Tíminn - 18.05.1976, Page 1
FLUGSTÖÐIN HF
Símar 27122 — 11422
Leiguf lug— Neyðarf lug
■ HVERT SEM ER
HVENÆR SEM
SLONGUR
BARKAR
TENGI
Landvélar hf
Gsal-Reykjavik. — Það hefur
ekki komið til tals að ég eigi
einkaviðræður við Crœsland ut-
anrikisráðherra Breta á
NATO-fundinum i Osló, sagði
Einar Ágústsson utanrikisráð-
herra I samtali við Timann I gær.
Timinn innti utanrikisráðherra
eftir þvi, hvort hann myndi ræða
einslega við Crossland ef þess
yrði ódcað af hálfu brezka utan-
rikisráðherrans. Einar Ágústsson
sagði, að tekin yrði afstaða til
þess á fundinum, ef slik beiöni
kæmifram, en sagði, að sllkt væri
ekki útilokað.
Einar Agústsson utanrikisráð-
herra mun i ræðu sinni á fundin-
um I Osló gera landhelgismáliö að
umræðuefni og m.a. sérstaklega
ræða um slöustu aögerðir Breta á
miðunum, þ.e.as. ásiglingar Fal-
mouth á Tý og hótun Nimrodþot-
unnar um loftárás á Ægi.
Einar Agústsson.
Fulltrúar allra þingflokkanna:
Vilja kalla sendi-
herra íslands
hjá NATO heim
AÞ-Reykjavik. —t gær var lögð
fram á Alþingi þingsályktunar-
tillaga um að kalla heim sendi-
herra íslands hjá Atlantshafs-
bandalaginu. Eru flutnings-
menn tillögunnar bæði úr
stjórnarflokkunum og stjórnar-
andstöðuflokkunum, en þeir eru
Ragnar Arnalds (Ab), Magnús
Torfi Ólafsson (SFV), Stein-
grimur Hermannsson (F), Pét-
ur Sigurðsson (S) og Jón Arm.
Héðinsson (A).
Þingsályktunartillagan er
svohljóöandi:
„Alþingi ályktar að fela rikis-
stjórninni að kalla heim sendi-
herra tslands hjá Atlantshafs-
bandalaginu til að mótmæla
hernaðarofbeldi Breta I Is-
lenzkri landhelgi.”
I greinargerð segja flutnings-
menn, að tillagan sé borin fram
I tilefni af atburöum seinustu
daga og mánaða á miöunum
umhverfis landið og þarfnist
hún ekki nánari skýringa.
Athygli vekur, að tveir af
þingmönnum stjórnarflokk-
anna, þeir Steingrimur Her-
mannsson og Pétur Sigurösson
eru meðal flutningsmanna.
Óvist er, hvort tillagan verður
borin undir atkvæöi Alþingis
vegna þess hversu seint hún er
fram borin, en vitað er, að hún
n.ýtur stuðnings sumra þing-
manna stjórnarflokkanna, bæði
Sjálfstæðisflokksins og Fram-
sóknarflokksins.
Bana-
slys á
Höfn
Gsal-Reykjavik — Sautján
ára gamall piltur, Aðalsteinn
Ingólfsson, lézt i bifreiða-
slysi aðfaranótt s.l. laugar-
dags á Höfn i Hornafirði.
Aðalsteinn var búsettur á
Höfn.
Um tildrög slyssins er ekki
vitað, þar eö engir sjónar-
vottar voru að slysinu, en
bifreið Aðalsteins fannst rétt
innan viö þorpið, þar sem
hún lá úti i slpirði. Er taliö
ltklegt að Aöalsteinn hafi
misst vald á bifreiðinni með
fyrrgreindum afleiðingum,
og sjálfur kastast út úr bif-
reiðinni.
Einar Ágústsson, utanríkisráðherra:
Viðræður milli mín
og Crosslands hafa
ekki komið til tals
Fjölmennustu aðgerðir til þessa gegn dvol varnarliðsins og aðild
tslands að NATO voru á laugardag, þegar farin var Keflavikur-
ganga, sem endaði með útifundi á Lækjartorgi i Reykjavik.
Þessi mynd er tekin við upphaf göngunnar, en þá voru þátttak-
endur um 800. en á útifundinum voru um 8000 manns. Tima-
mynd: G.E.
í dag
Skáksambandið
leggst gegn skák-
móti umboðs-
manna tóbaks-
framleiðanda
-----► O
Dr. Euwe fær
gabbróstein í
afmælis gjöf
—► o
Bretarnir á
Vestfjarða-
mið á ný
Gsal—Reykjavik. — Brezku
togaraskipstjórarnir fengu fyrir-
mæli um það um helgina aö flytja
sig á Vestfjaröamiö og voru fyrir-
mælin gefin að undangengnum
allmörgum atkvæðagreiðslum
hjá togarskipstjórnunum, sem
ýmist ákváðu að fara eða vera.
Loks tók flotinn af skarið og
skipaði þeim að halda á Vest-
fjaröamiö.
Fyrstu togararnir komu á mið-
in úti af Vestfjöröum á miönætti
sunnudagskvölds og i gær var
allur togaraflotinn kominn á miö-
in, svo og verndarflotinn. Það er
ekki ýkja langt siðan brezku
togararnir gáfust upp á veiðum á
Vestfjarða;miðum og héldu aust-
ur um aftur. Hvort sú saga endur-
tekursig nú fer eftir aflabrögðum
en vestfirzkir sjómenn eru mjög
uggandi vegna komu brezku
togaranna, enda mikið af ungfiski
á miðunum.
Óvenju mikið um lambalát
SJ-Reykjavik. — Það viröist
vera óvenju mikið um lambalát
nú i vor, sagöi Siguröur Sigurðs-
son dýralæknir að tílraunastöö-
inni i dýrameinafræði aö Keld-
um Iviðtali við Timann. Bæði er
um að ræða svokallaö smitandi
lambalát og lambalát, sem or-
sakast af heysýklum, sem ber
meira á þegar hey eru léleg
eins og nú hefur verið um mik-
inn hluta landsins. Viö höfum
fengið dæmi um fósturlát hjá
kindum um allt land nema af
Austurlandi og Vestfjöröum.
Hver orsök þessa er vitum við
ekki.
Þórarinn Snorrason böndi aö
Vogsósum i Selvogi hefur oröiö
illa úti vegna lambaláts i vor, og
er talið að þar sé um smitandi
lambalát að ræða. Yfir 160 ær
hafa látiö lömb hjá honum og er
þar um tilfinnanlegt tjón að
ræða, þar sem lambið er um
7000 króna virði. Þórarinn haföi
385 ær á fóðrum i vetur. Tjón
Þórarins er meira en talan um
lambalátið segir til um þvi af
140 ám sem búnar eru að bera,
var mikið af tvilembum, þar
sem annað lambið fæddist dautt
eða jafnvel bæöi. Samtals hefur
Þórarinn misst 310-320 lömb.
Aö sögn Þórarins er þetta
mikið fjárhagslegt áfall fyrir
hann og fjölskyldu hans, sex
manns, sem vinnur öll við búið.
Er þarna farið kaup fjölskyld-
unnar yfir árið. Ekki bætir úr
skák, að veturinn var dýr i fóðr-
un, þvi mikiö þurfti að kaupa af
fóöurbæti, og framundan eru
kostnaðarsöm áburðarkaup.
Þetta lamb hefur komizt á
legg áfallalaust, en nú I vor
hefur vcrið óvenju mikið um
lambalát, eins og fram kem-
ur I fréttinni.
Þórarinn er eingöngu með sauð-
fjárbúskap.
Fé getur gengið lengi með
sýkla þá, sem valda smitandi
lambaláti. T.d. er ekki ótitt aö
það berist milli bæja með hrút-
um, er seldir eru. Að sögn Sig
urðar Sigurðssonar láta venju-
lega frá 10% upp i 80% ánna
lömbum þar sem smitandi
lambalát er fyrir.
Tvibýli er I Vogsósum og á
hinum bænum hefur litiö boriö á
lambaláti I vor, aðeins 5-6 ær
látiö lömbum.
Hjá Siguröi Auöunssyni i
Hveragerði I ölfusi hafa yfir 35
ær látiö lömbum.