Tíminn - 26.05.1976, Blaðsíða 4

Tíminn - 26.05.1976, Blaðsíða 4
TÍMINN Miðvikudagur 26. mai 1976. ,,Ég datt i druliuna.... þau komu bara með til að heyra hljóðin i þér.” Hún víll borga 500 pund fyrir eiginmann! Jennie Daley, sem viö sjáum hér brosandi á myndinni, birti nýlega auglýsingu með með- fylgjand.i mynd. Þar býður hún þeim manni, sem vilji ganga i hjónaband með henni fyrir 2. júli 1976 , 500 pund (164.000.- kr. isl.) að launum. — Ég vil aðeins að hann giftist mér vegna þess- arapeninga, segir Jennie. Þetta samband á aö vera einungis við- skiptalegs eðlis, en hvorki kyn- ferðislegt, eða nokkur brúö- kaupsferð eftir athöfnina, eða annað slikt, sem fólk gæti látið sér detta i hug. Aöeins skyndi-hjónaband — og siðan skyndi-skilnaður eins fljótt og hægt er að koma honum i kring samkvæmt lögum. Jennie Daley er 23 ára og er nemandi viö Portsmouth tækni- skólann i Englandi. Hún fæddist i Zamblu og hefur suður-afrisk- an borgararétt og vegabréf, og dvalarleyfi hennar i Bretlandi rennur út I júlimánuöi næstk. Hún vill ekki fara aftur til Suður-Afriku, einkum vegna ástandsins i kynþáttamálum þar. Hún segist ekki geta fellt sig við stjórnmálaástandið þar yfir höfuð. En þetta er vand- ræðaástand, ég býst við að verða að yfirgefa Bretland, ef mér tekstekki að veröa mér úti um góðan og heiðarlegan mann, sem vill ganga að þessum hjónabands-tilboði minu meö minum skilyrðum. Mér er sagt, að 500 pund þyki góð greiðsla fyrir þessa aðstoð. Skilnað er svo hægt að sækja um strax eftir hjónavigsluna, en liklega tekur það um það bil tvö ár, þangað til að hann veröur löglegur. Jennie hefur lagt fyrir sig sér- nám i sambandi viö tölvur, og þykir mjög dugleg I sinni grein. Hún hefur einnig komið fram i útvarpsþætti, og þar minntist hún á vandamál sitt, svo aö von- andi liður ekki langur timi, þar til einhver góður maður kemur til aðstoðar i málinu. Audrey Hepburn — áhyggjufull á svipinn Það mætti ætla, að Audrey Hep- burn væri aö mæta til einhverr- ar sorgarathafnar svo áhyggju- full er hún á svipinn, — en i rauninni er hún þarna i sinu bezta skarti að koma i sam- kvæmi það, þar sem úthlutað er árlega hinum svokölluðu Oscarsverðlaunum fyrir leik i kvikmyndum, stjórn, hljómlist og fleira sem tengist kvik- myndaiðnaðinum. Þar mætir frægt fólk til að sýna sig og sjá aöra, — en þó aðallega til að sýna sig! Audrey Hepburn kom til þessarar hátiðar ein sins liös, — Ertu galinn. Hérna kostar það peninga. og vakti það miklar vanga- veltur um það, hvar maðurinn hennar, dr. Andrea Dotti, væri. Það gengu sögur um það að mannræningjar á ttaliu hefðu rænt honum, en sem betur fór var ekki svo, en sagan var samt ekki uppspuni frá rótum. Þaö réðust fjórir menn á dr. Dotti, en hann varðist það vel, að þeir gátu ekki haft hann á brott með sér. Andrea Dotti er italskur læknir og sálfræöingur, 36 ára að aldri, (Audrey kona hans er 46) og virðist hann vera hinn hraust- asti maður, þar sem honum tókst að sleppa úr klóm þessara glæpamanna. Annars gæti áhyggjusvipurinn á Audrey Hepburn stafaö a£ öðru. Dr. Dotti hefur nefnilega mikið sézt á skemmtistöðum og annars staðar með ungri og glæsilegri stúlku, Beatrice Giorgi, og auð- vitað hafa myndazt sögur um samband þeirra, Þau hjónin segja samt að allt sé i lagi með hjónaband þeirra og engra breytinga þar að vænta, og Dotti var með konu sinni i þessari ferð til Hollywood til hátiða- haldanna, en hann var löglega forfallaður — lasinn heima i rúmi! DENNI DÆAAALAUSI

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.