Tíminn - 06.05.1976, Page 2

Tíminn - 06.05.1976, Page 2
2 TÍMINN Fimmtudagur 6. mai 1976. Starfsemin að Kjarvals- stöðum efld og eru i þvi verk eftir alla þekkt- ustu lisamenn þjóðarinnar, með sérlegri áherzlu á September- málurunum svokölluðu, og hefur margt af þvi ekki komið fyrir al- mennings sjónir áður. Þann 18. ágúst mun Félag is- lenzkra myndlistarmanna taka við báðum sölum og göngum hússins, og mun félagið opna Haustsýningusina i lok mánaðar- ins og verður þá Kjarvalssýning- in tekin niður og ekki sett upp aft- ur fyrr en að sumri 1977. Mun Haustsýningin standa fram i miðjan september. Þá taka við tvær meiri háttar sýningar i húsinu. Vinir og kunn- ingjar Halldórs Péturssonar halda upp á 60 ára afmæli hans með yfirlitssýningu á verkum hans i vestursal hússins, en á sama tima mun Gunnar Hannes- son ljósmyndari sýna verk sin i austursalnum. í septemberlok mun Agústsson opna einkasýningu i vestursal og fast á eftir fylgir Kristján Davfðsson með einka- sýningu. Rekstur hússins, Kjarvals- staða, er i höndum sérstakrar hússtjórnar, sem starfar undir yfirstjórn borgarráðs og kosin er hlutfallskosningu af borgar- stjórn. Hússtjórn skipa Ólafur B. Thors, Davið Oddsson og Elisabet Gunnarsdóttir. Þau eiga einnig sæti i listráði auk þriggja fulltrúa, sem Félag islenzkra myndlistar- manna skipar, eins fulltrúa, sem stjórn Bandalags islenzkra lista- manna tilnefnir og skal tilnefn- ingin háð samþykki borgarráðs. Skal síðastnefndi fulltrúinn vera úr annarri listgrein en myndlist. t hinu nýja listráði eru: form. Ólafur B. Thors, Jóhannes Jó- hannesson listmálari, Davið Oddsson borgarfulltrúi, Þorgerð- ur Ingólfsdóttir kórstjóri, Elisa- bet Gunnarsdóttir kennari, Snorri Sveinn Friðriksson myndlistar- maður og Guðmundur Benedikts- son myndhöggvari. Listráð ákveður hverjum skuli heimilað að halda sýningar I svo- nefndum vestursal Kjarvalsstaða og hve lengi. Ennfremur ákveður ráðið hvort og hvenær skuli heimila afnot salarins til annarra nota, t.d. til tónleikahalds, upp- lestra eða áþekkrar starfsemi. Salurinn i austanverðu húsinu, Kjarvalssalur, er fyrst og fremst ætlaður til sýninga á verkum Jó- hannesar S. Kjarvals. Onnur notkun salarins til listrænnar starfsemi skal háð samþykki list- ráðs. Listráð getur haft frumkvæði að hverju þvi máli, sem það telur að bæta muni rekstur hússins og færa það nær þvi takmarki að vera lifandi vettvangur lista og menningar i borginni. Listráði er og skylt að vera til ráðuneytis og samstarfs við hússtjórn um upp- setningu myndverka að Kjarvals- stöðum eða ráðstafanir sem hafa áhrif á útlit hússins, t.d. gerð varanlegra veggskreytinga. Skal slikt rætt á fundum listráðs. SJ-Reykjavik Nú er i ráði að efla starfsemi Kjarvalsstaða, en nýtt iistráð hefur tekið þar til starfa, sem og framkvæmdastjóri þess Aðalsteinn Ingólfsson iistfræðing- ur, en Alfreð Guðmundsson er enn sem fyrr forstöðumaður hússins. Reykjavikurborg hefur aukið fjárveitingar til þ,ússins og starfseminnar þar og er nú m.a. verið að gera ýmsar umbætur utanhúss. Sýningarskrá stóru sýningarsalanna tveggja i húsinu er að heita má fullskipuð út þetta ár. Með haustinu er ætlunin að margs konar önnur starfsemi hefjist I húsinu, þ.á.m. reglulegir fyrirlestrar um nútimamyndlist, litlar sýningar I glerskápum á göngum og I kaffistofu, og e.t.v. reglulegar --sý-ningar.I litilli gallerlaðstöðu innan hússins. Nýlega er hafin á vegum Kjarvalsstaða og pólska sendi- ráðsins yfirgripsmikil sýning á pólskum plakötum i göngum og kaffistofu, en eins og kunnugt er, eru pólverjar heimsfrægir fyrir framlag sitt til þeirrar listgrein- ar. Eru þetta allt plaköt fyrir alls konar menningarstarfsemi taka þátt i sýningunni rómuðustu listamenn pólverja á þessu sviði, t.a.m. Mlodozeniec, Swierzy og Gronowski. Stendur þessi sýning liklega fram i mai- lok. Finnsk listakona Tertta Jur- vakainen er með sýningu i vestursal Kjarvalsstaða og mun hún sýna mestmegnis oliumál- verk. Þann 15. mai mun svo Ei- rikur Smith opna einkasýningu i vestursalnum, en siðan, þann 26. mai tekur Listahátið við báðum sölum hússins. 1 vestursalnum mun félagið Islenzk Grafik væntanlega standa fyrir yfirlits- sýningu á Islenzkri graflk frá upphafi og fram á vora daga, en I austursal hússins mun verða sýn- ing á 40 gvassmyndum eftir viö- frægan listmálara, Gérard Scfcneider. Schneider er fæddur I Svisslandi árið 1896, en er nú franskur rikisborgari. Hann var einn af þeim listmálurum, sem ásamt Hans Hartung og Pierre Soulages settu mikinn svip á þró- un málaralistar i Frakklandi á árunum eftir heimstyrjöldina sið- ari og er Schneider talinn einn af frumkvöðlum nútima lýriskrar afstraktlistar. Meðan á sýningum þessum stendur mun margt annað fara fram að Kjarvalsstöðum á vegum Listahátiðar. M.a. mun hér troða upp leikflokkurinn Comuna frá Portúgal, sem hefur vakið mikla athygli meðal leikhússfólks i Evrópu, Sviinn Gunnar Walkare mun flytja afriska tónlist ásamt þ::rlendum tónlistarmönn'im, Brecht-söngkonan Gisela ?Iay rnun syngja hér og ræða um þ.mn ágætá leikhúsmann, flokkui inn Ars Anticamun leika á forn hljóð- Barbara Arnason. Gunnar Hannesson. Halldór Pétursson. tæn og Rithöfundasamband Is- lands mun halda hér Skáldavöku. Væntanlega mun einnig verða flutt klassisk tónlist, bæði gömul og ný, I sölum eða göngum. Strax að lokinni Listahátið munu Norrænu Músikdagarnir fara fram að Kjarvalsstöðum, — og reyndar annarsstaðar. Föstu- daginn 18. júni verða haldnir Kammertónleikar i vestursaln- um, og flutt verða ný verk eftir norræn tónskáld, þ.á m. Hegdal, Rozmann og Atla Heimi Sveins- son. Laugardagskvöldið 19. júni fer hluti tónleika fram hér, og verða þá flutt kórverk, öll ný af Aðalsteinn Ingólfsson. nálinni, og á sunnudag 20. júni flytur The New Music Ensemble frá Toronto fyrri tónleika sina, en þeir siðari fara einnig fram að Kjarvalsstöðum mánudagskvöld- ið 21. júni. Munu Kanadamenn- irnir flytja nær eingöngu verk eft- ir norræn tónskáld. I byrjun júli munu ættingjar listakonunnar Barböru Árnason efna til stórrar minningarsýning- ar um hana og mun sú sýning standa fram til 18. júli og sam- timis verður sett upp Kjarvals- sýning I austursal hússins, þar sem reynt verður að sýna nýjar hliöar á þeim listamanni. Er þessari minningarsýningu lýkur, mun einn af frumkvöölum i islenzkri ljósmyndalist, óskar Gislason, setja upp sýningu á verkum sinum i vestursalnum. I byrjun ágúst mun svo vestur- salnum verða skipt i tvo hluta. Annan helminginn mun sænska grafikfyrirtækið Sporrong A.B. nota til sýningar á ,original” grafik eftir heimsfræga lista- menn og er þetta sölusýning. Verða m.a. til sýnis grafikmyndir eftir Salvador Dali, Marc Cha- gall, Taples, Miróo.fl. Hinum megin i salnum munu Kjarvalsstaðir sýna einkasafn málverka og teikninga Gunnars heitins Sigurðssonar i Geysi, i samráði við ekkju hans. Er þetta sérstaklega smekklega valið safn Aðalfundur K.Þ.: Heildar- veltan 1975 varð 1,8 milljarðar Þ.J. Húsavik. — Aðalfundur Kaupfélags Þingeyinga var hald- inn i Húsavik 27. og 28. april. Mættir voru á fundinum 115 full- trúar, félagsstjórn, endurskoð- endur og kaupfélagsstjóri. Formaður kaupfélagsins, Teit- ur Björnsson, stjórnaði fundin- um, raktihann störf félagsstjórn- ar, og lýsti aðal framkvæmdum K.Þ. á árinu. Heildarfjárfesting- ar voru með minna móti. Byggt var lyftuhús við Verzlunarhús K.Þ., stækkað útibúið á Laugum, lokið að mestu við byggingar Efnalaugarinnar og haldið áfram að endurbyggja gamla hús Mjólk- ursamlagsins. Auk þessa var unnið að ýmsum minni háttar framkvæmdum. Finnur Kristjánsson kaupfé- lagsstjóri las og skýrði reikninga félagsins fyrir s.l. ár. Heildar- velta félagsins varð 1,8 milljarð- ar, þar af sala i verzlunarbúðun- um 828 milljónir, og er það 43% aukning. Tekjuafgangur á rekstr- arreikningi nam rúmlega 2 milljónum króna. 1 ræðu kaupfé- lagsstjóra kom fram, að rekstr- arfjárskortur er nú mjög tilfinn- anlegur, og stendur heilbrigðum verzlunarrekstri félagsins mjög fyrir þrifum. Á fundinum var varið úr Menn- ingarsjóöi K.Þ. til ýmissa félags- mála I héraði 350 þúsund krónum. í félagsstjórn voru endurkjörn- ir Baldvin Baldursson Rangá og Skafti Benediktsson Garði. En i varastjórn óskar Sigtryggsson Reykjarhóli og Þráinn Þórisson Skútustöðum. Endurskoðandi Hlöðver Hlöðversson Björgum. Samþykkt var á fundinum til- laga um að K.Þ. gerist aðili að hlutafélagi, sem stofna á, um kaup og rekstur skuttogara, er gerður verður Tit frá Húsavfk. Miklar umræður urðu að vanda um rekstur og starfsemi kaupfé- lagsins. í fundarlok var samþykkt eftir- farandi ályktun: Aðalfundur K.Þ., haldinn á Húsavik 27. og 28. april 1976, sendir starfsmönnum Land- helgisgæzlunnar beztu þakkir fyrir vel unnin verk og óskar þeim giftu og farsældar i þvi erfiða starfi, er þeir inna af hendi til verndar lifshagsmunum okkar i nútið og framtið. Að kvöldi fyrri fundardagsins bauð K.Þ. fulltrúum og gestum þeirra til samsöngs i Félagsheim- ilinu. Þar söng karlakórinn Hreimur undir stjórn Rudolf Cech, undirleikari var Milada Cechova. Árbók F.í. 1976 Arbók Ferðafélags Islands 1976 er komin út, og fjallar hún að þessu sinni um Fjallabaksleið syðri, eða nánar til tekið, leiðina úr Skaftártungu að Rangárvöll- um, sunnan Torfajökuls. Þessa árbók ritaði Arni Böðvarsson cand. mag. en hann er borinn og barnfæddur Rangvellingur og þaulkunnugur þessari leið og nágrenni hennar. Bókin er liðlega 200 blaðsiður að stærö, prentuð á vandaðasta pappfr og skreytt fjölda mynda. Þessi Arbók er sú 49. I röðinni, en fyrsta árbók F.I. kom út árið 1928. Fjallaði hún um Þjórsárdal. Fyrstu árbækurnar eru löngu uppseldar, en félagið hefur látið ljósprenta þá árganga, sem selj- astupp, jafnóðum, og eru þvi all- ar árbækur félagsins fáanlegar nú, nema árbækurnar frá 1931 og 1963. Þær árbækur eru i ljósprent- un og munu væntanlega tilbúnar til sölu innan fárra vikna.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.