Tíminn - 26.05.1976, Síða 7

Tíminn - 26.05.1976, Síða 7
Miðvikudagur 26. mai 1976. TÍMINN 7 Skólastjóramótin eru jafnan fjölsótt. Þessi mynd er frá Eiöamótinu 1972. Á ísafirði: Fræðslu- og kynningarmót skólast jóraf élagsi ns Skálholt: Ráðstefna um kristni og þfóðlíf Menntamálanefnd þjóð- kirkjunnar gengst fyrir ráðstefnu um kristni og þjóðlif i Skálholti dagana 18. - 20. júíii. Framsöguerindi verða flutt i Rikisútvarp dagana 4., 11. og 15. júni. Málshefjendur verða dr. Björn Björnsson prófessor, sem ræðir um „hlutverk kirkjunnar i islenzku nútlmaþjóðfélagi”, Haraldur Ólafsson lektor, sem talar um „stöðu kirkjunnar I islenzku nútlmaþjóðfélagi”, og dr. Páll Skúlason prófessor sem ræðirum „áhrif kristni á þjóðlff”. Á ráðstefnunni verður fjallað sið- ar um erindin I umræðuhópum. Gert er ráð fyrir að þátt- takendur verði um 40 úr ýmsum stéttum og þjófélagshópum. Um 20 félagasamtök hafa ákveðið að senda fulltrúa á ráðstefnuna. Héraðsvaka Rangæinga á laugardagskvöld Héraðsvaka Rangæinga verður haldin að Felagsheimilinu Hvoli Hvolsvelli laugardaginn 29. mai. Vandað verður til hennar eftir föngum og reynt að gera hana þannig úr garði, að hún verði skemmtun fyrir alla eða eins konar fjölskylduhátíð. Helztu skemmtiatriði verða kórsöngur og munu bæði samkór Rangæinga og Kór Rangæingafélagsins i Reykjavik koma fram. Þá leikur ungur og efnilegur hljómlistar- maður, Guðmundur Magnússon, á pianó. Einnig verða ávörp, stutt kvikmynd, visnaþáttur og fleira til skemmtunar. Að lokum verður stiginn dans. Héraðsvakan hefst kl. 9 og er þess vænzt að Rangæingar fjöl- menni. Fimmta fræðslu- og kynningar- mót Skólastjórafélags tslands, fyrir skólastjóra og yfirkennara i grunnskólanum verður haldið á Isafiröi, i menntaskólanum (Edduhóteiinu) dagana 20.-25. júnf n.k. Mótið veröur sett að kvöldi þess 21. júni, en strax á mánudags- morgun hefst flutningur erinda. Inngangserindi flytur Hörður Lárusson deildarstjóri skóla- rannsóknadeildar menntamála- ráðuneytisins um nýju náms- skrána fyrir grunnskólann, sem væntanlega er á þessu ári. Enn fremur mun Reyn- ir Bjarnason námsstjóri fjalla um sama mál. Ólafur Proppé námstjóri ræðir um námsmat. Gurli Doltrup nám- stjóri i dönsku flytur erindi um kennsiu eriendra tungumáia i grunnskólanum. Helgi Jónasson fræðslustjóri Reykjanesum- dæmis flytur erindi um hiutverk fræðsluskrifstofa og Kristján Ingólfsson fræðslustjóri Austur- lands mun kynna nýjar reglu- gerðir um grunnskóiann.sem eru sem óðast að koma út. Loks mun fil. lic. Magnús Gislason rektor Lýöháskólans I Kungálv I Sviþjóð flytja erindi um sænsk skólamál. Þátttakendur mótsins skiptast i starfshópa og fyrirspurnir og um- ræður verða að loknum erinda- flutningi. Aðalfundur S.I. hefst á mánu- daginn og lýkur á föstudegi. Skólastjórafélag tsiands varð 15ára á s.l. ári, en það var stofn-. að 12. júni 1960. Afmælisins' hefur ekki verið minnzt, en mótið á Isafirði er m.a. þátt- ur I þeim hátiðahöldum. Þá mun blað félagsins Skóla- stjórinn koma út prentað og i vönduðum búningi, þar sem saga félagsins og störf þess verða rakin I stuttu máli og myndum. 1 tilefni af 15 ára afmæli félagsins hefur stjórn þess boðiö þeim hjón- um fil. lic. Magnúsi Gislasýni og konu hans frú Brittu, skóla- stjórahjónum frá Lýðháskólanum IKungSlv iSviþjóðtil landsins, og verða þau heiðursgestir mótsins á tsafirði. Stjórn Skólastjórafélags Is- lands skipa: Hans Jörgenson skólastj. Rvik. form., Vilbergur Júliusson skóla- stj., Garðabæ ritari, Gunnar Guð- A miðvikudag og uppstigning- ardag verður efnt til kynningar á starfsemi Hússtjórnarskóla Reykjavikur eins og hún var á liðnum vetri og er fyrirhuguð á næsta ári. Til sýnis verður vinna nemenda úr handavinnu, mat- reiðslu o.fl. Fyrir áramót voru haldin 2-3 daga námskeið i matreiðslu aðal- lega fyrir húsmæður, þar sem kennt var gerbakstur, frysting matvæla, glóðarsteiking, græn- metisréttir, fiskréttir, smurt brauð o.fl. Ennfremur voru nám- skeið I fatasaumi og vefnaði. Þessinámskeið sóttu samtals um mundsson skólastj. Kópavogi, gjaldkeri. Meðstjórnendur Böðv- ar Stefánsson skólastj. Ljósa- fossi, Kári Arnórsson skólastj. Rvik., Cli Kr. Jónsson yfirkenn- ari, Kópavogi og Rúnar Bryn- jólfsson yfirkennari Hafnarfirði. 300 manns. I janúar hófst 5 mánaða nám- skeið i hússtjórn og eiga nemend- ur kost á að búa i heimavist skól- ans ef þeir óska eftir þvi. Að venju hafa verið haldin 5 vikna kvöldnámskeið I mat- reiðslu en i vetur voru einnig haldin námskeið fyrir karlmenn, sem voru mjög vel sótt. Skólastjóri skólans er Jakobina Guðmundsdóttir, en aðrir kenn- arar eru Jakobina Pálmadóttir, Sigriður Gisladóttir, Aslaug Sig- urgrimsdóttir, Asdis Magnús- dóttir, Hanna Guttormsdóttir og Áslaug Þorgeirsdóttir. Aðalfundur Dagsbrúnar Vorsýning í Hússtjórnarskólanum Aðalfundur Verkamanna- félagsins Dagsbrúnar var haldinn I Iðnó sunnudaginn 23. mai 1976. t upphafi minntist formaður, Eðvarö Sigurðsson, látinna félaga. Meðalþeirra var Sigurður Guðnason er var formaöur Dags- brúnar frá 1942-1954. Þá voru lesnir og samþykktir reikningar félagsins og formaður flutti skýrslu stjórnar, segir i fréttatilkynningu um fundinn. Á starfsárinu höfðu 448 nýir félagsmenn verið samþykktir i félagið en 41 höfðu látizt. Aðalfundurinn samþykkti, að árgjald félagsmanna fyrir áriö 1976 yrði kr. 8.000,-. Einnig sam- þykkti fundurinn að tekin yrði upp ný aðferð við innheimtu félagsgjalda og frá og með næstu áramótum yrði þaö ákveðinn hundraðshluti af dagvinnukaupi. Enn fremur voru samþykktar nokkrar breytingar á reglugerö Vinnudeilusjóös. 1 yfirliti formanns um fjárhag félagsins og starfsemi sjóða kom m.a. fram, að á árinu nutu 470 félagsmenn bóta úr Styrktarsjóöi Dagsbrúnarmanna og sjóðurinn greiddi i bætur tæpar 11 millj. króna. A vegum Lifeyrissjóðs Dagsbrúnar og Framsóknar ann- aðist skrifstofa félagsins greiðslu til Dagsbrúnarmanna samkv. lögum um greiðslur á lifeyri til aldraöra i stéttarfélögum. 488 Dagsbrúnarmenn eða ekkjur þeirra fengu greidd þessi eftir- laun 1975 og var heildarfjárhæöin röskar 34,2 milljónir króna. 84 Dagsbrúnarmenn fengu á ár- inu greiddar atvinnuleysisbætur samt. að upphæð 5,3 millj. króna. Greiddar bætur og lífeyrir til Dagsbrúnarmanna á vegum félagsins árið 1975 námu þvi 50,4 milljónum króna. Úr Lifeyrissjóði Dagsbrúnar og Framsóknar fengu á árinu 1975 282 sjóðfélagar fasteignalán er alls námu kr. 160 millj. króna. Hafa þá alls 1133 sjóðfélagar fengið lán úr lifeyrissj. er samt. nema 393 millj. króna. Hámark einstakra lána nema nú kr. 1.400 þús. Þá var samþykkt á fundinum tillaga frá stjórn félagsins að auka hlutafé Dagsbrúnar I Al- þýðubankanum úr 4 millj. i 10 millj. króna. Vegna 70 ára afmælis Dags- brúnar I janúar s.l. var samþykkt tillaga að þakka þeim fjölmörgu samtökum ogeinstaklingum, sem heiðruðu félagiö á afmæli þess. Lýst var stjórnarkjöri sem fram fór I jan. sl. Aðeins ein til- laga barst og var stjórnin þvi sjálfkjörin. Stjórn félagsins er nú þannig skipuö: Formaður: Eðvarð Sigurðsson Varaformaður: Guðmundur J. Guðmundsson Ritari: Halldór Björnsson Gjaldkeri: Baldur Bjarnason F járm álaritari: Andrés Guöbrandsson Meðst jórnendur : Gunnar Hákonarson, Öskar Ölafsson Varastjórn: Ragnar Geirdal Ingólfsson, Högni Sigurðsson, Þórður Jóhannsson. Leikfélag Seltjarnarness: Tekur upp sýningar á „Hlauptu af þér hornin" Leikfélag Seltjarnarness hef- ur ákveðiö að hefja á ný sýn- ingar á gamanleiknum „Hiauptu af þér hornin” eftir bandariska rithöfundinn Neil Simon, en sýningar hafa legið niðri frá þvi um páska vegna prófa og annarra anna leik- enda. Akveðnar hafa verið tvær sýn- ingar i félagsheimilinu á Sel- tjarnarnesi, á föstudag og sunnudag. Eftir sýningar á Seltjarnar- nesi er ætlunin að halda með gamanleikinn til nálægra byggðariaga, aðallega á Suðurlandi. Aður en hlé var gert um pásk- ana var gamanleikurinn sýnd- ur 8 sinnum og hlaut mjög góðar viðtökur áhorfenda. Leikendur eru sjö, en leik- stjóri er Helgi Skúlason, og leiktjöld gerði Steinþór Sigurðsson.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.