Tíminn - 13.04.1976, Side 17
Þriðjudagur 13. april 1976.
TÍMINN
17
— Hann er frábær handknattleiksmaður, sem kæmist i
hvaða landslið sem er, sögðu leikmen Partizan Bjelovar
um Geir Hallsteinsson, sem átti stórkostlegan leik með
Suðvesturlandsúrvalinu, þegar það skellti Partizan
(28:23) í Laugardalshöllinni á sunnudagskvöldið.
GEIR Hallstcinsson átti stór-
kostlegan leik — lék eins og hann
bezt getur leikið. Hann var al-
gjörlega óstöðvandi, þann tima
sem hann var inni á — hvað eftir
annað stökk Geir upp fyrir fram-
an júgóslavneska varnarvegginn
og skot hans, öflug eins og fall-
byssuskot, höfnuðu aftur og aftur
i marki Partizan, án þess að
markvörður liðsins hefði nokkur
tök á að verja. Já, allra augu
mændu á Geir, sem var svo
sannarlega i sinum gamla góða
ham — hann lék við hvern sinn
fingur. Geir skoraði 6 gullfalleg
mörk —fjögur meðöflugum lang-
skotum, sem höfnuðu upp undir
þverslánni, út við stöng og siðan
tvö eftir skemmtileg gegnum-
brot. Þá átti Geir tvær stórgóðar
linusendingar, sem gáfu mörk —
hann gaf aðra linusendinguna aft-
ur fyrir sig, eftir að hann var bú-
inn að leika leikmenn Partizan
grátt. Skotnýting Geirs var mjög
góð i leiknum — hann skaut 7
sinnum, skoraði 6 mörk og eitt
skot hans skall i stöng Partizan-
marksins.
Pálmi Pálmason sýndi einnig
mikið öryggi i leiknum, hann var
sterkur i vörn, og þá sýndi hann
gifurlegt öryggi i vitaköstum —
skoraði 4 mörk úr vitaköstum og
auk þess 2 mörk eftir hraðupp-
hlaup og 1 mark eftir gegnum-
brot, eða alls 7 mörk. Það hefði
ekki verið ónýtt að nota þá Geir
og Pálma i landsliðinu i vetur —
en þvi miður gáfu þessir tveir
snjöllu leikmenn ekki kost á sér i
landsliðið. Guðjón pjrlendsson
stóð allan timann i markinu og
varði hann oft á tiðum mjög vel.
Þá var fyrirliðinn Árni Indriða-
son sterkur i vörn og einnig
drjúgur i sókn — og einnig voru
þeir Jón Karlsson og Guðjón
IVlagnússon virkir i sóknarleikn-
um. Allir leikmenn Suðvestur-
landsúrvalsins, að undanskildum
markvörðum, skoruðu i leiknum,
en mörkin skiptust þannig: Pálmi
7 (4), Geir 6, Guðjón 4, Jón 3, Arni
3, Viðar Simonarson 1, Hilmar
GEIR H ALLSTEINSSON ....
skoraði 6 glæsilcg mörk gegn
Partizan Bjelovar.
(Timamvnd Róbert)
Björnsson 1, Steindór Gunnarsson
1, Stefán Halldórsson 1 og Axel
Friðriksson 1.
— sos
Kristbjörg
aftur v-þýzk-
ur meistari...|
KRISTBJÖRG Magnúsdóttir,
eiginkona Axels Axelssonar, og [
vinkonur hennar I Eintrach Mind-
en, tryggðu sér v-þýzka meist-
aratitilinn i handknattieik kvenna
um hclgina, þegar þær sigruðu
(12:10) BayernLeverkusen i úr-
slitaleik. Þetta er þvi annað árið i
röð, sem Kristbjörg verður v-|
þýzkur meistari.
BORAC
BANJA
LUKA
Evrópumeistarar
eir var óstöðvandi...
| Gei
Snillingar Partizan
réðu ekki v
jfallbyssusk
Geir skoraði 6 glæsiieg mörk og
Suðvesturlandsúrval sigraði Partizan
Bjelovar með 5 marka mun — 28:23
BORAC BANJA LUKA frá Júgó-
slaviu tryggði sér Evrópumeist-
aratitiiinn I handknattleik, þegar
liðiö sigraði (17:15) Fredericie
KFUM frá Panmörku i úrslitaleik
Evrópukeppninnar, sem fór fram
i Banja Luka.
FH-ingar
léku langt
undir getu
FH-ingar léku langt undir getu,
þegar þeir mættu Partizan
Bjelovar i Laugardalshöllinni.
Þeir veittu Júgóslövunum enga
keppni — og Partizan vann stór-
sigur, 26:19. Mörk FH skoruðu:
Viðar 6, Arni 4, Geir 3, Guðmund-
ur Arni 3, Gils 1, Kristján 1 og
Guðmundur Sveinsson 1.
Dankersen fékk skell á Spáni...
AXEL Axelsson, ólafur H.
Jónsson og félagar þcirra I
Grun-Weiss Pankersen, misstu
af Evrópumeistaratitli bikar-
hafa I handknattleik, þegar þeir
töpuðu fyrir spánska liöinu
Granollers (24:26) i úrslitaleik
keppninnar, sem fór fram i
Barcelona á Spáni.
Orslitaleikurinn átti upphaf-
lega að fara fram i Bremen i V-
Þýzkalandi, og var byrjað að
undirbúa allt fyrir hann. En þá
kom spánskur milljóneri til
skjalanna og keypti leikinn til
Spánar. Leikmenn Dankersen
geta sjálfum sér um kennt,
hvernig fór siðan á Spáni — þeir
fóru illa að ráði sinu i úrslita-
leiknum og misnotuðu mörg góð
marktækifæri, sem varð þeim
dýrkeypt. Staöan var t.d. jöfn
(21:21) þegar aðeins 5 sekúndur
voru til leiksloka — þá fékk
Dankersen knöttinn, og leik-
menn þess þeystu i hraðaupp-
hlaup. sem þeir klúðruðu.
Þá var leikurinn framlengdur
og i framlengingunni var Axel
Axelssyni visað af leikvelli i 5
minútur, eftir að hann hafði lent
i árekstri við einn Spánverj-
anna. Þessar þýðingarmiklu 5
min. — helminginn af framleng-
ingunni — nýttu Spánverjarnir
fullkomlega og náðu tveggja
marka (24:22) forskoti. sem
þeir héldu út leikinn og sigruðu
26:24. Axel og Olafur voru beztu
menn Dankersen-liðsins. þeir
skoruðu sln 5 mörkin hvor.
—sos 1
|Reyndir leikmenn í
|hverju rúmi
— í Polar Cup-liðinu
Stöðva r
Valur sigur-
göngu FH?
tslands- og bikarmeistarar FH
leika gegn Valsmönnum Ibikar-
úrslitaleiknum i handknattleik,
sem fer fram i Laugardalshöll-
inni i kvöld kl. 21. Það er ekki að
efa, að leikurinn verður fjörug-
ur og spennandi — og eru Vals-
ntenn sigurstranglegri, þar sem
FH-ingar virðast nú vera i öldu-
dal.
Aður en leikur FH og Vals
hefst, verða leiknir tveir
úrslitaleikir. Flensborg og
Gagnfræðaskólinn við Lindar-
götu leika til úrslita i keppni
framhaldsskóla kl. 19.30, og
siðan leika Fram og Armann til
úrslita i bikarkeppni kvenna.
— Við stefnum að þriðja sæt-
Iinu I Polar Cup, sagði Gylfi
Kristjánsson, formaöur lands-
liðsnefndar karla i körfuknatt-
leik, þegar hann tilkynnti hvaða
10 leikntenn myndu skipa lands-
liöshópinn, sem færi til Kaup-
mannahafnar 22. april til að taka
þátt i Polar Cup-keppninni i
körfuknattleik.
Kaupmannahafnarfararnir
voru endanlega valdir eftir tvo
sigurleiki (84:75 og 102:84)
tslendinga gegn Portúgölum i
Njarðvik um helgina. — Strák-
arnir sem leika i Kaupmannahöfn
eru tvimælalaust okkar sterkustu
leikmenn um þessar mundir, og
ég tel liðið mjög sterkt. Að visu
vantar þá Kristinn Jörundsson og
Þorstein Hallgrimsson i liðið,
sagði Gylfi.
Landsliðshópurinn er skipaður
þessum leikmönnum:
Bakverðir:
Kolbeinn Kristinsson, tR.
Kolbeinn Pálsson, KR.
Kári Mariusson, Njarðvik
Jón Sigurðsson. Armanni.
í körfuknattleik
Framherjar:
Agnar Friðriksson, tR,
Birgir Jakobsson, !R
Þórir Magnússon, Val.
Simon Olafsson. Ármanni.
Miðherjar:
Bjarni Gunnar, tS
Jónas Jóhannesson, Njarðvik.
Eins og sést, þá er liðið geysi-
lega öflugt á pappirnum —revnd-
ir leikmenn i hverju rúmi.
Guðrún
tvöfaldur
meistari
GL'NNAR Finnbjörusson og
Ragnar Ragnarsson, Erninum,
tr\ggðu sér islandsmeistaratit-
ilinii i tviliðaleik i borðtennis,
eftir æsispennandi og fjörugan
úrslitaleik gegn Keflvikingunum
Jóni Sigurðssyni og Hirti Jó-
hannssyni. Eftir að staðan hafði
verið jöfn (2:2) þurftu kapparnir
að leika úrslitaleik. sem lauk meö
sigri þeirra Gunnars og Ragnars
— 27:23.
Guðrún Einarsdóttir úr Gerplu
varð sigursæl — hún varð tvöfald-
ur meistari. Guðrún sigraði i tvi-
liðaleik ásamt Karólinu Guð-
mundsdóttur og siðan varð hún
sigurvegari i tvenndarkeppninni
ásamt Stefáni Konráðssvni.