Tíminn - 26.05.1976, Side 8

Tíminn - 26.05.1976, Side 8
8 TÍMINN Miövikudagur 26. mai 1976. r „AAinningar margar vakna" Þvi gleymi ég aldei I-IV. Frásagnir af minnisstæöum at- buröum. 894 bls. KvöldvökuUt- gáfan. A ARUNUM 1962-1966 sendi Kvöldvökuútgáfan á Akureyri frá sér ritsafniö Þvi gleymi ég aldrei. Fyrir siöustu jól lét svo núverandi eigandi Kvöldvöku- útgáfunnar, Prentverk Akra- ness h.f., verkiö aftur á markaö, vandaö aö öllum frágangi. Þetta ritsafn er fjögur bindi, og i hvert bindi skrifa margir höfundar. Flestir eru þeir i fyrsta bindi, tuttug og einn, en fæstir i fjóröa bindi, fimmtán. En alls eru frásagnirnar sjötlu og fimm. Nærri má geta, aö ekki er hægtum vik aö ræöa hverja ein- staka frásögn ritsafnsins I einni litilli blaöagrein, en hins vegar má ekki minna vera en aö fólki sé bent á, aö nú er þetta vinsæla verk aftur fáanlegt. Þaö liggur i hlutarins eöli, aö misjafn er sauöur I svo mörgu fé, sem hér um ræöir. Menn eru misjafnlega góöir rithöfundar og þeir hafa frá misjafnlega merkilegum tiðindum að segja. Hér er aö finna öndvegisritgerö- ir, eins og til dæmis Drengurinn og fljótið eftir Bjarna heitinn frá Hofteigi, en sumt annað er feng- minna, og þess eru jafnvel dæmi, að grein skilji litið eftir, þrátt fyrir vandlegan lestur. slikt mega þó heita undantekn- ingar. I langflestum tilvikum er meö góöri samvizku hægt aö segja, aö frásögnin sé betur skrifuö en óskrifuö, og aö þeim tima sem fór til þess aö lesa hana hafi veriö vel fariö. En I hverju er þá gildi þessara endurminningaþátta fólgið? kann einhver aö spyrja. Þvi má svara meö ýmsum hætti, en þaö sem fyrst liggur I augum uppi, er aö flestar frásagnirnar vikka meö einhverjum hætti sjónhring lesandans og glæöa skilning hans á manninum, sem frásögn- ina skrifaöi. I grein Daviös Stefánssonar um frostaveturinn 1917-’18 er ekki aöeins aö finna greinar- góöa heimild um snjóa- og Isa- lög I — og á — Eyjafiröi þennan vetur, heldur veitist okkur þar lika dýrmæt vitneskja 'im dag- legt lif i Fagraskógi um þetta leyti, þegar ,,I hart nær þrjá mánuöi kom varla sú nótt, aö ekki væru fjórir, fimm nætur- gestir i Fagraskógi, stundum fleiri.” Aö ógleymdri þeirri mannlifsmynd, sem viö sjáum I körlunum úr Ólafsfiröi og Svarfaöardal, sem brutust i kaupstaö um torleiöi i hverju sem viöraði, til þess aö sækja björg I bú, og báru slðan vöruna á bakinu, ef ekki var annars kostur. Þeir voru lesnir og fróö- ir, og íslenzkan þeirra var „glitrandi perlur og gneistar logandi.” „Hreimur oröanna minnti fremur á vorblæ en vetr- arstorma.” Dr. Guörún P. Helgadóttir á i ritsafninu grein sem heitir Hús- freyjan i Herdisarvik. Þar er, eins og fara má nærri um, sagt frá frú Hlin Johnson. Þetta er framúrskarandi góö grein, sem eykur mjög skilning okkar á Hlin, konunni, sem dáöi Einar skáld Benediktsson og ljóö hans um flesta hluti fram, og ann- aöist skáldiö af þeirri alúð og umhyggju, sem konum einum er lagiö. Viða i þessari grein, — og ekki sizt I niðurlaginu — þræöir Guö- rún P. Helgadóttir hiö marg- fræga einstigi, aö segja ekki of mikið, en segja nóg. Og greinar- höfundur fetar þessa tæpu götu meö sliku öryggi, aö stór unun er aö. t fyrsta bindi er stutt frásögn, sem heitir Hverf er haustgrima. Höfundur er Ragnheiöur Jóns- dóttir. Þar segir frá ungri konu, sem átti manninn sinn á sjó. En báturinn kom ekki aö landi á þeim tima, sem búizthaföi veriö viö, og flestir óttuöust, að hann heföi farizt. Þessi frásögn, svo stutt og látlaus sem hún er, veit- ir okkur djúpa innsýn i það sál- arstriö, sem fjölskyldur Is- lenzkra sjómanna hafa löngum orðið að heyja, þótt i þessu til- viki færi betur en á horfðist. Sumar frásagnirnar I þessu ritsafni eru i rauninni smásög- ur, og geta hæglega gilt sem slikar. Svo er um Koss á vega- mótum eftir Einar Kristjánsson frá Hermundarfelli og Ferö fram og til baka eftir Guðmund Böövarsson. Ef til vill má segja, aö þetta sé sizt að undra, þar BOKHIEHHTI íi Uk\\ sem slikir höfundar eiga I hlut, enda er það mála sannast, aö báöar þessar frásagnir eru full- gildar bókmenntir — skáldskap- ur — þótt þar sé sagt frá raun- verulegum atburöum. Eins og vikið var aö i upphafi þessa greinarkorns, þá er auð- vitaö ógerningur aö fjalla um allan þennan fjölda frásagna, þannig aö hverri og einni séu gera skil. En sá fjöldi höfunda — og þar meö frdsagna — sem hér er saman kominn hefur einnig annaö i för með sér: Sú hætta liggur opin fyrir, að verkiö veröi i heild sundurlaust og ósam- stætt, hvað mál og stil snertir, þvi aö það er nú einu sinni svo, að hver maöur skrifar meö sinu lagi. Þaö verður þó aö segjast eins og er, aö þessi atriöi lýta heildarsvip verksins miiclu minna en ætla mætti i fljótu bragöi. Höfundarnir eru aö sönnu misjafnir, sumir skrifa vandað mál og góðan stil, hjá öðrum er þetta lakara, og ein- staka ætti auðsjáanlega aö fást við eitthvað annaö en skriftir. En þótt frásagnirnar i „Þvi gleymi ég aldrei” séu þannig ekki allar jafngóöar, þá stendur það eftir, sem fyrr var sagt, aö mestan hluta þe;ssa lesefnis er betra að hafa, eit án hans að vera. Svona frásöguþættir eru, þegar vel tekst til, góð viðbót og uppfylling I sögu lands og þjóö- ar- —VS. 4ipkk ! Ætf &V y Ití fih *> \ V w f |i m S&Slsr* B 1 ■ ^ É uN' 1 * Jw Ífgf ^ lopr Kór Söngskólans og Sinfóniuhljómsveitin á æfingu fyrir Noröurlandsferöina. TónleikaferðtilNorðurlands Kór Söngskólans i Reykjavik, Sinfóniuhljómsveitin I Reykjavik og einsöngvararnir Olöf K. Haröardóttir, Hrönn Hafliöa- dóttir, Unnur Jensdóttir, Guömundur Jónsson, Kristinn Hallsson, Halldór Vilhelmsson, Siguröur Þóröarson og Garöar Cortes, fara i tónleikaferö til Noröurlands dagana 27., 28. og 29. mai n.k. Sungiö veröur i Félags- heimilinu Miögaröi, Skagafiröi á fimmtudagskvöldiö, i Félags- heimilinu Skjólbrekku, Mývatns- sveit á föstudagskvöldiö og á Dalvik á laugardagskvöldiö. Þá er einnig ætlunin aö syngja i Grimsey á laugardagseftirmiö- deginum, ef ferö fæst út I eyna. A efnisskránni eru Hljóm- sveitarsvita eftir Arnold, óperan Mál fyrir dómi, eftir Gilbert og Sullivan, I islenzkri þýöingu Ragnheiöar Vigfúsdóttur og úrdráttur úr óratoriunni Ella eftir Mendelsohn, flutt af einsöngvur- um, kór og hljómsveit. Stjórnendur eru Brian Carlile og Garöar Cortes. Verðlaunahafar Flugleiða og Æskunnar til Stokkhólms Eins og mörg undanfarin ár efndu Flugleiöir hf og barnablaö- ið Æskan til sameiginlegrar verö- launagetraunar s.l. vetur. Verö- launagetraunin, sem var I formi spurningakeppni, birtist i' barna- blaöinuÆskunni og var þátttakan mjög mikil. Alls bárust nokkuð á áttunda þúsund svör. Fyrir nokkrum dögum var dregiö úr réttum lausnum og hlutu 1. verölaun, ferö til Stokk- hólms, þau Rögnvaldur Guð- mundsson Vitastig 12 Bolungar- vik, 12 ára og Guöb jörg Osk Frið- riksdóttir Hraunsteini 47 Vest- mannaeyjum, 11 ára. Flugferöir innanlands hlutu Valdimar Þorkelsson, Freyju- götu 1 Reykjavik, Siguröur R. Þrastarson, Sólbrekku 21 Hús- avik, Siguröur K. Asgeirsson, Seljalandsvégi 76 Isafiröi og Helga Jónsdóttir, Hafnarbraut 2a Homafiröi. Bókaverölaun hlutu Guðrún Brynjarsdóttir, Ekrustig 6 Nes- kaupsstað, Margrét Káradóttir, Suðurgötu 75 Siglufirði, Guðrún Einarsdóttir, Eiöum, S.-Múla- sýslu, Sumarliöi Már Kjartans- son, Viöarholti Akureyri, Finnur Lúöviksson, Melagötu 5 Neskaup- stað og Kristján Kristbjarnarson, Hliöarendavegi 1 a Eskifiröi. Þau Guöbjörg ósk og Rögn- valdur Guömundssonmunu halda til Stokkhólms 24. mai ásamt rit- stjóra Æskunnar og blaöafulltrúa Flugleiöa. Þar mun stórblaðið Dagens Nyheder taka á móti verölaunahöfunum og ásamt skrifstofu Flugleiða, greiða götu feröalanganna meðan þau dvelja i Stokkhólmi, segir i fréttatil- kynningu frá Kynningardeild Flugleiða. Hreppsnefnd Hveragerðis: Stuðla ber að byggingu ylræktarversins í Hveragerði FB-Reykjavik. Timanum hefur borizt fundarsamþykkt hrepps- nefndar Hverageröis, þar sem skoraö er á stjómvöld, aö gera allt.sem hægtertil þess aösamn- ingar megi takast viö hollenzk fyrirtæki um byggingu ylræktar- vers hér á landi. Fundaramþykktin er á þessa leið: „Fundur hreppsnefndar Hverageröis haldinn 18. mai, 1976, skorar á stjórnvöld og aöra þá aöila er hafa meö aö gera samninga viö hollenzk fyrirtæki um byggingu og starfsrækslu yl- ræktarvers á Islandi, aö ljá þvi máli allt þaöliö sem veröa má til aö samningar takist. Hrepps- nefnd vill benda á, aö I Hvera- geröi er nægilegt gott landrými meö staösetningu ylræktarvers- ins þar I huga. Þá má benda á, aö viö umrætt landsvæöi eru 8 djúp- holur i eigu rlkisins allt ab 200 gr. heitar, sem aöeins eru nytjaöar aö litlu leyti. Hreppsnefnd Hverageröis lýsir sig reiöubúna aö veita þessu máli allt þaö liö og fyrirgreiöslu, sem i hennar valdi stendur.” Nýskipaöur sendiherra Hollands hr. Robbert Fack afhenti á mánudag forseta islands trúnaöarbréf sitt, að viöstöddum Einari Agústssyni, utanríkisráöherra. Siödegis þá sendiherrann boö forsetahjónanna aö Bessastöðum ásamt nokkrum fleiri gestum. Sendiherrann hefur aöset- ur i London.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.