Tíminn - 15.06.1976, Síða 6
6
TÍMINN
Þrifijudagur 15. júni 1976
Sjómanna-
dagurinn
í roki og
rigningu á
ísafirði
G.S.tsafiröi/—hs—Rvik. Hátifta-
höld Sjómannadagsins á tsafiröi
hófust kl. 15 á laugardeginum
meö opnun málverkasýningar
Jónasar Guömundssonar, hins
fjölhæfa iistamanns og fyrrum
sjómanns. A sýningunni eru 25
vatnslitamyndir, sem flestar éru
á einhvern hátt tengdar sjónum.
Klukkan 9 aö morgni Sjó-
mannadagsins fóru 5 skip i hóp-
siglingu meö yngri kynslóöina, en
sú sjóferö varð styttri en ætlaö
haföi veriö, vegna töluverös öldu-
gangs.
Blómsveigur var lagður á
minnisvaröa sjómanna klukkan
13, en aö þvi loknu var guös-
þjónusta. Þrátt fyrir helli-
rigningu og storm, er hér var
komið, fór fram kappróöur á
firöinum að guösþjónustunni
lokinni og sigraði áhöfnin á b/v
Bessa i þeim átökum.
Þrir aldraðir sjómenn voru
heiöraöir, þeir Anton Ingi-
bjartsson, Guðbjörn Jónsson og
Agúst Einarsson. Aöalræöu
dagsins flutti svo áöurnefndur
Jónas Guömundsson, og mun
honum ekki hafa tekizt að ljúka
henni vegna rigningar og roks.
Þrátt fyrir leiðinlegt veður fóru
hátiöahöldin hiö bezta fram og
var mikil og almenn þátttaka i
þeim. Sjómannadansleikur var
haldinn á laugardagskvöldið.
Allir togararnir fjórir, sem
geröir eru út frá ísafiröi voru i
höfn, en þeir lönduöu fyrir
helgina 80-110 tonnum hver eftir
6-7 daga veiöiferð.
1
Strákarnir máttu ekkert vera
aö þvi aö stilla sér upp fyrir ljós-
mvndarann, en héldu ótrauðir
áfram viö að raka mold og bera
* skarna á runnabeðin meðfram
Miklubrautinni. Þeir gátu þó ekki
stillt sig um að minnast á það, að
þeir væru miklu duglegri en
stelpurnar, sem væru bæði latar
og kærulausar. Timamynd:
Gunnar.
Sigurður Jónsson, verkstjóri
eins hópsins í unglingavinnunni
sagði, aö þetta væri allt harðdug-
legt fólk.
„Stelpurnar eru
blóðlatar"
— segja strákarnir í unglingavinnunni um
vinnufélagana af veikara kyninu
Egilsstaðir:
Þjóðminja-
og húsvernd-
arsýning
Safnastofnun Austurlands —
SAL heldur i sumar þjóðminja-
sýningu i skólanum á Egils-
stööum i samvinnu viö Minjasafn
Austurlands, og veröur hún opin
daglega frá 19. júni - 8. ágúst.
1 tengslum viö minjasýninguna
veröur sérstök húsverndarsýn-
ing, sem sett var upp i Norræna
húsinu i fyrrasumar undir heitinu
Húsvernd, og er höfundur hennar
Höröur Agústsson, listmálari, en
aö henni standa Húsfriðunar-
nefnd, menntamálaráöuneytið og
Norræna húsiö. Fellur hún vel að
hinni sýningunni, þar sem vakin
er athygli á nauösyn aögeröa I
húsvernd hér eystra.
Þjóöminjasýningin hefur sem
mgginþráö umhverfi bóndans á
liöinni tiö segir i fréttatilkynningu
SAL og byggir á munum og
myndum úr lifi sveitafólks.
Munirnir eru allir austfirzkir,
bæöi úr fórum minjasafnsins á
Skriöuklaustri og Safnastofnun-
ar, sem stóö fyrir minjasöfnun i
allmörgum byggöum hér eystra i
fyrra og veröur þvl starfi fram
haldiö i sumar.
Sýningaratriöi skipta
hundruöum: auk muna og þjóö-
lifsmynda eru mokkur handrit og
gamlar mannamyndir ónafn-
greindar og upplýsingar um þær
vel þegnar frá sýningargestum.
Þá veröur komiö fyrir á
sýningunni veglegu llkani af
prestsetrinu i Vallanesi eins
og :þaö leit út nálægt siöustu
aldamótum, og er þaö mótaö og
gefiö til minjasafns hér eystra af
Páli Magnússyni, lögfræöingi frá
Vallanesi og syni hans Magnúsi,
myndlistarmanni.
I sýningarskrá veröur getið
muna og gefenda þeirra: Hjör-
leifur Guttormsson skrifar þar
yfirlit um þjóöminjavernd á
Austurlandi og hlut SAL að þeim
málum, og Gunnlaugur Haralds-
son ritar um aöföng sýningar-
innar, en hann er starfsmaöur
Safnastofnunar og hefur séö um
uppsetningu sýningarinnar.
—hs—Rvík Þessa dagana
vinna 1000-1100 unglingar
við að fegra og snyrta
borgina. Þau eru á vegum
Vinnuskóla Reykjavíkur
og eru nemendur úr 7. og 8.
bekk grunnskóla síðastlið-
ins vetrar. Eflaust hafa
margir rekið augun í slíka
vinnuflokkaá leiðsinni um
borgina, og enginn efast
liklega um það/ að þeir
vinna þarft verk.
Vinnuskóli Reykjavíkur
eða unglingavinnan svo-
kallaða stendur yfir frá 1.
júní til 1. ágúst. Daglegur
vinnutimi eldri ungl-
inganna er f rá 8-4 e.h., þ.e.
8 klst, en yngri hópurinn
vinnur 4 tíma á dag. Hinir
fyrrnefndu fá 145 kr. á
klukkutimann en hinir
siðarnefndu 130 kr.
Sigurður Jónsson, sem
nýlokið hefur mennta-
skólanámi, en vinnur í
sumar sem verkstjóri eins
vinnuhópsins, sagði, er við
rákumst á hópinn við jarð-
ræktarstörf við AAiklu-
brautina, að þetta væri
harðduglegt fólk og al-
ódýrasti vinnukraftur sem
völ væri á. Það kom og í
Ijós er við ræddum við
krakkana, að þau voru
óánægð með launin, en
vinnan fannst þeim ágæt.
Annan hóp rákumst við á
inni við Elliðaárnar, en
hann var um það bil að
Ijúka við að hreinsa ár-
svæðið og siðan átti að
hreinsa allar fjörur frá
Elliðaám og út á
Seltjarnarnes og frá
Seltjarnarnesi inn í Foss-
vog. AAikið verk framund-
an þar, en strákarnir létu
engan bilbug á sér finna,
þrátt fyrir rigningar-
suddann, sem var þennan
dag.
Ekki varö betur séö, en að stúlkurnar ynnu vel og samvizkusamlega viö aö hreinsa beðin