Tíminn - 11.05.1976, Page 8
8
TÍMINN
Þriöjudagur 11. mai 1976
® ...breytingar
væri gert ráö fyrir neinni
bannlínu i löggjöfinni og gætu
allir landshlutar og allar
byggöirkomiö þarna til greina
meö fyrirgreiöslu eftir þvi
sem þörf krefur á hverjum
tima. Það er aö minni hyggju
þýöingarmikið, aö menn hafi
þaö I huga aö byggðaröskun
getur haldiö áfram I landinu
og hún getur oröiö meö ýms-
um hætti. Það er ekki alveg
gefiö mál að hún verði meö
sama hætti og veriö hefur und-
anfarna áratugi. Ýmsar á-
stæöur geta legiö til þess, svo
sem framfarir á sviöi tækni og
visinda, náttúruhamfarir o.fl.,
aö byggðaröskun veröi meö
öörum hætti en sú, sem viö
þekkjum af reynslu undanfar-
andi áratuga, þótt liklegast sé
að viö munum enn um sinn
berjast við þann vanda. Þegar
sett eru grundvallarlög um
byggöamál þá er auövitaö
nauösynlegt aö gera ráö fyrir
þvi i slikri löggjöf að þörfin
hverju sinni veröi ákvarðandi
um þaö meö hverjum hætti
fyrirgreiösla til einstakra
byggöarlaga og einstakra
landshluta verður háttað.
Efling lánadeild-
ar
Þau meginverkefni lána-
deildar að annast starfrækslu
Framkv.sjóös og Byggða-
sjóðs standa óhögguö, en
lagt er til að sett veröi skýrari
ákvæöi um meöferð árlegrar
áætlunar um lánveitingar og
fjármögnun Framkvæmda-
sjóös og þá með hliðsjón af
heildarlánsfjáráætlun sem
tekin hefur veriö upp á vegum
rikisstjórnarinnar. Segja má
aö hér sé veriö aö lögfesta það
fyrirkomulag, sem smátt og
smátt hefur þróazt upp um
meöferö fjáröflunar og út-
lánaáætlanir Framkvæmda-
sjóös. Auk þess sem gert er
ráð fyrir að áætlun um starf-
semi Framkvæmdasjóös á
hverju ári verði samræmd
heildarlánsfjáráætluninni
áður en hún komi til endan-
legrar afgreiðslu hjá stjórn
Framkvæmdastofnunar ríkis-
ins.
Lögum samkvæmt er
Framkvæmdasjóöi íslands
ætlaö þaö hlutverk að veita lán
til meiriháttar opinberra
framkvæmda og fjárfest-
ingarsjóða. Framkvæmda-
sjóöur hefur veriö öflugur
lánasjóöur sem á aö vera
þungamiöjan i fjárfestingar-
lánakerfinu. Eigið fjármagn
Framkvæmdas jóös var
upphaflega 22,1 millj. Banda-
rikjadollara, sem svarar til
3991 millj. kr. miöaö við nú-
verandi gengi. Eigiö fé Fram-
kvæmdasjóös tslands er þvi
nær þrisvar sinnum minna en
þaö var viö stofnun sjóösins
áriö 1953. Hins vegarvar eigiö
fjármagn sjóösins við siöustu
áramót aöeins 1349 millj. isl.
kr., sem samsvarar 7,9 millj.
dollara. Astæöan fyrir þvi, aö
sjóðurinn hefur rýrnað aö
verögildi er sú, aö lengi vel
lánaöi hann eigið fé sitt ein-
göngu i íslenzkum krónum. En
þegar krónurnar voru greidd-
ar til baka hafði veröbólgan
rýrt verögildi þeirra til
mikilla muna. Þetta er raunar
skýrt dæmi um, hvemig verö-
bólgan leikur fjármagn
þjóðarinnar. Veröi hún viö lýöi
nógu mikil og nægilega lengi
hlýtur fjármagn þjóöarinnar
að eyðast að mestu. Þegar
menn eru aö gera ráöstafanir
sem auka á verðbólgu, er
veriö aö vega aö framtiöar-
undirstööum þjóöfélagsins, —
auk hins mikla rangiætis og
röskunar sem fylgir veröbólg-
unni. Hér er aöeins um aö
ræða eitt dæmi þess, en þau
eru mörg fleiri og býsna nær-
tæk. Þó að Framkvæmdasjóð-
ur sé ekki sérstaklega efldur
með þessari löggjöf er þó
nauðsyn á að efla eiginfjár-
stöðu hans. Þaö má gerast
meö tvennum hætti. Annars
vegar að marka honum
ákveðna tekjustofna og hins
vegar aö láta Framkvæmda-
sjóö annast miklu meira en
gert hefur veriö lánveitingar
til meiriháttar framkvæmda
eins og raunar ber aö gera aö
lögum.
Lánsfjáráætlun rikis-
stjórnarinnar
Lagt er til aö gera þá breyt-
ingu á löggjöfinni um Fram-
kvæmdastofnun rikisins að
fella niður úr 1. gr. laganna
það ákvæöi að Framkvæmda-
stofnunin hafi með höndum
heildarstjórn fjárfestingar-
mála. 1 staö þess er lögfest aö
Framkvæmdastofnunin vinni i
samvinnu við aðrar stofnanir
aö þvi aö gera sérstaka láns-
fjáráætlun rikisstjórnarinnar.
1 greinargerð fyrir frumvarp-
inu er nánar greint frá fyrir-
huguðum vinnubrögðum i
þessum efnum. Ætlunin er aö
skipa áfram samvinnunefnd
eða samstarfsnefnd undir
forystu fjármálaráöuneytisins
sem vinni þetta verk. Aörir
aöilar að þessari nefnd veröa
Framkvæmdastofnunin, Þjóö-
hagsstofnunin, Seölabankinn
og e.t.v. fleiri aðilar. Orörétt
segir svo i greinargerðinni:
„Lánsfjáráætlun rikisstjórn-
arinnar er nánast heildaryfir-
lit yfir þróun lánamarkaö-
arins innanlands og heildar-
lántökur erlendis. Henni er
ætlað aö vera stefnumarkandi
um framkvæmdir og fram-
kvæmdagetu þjóöarbúsins á
hverjum tima.” Hér er komiö
aö kjarna málsins. Heiidar-
stjórn fjárfestingarmála fellst
i gerö lánsfjáráætlunarinnar,
sem rikisstjórnin I heild verö-
ur aö samþykkja áöur en hún
öðlast gildi.
Þingmannanefndin, sem
fjallaöi um endurskoðun lag-
anna um Framkvæmdastofn-
unina, sem ég átti sæti I, geröi
upphaflega ráö fyrir þvi, að
samin væri sérstök áætiun um
fjárfestingu og þróun, þ.e.a.s.
fjárfestingaráætlun, sem næöi
bæöi yfir fjárfestingu hins
opinbera og einkaaðila. Enn-
fremur yröi svo gerö lánsfjár-
áætlun til þess aö fjármagna
fjárfestingaráætlunina. Nú
hefur veriö horfiö aö þvi raöi
aö gera lánsfjáráætlun, sem
væri stefnumarkandi um
framkvæmdir og fram-
kvæmdagetu þjóöarbúsins á
hverjum tlma. Af þessu er þvi
ljóst að lánsfjáráætluninni er
ætlaö að vera heildarfjár-
festingaráætlun. Og hugsunin,
sem aö baki býr er I fyrsta lagi
aö byggja á skynsamlegri
fjármögnun og i' annan staö aö
ráöast ekki i meiri fjár-
festingu á hverjum tima en
framkvæmdageta þjóöarbús-
ins leyfir. 1 þriðja lagi er áætl-
ununinni ætlaö aö stuöla að þvi
aö tryggja heilbrigöa fram-
vindu efnahagsmála.
Meö gerö og samþykkt láns-
fjáráætlunar hefur rikis-
stjórnin betri heildaryfirsýn
yfir þróun lánastarfseminnar
og heildarframkvæmdir
landsmanna á hverju ári.
Skynsamlegt væri, að frum-
varp aö lánsfjáráætlun gæti
legiö á boröi ráöherra aö loknu
sumarleyfi. Rikisstjórnin gæti
þá tekið lokaákvarðanir um
endanlega gerö áætlunarinn-
ar, og lagt þær fyrir Alþingi
með fjárlagafrumvarpi. A
þennan hátt ætti aö liggja fyrir
þingmönnum heildarmynd af
fjárlögum rikisins og fjár-
festingar og fjárfestingar- og
fjármögnunaráformum næsta
árs.
Nokkrar fleiri smávægileg-
ar breytingar á lögum um
Framkvæmdastofnun rikisins
er að finna i þvi stjórnarfrum-
varpi, sem ég hef hér verið að
ræða um. Ekki er ástæöa til að
gera þær sérstaklega að
umræðuefni.
o Víkingar
rifnaði upp tognun, sem
hefur verið að angra mig
að undanförnu, sagði
Stefán, eftir að hann hafði
yfirgefið völlinn, þegar 25
minútur voru til leiksloka.
Vikingar voru mun ákvaðnari
og friskari en Valsmenn i gær-
kvöldi — þeir náðu fljótlega tök-
um á leiknum, sem þeir héldu út
leikinn.Valsmenn voru fyrritil að
skora — Ingi Björn Albertsson
skoraöi markið. Vikingar jöfn-
uðu — það var Eirikur Þorsteins-
son, sem skoraði markið — úr
vitaspyrnu, en vitaspyrnudómur-
inn var mjög umdeildur. Vita-
spyrnan var dæmd á Grim Sæ-
mundssan fyrir aö bregða Óskari
Tómassyni. Eins og fyrr segir, þá
voru Vikingar betri aðilinn i
leiknum — léku góöa knattspyrnu
og voru ákveðnir. Þeir eru vel aö
sigrinum komnir — iþróttasiöan
óskar þeim til hamingju með
Reykjavikurmeistaratitilinn.
_________ — SOS
O Landsliðsnefnd
sinnum i viku. Bandarikjaferbin
er fyrsti liöurinn I undirbúningi
fyrir undankeppni HM-keppn-
innar, sagði Birgir.
Þess má geta, aö landsliöið,
sem byggt verður upp fyrir HM-
keppnina, verður væntanlega ein-
göngu skipaö leikmönnum, sem
leika hér heima. Þeir leikmenn,
sem leika I V-Þýzkalandi og
Sviþjóö, koma þá ekki til greina i
liöið. 1 sambandi viö uppbygging-
una á landsliöinu er fyrirhugaö aö
landsliöið hafi algjöran forgang
— veröi númer 1, en félagsliöin
komi siöan nr. 2. — SOS
Blik er komið út
BLIK, ársrit Vestmannaeyja
1976, er komiö út, og er þetta 32.
árgangur ritsins. Þorsteinn Þ.
Viglundsson ber ritiö uppi, eins og
jafnan áöur, og hann er útgefandi
þess. Af efni þess má nefna:
Minnisstæb prestshjón aö Ofan-
leiti, Samvinnusamtökin i Vest-
mannaeyjum (þaö er framhald
frá 1974), Atorku- og gæðakonu
minnzt i tilefni kvennaárs 1975,
Minjaskrá Byggöasafns Vest-
mannaeyja (framhald frá 1972 og
1973) o.fl., o.fl. Ekki má heldur
gleyma „Bréfi til vinar mins og
frænda,” sem Þorsteinn Þ. Vig-
lundsson skrifar, og rekur þar
einn þátt ævi sinnar.
Fjölmargar myndir eru i ritinu,
það er prentaö á góöan pappir og
er hiö vandaðasta að öllum frá-
gangi.
Lögtök
Eftir kröfu tollstjórans i Reykjavik og að
undangengnum úrskurði verða lögtök lát-
in fram fara án frekari fyrirvara, á kostn-
að gjaldenda en ábyrgð rikissjóðs, að átta
dögum liðnum frá birtingu þessarar aug-
lýsingar, fyrir eftirtöldum gjöldum:
Aföllnum og ógreiddum skemmtanaskatti og miðagjaldi,
svo og söluskatti af skemmtunum, vörugjaldi af innlendri
framlciöslu, skipulagsgjaldi af nýbyggingum, söluskatti
fyrir janúar, febrúar og mars 1976, svo og nýálögöun viö-
bótum viö söluskatt, lesta-, vita- og skoöunargjöldum af
skipum fyrir áriö 1976, skoöunargjaldi og vátryggingaiö-
gjaldi ökumanna fyrir áriö 1976, gjaidföllnum þunga-
skatti af disilbifreiöum samkvæmt ökumælum, almenn-
um og sérstökum útflutningsgjöldum, aflatryggingasjóös-
gjöldum, svo og tryggingaiögjöldum af skipshöfnum
ásamt skráningargjöídum.
Borgarfógetaembættið i Reykjavik,
6. mai 1976.
TILBOÐ
Tilboð óskast I lögn Skammadalsæöar fyrir Hitaveitu
Reykjavikur.
Útboösgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Frikirkjuvegi 3,
gegn 10.000.- kr. skilatryggingu^
Tilboðin veröa opnuö á sama stað, föstudaginn 28. mai kl.
11.00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 — Sími 25800
KONI höggdeyfar
Vorum að fó
höggdeyfa í
Mazda 818
Pantanir óskast
vitjað sem fyrst
T
ARAAULA 7 - SIMI 84450
vönduð
■ n vonav
UK falleg
PÓSTSENDU M
magnns
asmunosson
úra- og skartgripaverzlun
Sími 1-78-84 • Ingólfsstræti 3
Sendum í póstkröfu
SERSTAKT
TILBOÐ
BOSCH
HJÓLSÖG
7 1/2" HD
1150 WÖTT
Ætti að kosta
kr. 42.100
En kostar
kr. 32.700
Sfyzdman Lf
Reykjavík — Akureyri
og í verzlunum víða
um landið
TM200 án minnis
KR. 5.015
BÓRP
SlMI 01500 Abmúlah
TI-1250
Með
minni
Verð-
LÆKKUN
Texos Instruments
RAFREIKNAR
Land/Rover
dieselvél til sölu. Á
sama stað óskast 8 cyl.
vél. —• Upplýsingar í
síma (91) 4-37-60.
Hreingerningar
Tökum að okkur
hreingerningar á
hótelum og stofnunum
út um allt land. Málum
og gerum við hús.
Vanir menn.
Upplýsingar í síma
26097 eftir kl. 7 á kvöld-
in.
Félags-
lundur
Gaulverjabæ
S.l. f östudagskvöld
tapaðist í Félagslundi
taska (flauels) með
ökuskirteini ásamt
fleira. Skilvís finnandi
vinsamlega hringi í
síma 1-16-60 á timanum
9-6.