Tíminn - 11.05.1976, Side 16
16
TÍMINN
Þriðjudagur 11. maf 1976
Á FLÓTTA FRÁ ÁSTINNI
Eftir Rona Randall 49
sviðið. Það er mér mikilvæqt, bað skilurðu sjálfsagt.
Justin bráðnaði á stundinni. — Fyrirgefðu Venetia,
sagði hann skömmustulegur. — Fyrirgefðu.
— Auðvitað fyrirgef ég þér, svaraði hún blíðlega.
— Fæ ég þá að fylgjaþér á hótelið?
— Ég veit það ekki...
Þrátt fyrir allt gat verið að Mark vildi launa henni fyr-
ir miðana, sem hún hafði sent honum og bjóða henni út. -
En ef hann gerði það ekki...og Brent kæmi ekki...væri
ágætt að hafa Justin í bakhöndinni.
— Af hverju ertu ekki viss? spurði hann. — Ætlar Brent
að sækja þig?
— Kannske.
— Og kannske ekki! Hann hef ur að minnsta kosti ekki
látið sjá sig undanfarin kvöld. Af brýðisemin rak hann til
að halda áfram: — Kannske hann sé með einhverri ann-
arri.
Venetia starði undrandi á hann. — Hvað áttu við?
Brent með annarri? Aldrei! Það mundi hann ekki gera!
Auk þess þekkir hann ekki aðrar en mig hérna í Paris.
Hún vildi blátt áfram ekki trúa því, að Brent hefði
kynnzt öðrum konum án þess að hún vissi það. Brent
hafði aldrei litið á aðra konu síðan hún kom til sögunnar.
En augnaráð Justins skelfdi hana.
— Hverri? Um hverja ertu að hugsa?
Afbrýðisemin lét hana gleyma allri varkárni. Hann
hafði sagt það sem hann hefði átt að láta ósagt og nú
varð hann að reyna að bæta úr því. Ef hann tæki orð sín
aftur núna, yrði þetta hlægilegt.
— Ég er ekki að hugsa um neina sérstaka, sagði hann,
— en þér skjátlast þegar þú heldur, að hann þekki ekki
neinn í París. Hann þekkir Lowells....og líka Myru
Henderson, bætti hann við.
— Myra Henderson! Stúlkan á sjúkrahúsinu?
— Já, hann hitti hana í boðinu hjá Estelle. Hvers vegna
skyldi hann ekki vera með henni?
Venetia skellihló. — Elsku Justin, ef þú ert að reyna að
gera mig af brýðisama, þá láttu þér detta einhverja betri
í hug. Brent mundi ekki líta tvisvar á stúlku eins og
Myru.
— Hvers vegna ekki? Hún er...mjög aðlaðandi. Og
gleymdu ekki að þau hittust aftur um kvöldið i Oper-
unni. Tókstu ekki eftir að þau voru niðursokkin f einka-
samræður þegar við vorum hérna á eftir?
Brosið hvarf af andliti Venetiu. — Þú ert galinn, hvísl-
aði hún.
Hann hafði valdið henni áhyggjum og hann var ánægð-
ur yfir því. — Gleymdu því, sagði hann.
En grunurinn var vaknaður. Þegar hún hugsaði um
það, þá höfðu þau Brent og þessi stúlka verið að tala
saman, bara tvö....gat það raunverulega verið?
— Finnst þér hún aðlaðandi, Justin?
— Heyrðu nú, sagði hann vandræðalega. — Ég sagði
þér að gleyma þessu....
Hún leit reiðilega á hann. — Gleyma því? Eftir að þú
gerðir allt, sem þú gazt til að segja mér það? Hvers kon-
ar f íf I heldurðu, að ég sé? Eða ertu kannske bara að vera
andstyggilegur? Ertu að búa þetta til, Justin?
— Nei, alls ekki, sagði hann ringlaður. — Mér fannst
satt að segja að einhver ætti að haf a orð á þessu við þig
með Brent.
— Þú ert afbrýðisamur, sagði hún ásakandi.
— Auðvitað er ég það. Það eru allir ástfangnir menn.
Brent væri það líka, ef hann elskaði þig. Þá sæti hann í
Óperunni á hverju kvöldi og gætti þess að enginn annar
færi með þig. En er hann hérna? Skiptir það hann engu
máli, hver fylgir þér heim?
Honum líkaði ekki, það sem hann var að segja. Venetia
hafði sært hann og hann langaði til að særa hana. — Þér
finnst Myra Henderson ef til vill ekki aðlaðandi, hélt
hann áfram. — En þú mátt trúa mér, þegar ég segi, að
hún er það. Ég viðurkenni, að hún er engin Ijómandi
fegurðardís, en ég veitti henni athygli í fyrsta skipti,
sem ég sá hana. Hvers vegna skyldi Brent þá ekki gera
það? Eða hvaða karlmaður sem er? Það eru læknar á
sjúkrahúsinu og þeir eru mannlegir eins og aðrir.
— Mark Lowell lika? Venetia var orðin óstyrk. —
Finnst honum hún líka aðlaðandi?
— Hvers vegna ekki?
Já, hvers vegna ekki? Venetia varð skyndilega hrædd.
Hún var sannfærð um að Myra Henderson var hættuleg,
allar aðlaðandi konur voru hættulegar þegar hún var
sjálf ekki viðstödd og gat keppt við þær.
Það var barið að dyrum. — Tjaldið, ungfrú, tjaldið!
Venetia settist við snyrtiborðið og strauk púður-
kvastanum yfir andlitið. — Þú verður að fara núna,
Justin.
HVELL
G
E
I
R
I
D
R
E
K
I
K
U
B
B
U
R
Dreki blistrar og
Djöfull kemur á vettvang
Hjálpið honum upp, en varlega’
þetta er úlfur. Hann bitur ekki I
nema að þið verðið harkalegir A-
^við hann. -
Við héldum að þú værir
-—— JiJU jn^- Mork
að er auöséö, ekki hreyfa
'ramhald
'Zí'SMttUJ
7.00 Morgunútvarp Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10
Morgunleikfimi kl. 7.15 og
9.05. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og
forustugr. dagbl.) 9.00 og
10.00 Morgunbæn kl. 7.55.
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Guðrún Birna Hannes-
döttir les framhald sögunn-
ar af „Stóru gæsinni og litlu
hvitu öndinni” eftir Mein-
dert DeJong (8). Til-
kynningar kl. 9.30. Þing-
fréttirkl. 9.45. Létt lög milli
atriða. Fiskispjallkl. 10.05:
Ásgeir Jakobsson flytur.
Hin gömlu kynni kl. 10.25:
Valborg Bentsdóttir sér.um
þáttinn.. Morguntónleikar
kl. 11.00: Yehudi Menuhin
og Louis Kentner leika
Sónötu nr. 3 i d-moll fyrir
fiðlu og pianó op. 108 eftir
Brahms/Smetana-kvartett-
inn leikur strengjakvartett i
As-dúr op 105 eftir Dvorák.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna. Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „Gestur
I blindgötu” eftir Jane
Blaekmore Valdis Halldórs-
dóttir les þýðingu slna (2).
15.00 Miödegistónleikar Adolf
Scherbaum og Barokk-
hljómsveitin I Hamborg
leika Trompetkonsert nr. 2 i
D-dúr eftir Giuseppe
Torelli: Scherbaum stjóm-
ar Amsterdam kvartettinn
leikur Kvartett nr. 11 D-dúr
fyrir flautu, fiðlu og sembal
eftir Georg Philipp Tele-
mann. Jörg Demus leikur á
planó Partítu nr. 1 i B-dúr
eftir Johann Sebastian
Bach. Hubert Schoonbroodt,
Pierrick Houdy, Robert
Gendre og kammersveit
leika Konsertsinfónlu fyrir
sembal, pianó, fiðlu og
kammersveit op. 9 eftir
Jean Francois Tapray:
Gérard Cartigny stjórnar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir). Tón-
leikar.
17.30 „Sagan af Serjoza” eftir
Veru Panovu Geir
Kristjánsson les
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.00 Nokkur orð frá Nairobi
Séra Bernharður Guð-
mundsson flytur erindi
20.00 Lög unga fólksins
Sverrir Sverrisson kynnir.
21.00 Að tafli Ingvar As-
mur.dsson flytur skákþátt.
21.30 Elly Ameling syngur lög
eftir Hugo Wolf
22.00 Fréttu-.
22.15 Veðurfregnir
Kvöldsagan: „Sá svarti _
senuþjófur”, ævisaga
Haralds Björnssonar.
Höfundurinn, Njörður P.
Njarðvlk, les (19).
22.40 Harmonikulög Adriano
leikur.
23.00 A hljóðbergi „Tal som
regn”. Karen Blixen ræðir
um sjálfa sig sem söguþul
og segir frá Barrabasi og
vini Heródesar konungs.
23.40 Fréttir. Dagskrárlok
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Þjóðarskútan Þáttur um
störf alþingis Umsjónar-
menn Björn Teitsson og
Björn Þorsteinsson. Stjórn
upptöku Sigurður Sverrir
Pálsson.
21.20 McCloud Bandarlskur
sakamálamyndaflokkur.
Riddaralið stórborgarinar
Þýðandi Kristmann Eiðs-
son.
22.50 Hver á að metta mann-
kynið?! þessari bandarlsku
fræðslumynd er lýst eðli og
ástæðum matarskortsins i
heiminumog bent á hugsan-
leg ráðtilúrbóta. Einnig eru
borin saman lifskjör manna
I hinum ýmsu heimshlutum.
Þýðandi og þulur Ellert
Sigurbjörnsson.
23.35 Dagskrárlok