Tíminn - 11.05.1976, Qupperneq 23
Þriðjudagur 11. mai 1976
TÍMINN
23
Framsóknarkonur
í Reykjavík
Félag framsóknarkvenna heldur fund fimmtudaginn 13. mai kl.
20:30 að Rauöarárstlg 18. Umræðuefni: Kirkjumál. Ólafur
Jóhannesson dóms- og kirkjumálaráöherra mætir á fundinum.
Fjölmennið og takið með ykkur kaffibrúsann. Stjórnin.
Framsóknarmenn
Keflavík og nógrenni
Fundur veröur haldinn i Framsóknarhúsinu I Keflavlk fimmtu-
daginn 13. mai kl. 20:30. Framsögumaður Steingrlmur Her-
mannsson forstjóri Rannsóknaráðs rikisins ræðir um iönþróun
og stóriðju.
Fundarstjóri veröur Birgir Guðnason. Framsóknarmenn fjöl-
mennið stundvlslega.
Akranes og nærsveitir
Framsóknarfélag Akraness heldur fund um stjórnmál I Fram-
sóknarhúsinu á Akranesi sunnudaginn 16. mai kl. 16.00. Fram-
sögumaður verður Ólafur Jóhannesson, dómsmálaráðherra og
formaður Framsóknarflokksins.
öllum heimill aðgangur meðan húsrúm leyfir.
fVerkfræðingar
Bygginga-
tæknifræðingar!
Starf forstöðumanns tæknideildar ísa-
fjarðarkaupstaðar er laust til umsóknar.
Laun skv. launaflokki B-1 + 20% álag +
bifreiðastyrkur.
Umsóknarfrestur er til 20. mai n.k.
Nánari upplýsingar veitir undirritaður.
ísafirði, 5. maí 1976
Bæjarstjóri ísafjarðar
Lögtaksúrskurður
Keflavík, Grindavík, Njarðvík
og Gullbringusýsla
Lögtaksúrskurður vegna ógreiddrar en
gjaldfallinnar fyrirframgreiðslu þing-
gjaida 1976 var uppkveðinn í dag, fimmtu-
daginn 6. maí 1976.
Lögtök fyrir framangreindum gjöldum
ásamt dráttarvöxtum og kostnaði, verða
látin fara fram að 8 dögum liðnum frá
birtingu þessarar auglýsingar verði þau
eigi að fullu greidd innan þess tima.
Keflavik, 6. mai 1976.
Bæjarfógetinn í Keflavik,
Grindavík og Njarðvík,
Sýslumaðurinn i Gullbringusýslu.
Jón Eysteinsson.
Jörundur Pálsson með eina af mörgum Ksju-myndum sinum
l'imamvud: Gunnar.
Hefur málað á annað hundrað
myndir af Esjunni!
gébé Rvik — Ekki munu þeir
mar'gir islenzku listmálararnir
sem sérhæfa sig i að mála aö-
eins eina íyrirmynd og telja má
að Jörundur Pálsson, arkitekt,
sé þar i sérflokki, en hann hefur
valið sér Esjuna sem verkefni.
Fyrstu Esjumynd sina málaði
Jörundur árið 1947, en þá nýj-
ustu i gær. Ails kveðst hann hafa
inálað rúmlega eitt hundrað
Esjumyndir. Jörundur hefur
tvisvar haldiö einkasýningar i
Ueykjavík þar sem hann hefur
eingöngu sýnt Esju-myndir, en
þriðju sýninguna áætlar hann að
opna i haust. Timinn ræddi
stuttlega við Jörund nýlega.
— Ertu ekki búinn að fá leið á
að mála Esjuna?
— Nei, öðru nær, nú fer ég
fyrst að kunna eitthvaö! svarar
hann og bætir við, að ekki sé
mikið, þó að hann máli Esjuna i
tiu ár, þegar litið sé á verk
danska listmálarans Oluf Höst,
sem málaöi sömu hlöðuna og
sveitabæinn i þrjátiu ár og varð
heimsfrægur fyrir!
F’lestar myndir Jörundar eru
vatnslitamyndir, en á næstu
sýningu mun hann einnig sýna
kritarmyndir af Esjunni. — Ég
hef farið viða um i nágrenni
Esju og málað fjallið frá ýms-
um sjónarhornumogeralltaf að
finna nýtt og nýtt mótiv, þvi
íjallið er t.d. gjörólikt frá Kjal-
arnesi séð, en héðan af Klepps-
veginum, sagði hann, en vinnu-
stofa Jörundar er á Kleppsveg-
inum, þar sem nú má finna um
30 Esjumyndir, ef einhver hefir
áhuga á að lita inn og fá sér
Esjumynd.
Listiðnaður á Listahótíð
A Listahátiðinni i júni n.k.
verður efnt til sérstakrar listiðn-
aðarsýningar, þar sem sýndir
verða islenzkir listiðnaðarmunir.
Auk islenzkra þátttakenda hefur
tveim þekktum listhönnuðum frá
Finnlandi verið boðið að taka þátt
i sýningunni.
Listiðnaðarsýningin verður
haldin i Norræna húsinu dagana
5. til 20. júní. Aðstandendur sýn-
ingarinnar eru félagið Listiðn
með stuðningi Félags Islenzkra
iðnrekenda og útflutningsmið-
stöðvar iðnaðarins. Þá hefur Nor-
ræna húsið veitt aðstoð I sam-
bandi við boð til erlendu gest-
anna.
Þátttaka • i sýningunni er
opin þeim, sem starfa á listiðnaö-
arsviðinu, svo sem félögum List-
iðnar, útflytjendum nytjahstar,
og öðrum þeim sem má flokka
undir þetta sérsvið.
Sérstök matsnefnd mun velja
sýningarmunina, en fram-
kvæmdanefnd sýningarinnar hef-
ur nú sent frá sér bréf varðandi
þátttöku I sýningunni. 1 fram-
kvæmdanefndinni eiga sæti Jón
Ólafsson, húsgagnaarkitekt,
Hilmar Sigurðsson, teiknari FIT,
Ottó Ólafsson, teiknariFlT, Úlfur
Sigurmundsson, hagfræöingur,
Hrafn Gunnlaugsson, frkvstj.
Listahátiðar og Þóra Kristjáns-
dóttir, fulltrúi Norræna hússins.
Hjónin Vuokko og Antti Nur-
mesniemi verða sérstakir gestir
sýningarinnar, en þau eru kunnir
listhönnuðir, bæði i heimalandi
sinu og erlendis. Hafa þau fengið
margs konar viðurkenningar fyr-
irstörfsin á listiönaðarsviðinu, —
m.a. I fataiðnaði, keramik, hús-
gagna- og gleriönaði. Er mikill
fengur i þátttöku þeirra á þessari
sýningu.
Þeir sem hafa áhuga á þátttöku
á Listiðnaðarsýningunni, eru vin-
samlegast beðnir um að hafa
samband sem fyrst við Jón Ólafs-
son, húsgagnaarkitekt, i sima
13013.
Vill að bíllinn verði tekinn
aftur í vísitöluna
Timanum hefur borizt eftirfar-
andi frá FtB:
Félag islenzkra bifreiðaeig-
enda átelur stjórnvöld fyrir þær
skefjalausu hækkanir, sem nú
undanfarið hafa oröið á rekstrar-
kostnaði bifreiða fyrir þeirra til-
stilli. Bensin hefur hækkað um
17%, tryggingar um allt að 70%,
auk annarra hækkana, sem leiöa
af siöustu ráðstöfunum. Meiri
hluti þessara hækkana rennur
beint i rikissjóð sem skattur og
tollar. Hér er þvi um að ræða
aukningu á hinum óhóflegu álög-
um ríkisins á bifreiðaeigendur.
Félagið vill eindregið vara viö
þeirri stefnu, sem stjórnvöld hafa
haft, að auka álögur á bifreiða-
eigendur i hvert skipti sem rikis-
sjóður er I fjárþröng. Þessistefna
sýnir, aö ráðamenn þjóðarinnar
gera sér ekki grein fyrir þýðingu
bifreiöarinnar i nútima þjóðlifi.
Það er nauðsynlegt fyrir þjóöina
að ráöamenn geri sér það ljóst, aö
við lifum á siðari hluta 20. aldar
og að bifreiöin er ekki lengur
,,lúxus”tæki, heldur þarfasti
Ráðskona
Kona um f ertugt með 3
börn óskar eftir ráðs
konustöðu. Er vön
sveitastörfum. Simi 7-
17-54 eftir kl. 8 á kvöld-
in.
þjónninn og forsenda þess að unnt
sé að lifa mannsæmandi lifi i
þessu landi.
I bréfi F.l.B. til rikisstjórnar-
innar, dagsettu 3. febrúar 1976,
óskuðum við eftir þvi að ríkis-
valdið léti af þeim leiða sið að
gripa erlendar oliuhækkanir feg-
ins hendi, sem forsendu til öflun-
ar aukinna toll- og skatttekna.
F.l.B. gerir þá kröfu til stjórn-
valda, að rekstrarkostnaöur bif-
reiða verði tekinn aftur inn i út-
reikningsgrundvöll visitölu fram-
færlsukostnaðar.
(FráF.Í.B.)
r
Bílasalan Höfðatúni 10
SELUR ALLA BÍLA:
Fólksbila — Stationbíla
Jeppa — Sendibila
Vörubíla — Vöruflutningabila
14 ára reynsla i bilaviðskiptum. Opið alla
virka daga kl. 9—7, laugardaga kl. 1—4.
Bilasclan Höfðatúni 10
Simar 1-88-70 & 1-88-81