Tíminn - 11.05.1976, Blaðsíða 19
Þriðjudagur 11. maí 1976
TÍMINN
19
JÓHANNES ATLASON.... þjálfari Fram-liösins.
Jóhannes
til Vestur-
Þýzkalands
— þar sem hann ætlar að sérmennta
sig í knattspyrnuþjálfun
JÓHANNES ATLASON, fyrrum
landsliðsfyrirliði i knattspyrnu og
einn af okkar efnilegustu knatt-
spyrnuþjálfurum, hefur sótt um
inngöngu i iþröttakennarahá-
skóla i Köln í V-Þýzkalandi, þar
sem hann ætlar að taka knatt-
spyrnuþjálfun sem sérgrein.
Miklar llkur eru á þvf, að Jó-
hannes fái inngöngu i skólann og
mun hann þá væntanlega halda til
Kölnar næsta vetur og stunda þar
nám i 6 mánuði.
Það er ekki' aö efa, að Jó-
hannes, sem hefur helgað sig
knattspyrnuþjálfun, siðan hann
lagði knattspyrnuskóna á hilluna
1973 — eftir að hafa verið þjálfari
og leikmaður 1. deildar liðs Akur-
eyrar um tima — mun koma
reynslunni rikari heim, eftir að
hafa verið i V-Þýzkalandi, þar
sem knattspyrnan og þjálfun er
sú fullkomnasta i heimi.
Samhiiða náminu mun Jó-
hannes fylgjast með þjálfun hjá
þýzkum félagsliðum — þá vænt-
anlega 1. deildar liðunum 1. FC
Köln, þar sem hinn heimsfrægi
Hannes Weisweilererþjálfari, og
Borussia Mönchengladbach —
v-þýzka meistaraliðinu, sem hef-
ur aðsetur rétt utan við Köln. Þá
hefur Jóhannes mikinn hug á að
bregða sér til Belgiu og kynnast
þjálfun hjá Standard Liege og
Charleroi — liðunum sem íslend-
ingarnir Asgeir Sigurvinsson og
Guðgeir Leifsson leika með, um
tima.
Þá hefur Jóhannes ýmislegt á
prjónunum i þvi augnamiði að
kynna sér knattspyrnuþjálfun
sem bezt. Jóhannes mun vera
fyrsti íslendingurinn um langan
tima, sem heldur utan til að sér-
mennta sig i knattspyrnuþjálfun.
—SOS
LOFTUR EYJÓLFSSON... TEITUR ÞÓRÐARSON... skoraöi
tryggöi Haukum sigur gegn FH. 2 mörk uppi á Skaga.
Þrumufleygur
fró Lofti...
— tryggði Haukum sigur í Litlu
bikarkeppninni
LOFTUR Eyjólfsson, hinn mark-
sækni leikmaöur Hauka I Hafnar-
firði, tryggði Haukum sigur i
Litlu bikarkeppninni þegar hann
skoraði sigurmarkið (1:0) fyrir
þá, gegn „stóra bróöur” FH.
Loftur skoraði markiö með
þrumufleygi, beint úr auka-
spyrnu — knötturinn sigldi fram
hjá varnarvegg FH-inga og hafn-
aði óverjandi i bláhorninu.
Haukar stöðvuðu þar meö sig-
urgöngu Keflvikinga og Skaga-
manna, sem hafa skipzt á um að
sigra i keppninni. Akurnesingar
voru einnig I sviðsljósinu um
helgina — þeir unnu stórsigur
(3:0) I leik gegn Keflvikingum
uppi á Skaga. Landsliðsmiðherj-
arnir marksæknu, Teitur Þórðar-
son og Matthias Haligrimsson,
skoruðu mörk Skagamanna —■
Teitur skoraði það fyrsta, með
skálla, og síðan bætti Matthias
marki við — með þrumuskoti, eft-
irsendingu frá Teiti, sem innsigl-
aði siðan sigur (3:0) islands-
meistaranna.
Skúli kom, sá
oq siqraði«.«
— þegar hann tryggði sér Norðurlandameistaratitil
í kraftlyftingum í Þrándheimi og setti Islandsmet
SKÚLI ÓSKARSSON. lyft-
ingakappinn sterki frá Fá-
skrúðsfirði, var í sviðsliós-
inu í Þrándheimi í Noregi
um helgina, þar sem hann
tók þátt í Norðurlanda-
meistaramótinu í kraft-
lyftingum.
Þessi snaggaralegi og
skemmtilegi lyftingamaður,
gerði sér litið fyrir og tryggði sér
Norðurlandameistaratitilinn i
millivigt— lyfti samtals 650 kg,
sem er nýtt íslandsmet. Norður-
landameistaratitillinn var aldrei i
hættu hjá Skúla — hann var i sér-
flokki i millivigtinni og sigraði
örugglega. Það er engum blöðum
um það að fletta, aö Skúli er einn
bezti kraftlyftingamaður á
Norðurlöndum, það sýndi hann i
Þrándheimi og i Birmingham i varö þriöji i millivigt i heims-
Englandi sl. vetur, þegar hann meistarakeppninni.
n
BJÖRGVIN Björgvinsson landsliðsmaðurinn snjalli
úr Vlkingi ihandknattleik, sem hefur verið búsettur
á Egiisstöðum si. ár, er nú á leiöinni til Reykjavfkur
~ alkominn. — Ég hef ekki ákveðið, hvort ég gef
kost á mér i landsliöiö, sem fer til Bandarikjanna —
en aftur á móti mun ég byrja að æfa með Vikings-
liðinu af fullum krafti, þegar æfingar byrja hjá þvi I
haust, sagði Björgvin, þegar Tlmiun hafði samband
við hann. — SOS
Skotar eru ekki
nízkir á mörkin
— þeir hafa skorað 6 mörk á Hampden Park og hafa gott
forskot í brezku meistarakeppninni
★ Don Masson er orðinn einn af lykilmönnum Skota
DON MASSON, hinn snjaili mið-
vailarspilari hjá Queens Park
Rangers, lék aðalhlutverkið hjá
Skotum, þegar þeir unnu góðan
sigur (3:0) gegn N-trum i brezku
meistarakeppninni—þessi snjalii
leikmaður, sem býr yfir miklum
hæfileikum, er orðinn lykilmaður
hjá Skotum, eftir aðeins tvo
iandsleiki. Það hefur hann sýnt á
Hampden Park.
Don Masson og Derby-leik-
mennirnir Bruce Rioch og Archie
Gemmill sýndu stórleik á miöj-
unni —þeir réðu algjörlega gangi
leiksins og sköpuðu mikla hættu
uppiviðmark N-íranna. Gemmill
opnaöi leikinn meö góðu marki —
en si'ðan bætti Don Massonmarki
við, og hann var aftur á ferðinni,
þegar Skotar gulltryggðu sér sig-
ur (3:0). Þá sendi hann knöttinn
til Kenny Dalglish (Celtic), sem
skoraöi örugglega. Skotar óðu i
marktækifærunum — t.d. misnot-
aði BruceRiochvitaspyrnu. — Ég
er mjög ánægöur með strákana,
þeir hafa ekki verið nizkir á
mörkin, sagði Willie Ormund,
einvaldur skozka liðsins, en
strákarnir hans hafa skoraö 6
mörk i tveimur leikjum I brezku
meistarakeppninni.
Pat Jennings, hinn snjalli
markvörður Tottenham, átti ekki
möguleika á að koma i veg fyrir
mörkin þrjú. Jennings lék sinn 59.
landsleik fyrir N-írland, og jafn-
aði þar með met yfirmanns slns,
Terry Neill, framkvæmdastjóri
Tottenham, sem lék 59 landsleiki,
þegar hann lék meö Arsenal, og
MASSON GEMMILL
JENNINGS TAYLOR
siöan Hull. Tommy Cassidy
(Newcastle) var eini irinn, sem
átti ekki slæman dag á Hampden
Park, þar sem 49.897 áhorfendur
voru samankomnir.
Peter Taylor (Crystal Palace)
var hetja hins unga enska lands-
liðs.sem sigraöi (1:0) Wales
iCardiff. Taylor, sem hefur skor-
að mörk I öllum landsleikjum sin-
um fyrir England — bæði með
aðallandsliöinu og landsliðinu
sem skipaö er leikmönnum undir
23ja ára aldri, skoraði sigurmark
Englendinga, eftir sendingu frá
fyrirliöanum, Gerry Francis
(Q.P.R.). —SOS
Real fékk
þungan dóm
REAL MADRID hefur verið
dæmt I þriggja ára keppnisbann i
Evrópukeppni I knattspyrnu. A-
stæðan fyrir þvi er hegðun áhorf-
enda i Madrid, þegar þeir ruddust
inn á leikvanginn eftir leik Real
Madrid gegn Bayern Munchen og
lumbruðu á dómaranum og Gerd
Muller, sem ætlaði að verja dóm-
arann. — Þetta er þungur dómur
og við munum tapa stórfé — allt
að 100 milljónum dollara, sögðu
Spánverjar, scm hafa áfrýjað
dómnum. — SOS