Tíminn - 13.04.1976, Page 20
þeytidrei íarinn
góð vinnslubreidd
nákvæmar stillingar
einnig fyrir sáningu
Guöbjörn Guöjónsson
Heildverzlun Sióumúla 22
Simar 85694 & 85295
sís-iómju
SUNDAHÖFN
V,
7
Gólf-og
Veggflisar
Nýborg;^
Ármúla 23 - Sími 86755
Khmer Rouge hefur drepið um
hdlfa milljón manna
UNDANFARNA mánuði hefur
herferð stjórnvalda Khmer
Rouge i Kambodiu, gegn emb-
ættismönnum og fylgjendum
fyrrverandi stjórnar landsins,
vaxið mikið, bæði að hörku og
umfangi. Haf.a hermenn stjórn-
arinnar elt uppi embættismenn-
ina, konur, börn, sjúklingar og
gamalmenni hafa verið rekin
frá þorpum sinum og bæjum, og
er nú talið að um tiu prósent
þjóðarinnar hafi látizt siðan
Khmer Rouge komst til valda
þar.
Bandariska vikuritið Time
skýrði frá þvi á sunnudag, að á
þessum tima hefðu alls fimm
hundruð þúsund Kambódiu-
menn látið lifið, beint eða óbeint
vegna aðgerða Khmer Rouge.
Mikill fjöldi fólks hefur einnig
flúið frá Kambódiu, einkum til
Thailands og dvelst þar i flótta-
mannabúðum.
Segir i grein Time, að mikill
fjöldi manna hafi verið myrtur,
þar á meðal mikið af kennurum
og öðrum menntamönnum i
landinu, svo og að fyrrum hers-
höfðingjar úr her Lon Nol hafi
verið skotnir eða barðir til
dauða.
Ibúum borga og bæja i land-
inu hefur fækkað mjög mikið,
bæði vegna þessarar herferðar
Khmer Rouge og flóttamanna-
straumsins úr landinum svo og
vegna nauðungarflutninga úr
borgum og bæjum til landbún-
aðarhéraða.
bannig eru ibúar Pnom Pehn
nú taldir innan við fimmtiu þús-
und, en voru áður rúmlega tvær
milljónir.
Mynd þessi sýnir ibúa Kambodiu fagna Khmer Rouge. Þá var álitið,
að sigur þeirra myndi tryggja landinu frið.
Sovét bannaði indversk vopn
Og því slitu Egyptar
Reuter/Vin. — Anwar Sadat
Egyptalandsforseti sagði i gær,
að veigamesta ástæðan til þess að
Egyptar slitu vináttu- og sam-
starfssáttmálanum við Sovétríkin
i siðasta mánuði hafi verið sú, að
Sovétrikin hefðu neitað að láta
Indiand sjá Egyptalandi fyrir
vopnum.
Sadat sagði á fréttamannafundi
Vin: — Ég hefði skilið það, ef
peir hefðu stöðvað Tékkó-
slóvakiu, Pólland eða Austur-
Þýzkaland, þar sem þau lönd eru
hluti Sovét-blokkarinnar, en ekki
Indland, Sú var ástæðan fyrir þvi
að þjóð min sleit sáttmálanum.
Sadat sagði, að hann hefði beðið
Kina um varahluti i MIG-þotur
þær, sem Egyptaland fékk á sin-
um tima frá Sovétrikjunum, áður
en Sovétrikir. settu bann við
vopnaflutningum til Egypta.
Kina sendi Egyptum þrjátiu
þotuhreyfla i MIG-þoturnar, án
endurgjalds.
Skýrði Sadat frá þvi i gær, að
fljótlega myndi egypzk sendi-
sdttmálanum við þau
nefnd fara til Kina, til viðræðna
um samstarf i efnahags- og hern-
aðarmálefnum.
Sadat sagði enn fremur, að flest
„trompin” i spilinu i Mið-Austur-
löndum væru nú i höndum Banda-
rikjanna.
— Vegna þess að Bandarikin
sjá Israel fyrir öllum lifsnauð-
synjum, bera þau ákveðna á-
Reuter/Ramallah. Arabar i tutt-
ugu og tveim bæjum á herteknu
svæðunum á vesturbakka árinnar
Jórdan gengu i gær að kjör-
borði, og voru frambjóðendur rót-
tækra vinstri manna og stuðn-
byrgð á málefnum Mið-Austur-
landa, og þau eru eina land ver-
aldar, sem getur náð árangri i
viðskiptum við ísrael, sagði
Sadat.
Sadat hefur undanfarna daga
átt viðræður við Bruno Kreisky
Austurrikiskanslara um efna-
hagsmál, ástandið i Mið-Austur-
löndum og fleira.
ingsmenn þjóðernishreyfingar
Palestinu bjartsýnir á að kjós-
endur myndu veita þeim stuðning
sinn.
Þrátt fyrir miklar rigningar
höfðu um fjörutiu þúsund karlar
og konur, eða næstum helmingur
þeirra, sem á kjörskrá eru, kosið
siðdegis, og búizt var við að
margir kæmu til að kjósa eftir
vinnutima.
Hersveitir ísraela drógu sig út
úr bæjunum meðan atkvæða-
greiðslan stóð yfir, en yfirmenn
hersins fyrirskipuðu þeim að vera
viðbúnar fyrir utan bæina, ef til ó-
eirða kæmi.
Búizt var fastlega við þvi i gær
að frambjóðendur, sem styðja
málstað frelsishreyfingar
Palestinu (PLO), og vinstri sinn-
ar myndu vinna mikið á i kosn-
ingunum til bæjarstjórna.
Búizt var við að þessir fram-
bjóðendur nytu aukins stuðnings
kjósenda vegna óeirðanna, sem
orðið hafa á herteknu svæðunum
undanfarna mánuði, en að
minnsta kosti þrir Arabar hafa
látið lifið i átökum þessum.
Atkvæði kvenna voru óvissu-
þáttur i kosningum þessum, en
þær fengu nú að kjósa i fyfsta
sinn. Þegar um hádegi höfðu
margar notað kosningarétt sinn,
þrátt fyrir tilraunir ihaldssamra
liefðarsinna til að fá þær til að
itja heima.
Mestan áhuga vöktu kosning-
irnar i tveim stærstu borgunum á
herteknu svæðunum, Nablus og
Hebron, en ihaldssamir borgar-
stjórar, sem um margra ára
skeið hafa farið með völd i þeim,
ákváðu að gefa ekki kost á sér i
þessum kosningum.
Líbanon:
Framlengt vopnahlé
Reuter, Beirút. — Harðir bardagar urðu I Beirút aðfaranótt
mánudags, en iögðust að mestu niður, þegar á daginn leið, og
leiðtogar stjórnmálahreyfinganna i landinu hófu þá viðræður um
hugsanlegan arftaka Suleiman Franjieh i forsetastóli.
Hvorki hægri menn né vinstri lýsti áhyggjum vegna bardag-
anna um nóttina, en nokkurs uggs gætti meðal manna um að
áframhald þeirra gæti orðið til þess að önnur riki færu að hlutast
til um málefni Libanon.
Bardagarnir hófust um sama leyti og leiðtogar vinstri manna
lýstu þvi yfir að þeir myndu framlengja vopnahléð, sem gilt
hefur I tiu daga, þar tii i lok mánaðarins. Framlengingin var
ákveðin vegna þrýstings frá sýrlenzkum yfirvöldum og banda-
mönnum Sýrlands i hópi Palestina, en tilgangurinn er að gefa
þinginu tima til að finna stjórnmálalega lausn deilumála hóp-
anna tveggja.
Til þess að auka þrýstinginn hefur Sýrland sent skriðdreka inn
fyrir landamæri Libanon, og talið er að komið hafi verið að
mestu eða öllu i veg fyrir vopnasendingar til vinstri manna i
Libanon, svo og til Palestinuskæruliöa, sem berjast með þeim.
Þessar aögerðir Sýrlands eru mjög umdeildar i Libanon, svo
og liðssending þeirra inn i Libanon og taka varðstöðva við þjóð-
veginn milli Beirút og Damaskus á föstudag.
I dagblöðum I Libanon i gær var haft eftir einum af helztu
stjórnmálamönnum landsins, að Libanon verði búið að fá nýjan
forseta fyrir lok þessarar viku, en fram til þessa hafi enginn
hugsanlegur frambjóðandi virzt llklegri en aðrir.
I Líbanon eru núna sérlegir sendimenn, bæði frá Bandarikja-
unum og Frakklandi, sem eiga að reyna að aðstoða við lausn
deiiunnar milli hægri manna og vinstri.
Herteknu svæðin við Jórdan:
Kosið í gær til bæjar-
stjórna - góð kjörsókn
Tuttugu og einn tróðst
undir við trúarsamkomu
Reuter, Rio de Janeiro. —Tuttugu og einn maður, þar á meðal margir
bæklaðir, sem leituðu eftir kraftaverkalækningum, voru troðnir til
dauða i mannsöfnuði i kirkju I úthverfi Rio de Janeiro á sunnudags-
kvöld.
Að minnst minnsta kosti þrjátiu til viðbótar meiddust, þegar meira
en tvö þúsund manns, sem höfðu troðizt inn i skýli, er gegnir hlutverki
kirkju sértrúarflokks eins, ruddust að þröngum útgöngudyrum skýlis-
ins til að fagna trúarlækninum David Martins de Miranda, sem klifrað
hafði upp á þakið til að mannfjöldinn umhverfis gæti séðhann.
Þegar lögreglan kom á staðinn, fann hún skó, handtöskur peninga,
skjöl, gleraugu og hækjur, sem fólk hafði týnt i gauraganginum.
Fimm hinna látnu voru börn, og meðal þeirra voru einnig fimm
konur. Meira en helmingur látinna og slasaðra voru bæklaðir.
Lögreglan handtók tólf af leiðtogum sértrúarflokksins, meðan málið
er i rannsókn.
David Miranda, sem kallar sjálfan sig trúarlækni, hvarf af vett-
vangi, þegar ótti greip um sig á samkomunni i Rio.
Honum er lýst af safnaðarmeðlimum sem gallalausum manni,
hreinsuðum af bænum, lækni sem geti gert alla heilbrigða og fengið
bæklaða til að ganga, auk þess að geta rekið illa anda úr konum
» \
Sex fórust
í eldsvoða
Reuter, Sappada. Sex
manns, þar af þrir brezkir
ferðamenn, fórust i eldsvoða
i Sappada á Italiu aðfaranótt
mánudags, þegar hótel þar
brann til grunna.
Þrir hinna látnu, einn
Austurrikismaður og tveir
Italir, voru starfsmenn
hótelsins, en það var fullt
þessa nótt.
Lik hinna þriggja eru talin
vera af brezkum ferðamönn-
um, sem ekki komu fram,
þegar nafnakall var viðhaft
meðal þeirra, sem
björguðust úr eldinum.
A-þýzkur
njósnari
Reuter, Karlsruhe. — Lög-
reglan I Vestur-Þýzkalandi
kvaðst i gær hafa hándtekið
austur-þýzkan njósnara,
sem þóttist vera finnskur og
starfaði i fyrirtæki, sem
framleiðir tæki i kjarnorku-
ver.
Siegfried Buback saksókn-
ari sagði fréttamönnum i
gær, að maðurinn hefði verið
handtékinn i Bonn þann 9.
marz, og hefði hann borið
falskt vegabréf.
Sagði saksóknarinn, að
maður þessi hefði verið
sendur til V-Þýzkaiands til
njósna árið 1967.
D ó m a r ekki
samkvæmt
lögum i Sovétrikjun-
um
Reuter, Moskvu. Tatyana
Khodorovich, sem er meðal
fremstu andófsmanna i Sovét-
rikjunum, sagði i gær, að
hótanir og kúganir hefðu verið
notaðar gegn henni til að fá
hana til að greiða atkvæði i
kosningum héraðsdómara i
Sovetrikjunum á sunnudag.
Sagði Khodorovich, að sjö
eöa átta hópar fólks, sem
sagðist vera kosningaskipu-
leggjendur, hefðu komið til sin
i ibúð sina á sunnudag og sagt
henni, að aðeins „dæmdir
menn og geðbilaðir” neituðu
að greiöa atkvæði.
Khodorovich neitaði með
öllu aö greiða atkvæði I kosn-
ingum þessum og sagði i yfir-
lýsingu i gær, að neitun
hennar stafaði af þvi, aö hún
áliti að sovézkir dómarar og
réttarhöld iytu ekki sovézkum
lögum, heldur kommúnista-
flokknum.
Biöja um rannsókn
á greiöslum fjár til
stjórnmálaflokka
Reuter, Brussel. Hópur þing-
manna hinna ýmsu sósialista-
fiokka i Evrópu krafðist þess i
gær aö íramkvæmdanefnd
Efnahagsbandalags Evrópu
tæki til athugunar grunsemdir
þgr, sem bornar hafa verið
fram um að fjöiþjóðleg oliu-
fyrirtæki hafi greitt allt að
fimm milljónum sterlings-
punda i leynilega kosninga-
sjóði einhvers af stjórnmála-
flokkum ltallu.
Brezki Verkamannaflokks-
þingmaöurinn John Prescott
sagöi fréttamönnum i gær, aö
sami hópur sósialistaþing-
manna á þingi EBE færi þess
einnig á leit viö nefndina, aö
'■ "piÍSHORNA
v/.M!fl MILLI
hún léti uppi efni skýrslu
sinnar um hegðun fjölþjóð-
legu oliufyrirtækjanna I oliu-
kreppunni 1973—1974.
Sakaði Prescott nefndina
um að halda leyndum fjörutiu
siðum úr skýrslu sinni, sem
fjölluðu um verðlagsstefnu
oliufélaganna og væru byggð-
ar á upplýsingum þeirra
s jálfra.
Einn nefndarmanna hefur
viðurkennt, að ákveönar töl-
fræöilegar upplýsingar hafi
veriö teknar úr skýrslunni,
áöur en hún var birt.
Tító
berst
við
njósnir
Sovét ■
Reuter, Zagreb. Sovézk kona,
sem starfandi er hjá raftækja-
verksmiðjum i Júgóslaviu,
verður innan skamms dregin
fyrir rétt, sökuð um njösnir i
þágu Sovétrikjanna, eftir þvi
sem embættismenn i Zagreb
skýrðu frá I gær.
Kona þessi, Irina Pozega,
sem er rafmagnsverkfræðing-
ur að mennt og hefur starfað
hjá fyrirtækinu Zagreb Radio
Industry, játaði við yfir-
heyrslur að hafa sanað leyni-
legum upplýsingum.
Eftir þvi sem embættis-
mennirnir sögðu, játaði konan
ennfremur að hafa haft náið
samband við embættismann i
sovézka konsúlatinu I Zagreb.
Pozega var handtekin fyrir
nokkrum vikum, en yfir-
heyrslum hefur veriö haldiö
leyndum. Hún var gift júgtí-
slavneskum manni, en þau ern
skilin og hún er sovézkur
rtkisborgari.