Tíminn - 14.04.1976, Síða 13
Miðvikudagur 14. apríl 1976.
TÍMINN
13
A FLOTTA FRA ASTINNI
Eftir Rona Randall
erannar listamaóur, sem hefur forgangsréttinn, um leið
og hann er orðinn nógu hress til að vinna.
Hún tók eftir, að Mark hlustaði áhugasamur. Ef við
gætum fengið hann til að vinna aftur, mundi það bjarga
honum, sagði hann og Estelle var sammála. — É g skal
kaupa myndina, sagði hún. — Það ætti að hvetja hann til
að mála f leiri. Allt, sem þessi gamli maður þjáist af, er
að kenna skorti á sjálfstrausti. Láttu hann standa við
loforðið, Myra.
— Já, ég hef ætlað mér það.
— Hver er þessi Jósep gamli? spurði Brent.
— Sjúklingur hjá okkur, útskýrði Mark.
— Ég held, að þú hefðir áhuga á honum, Brent, sagði
Myra hægt.
— Það held ég ekki, skaut Mark inn í. — Ert þú ekki
frægur fyrir andlitsmyndir af konum, Taylor? Ég get
ekki ímyndað mér, að Jósep gamli henti þínum stíl.
— Ég átti ekki við sem fyrirmynd, byrjaði Myra, en
þagnaði svo. Hún ætlaði að segja Brent f rá grunsemdum
sínum, en hún varð líka að virða leyndarmál Jóseps
gamla, svo það var bezt að fleiri fengju ekki að heyra
það.
Fleiri gestir komu og samræðunum lauk þarna. Bráð-
lega var sezt að borðum og máltíðin varð hin líf legasta.
Þá var kominn tími til að fara í Óperuna. Myra hugsaði
með sér að það væru sannarlega duttlungar örlaganna,
að hún skyldi koma þangað í fyrsta sinn með Brent, sem
hafði sagt henni svo mikið um þetta hús. Hún hafði búizt
við miklu, en það sem hún sá,var ofar öllum hennar von-
um. Og jafnvel þótt hún vissi, að það væri að snúa hníf-
num í sárinu að sjá Venetiu dansa, settist hún eftirvænt-
ingarf ull í sæti sitt. Ef til vill var ástæðan sú, að Estelle,
sem var hinn fullkomni gestgjafi, gerði þetta allt svo
þægilegt, ef til vill var það, að Brent var hérna með
henni og henni fannst hún nú í fyrsta sinn vera hans
verðug.
Hún hugsaði um sjálfa sig eins og hún hafði verið, þeg-
ar þau voru trúlofuð. Þakklát fyrir allt sem hann gerði,
auðmjúk í ást sinni, já auðmjúklega þakklát fyrir að
hafa unnið ást slíks manns. Hafði hún látið aðdáun sína
of greinilega i Ijós? Hún var skynsamari nú, hún hafði
lært margt undanf arið og hún hugsaði um sína f yrri per-
sónu næstum með fyrirlitningu, en þó blandinni með-
aumkun. En í hjarta sínu vissi hún, að hún elskaði hann
ennþá.
32
|M| | *
Mark sat við aðra hlið hennar, Justin við hina. Brent,
sem hana langaði svo að tala við, sat mörgum sætum
fjær. Hún gat ekki annað gert, en bíða eftir hlénu og
reyna þá að ná tali af honum einum.
En hún var ekki viss um, að henni tækist það, þvi hún
tók eftir að Brent reyndi að forðast hana. Það var
kannske eðlilegt, en ef hann vissi hversu mikilvægt það
var, sem hún hafði að segja honum, hefði hann ýtt per-
sónulegum tilfinningum til hliðar. Hún ákvað, að hversu
mikið sem hann reyndi að forðast hana, skyldi hún ein-
hvern veginn ná tali af honum. Fyrri helmingur sýn
ingarinnar var aðeins eins konar inngangur að hápunkt-
inum, Giselle með Venetiu í aðalhlutverkinu. En Myra
var gjörsamlega bergnumin af öllu saman.
— Bíddu bara, þangað til-þú sérð Venetiu, hvíslaði
Justin við hlið hennar. — Samanborið við hana, er þetta
hreint ekki neitt.
Svo kom fyrsta hléð. Gestir Estelle gengu fram í stóra
salinn frammi og Myra svipaðist um eftir Brent, en hann
stóð og talaði við f ólk, sem hún kannaðist ekki við. Justin
hélt sig við hlið hennar.
— Þú veizt líklega, að viðerum boðin í veizlu í búnings-
herberbergjum Venetiu? spurði hann ákafur. — Er það
ekki stórkostlegt?
Myra hlakkaði ekki sérlega til, en viðurkenndi kurteis-
lega, að það hljómaði stórkostlega. Eitt var að sjá Vene-
tíu á sviðinu, en hana langaði ekkert til að hitta hana aft-
ur.
Giselle var falleg og hrífandi og hélt áheyrendum
gjörsamlega í f jötrum. Justin hafði á réttu að standa —
hún dansaði eins og draumur, eins og engill og fegurð
hennar var næstum ekki af þessum heimi. Það var ekki
undarlegt þótt Brent elskaði hana. I myrkinu heyrði
Mark lágt andvarp og gat sér til um hugsanir Myru.
Hann fann innilega til með henni, en langaði jafnframt
til að grípa í hana og hrista hana duglega. Sá hún ekki
gegn um þetta glitrandi yfirborð, hvað var að baki ytri
fegurðar Venetiu? En þó hún gerði það ekki ætlaði hún
sér tæpast að vera í ástarsorg alla ævi? Ef hún hafði þá
ekki aðrar áætlanir, hugsaði hann gramur.
Hann hafði ekki haft af henni augun allt kvöldið. Hann
haf ði tekið eftir, hvernig augu hennar f ylgdu Brent stöð-
ugt, hvernig hún hafði alltal reynt að nálgast hann. Hann
hafði fylgzt með henni i hlénu og var sannfærður um, að
hún var að reyna að ná tali af Brent undir f jögur augu.
Þessir óþokkaættflokk-
ar hafa alltaf verið
frjálsir eins og vindurinn!
Já, frjálsir til að ræna og
'rupla fólk þitt Fria!
UliHti
MIÐVIKUDAGUR
14. april
7.00 Morgunútvarp
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „Þess
bera menn sár” eftir
Guðrúnu Lárusdóttur Olga
Sigurðardóttir les. (11).
15.00 Miðdegistónleikar
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Popphorn.
17.10 Útvarpssaga barnanna:
„Blýanturinn” eftir Ivan
Frankoff
17.30 Framburðarkennsla i
dönsku og frönsku.
17.50 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki.
Tilkynningar.
19.35 Vinnumál-Þáttur um lög
og rétt á vinnumarkaði.
Umsjónarmenn: Lögfræð-
ingarnir Arnmundur Back-
man og Gunnar Eydal.
20.00 Kvöldvaka a, Einsöngur
Sigurður Ölafsson syngur
fslensk lög. Carl Billich leik-
ur á pianó. b. Kindum
bjargað úr sjálfheldu i Skor-
fjalli Kristján Þorsteinsscm
les frásöguþátt eftir Sigur-
linna Pétursson. c. Hugleið-
ingar um dýr Gunnar Valdi
marsson les kafla úr endur-
minningum Benedikts frá
Hofteigi. d. Þá gerðist mik-
ið undraár Sigurður
Guttormsson les þulu frá
1871 eftir séra Gisla
Thorarensen og flytur for-
málsorð. e. Páskabylurinn
1917 Ágúst Vigfússon flytur
frásöguþátt eftir Jóhannes
Ásgeirsson. f. Steinar i
Suöursveit og siðustu
ábúendur þar Torfi
Þorsteinsson bóndi i Haga i
Hornafirði segir frá. g. Kór-
söngur
21.30 Útvarpssagan.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Lestur
Passiusálma (49)
22.25 Kvöldsagan: „Sá svarti
senuþjófur”, ævisaga
Haralds Björnssonar Höf-
undurinn, Njörður P. Njarð-
vik, les (8).
22.45 Djassþátturi umsjá Jóns
Múla Árnasonar.
23.30 Fréttir. Dagskrárlok.
18.00 Björninn Jógi. Bandar-
isk teiknimyndasyrpa. Þýð-
andi. Jón Skaptason.
18.25 Robinson-fjölskyldan.
Breskur myndaflokkur
byggður á sögu eftir Johann
Wyss. 10. þáttur Hveiti-
brauðsdagar Þýðandi Jó-
hanna Jóhannsdóttir.
18.45 Ante. Norskur mynda-
flokkur i sex þáttum um
samadrenginn Ante. 5. þátt-
ur. Samadrusla. Þyð. Jó-
hanna Jóhannsdóttir.
Hlé
20.00 Fréttir og veöur
20.30 Auglýsingar og dagski'á
20.40 Vaka Dagskrá um bók-
menntir og listir á liðandi
stund. Umsjónarmaður
Magdalena Schram. Stjórn
upptöku Andrés Indriðason.
21.20 Bilaleigan. Þýskur
myndaflokkur. Þýðandi
Briet Héðinsdóttir.
21.45 Söngvar frá trlandi
Mary Conolly syngur.
Undirleikur Guðmundur
Steingrimsson, Arni Schev-
ing, Hlynur Þorsteinsson og
Grettir Björnsson. Stjórn
upptöku Andrés Indriðason.
Þýðandi Dóra Hafsteins-
ddttir.
22.10 Erfingjar byltingar-
innar. Frönsk fræðslumynd
um yngstu kynslóðina i
Kina, leiki hennar og störf.
Þyðandi og þulur Ragna
Ragnars.
22.50 Dagskrárlok