Tíminn - 18.05.1976, Page 4
4
TÍMINN
Þriðjudagur 18. maí 1976
■vn
Var Victor Hugo
mesti kvennabósi?
Nýlega er komin út ævisaga
Victors Hugo eftir rithöfundinn
Samuel Edwards. Ýmislegt
kemur þar fram, sem ekki hefur
veriðhaldið á lofti áður svo sem
margar sögur af kvennafari
skáldsins. Fram eftir árum var
hann mjög heiðviröur og sam-
vizkusamur i öllu, og vildi alltaf
að hið góða sigraði, og kom það
fram i bókum hans, að bófar og
illmenni fengu vanalega makleg
málagjöld, svo sem minnast má
úr „Vesalingunum” og fleiri
bókum. Hann var iöinn og góður
fjölskyldufaðir, átti fjögur börn
með konu sinni og heimilislífið
virtist hið bezta. Allt í einu
skipti hann um lifnaöarhætti,
tók sér ástkonu, sem hét Juli-
etta Drouet, og hefur hún haldið
dagbækur, sem vitnaö er i i ævi-
sögunni. Juhette þessi segir frá
þvi, að á fyrstu tveimur árunum
eftir að Victor Hugo breytti um
lifnaðarhætti, þá hafihann verið
„óöur i kvenfólk”. — Dagurinn
gat liöið eitthvað á þessa leið
hjá honum: Að morgni til fór
hann I gönguferö, ef hann á leið
sinni sá álitlega gleðikonu, þá
var hann ekkert að tvinóna við
það, en dreif sig með henni heim
til hennar. Siðan átti hann
kannski stefnumót við fræga
leikkonu og þau borðuðu há-
degisverð með vini einhvers
staðar i ró og næði. Hvað þar
gerðist meira, var ekki gott að
segja, segir Juliette, — en gefur
i skyn að það hafi verið eitthv.
svipað morgninum. — Síðan
kom hann til min síðdegis, við
borðuðum saman kvöldverð og
hann var hjá mér fram á nótt.
Það þýddi ekkert fyrir mig, seg-
ir i dagbókinni, að vera af-
brýðissöm, þetta var eins og
einhver árátta á manninum.
Húnnefnir i dagbókinni, aö eftir
þvisem hún komst næst, þá hafi
hann ha ft m ök við um það bil 200
konur á þessum tveimur árum,
sem hún hélt dagbókina. Manni
verður á aö spyrja: — Ef þetta
er eitthvað nærri lagi, hvenær
gafst mannninum timi til að
hugsa og skrifa bækurnar sinar.
Ævisöguritarinn bollaleggur
mikið um hvað valdiö hafi
straumhvörfum i lifi skáldsins,
og kemst að þvi, að hann hafi
skyndilega uppgötvað ástar-
samband eiginkonu sinnar við
franskan blaðamann og list-
gagnrýnanda, Sainte-Beuve, og
álitið að öll borgin (Paris) vissi
um það mál. Til þess að hefna
sin og sýna almenningi það, að
hann væri ekki neinn vesalings
kokkálaður eiginmaður, þá
dreif hann sig til og tók sér ást-
konu.keyptifyrirhanalitla íbúð
VICTOR HU60
Meira en tómt bros
1 Vestur-Þýzkalandi eru skv.
könnun flestar stúlkur, eða sex
af hverjum tiu, sem starfa viö
sjónvarp, ljóshærðar. Þar ráða
sjónarmið karlmannanna. Af
hærri stööum við sjónvarpiö þar
er aðeins ein af hverjum þrem-
ur stöðum falin konu, og er þeim
þá oft gert að skyldu að hlaupa
undir bagga i hinu daglega
amstri. Dagskrárkynnar eru oft
ljóshærðar fegurðardisir. Hér
er mynd af einni þeirra Fanny
Vanheiden. Hún er meira en
brosið tómt,hún er ein af þeim
allra áhrifamestu i samtökum
þeirra vinstrisinnaðra kvenna,
sem eru að risa upp til að vekja
athygli á framtaki og störfum
kvenna nú til dags, og að þau
verði metin að verðleikum i
þessum „heimi karlmann-
anna”.
og sá vel fyrir henni, — en setti
það skilyrði, að þar mætti eng-
inn annar karlmaður koma. Það
var sem sagt áðurnefnd Juliette
Drouet (sem þó hét réttu nafni
Julienne Gauvain) og hún var
honum alltaf trú og trygg og
beið eftir honum, meðan hann
var á ferðinni um borg og bý
með hinum og þessum konum.
Þegar Victor Hugo var rúmlega
sjötugur, þá hét hann henni
fyrst tryggðum — og hélt það.
Hann hætti þá þessum skyndi-
ævintýrum sinum og lifðu þau
siðushi árin i friösælli sambúð.
Hún andaðist árið 1883, og Hugo
árið 1885, þá orðinn 83 ára gam-
all.
Nýlega hefur verið gerð kvik-
mynd i Frakklandi um hluta ævi
hans. Ekki er hún samt um hans
eigin ástarævintýri, heldur
fjallar kvikmyndin um eina
dóttur hans, sem strauk að
heiman með brezkum her-
manni, og var þetta mikil sorg-
arsaga. Kvikmyndin heitir
„Sagan af Adele H.” og aðal-
hlutverkið leikur ung, frönsk
leikkona, Isabelle Adjani, sem
þykir ein bezta- og fallegasta —
unga leikkonan nú I Frakklandi.
Þessi kvikmynd og ævisagan
um skáldið ætti aö verða til
þess, að menn taki rykfallnar
bækur sinar fram úr bókahillum
ogfariað lesa og kynna sér verk
Victors Hugo. Hér sjáum við
myndaf skáldinu á efri árum og
leikkonunni, Isabelle Adjani,
sem leikur dóttur hans I kvik-
myndinni „Sagan af Adele H.”
DENNI
DÆMALAUSI
„Nú þvoum við helminginn af
garði Wilsons af mér.”