Tíminn - 13.04.1976, Blaðsíða 6
6
TÍMINN
Þriðjúdagur 13. aprll 1976.
’ m
Húsakostur Rannsóknastofnunar
byggingariðnaðarins i Keldna-
holti.
Hægra megin á myndinni er nýja
álman, viðbyggingin við rann-
sóknarstofurnar.
Frá 100. stjórnarfundinum.
Fremst á myndinni er Gissur
Simonarson, en honum á vinstri
hönd situr Pétur Stefánsson siðan
Hákon ólafsson, Halldór Jónsson,
Gunnar S. Björnsson, Gunnlaug-
ur Pálsson, Sigfús örn Sigfússon,
Haraldur Asgeirsson og Guð-
mundur Magnússon.
Rannsóknastofnun
byggingariðnaðarins:
100. stjórnar-
fundurinn
— ný álma tekin í notkun, sem
gjörbreytir starfsaðstöðu
stofnunarinnar
ins og Hagstofu íslands um út-
reikninga og útgáfu á fjölþættum
visitölum,, sem unnar eru i sam-
ræmi við kostnaðarkerfi Rann-
sóknastofnunarinnar. Á 100.
stjórnarfundinum lágu út-
reikningar fyrir á visitölum
byggingarhluta i handunnu
formi, sem siðar kæmi i tölvu-
færðu formi. 1 ljós kom við fyrstu
útreikningana, að byggingarvisi-
tala hafði verið svo til óbreytt frá
1. nóvember 1975 til áramóta, og
aö á fyrsta ársfjórðungi þessa árs
haföi hún hækkaö óverulega, eða
um liölega 5%. Hinsvegar bar
nokkuð á mismun milli visitalna
einstakra byggingarhluta (sjá
meðf. geiraskiptingu).
A fundinum var einnig rætt um
þá samvinnu, sem tekizt hefur við
Húsnæðismálastofnun rikisins, en
hún hefur verulega styrkt marg-
vislegar rannsóknir við Rb.
Vonast er til aö samstarf þetta
hafi gagnkvæm jákvæð áhrif og
gébé Rvik — Rannsóknastofnun
byggingariðnaðarins hélt sinn
hundraðasta sjórnarfund þann 31.
marz s.l., en I tilefni þess boðaði
stjórnin blaðamenn á sinn fund og
kvnnti þeim starfsemi stofnunar-
innar.
Nýiega var tekinn i notkun hluti
af nýrri álmu, sem er viðbygging
við hús stofnunarinnar i Keldna-
hoiti og var 100. stjórnarfundur-
inn haldinn þar. Álma þessi bætir
úr brýnni húsnæðisþörf
stofnunarinnar, og með þvi að
taka hana i notkun, gjörbreytist
starfsaðstaða stofnunarinnar.
Eitt megin verkefni stofnunar-
innar er útgáfustarfsemi, og
hcfurnýlega verið gefíð út á veg-
um hennar rit, sem nefndist
Hljóðtæknifræði, hljóm-
burður — hljóðeinangrun, sém
mun vera fyrsta ritið sinnar
tcgundar sem keinur út á is-
lenzku.
Samstarf hefur verið hjá Rann-
sóknastofnun byggingariðnaðar-
aö um verulega aukningu hús-
næðisrannsókna verðiaö ræða. —
Um samstarf stofnunarinnar við
Vegagerð rikisinserþað að segja,
að verið er aö ganga frá samningi
við vegagerðina um verulega
aukna rannsóknavinnu og vega-
rannsóknir hjá Rb. Nú mun vera
að komast fastara mótá samstarf
þessara tveggja stofnana en
verið hefur, en það hefur verið
hvati að jarðtæknirannsóknum
viö Rb og auknum tækjabúnaði.
Samkvæmt hinum nýja samningi
mun einn starfsmaöur Rb vinna
eingöngu að rannsóknastörfum i
þágu Vegagerðar rfkisins, og er
þetta talinn vera vísir að vega- og
gatnadeild hjá Rannsóknastofnun
byggingariðnaðarins.
undirtektir og forráðamenn Rb
hrós fyrir.
Eitt megin verkefni stofnunar-
innar I útgáfustarfsemi hefur
verið útgáfa tækniblaða,
Rb-blaða, i lausblaöaformi, sem
safnaö er saman i þar til gerðar
möppur og sent áskrifendum, en
auk þess selt i lausu til þeirra,
sem not hafa fyrir þau. Meðal út-
kominna verkefna hjá Rb eru
þessi: Jarðvatnslagnir við hús;
pök, hlutverk, gerðir og vanda
mál: Gólfeiningar: Bygginga-
samþykkt, fyrir skipulagsskylda
staði utan Reykjavikur: Og
Skipuiagsdrög.
Þá hefur stofnunin nýlega gefið
út rit sem nefnist Hljóðtækni-
fræði, hljómburður—hljóð-
einangrun. Rit þetta er hið fyrsta
sinnar tegundar, sem kemur út á
islenzku, og á án efa eftir að njóta
vinsælda hjá mörgum, m.a.
námsmönnum, sem þetta efni
nema.
Stjórnarformaöur Rannsókna-
stofnunar byggingariðnaðarins er
Guðmundur Magnússon, en i
stjóminni eru auk hans, Sigfús
örn Sigfússon, Gunnar S. Bjöms-
son, Gissur Simonarson, Pétur
Stefánssm og Halldór Jónsson.
Forstjóri stofnunarinnar er
Haraldur Ásgeirsson, Hákon
Ölafsson er yfirverkfræðingur og
Gunnlaugur Pálsson deildar-
stjóri, og sér hann jafnframt um
útgáfustarfsemina.
..............T l i
Bilasalan Höfðatúni 10
SELUR ALLA BÍLA:
Fólksbíla — Stationbíla
Jeppa — Sendibila
Vörubíla — Vöruflutningabíla
14 ára reynsla i bflaviðskiptum. Opið aila .
' virka daga kl. 9—7, laugardaga kl. 1—4. ■
Bílasalan Höfðatúni 10 <
Umræður hafa verið milli
Rannsóknastofnunar byggingar-
iðnaðarins og Verkfræði— og
raunvisir.dadeildar Háskóla
Islands, um aðstöðu fyrir prófess-
ora Háskólans til rannsókna við
Rb. Telur stjórn Rb, að slik tengsl
geti verið mikilvægur þáttur til
próunar rannsóknarstarfsemi i
landinu.
I ágúst á s.l. ári var haldin
ráðstefna I Reykjavik um efna-
breytingar i steinsteypu, en
Rannsóknastofnun byggingar-
iðnaðarins gaf út bók nýlega, sem
inniheldur alla fyrirlestra og
annað, sem þar kom fram. Er
bókin á ensku og hefur verið send
viða um lönd og hlotið hinar beztu
m .....— >
Geiraskipting byggingarkostnað-
ar. 1. undirbygging, 2. yfir-
bygging, 3. frágangur yfir-
byggingar, 4. innréttingar, 5. út-
búnaöur, 6. ytri frágangur og 7.
ýmislegt annaö.