Tíminn - 18.05.1976, Blaðsíða 3

Tíminn - 18.05.1976, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 18. mai 1976 TÍMINN 3 á Listahátíðina FB—Reykjavik. — Söluskrifstofa Listahátiöarinnar var fuil út úr dyrum i allan gærdag, fyrsta söludag miða að Listahátið, að sögn Hrafns Gunnlaugssonar. Mestur áhugi fólks virðist vera á Benny Goodman, Helga Tómassyni og Cleo Laine, og mið- ar á skemmtanir þessara aðila eru langt til uppseldir nú Næst á eftir þessum þremenningum koma þau Anneliese Rothenberger, og William Walker. Hrafn sagði, að fólk virtist ekki vita um verð að- göngumiðanna á Listahátiðinni, Biðröð við miöasölu Listahátiðar I gær. Timamynd: G.E. enda hefði það ekki verið auglýst sérstaklega. Hann sagði að verðið væri frá 800 til 2000 krónur. Miðar á Benny Goodman og Cleo Laine kosta 2000 krónur, en miðar i Þjóðleikhúsið og Háskólabió yfir- leitt lOOOkrónur, þó nokkru meira I beztu sætin. Þá kostar yfirleitt 800 i Kjarvalsstaði og Norræna húsið. Vísitala framfærslukostnaðar: Var 566 stig í maíbyrjun 11, 6% hækkun í byrjun febrúar Kauplagsnefiid hefur reiknað visitölu framfærslukostnaðar í maíbýrjun 1976 og reyndist hún vera 566 stig eða 59 stigum hærri en i febrúarbyrjun 1976. — Hækkun visitölunnar frá febrú- arbyrjun 1976 til malbyriunar 1976 var nánar tiltekiö 58,7 stig eða 11,6%. Var um að ræða verð- hækkun á fjölmörgum innlendum vöru- og þjónustuliðum, þar á meðal á búvörum i marz s.l., seg- ir I fréttatilkynningu Hagstofu Is- lands. TOLLVÖRU- GEYMSLA OPNUÐ í KEFLAVÍK Gsal-Reykjavik. Fjörutiu ein- staklingar og félög á Suðurnesj- um hafa opnað tollvörugeymslu að Iiafnargötu 20 i Keflavik, og var tollvörugeymslan tekin I notkun sl. fimmtudag, en þar eru teknar til geymslu ótollafgreidd- ar vörur og umboðssendingar fyrir innlenda og erlenda aöila. Upphitað geymslurými innan- húss er 1070 fermetrar, en vöru- geymsla er einnig á 6000 fermetra svæði utanhúss, innan girðingar. Að sögn Guðmundar Guð- mundssonar, framkvæmdastjóra Tollvörugeymslunnar vonast eig- endur fyrirtækisins til þess, að fyrirtækiö geti stuðlað að eflingu iðnaðar og verzlunar á Suður- nesjum. Breiðholt heldur áfram með verka- mannabústaði FB-Reykjavik. Samkvæmt upp- lýsingum, sem blaðið hefur aflað sér lögöust framkvæmdir Breið- holts hf. við Verkamannabústaði Reykjavikur I Seljahverfi ekki niður um helgina, eins og fram hafði komið I fréttum, að gæti orðið. Mun verkinu verða haldið á- fram, enþarna er verið að byggja um 300 ibúðir af ýmsum gerðum og stærðum, og eru þær mjög mislangt komnar. Sumar Ibúð- anna eru senn tilbúnar til afhend- ingar, en aðrar eiga ekki að verða tilbúnar fyrr en á næsta ári. rra umunamum a L,æKjar- torgi á laugardagskvöld að lokinni Keflavikurgöngunni. A þessum fundi voru að minnsta kosti 8000 manns að sögn lögreglunnar og eru þetta fjölmennustu aðgerðir sem fram hafa fariö gegn dvöl varnarliðsins hér á landi og aðild tslands að NATO. Timamynd: G.E. Átök á þingpöllum Alþingis í gær Jafntefli Friðriks og Karpovs: KARPOV VILDI MANNAKAUP EN FRIDRIK VILDI EKKI — síðari skák Friðriks og Karpovs verður tefld í síðustu umferðinni Gsal-Reykjavik — Friðrik ólafs- son, stórmeistari og Anatoly Karpov heimsmeistari eru nú efstir og jafnir á Euwe-skámótinu I Amsterdam i Hollandi, þegar mótið er hálfnað. Þeir hafa báðir hlotiö tvo vinninga, unnið eina skák hvor og gert tvö jafntefli. — Það er engin ástæða til þess að vera óánægður með árangurinn til þessa, sagði Friörik ólafsson I samtali við Tbnann i gær, en þá var fridagur hjá skákmönnum. t dag taka þeir aftur til við skákina og teflir Friðrik þá við Timman frá Hollandi, en heimsmeistarinn Karpov teflir við Browne frá Bandarikjunum. í fyrstu umferð Euwe-skák- mótsins vann Friðrik skák sina við Timman. — Skákin var lengi vel jöfn, sagði Friörik , en Timm- an fór slöan út i vafasamar að- gerðir, sem leiddu til þess að hann tapaði peði. Ég varð að visu að láta peðið aftur af hendi siðar en fékk hins vegar óstöðvandi fri- peð, sem kallað er, og vann skák- ina. Um skák sina við Karpov, sem lauk með jafntefli á laugardag- inn, sagði Friðrik: — Þetta var mjög róleg og jöfn skák, sem end- aði með þvi að við þrálékum. Karpov bauð upp á mannakaup en ég vildi ekki taka þvi boði, svo hann bauö aftur og ég svaraði enn á sömu leið. Niðurstaðan varð sú, að við þrálékum, svo það má segja, aö það hafi verið gagn- kvæm skoðun beggja að ljúka skákinni með jafntefli. A sunnudag tefldi Friörik við Bandarikjamanninn Browne og lauk þeirri skák með jafntefli eftir aðeins þrettán leiki. Um þá skák haföi Friðrik þetta að segja: — Skákin var mjög flókin alveg frá upphafi og þaö voru farnar leiðir, sem verða að teljast ó- venjulegar. Af þeim sökum eydd- um við báðir mjög miklum tima, og þegar við höfðum leikið þrett- án leiki hafði staöan litið sem ekkert haggazt — og við sættumst þvi á jafntefli. Það hefði auðvitað verið hægt að tefla skákina frek- ar, en ég vildi ekki þreyta mig um of og taldi þvl rétt að sættast á jafnteflið. Fjóröa umferð skákmótsins hefst i dag, eins og áður greinir, en á morgun hefst 5. umferð og teflir Friðrik þá við Browne og Karpov við Timman, en I 6. og siöustu umferð teflir Friðrik við Karpov og Timman við Browne. Mjög mikilláhugi er fyrir þessu skákmóti i Hollandi, og hefur ver- ið reist stórt tjald fyrir utan Van Gough safnið, þar sem mótiö fer fram á fjórðu hæð, og geta áhorf- endur þar fylgzt með skákunum á lokaðri sjónvarpsrás. A.Þ.-Reykjavik. Þaö bar til tið- inda i gær á Alþingi rétt eftir að umræðum um námsián lauk, að maður nokkur á áheyrendapöll- um hóf mikinn reiðilestur yfir rikisstjórninni vegna námslána- frumvarpsins. Nærstaddir þing- veröir gerðu tilraun til þess að koma manninum burtu, en voru hindraðir við störf sin af náms- fólki, sem safnazt hafði saman á Sr. Sveinbjörn Bjarnason, sem fékk veitingu fyrir Mosfellspresta- kalli i Kjalarnesprófastsdæmi frá 1. marz s.l. að afstaðinni kosn- ingu, hefur af sérstökum einka- ástæðum beðizt lausnar frá þessu embætti og fengið hana, segir i fréttatilkynningu frá Biskups- stofu. Hefur biskup Islands þvi auglýst Mosfellsprestakall laust til umsóknar og er umsóknar- þingpöilum. , Kom allt- fyrir ekki, þótt lög- reglumenn kæmu fljótlega á vett- vang. Tókst manninum að ljúka ræðusinni, sem stóð þrjár til fjór- ar minútur. Það heyrir til algjörra undan- tekninga, að Alþingi sé óvirt með þeim hætti, sem námsfólk geröi I gær. frestur til 15. júni n.k. Þá hefur biskup einnig auglýst Hjaröar- holtsprestakall I Snæfellsness- og Dalapróf astsdæm i með umsóknarfresti til 5. júni n.k. þar eð settur prestur i þvi prestakalli hefur óskað eftir að verða settur i Norðfjarðarprestakalli, en um það kall hefur enginn sótt, þótt það hafi verið tvivegis auglýst i vetur. Mosfellspresta- kall aftur laust

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.