Tíminn - 14.04.1976, Page 5
Miövikudagur 14. april 1976.
TÍMINN
5
Fljótvirkasta
lausnin
Orkumál Norðurlands og
framkvæmdirnar við Kröflu
liafa verið ofarlega á baugi
siöustu daga. 1 Degi á Akur-
eyri er rætt um þessi mál I
leiðara og sagt, að þessar
umræður liafi oft einkcnnzt
meira af hita en efnislegum
málflutningi. ,,ljær hafa farið
inn á þá braut að meta liver sé
afstaðan til einstakra aöila_,”
segir blaðið. Þá segir I)agur:
„Þaðskalengin dul dregin á
það, að æskilegt hefði veriö að
lengri tími hefði verið til
rannsókna og undirbunings að
Kröfluvirkjun. Sé litið á sögu
mistaka i orkumáluin Norður-
lands, og tckið mið af þeim
miklu töfum, sem hafa oröiö á
að bæta úr orkuskortinum. er
Ijóstað virkjun Kröflu erbæði
fljótvirkasta og stórvirkasta
framkvæmdin sem kostur er
á.”
Eintómar
hilllngar
t framhaldi af þvi segir
Dagur svo:
„Stöðugur orkuskortur og
sveiflur i raforkuframleiðslu,
vegna truflana i Laxá, liafa
dregið t'ir iðnvæðingu á
Norðurlandi. Eftir eldsum-
brotin i námunda við Kröflu
liafa margir velt þvi fyrir sér,
að hætta við Kröfluvirkjun eöa
að slá henni á frest. Jafnvel
þeir, sem áður voru andstæð-
ingar by ggðalinu, sjá nú enga
aðra leið hagkvæmari, og telja
að hún geti bægt orkuskortin-
um frá. Nú er upplýst að þetta
eru eintómar hillingar. An
nýrrar tengilinu fyrir Hval-
fjörð, getur byggðalinan ekki
flutt noröur nema 8 mcgavött.
Ný tengilina fyrir Hvalfjörð er
ekki á dagskrá á þessu ári eða
næsta ári. Þetta sýnir, að það
er blckking að valið standi á
inilli Kröflu og byggðatinu.”
Ekki síður
hagsmunamól
en hitaveita
Siðan segir blaðið:
„Kröfluvirkjun er eina
lausnin á orkumátum Norð-
lendinga einsog nú cr, sú fljót-
virkasta ogsú leiö, sein trygg-
ir stöðugan orkumarkað fyrir
aukna iðnvæðingu. Spurningin
nú er ekki valið á milli Kröflu
Þingmennirnir Ingvar Gislason, Jón Sólnes og Ragnar Arnalds
eiga sæti i Kröflunefnd. Allir hafa þeir lagt áherzlu á, að fram-
kvæmdum við Kröflu yrði haldið áfram samkvæmt áætlun.
eða byggðalinu, heldur miklu
frekar um það, hvort áætlanir
standast unt framkvæmdir I
Kröflu. Þctta er grundvallar-
atriði I orkuinálum Norð-
lendinga nú, en ekki niðurrifs-
skrif um þá, sem standa fyrir
framkvæmdum. Kröfluvirkj-
un cr Akureyringuni ekki
minna hagsmunainál en öðr-
um og ekki siður hagsmuna-
mál en hitaveita fyrir bæinn.”
Samstarf en
ekkisundrungu
Loks scgir Dagur:
„Það þarf samstarf en ekki
sundrungu til að þessi stóru
hagsmunamál Akureyrar
komist bæöi í höfn. Það þarf
samstarf, sem tryggi áfram-
haldandi borun við
Syðra-Laugaland, og gufuöfl-
un við Kröflu. Um þetta þurfa
menn að sameinast og veita
stjórnvöldum nægilegan
þrýsting svo aö þessar stór-
framkvæmdir i orkumálum
Norðurlands komist i liöfn.
Þær munu flytja landshlutann
um stórt skref til aukinnar hag-
sældar og til eflingar byggöum
landsins. Þetta er meira viröi
fyrir Akureyri heldur en að
sviðsetja pólitiskt sjónarspil
undir málshópa. Hér þarf aö
sameinast um stóru málin og
koma þeim I liöfn."
— a.þ.
Aðalfundur Sambands náttúruverndarfélaga
Aðalfundur Sambands islenzkra
náttiiruverndarfélaga (SINi var
haldinn i Reykjavik dagana 2-3.
april 1976
Sambandið var stofnað fyrir einu
ári. og mynda það fimm náttúru-
verndarfclög isamtök). sem hafa
fjórðunga eða kjördæmi sem
lélagssvæði. Aðalfund samhands-
ins sækja formenn félaganna eða
lulltrúar þeirra. en þeir eru nú:
Asgeir Rélursson Borgarnesi
i Náttúruverndarsamtök Vestur-
landsi. Helgi Hallgrimsson
\ikurbakka. Eyf. (SUNN), Hjör-
leifur (iuttormsson Neskaup-
staðiNAUST). Stefán Bergipann
l.augarvatni (Náttúruverndar-
samtök Suðurlands) og Unnur
Skúladóttir Reykjavik (Náttúru-
verndarfélag Suðvesturlands).
Einnig sótti fundinn fulltrúi Vest-
firzkra náttúruverndarsamtaka.
Finnur T. Hjörleifsson. en þau
hafa enn ekki tengzt SÍN form-
lega, svo og nokkrir gestir.
Á dagskrá fundarins var m.a.:
Votlendisvcrnd, i tilefni af vot-
lendisverndarári Evrópu 1976,
Vcrndun fiskstofna á lslandsmið-
um. með sérstöku tilliti til fram
kominna skýrslna um það efni,
frá Hafrannsóknastofnun og
Rannsóknaráði Rikisins, og Orku-
og iðjumáL
Á fundinum var einnig rætt um
samræmingu á starfi þeirra
aðilja, sem vinna að náttúru-
verndarmálum hérlendis, en auk
SIN eru það Náttúruverndarráö
og Landvernd, og upplýsinga-
skipti þeirra.
Samband islenzkra náttúru-
verndarfélaga hefur gerzt aðili að
IUCN, sem er alþjóðlegt
samband náttúruverndarfélaga,
og rikja, með aðsetri i Sviss, og
einnig hefur það tekið upp fast
samband við náttúruverndar-
félög i grannlöndunum.
Sambandið hefur skrifstofu i
Náttúrugripasafninu á Akureyri
(Náttúruverndarstofu). Fyrir-
huguð er ýmis sameiginleg starf-
semi SÍN- félaganna, svo sem út-
gáfa íréltabréfs, en þröngur fjár-
hagur hefur hindrað frekari
framkvæmdir til þessa.
Frálarandi formaður SIN,
llelgi Hallgrimsson, var endur-
kjörinn á fundinum. Hér fara á
eltir ályktanir aðalfundarins:
1. Um vcrndun aðlinda hafsins
Stjórn SIN fagnar þvi að farið
er að beila niðurstöðum rann-
sókna til að fylgjast með ástandi
fiskstofna og annarra nytjadýra á
tslandsmiðum. og til að áætla
skynsamlega nýtingu þeirra, sbr.
skýrslur Hafrannsóknastofnunar
og Rannsóknaráðs um þetta efni.
Væntir stjórnin þess, að slikar
rannsóknaniðurstöður verði lagð-
ar til grundvallar ákvarðanatöku
um nýtingu þessara auðlinda
Iramvegis. og fyllsta tillit verði
tekið til umsagnar fiskifræðinga
um þessi mál.
2. Uni vötlendisvernd
t tilefni af Votlendisverndarári
Fvrópu 1976 ályktar aðalfundur
SIN:
a) Fundurinn fagnar þeim til-
lögum. sem samþykktar voru á
Náttúruverndarþinginu 1975, um
votlendisvernd, og samþykkt
Náttúruverndarráðs frá 5. marz
sl„ um friðlýsingu votlendis-
svæða i öllum landshlutum.
Þeirri áskorun er beint til
aðildarfélaga SIN, að þau vinni
ötullega að framgangi þessara
mála, hvert á sinu svæði.
b) Sérstaklega itrekar fundurinn
þá ályktun Náttúruverndarþings,
"að allt nýtanlegt mýrlendi I
landinu skuli kannað og flokkað á
næstu árum, með sérstöku tilliti
til nýtingar þess og verndunar”.
Heitir fundurinn á aðildarfélögin
að taka upp samstarf viö
búnaðarsambönd héraðanna um
þetta mikilvæga verkefni.
Gísli Guðmann
sýnir á Akureyri
Akureyringurinn Gisli
Guðmann opnar málverka-
sýningu i heimabæ sinum i dag,
miðvikudag. Sýningin verður
haldin i Iðnskóla Akureyrar, og
verður hún opnuð kf. 20.00.
Sýningin verður opin alla daga
frá kl. 14.00 - 22.00 til miðvikudags
21. april.
Gisli er sonur Jóns Guðmanns.
bónda á Skarði, Akureyri, og
konu hans. Hann varð stúdent frá
MA 1949 og helur siðan stundað
landhúnaðarstörf á Skarði, ásamt
öðrum störfum á Akurevri, en
ávallt verið mikill áhugamaður
um listir og aflað sér þeirrar
menntunar á sviði máiaralistar
sem tök voru á þar i bæ: m.a.
nam hann i fjögur ár hjá Jónasi
Jakobssyni myndhöggvara. og
einnig var hann i fjögurra ára
bréfaskóla á vegum Fern
Akademie i Karlsruhe i Vestur-
Þýzkalandi, og hefur hann tekið
miklum framförum siðast liðin
ár.
Gisli hefur lekið þátt i fjórum
samsýningum en þetta er fvrsta
einkasýning hans. Sýnir hann alls
57 verk: pastelmvndir. teikning-
ar, lágmyndir og aðrar högg-
myndir. Gisíi Guðmann er einn af
stofnen dum Myndlistarfélags
Akureyrar.
c) Skorað er á yfirvöld búnaðar-
mála að endurskoða rækilega þá
stefnu. sem rikt hefur um fram-
ræslu mýrlendis á undanförnum
árum, m.a. með breyttu styrkja-
kerfi, framræsluáætlunum og
samráði vit^ náttúruverndar-
aðilja.
d) Fundurinn leggur áherzlu á. að
ísland gerist hið fyrsta aðilji að
Ramsar-sáttmálanum um vernd-
un votlendis, og skorar á stjórn
landsins að minnast votlendis-
ársins þannig.
3. Uni orlu- og iðjumál
Stjórn SIN telur brýnt, að við
stefnumótun um nýtingu
innlendra orkulinda verði tekið
lullt tillit til þarfa þjóðarinnar og
umhverfisverndar. Stjórnin
varar eindregið við hugmyndum
um að ráðstafa til langs tima
umtalsverðum hluta af orkulind-
um landsins til orkufreks iðnaðar,
og telur alrangt að slikar fram-
kvæmdir hafi lorgang umfram
orkuöflun til almennra nota fvrir
landsmenn.
Mikilvægt er að tengja sem
fyrst saman orkuveitusvæði allra
landshluta, og efla jafnframt al-
mennar rannsóknir á valkostum
til virkjunar vatnsafls og jarð-
varma, svo velja megi hverju
sinni það sem er hagkvæmt og
skynsamlegt og minnstri röskun
veldur á náttúru iandsins.
Stjórn SIN styður þá stefnu sem
mörkuð var á siðasta Náttúru-
verndarþingi, um úttekt á vatna-
og jarðhitasvæðum landsins. með
titltilliti til verndunar þeirra, og
hvetur aðildarfélög sambandsins
til að ljá þvi máli lið.
Stjórn SIN átelur þá leynd og
pukur, sem stjórnvöld viðhafa við
undirbúning hugsanlegra stór-
iðjufyrirtækja hérlendis og
viðræður við útlendinga þarað-
lútandi. Telur stjórnin landsmenn
eiga heimtingu á, að umræður um
svo afdrifarik mál fari fram fvrir
opnum tjöldum.
Stjórn SIN minnir á, að auk
mengunar frá stóriðjufyrirtækj-
um. sem ekki verður úfilokuð
þrátt fyrir fullkomnustu varnir.
fylgir þeim margháttuð félagsleg
röskun. sem taka þarf fullt tillit
til.
(Fréttatilkynning)
Paprikuostur
Ábætisostur úr Maribó-, Gouda-, Óðalsosti og rjóma
í hann er blandað ferskri papriku.
Að utan er hann þakinn rauðu paprikudufti
ostur er veizlukostur
J