Tíminn - 13.04.1976, Side 3
Þriðjudagur 13. april 1976.
TÍMINN
3
Sjómenn ó Austurlandi:
Samningarnir felldir:
131 atkvæði gegn 19
gébé Rvik — Sjómenn á Austur-
landi felldu kjarasamningana
með 131 atkvæði gegn 19. Að sögn
Sigurðar Guðmundssonar, hér-
aðssáttasemjara á Austurlandi,
var þátttaka mjög góð i atkvæða-
greiðslunni, sennilega yfir 80%.
Sigurður sagði, að þótt búizt hefði
verið við að samningarnir yrðu
felldir, var varla búizt við svo
geysilegum atkvæðamun sem
raun bar vitni. Atkvæðatalning-
unni lauk á Eskifirði seinni hiuta
dags i gær. Verkfail sjómanna
hefur ekki verið boðað á Austur-
landi, en minnst viku fyrirvara
þarf til verkfallsboðunar.
Nýbúið var að telja atkvæðin
hjá héraðssáttasemjara, þegar
Timinn náði tal af honum, og
sagði hann að enn hefði ekkert
verið rætt um, hvert yrði næsta
skrefið i þessum málum.
Eins og áður segir, voru sanui-
ingarnir felldir með 131 atkvæði
gegn 19, 1 seðill var ógildur og 1
auður. Sjómenn greiddu atkvæði
þegar skip þeirra komu að landi,
og voru innsiglaðir kjörkassar og
önnur kjörgögn send sr. Sigurði
Guðmundssyni, héraðssátta-
semjara á Eskifirði. Sigurður
sagðist ekki vera búinn að reikna
út heildarþátttökuna i atkvæða-
greiðslunni, en hún hefði verið
mjög góð, sennilega yfir 80%. — A
Eskifirði var þátttakan 87%,
sagði Sigurður.
Aðalágreiningsefnið er skipta-
prósenta sjómanna á skuttogur-
unum, sem þeir vilja ekki sætta
sig við.
Góð færð er víða
— margir vegir verða ruddir á skírdag og annan
í páskum, ef þarf
Mó-Reykjavik.Vegagerö rikisins
mun opna vegi þá, sem venjulega
eru ruddir á föstudögum, á
fimmtudaginn kemur, skirdag,
og einnig veröur mokstri, sem
fram á að fara á þriðjudag eftir
páska, flýtt um einn dag, og vegir
því opnaðir á annan í páskum.
Einnig verða vegir ruddir á
þriðjudag eftir páska, ef veöur
leyfir.
Sérsamningar BSRB:
Lýkur ekki fyrr
en í maí
OÓ-Reykjavik. Þótt búið sé að
ganga frá heildarkjarasamningi
milli BSRB og f jármálaráðu-
neytisins, er enn mikið óunnið i
samningamálum opinberra
starfsmanna. Einstök banda-
lagsfélög eiga eftir að semja um
ýmsa sérsamninga, íyrst og
fremst röðun i launaflokka, það
er röðun sinna félagsmanna inn i
þann ramma, sem heildar-
samningarnir eru.
Viðræður um þessi atriði fara
af stað fljótlega eftir páska. Þá
koma bæjarstarfsmannafélögin,
sem eiga eftir að gera ramma-
samninginn við sinar bæjar-
stjórnir. Starfsmenn Reykja-
vikurborgar gengu frá sinum
samningi s.l. föstudag, en öll
önnur starfsmannafélög bæja
eiga enn eftir að ganga frá sinum
samningi.
Aðalatriðið i sérsamningum
aðildarfélaga BSRB er niður-
röðunin i launaflokka, en fleiri
atriði koma þar inn i. Um þessa
samninga hafa félögin ekki verk-
fallsrétt, samkvæmt nýgerðum
rammasamningi, og munu ekki
fá i framtiðinni. Nær verkfalls-
rétturinn einvörðungu til heildar-
kjarasamningsins, en ekki sér-
samninga félaganna, heldur
gildir þar gerðardómur, ef ekki
tekst að semja.
Hjá sumum aðildarfélögum
BSRB er nú mikið verk framund-
an við sérsamninga, en minna hjá
öðrum. Félögin eru misjöfn að
stærð og uppbyggingu og mis-
munandi atriði, sem taka þarf
tillit til. Eitt af þvi sem eftir er að
ganga frá er 1% kjarabót, sem
félögin verða sjálf að ákvarða
hvernig verður skipt. Er þetta
sambærilegt við heildarkjara-
samninga ASl, og var félögunum
i sjálfsvald sett, hvernig rétt-
látast væri að skipta eina
prósentinu.
Lagafrumvarpið um nýju
kjarasamningalögin verður lagt
fyrir Alþingi strax eftir páska.
Eiga nýju lögin að ná til þessara
sérsamninga, að sögn Haraldar
Steinþórssonar hjá BSRB, og
lýkur samningagerð liklega ekki
fyrr en i mailok.
Þetta er gert til þess að fólk eigi
auðveldara með að nota páska-
helgina til ferðalaga innanlands,
og eins vegna þess að allur
mokstur liggur niðri á föstu-
daginn langa.
Yfirleitt er allgott ástand á
vegum landsins, og i dag er búizt
við að fært verði frá Reykjavlk og
allttil Vopnafjarðar. Þó er liklegt
að ekki verði fært nema fyrir
stóra bila frá Kópaskeri til
Vopnafjarðar. Þá verður á
morgun rutt til Hólmavikur og
Siglufjarðar.
í gær var Kerlingaskarð og
Fróðárheiöi ófær, en fært var um
Heydal. Fróðárheiði verður rudd
i dag. Þá er búizt við að fært verði
vestur i Gufudalssveit, en í gær
var ófært á Hjallahálsi.
Á Vestfjörðum var i gær fært
frá Þingeyri til Flateyrar, og
veriö var aö moka Botnsheiði og
Breiðadalsheiði. Þá var fært frá
ísafirði til Súðaviliur, og stdrum
bílum og jeppum var fært inn i
Djúp.
I gær var verið að moka Fjarð-
arheiði og Oddsskarð, og einnig
var verið að moka Lónsheiði. Má
þvi búast viö aö i dag verði fært
með suðurströndinni og allt aust-
ur á Hérað.
Möðrudalsöræfi hafa verið
mjög snjólétt i vetur og oft á
tiðum verið fær. Ekki munu þau
þó vera fær þessa dagana.
Snjóbllar hafa fengið mikið fri I
vetur, og t.d. hefur aldrei verið
farið á snjóbil yfir Fjarðarheiði.
í lok loðnuvertíðar:
Loðnumjöl þegar selt
fyrir 2.525 milljónir
— síðdsta loðnan barst á land
8. apríl
gébé Rvik — Samkvæmt
bráðabirgðatölum I lokaskýrslu
Fiskifélags íslands um loðnu-
vertiðina I ár, reyndist heildar-
magnið 337.932 tonn, eöa 124.298
tonnum minna en I fyrra. Sið-
asta loðnan barst á land þann 8.
april. Sigurður RE 4 varð lang-
afiahæstur, með samtals 13.309
tonn. Þá var langmest af loðnu
landaö I loönuskipiö Norglobal á
vertiðinni, eða samtals 60.249
tonnum. — Samkvæmt upplýs-
ingum frá viðskiptaráðuneytinu
er svo til allt loðnumjölið selt,
og er heildarverðmæti þess, eða
tæpra 50 þús. tonna, 2.525 mill-
jónir fslenzkra króna, miðað við
núverandi gengi. Þá hafa um 11
þúsund tonn af loðnulýsi verið
seld, að verðmæti 605 miilj. kr.
Rússar munu nýlega hafa sýnt
áhuga á kaupum á loðnumjöli,
en litlar likur eru taldar á að
hægt verði aö sinna þeirri
beiðni.
Samkvæmt upplýsingum frá
Stefáni Gunnlaugssyni, deildar-
stjóra i viðskiptaráðuneytinu,
er svo til allt loðnumjölið selt,
alls tæplega fimmtiu þúsund
tonn að heildarverðmæti 2.525
milljónir islenzkra króna, mið-
~að við núverandi gengi. Stærstu
kaupendurnir eru Bretland,
Finnland, Pólland, Austur- og
Vestur-Þýzkaland, Portúgal og
Ungverjaland. Stefán sagði, að
sáralitið væri enn óselt af loðnu-
mjöli, enda heföi loðnuveiðin
verið léleg siðan um miðjan
marzmánuð.
Ólafur Jónsson hjá sjávarút-
flutningsdeild Sambandsins,
sagði að i siðustu viku hefði bor-
izt beiðni frá Rússum um loðnu-
mjölskaup. Sagði Ólafur, að það
mál væri nú i athugun, en að litl-
ar likur væri á að hægt væri að
sinna beiðninni, þar sem hún
kæmi þetta seint, t.d. heföi verið
gengið frá samningum við
Rússa i febrúar i fyrravetur. Nú
væri mjög litið magn af loðnu-
mjölinu óselt.
Um ellefu þúsund tonn af
loðnulýsi hafa verið seld, að
heildarverðmæti 605 millj.
króna, miðað við núverandi
gengi, að sögn Stefáns Gunn-
laugssonar deildarstjóra.
A loðnuvertiðinni i ár fengu
alls 76 skip einhvern afla, en
vofu 107 i fyrra. Hæstu löndun-
arstaðir voru:
tonn
Norglobal 60.249
Vestmannaeyjar 40.326
Reykjavik 30.957
Seyðisfjörður 26.153
Hér á eftir fer aflamagn
þeirra 65 skipa, sem fengu yfir
eitt þúsund tonna afla á loðnu-
vertiðinni 1976:
-— tonn
Sigurður RE 4 13.309
Guðmundur RE 29 11.759
BörkurNK 122 10.607
GIsli Arni RE 375 10.514
Grindvikingur GK 606 10.104
Eldborg GK 13 10.034
Helga Guðmundsd. BA 77 9.448
Loftur Baldvinss. EA 24 '9.134
HilmirSU 171 8.898
Fifill GK 54 7.928
Asbeig RE 22 7.812
HákonÞH 250 7.722
Rauðsey AK 14 7.210,
Óskar Magnússon AK177 7.145
Súlan EA 300 6.933
Arni Sigurður AK 370 6.897
örn KE 13 6.867
Gullberg VE 292 6.823
Pétur Jónsson RE 69 6.659
Hrafn GK12 6.556
Jón Finnsson GK 506 6.205
NáttfariÞH60 5.870
DagfariÞH70 | 5.691
Huginn VE 55 5.555
Asgeir RE 60 5.482
Flosi IS 15 5.461
Reykjaborg RE 25 5.284
Sæbjörg VE 56 5.232
Þórður Jónasson EA 350 4.964
ÞorsteinnRE 303 4.681
Bjarni Ólafsson AK 70 4.636
Helga II RE 373 4.636
Óskar Halldórsson RE 157 4.604
Harpa RE 342 4.539
Isleifur VE 63 4.456
Albért GK 31 4.206
Sæberg SU 9 4.202
Alftafell SU 101 4.169
Helga RE 49 4.121
Skirnir AK16 3.853
MagnúsNK72 3.758
Svanur RE 45 3.755
Hrafn Sveinbj.ss. GK 255 3.729
Keflvikingur KE 100 3.629
SveinnSveinbj.ss. NK55 3.572
Skógey SF 53 3.337
Vörður ÞH 4 3.252
Húnaröst AR 150 3.025
Kristbjörg VE 70 3.014
Arsæll KE 77 2.741
Lárus Sveinsson SH 126 2.521
FaxiGK 44 2.463
Vonin KE 2 2.275
Höfrungur III AR 250 2.236
Óiafur Magnússon E A 250 2.103
ArnarnesHF52 1.938
Arsæll Siguröss. GK 320 1.916
Viðir AK 63 1.884
_Bergur VE 44 1.814
—Snæfugl SU 20 1.794
SigurbjörgOF 1 1.630
Gunnar Jónsson VE 500 1.430
Þórkatla II GK 197 1.418
Ljósfari ÞH 40 1.364
Bjarnarey VE 501 1.108
O Höfðum það
inn upp var Reynir Haukur
Hauksson enn niöri, en hann
komst einnig upp, að vísu
skrámaöur og hálfrotaður. Hann
náði i fleka og hélt sér uppi ^.á
honum, þar til skipverjar á
Hrafni náðu honum. Reynir
Haukur liggur nú i sjúkrahúsinu i
Keflavlk.
Skipverjarnir á Alftanesinu
báðu Timann fyrir sérstakar
þakkir til áhafnarinnar á Hrafni
Sveinbjarnarsyni II fyrir snar-
ræðiö ogsögðu aðþaöværi engum
vafa undirorpið, aö þeir ættu
henni llf sitt að launa.
Aö lokum spurðum við skip-
verjana þrjá hvort þeir væru
ákveðnir i að fara á sjóinn aftur.
Þeir svöruðu því játandi og
sögöu:
— Viö förum strax eftir páska.
Þaö þýðir vist ekkert aö segjá sig
á sveitina.
O Allir hefðu
við náðum honum strax, en hinn
lá á grúfu og virtist meðvitundar-
laus. Ég náði aö krækja I hann
með fiskihaka, en það mistókst i
fyrstu tilraun, en í þeirri annarri
náði hakinn góðri festu og gátum
við með naumindum komið
manninum inn fyrir borðstokk-
inn. Hann var þá oröinn helblár
og hafði misst meðvitund, en tók
fljótlega við sér eftir að viö notuð-
um blástursaðferðina sagði
Ragnar.
Skipverjarnir voru allir mjög
kaldir þegar viö náðum þeim og
skulfu svo, að þeir gátu ekki
haldið á kaffibolla, sagði Ragnar
að lokum.
Húsfreyjan er
komin út
Húsfreyjan, blað Kvenfélaga-
sambands Islands, 1. tbl. 27.
árgangs er komið út. I blaðinu
er sagt frá Þingi Húsmæðra-
sambands Norðurlanda, Thor-
valdsensfélaginu 100 ára og
Barböru Arnason listakonu er
minnzt. Þá svara nokkrar
konur spurningum Húsfreyj-
unnar varðandi útifund
kvenna á degi Sþ. —
Kvennafri á tslandi. Margt
fleira athyglisvert efni er i
blaðinu, sem er 50 til 60 siður
Nýr togari til Dalvíkur
KS-Akureyri — A föstudag
kom til Akureyrar skuttog-
ari, sem smiðaður er fyrir
útgerðarfélag Dalvfkinga, I
Flekkefjord i Noregi 437 lest-
ir að stærð. Hingað til lands
var togarinn dreginn af
björgunarskipinu Goðanum,
þar sem eftir er að ganga frá
öllum vélbúnaði skipsins og
veröur það gert I Slippstöð-
inni á Akureyri. Einnig sér
Slippstöðin um allar innrétt-
ingar i skipið, svo og raf-
lagnir og allan lokafrágang á
togaranum. Fljótlega verður
hafizt handa við frágang
skipsins, og áætlað er að af-
hending fari fram i nóvem-
ber næstkomandi. Við til-
komu hins nýja skips til Dal-
vikúr, má búast við að at-
vinnuástand i bænum verði
mjög gott. A Dalvik er fyrir
cinn skuttogari, Björgvin, og
hefur hann verið aðalhráefn-
isaflari fyrir frystihúsið