i Alaska i gær. Fjörutiu og átta manns voru um borð i vélinni, en i gær taldi lögreglan aö þeir ,- hefðu allir komizt lifs af. Þotan hrapaði um fimm hundruð metra frá fiugbraut- inni, brotnaöi i þrennt og varð fljótlega alelda. Fyrstu fréttir sögðu að tuttugu og tveir væru alvar- lega slasaðir. Véiin var i áætlunarflugi frá borginni Juneau, fyrir norðan Ketchikan, til Seattle, með fjörutiu og einn farþega. Ahöfn hennar var sjö manns. Veðurskilyrði á svæðinu voru slæm, rigning, slydda og þoka. Teknir af lífi Rcuter, Addis Ababa.— Fjór- ir menn, sem fundnir voru sekir um að ráðast á einu oliu- hreinsunarstöðina i Eþiópíu i nóvember siðastliðnum, voru teknir af lifi i gær, eftir þvi sem fréttastofa landsins sagði i gærkvöld. Ellefu aðrir voru dæmdir til fangelsisvistar, allt frá einu ári til lifstiöar. í árásinni á oliuhreinsistöð- ina skemmdu mennirnir þrjá eldsneytistanka.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.