Tíminn - 26.05.1976, Page 9
Miðvikudagur 26. mai 1976.
TÍMINN
9
Útgefandi Framsóknarflokkurinn.
Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar:
Þórarinn Þórarinsson (ábm.) og Jón Helgason. Ritstjórn-
arfulltrúi: Freysteinn Jóhannsson. Auglýsingastjóri:
Steimgrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur f Edduhús-
inu við Lindargötu, simar 18300 — 18306. Skrifstofur i
Aðalstræti 7, simi 26500 — afgreiðslusimi 12323 — aug-
iýsingasimi 19523. Verð i lausasölu kr. 50.00. Askriftar-
gjaldkr. 1000.00 á mánuði. Blaðaprent h.f.
Kjördæmaskipting og
kosningaskipan
Á aðalfundi miðstjórnar Framsóknarflokksins,
sem haldinn var 8.-10. þ.m., var stjórnarskrármálið
rætt sérstaklega, en það hafði verið undirbúið fyrir
fundinn. í fyrsta lagi hafði Samband ungra Fram-
sóknarmanna haldið um það athyglisverða ráð-
stefnu og i öðru lagi hafði sérstakur starfshópur á
vegum framkvæmdastjórnar flokksins rætt málið.
Ýmsar hugmyndir höfðu komið fram. Á aðalfundin-
um varð niðurstaðan sú, að samþykkt var um málið
svohljóðandi ályktun:
„Aðalfundur miðstjórnar Framsóknarflokksins
haldinn i Reykjavik dagana 7.-9. mai 1976 samþykk-
ir, að hraða beri endurskoðun stjórnarskrár lýð-
veldisins Islands. 1 þvi efni leggur miðstjórnin á-
herzlu á, að timabært er, að kjördæmaskiptingu og
kosningaskipan verði breytt og áitur jafnframt, að i
stjórnarskránni eigi aðeins að vera grundvallarat-
riði varðandi kjördæmaskiptingu og kosningaskip-
an, en öll nánari ákvæði og framkvæmdaatriði á-
kveðin með kosningalögum.
Við breytingar á kjördæmaskiptingu og kosninga-
skipan telur miðstjórnin að eftirfarandi atriði þurfi
að koma til skoðunar.
I. Við skiptingu landsins i kjördæmi verði tekið
meira tillit til sérstöðu héraða en nú er gert, þannig
að auðvelduð verði svo sem kostur er samskipti
kjósenda við fulltrúa sina á Alþingi.
II. Skipting þingsæta milli landshluta miðist við
jafnari atkvæðisrétt en nú er, þó þannig, að þeir
þegnar, sem fjarri búa miðstöðvum valdsins, fái
aðstöðumuninn bættan gagnvart þeim, sem þar
búa. Uppbótarþingsæti verði lögð niður en þingsæt-
um fjölmennustu kjördæmanna fjölgað að sama
skapi.
III. Allir alþingismenn verði kjörnir á sama hátt
og fólki gefið aukið svigrúm til að velja milli fram-
bjóðenda en þingsætum verði skipt milli stjórn-
málaflokka innan hvers kjördæmis samkvæmt
hlutfallsreglum.”
Eins og þessi ályktun miðstjórnarinnar ber með
sér, hafa umræðurnar snúizt fyrst og fremst um
þann þátt málsins, sem fjallar um kjördæmaskipt
inguna og kosningaskipanina. Þar eru leiðréttingar
orðnar aðkallandi, sökum þeirra breytinga, sem
hafa orðið á búsetu manna siðan 1959, þegar núver-
andi kjördæmaskipting var ákveðin. Óhjákvæmi-
legt er orðið að taka tillit til þessara breytinga, enda
þótt áfram verði tekið tillit til sérstöðu þeirra, sem
búa fjarri höfuðstöðvum valdsins.
Af hálfu miðstjórnarinnar var ekki að þessu sinni
tekin nein endanleg ákvörðun um afstöðu flokksins
til þess, hvernig þessum breytingum skuli háttað,
heldur bent á nokkur atriði, sem flokkurinn vill að
verði tekin til sérstakrar skoðunar. Ástæðan fyrir
þessu er sú, að lausn þessa mikilvæga máls verður
að byggjast á samkomulagi milli flokkanna og leit-
ast verður við að sætta þau mismunandi sjónarmið,
sem þar koma fram. Æskilegast væri, að sem við-
tækast samkomulag gæti náðst um þær breytingar,
sem gerðar verða.
Það var yfirleitt skoðun miðstjórnarmanna, að ó-
heppilegt hefði verið, að Framsóknarflokkurinn
hefði ekki átt aðild að þeim breytingum, sem voru
gerðar á kjördæmaskipaninni 1942 og 1959. Þvi væri
eðlilegt, að flokkurinn leitaðist við að eiga sinn þátt.
i þeim breytingum, sem bersýnilega verða gerðar
innan tiðar.
Þ.Þ.
ERLENT YFIRLIT
Kekkonen greip
fast í taumana
Kommúnistar reynast erfiðir samstarfsmenn
KEKKONEN forseti hefur
sýnt þaö enn einu sinni, a6
hann er hinn sterki maður
Finnlands. Hann hefur neytt
rikisstjórnina, sem var búin
að biðjast lausnar, til að aftur-
kalla lausnarbeiðni sina og
halda störfum áfram, eins og
ekkerthafi i skorizt. Fjórir af
fimm stjórnarflokkunum urðu
þó að bita i það súra epli, að sá
fimmti fengi að greiða at-
kvæði á móti frumvarpi rikis-
stjórnarinnar um hækkun
söluskatts. Hljóðalaust mun
þetta þó ekki hafa gengið fyrir
sig og segir orðrómurinn, að
Kekkonen hafi hótað að segja
af sér, ef ekki yrði farið að
ráðum hans. Forsetakosning-
ar eiga að fara fram i Finn-
landi eftir tvö ár, en allir
helztu flokkar landsins hafa
lýst yfir þvi, að þeir muni þá
styðja Kekkonen og er endur-
kjör hans þvi meira en tryggt.
Það sýnir bezt álit hans og þá
tiltrú, sem hann nýtur, að hon-
um skuli þannig tryggður
stuöningur flokkanna meira
en tveim árum áöur en
kosningar fara fram.
AÐDRAGANDI stjórnar-
kreppunnarnú er i höfuðdrátt-
um sá, að sósialdemókratar
og miðflokkarnir hafa lengst-
um farið með stjórn, en sam-
starf þeirra rofnaði í fyrravor
og var þá mynduö embættis-
mannastjórn, sem fór með
stjórn fram ýfir þingkonsing-
ar, sem fóru fram siðastl.
haust. Eftir kosningarnar
hófst mikið þóf, en þvi lauk
þannig, að Kekkonen þvingaði
fimm flokka til aö mynda
samsteypus tjórn. Þessir
flokkar voru flokkur sósial-
demókrata, flokkur kommún-
ista, Miðflokkurinn, Sænski
flokkurinn og Frjálslyndi
flokkurinn. Forsætisráðherra-
embættið fól Kekkonen göml-
um flokksbróður sinum og
félaga, Martti Miettunen.
Stjórn þessari var yfirleitt
ekki spáð langllfi, þvi að
kommúnistar tóku nauðugir
þátt I henni sökum ágreinings
I flokki þeirra. Róttækari
armurinn var andvigur
stjórnarþátttökunni og var þvi
spáð, að flokkurinn myndi
nota fyrsta tækifæri til að fara
úr stjórninni. Sóslaldemókrat-
ar vildu hins vegar ógjarnan
hafa kommúnista utan stjórn-
ar, þar sem þeir gætu aflað sér
fylgis vegna óvinsælla efna-
hagsaðgeröa, en fýrirsjáan-
legt var aö hjá þeim yrði ekki
komizt sökum mikillar verð-
bólgu og atvinnuleysis. Hvað
eftir annað hefur stjórnin lika
Þannig hugsar teiknari Dagens Nyheter sér, að Kekkonen loki
stjórnina inni, þótt heitt sé orðið i baðklefanum.
verið hætt komin, en þó lifað
af. Hún hefúr gert ýmsar ráð-
stafanir til að auka atvinnu og
draga úr verðbólgu, en allar
hafa þær einkenni þess, að um
bráöabirgðaaögerðir er að
ræða, eins og t.d. verðstöðvun,
sem á að falla úr gildi innan
fárra vikna og má þá búast við
verulegum verðhækkunum.
Þrátt fyrir þessar aðgerðir,
hefur veriö mikill órói á
vinnumarkaðinum. Sjómenn,
hafnarverkamenn, lögreglu-
menn og fleiri hafa farið i
verkföll og hafa sum þeirra,
eins og verkfall hafnarverka-
manna, haft mikið efnahags-
legt tjón I för með sér. Ýmis-
legt gat þó bent til þess, aö
stjórn in myndi vera komin yf-
ir erfiöasta hjallann, ef henni
tækist aö afla nægra tekna til
að mæta halla á rikisrekstrin-
um.
ÞAÐ VARÐ niðurstaöan eft-
ir miklar athuganir og viðræð-
ur sérfræöinga og stjórnmála-
manna, að hækkun söluskatts
úr 11% 113% væri vænlegasta
tekjúöflunarleiöin fyrir rikis-
sjóð. Allir stjórnarflokkarnir
féllust á þetta, nema
kommúnistar, en leiðtogar
þeirra óttuðust, að hinn rót-
tæki armur þeirra, sem oft er
kenndur við Stalin, myndi
nota þetta til aö efla áhrif sfri
innan flokksins. Sósialdemó-
kratar kröfðust þess, að annað
hvort samþykktu kommúnist-
ar söluskattshækkunina eða
stjórnin segöi af sér. Miettun-
en taldi sér þá ekki annað fært
en að biðjast lausnar, en
Kekkonen neitaði að fallast á
lausnarbeiðnina. Jafnframt
setti hann stjórnarflokkunum
þann úrslitakost, að hafa kom-
iö sér saman innan fimm
daga. Sú hugmynd kom til at-
hugunar, að stjórnarflokkarn-
ir fjórir, sem fylgdu sölu-
skattshækkuninni, mynduðu
nýja stjórn, en til þess höfðu
þeir þingmeirihluta. Sósial-
demókratar munu ekki hafa
veriöþess fýsandi, m.a. vegna
ótta viö samkeppni kommún-
ista, þegar þeir væru komnir i
stjórnarandstööu. Helzt munu
þeir hafa kosiö að mynda einir
minnihlutastjórn, likt og
flokksbræður þeirra i Dan-
mörku, en þaö vildi Mið-
flokkurinn ekki samþykkja og
heldur ekki Kekkonen. Þá
mun engum flokkanna hafa
litizt vel á hugmyndina um
nýja embættismannastjórn.
Eftir langt og mikið þóf, var
fallizt á þá tillögu Kekkonens,
að stjórnin héldi áfram, en
kommúnistum væri leyft að
greiöa atkvæði gegn sölu-
skattshækkuninni. Vafalaust
munu þeir þó ekki sleppa við
gagnrýni Stalinista, sem
munu telja kommúnista sam-
þykkja hana óbeint með þvi að
halda áfram I rlkisstjórninni.
En þótt stjórnin hafi þannig
komizt yfir þessa torfæru, er
hún talin fjarri þvi að vera
traust i' sessi. Nýjar viösjár
munu t.d. koma til sögu, þegar
verðstöðvuninni lýkur. I haust
verða svo sveitastjórnarkosn-
ingar og dregur það ekki úr
óróanum.
Miettunen og Kekkonen
Þ.Þ.