Tíminn - 15.06.1976, Blaðsíða 10
10
TÍMINN
Þriðjudagur 15. júnl 1976
skipum sinum o. fl. o.fi.
Eðlilegast væri, að land-
krabbarnir legðu sig
alla fram við að gera
þessum þrautseigu hetj-
um okkar daginn sem
eftirminnilegastan með
skemmtiatriðum og
hátiðarbrag, en gæfu
sjómönnum frí. Á það er
svo hins vegar að lita, að
liklegaværi hálf fátæk-
legur bragur á hátiðar-
höldum sjómannadags-
ins, ef sjómennirnir
tækju ekki þátt i að gera
hann sem skemmtileg-
astan. Sérstaklega á
þetta við um sjávar-
plássin úti um allt land,
þar sem mun meira er
um dýrðir, heldur en hér
á höfuðborgarsvæðinu.
Eðlileg niðurstaða
virðistþvi vera sú, að is-
lenzka sjómannastéttin
sé allri þjóðinni jafn
nauðsynleg, hvort sem
er i starfi eða leik.
Meðfylgjandi myndir
eru teknar af skemmti-
atriðum sjómannadags-
ins i Nauthólsvik og af-
hendingu heiðurs-
merkja, en viðurkenn-
ingar hlutu að þessu
sinni:
Jón Sigurbjörnsson
hlaut Fjalarbikarinn
fyrir frábæran námsár-
angur i vélstjóranámi.
Heiðurskross sjó-
mannadagsins fyrir
langt og gæfurikt starf
við sjómennsku hlutu
Jón Eiriksson, skip-
stjóri, Magnús Guð-
mundsson, háseti og vél-
stjóri, og Guðmundur
Guðmundsson, bryti.
Gullmerki sjómanna-
dagsins fyrir frábærlega
vel unnin störf i þágu
samtaka sjómanna
hlutu Jón Sigurðsson,
formaður Sjómanna-
sambands íslands, og
Tryggvi Helgason, for-
maður Sjómannafélags
Eyjafjarðar. Þeir
hyggjast báðir draga sig
i hlé næsta haust.
Afreksbikarinn hlaut
að þessu sinni Einar
Friðrik Sigurðsson,
skipstjóri frá Þorláks-
höfn, fyrir að hafa
bjargað 3 áhöfnum. Tók
hann það fram, að slikt
væri aðeins hægt að gera
með góðri og samstilltri
áhöfn.
Berent Th. Sveinsson,
loftskeytamaður hjá
Landhelgisgæzlunni, tók
við bikar fyrir hönd
allra starfsmanna Gæzl-
unnar frá sjómannadeg-
inum i Reykjavík, fyrir
vel unnin störf i siðasta
þorskastriði. Skal bikar-
inn geymdur a.m.k.
fyrst um sinn i flagg-
skipi flotans.
Fjöldi manns fylgdist meb skemmtiatribunum I Nauthólsvikinni.
Berent Th. Sveinsson tekur viö Gæzlubikarnum.
Einar Friörik Sigurösson. tekur viö afreksbikarnum úr hendi Péturs
Sigurössonar.
Frá verölaunaafhendingunni t.f.v.: Hanna Lis Jónmundsdóttir f.h. Jóns Sigurbjörnssonar, Magnús Guömundsson, Berent Th. Sveinsson,
Tryggvi Helgason. Pétur Sigurösson, formaöur Sjómannadagsráös, Elinborg Jónsdóttir f.h. Guömundar E. Guömundssonar, Jón Sigurös-
son, Jón Eiriksson og Einar Friörik Sigurösson. Timamyndir: Gunnar.
Sjómannadagurinn
1976
—hs-Reykjavik. Sjó-
mannadagurinn var
hátiðlegur haldinn um
allt land i 39. sinn s.l.
sunnudag. Viðast hvar
var þokkalegt veður, og
af þeim sökum heppn-
aðist þessi hátiðar- og
fridagur sjómannastétt-
arinnar með ágætum.
Rétt er að hafa smá-
fyrirvara á þegar talað
er um fridag sjómanna.
Sjómannadagurinn er
orðinn hátiðisdagur
allra landsmanna og er
það vel, en heiðursmenn
dagsins, sjómennimir
geta ekki eðlis starfsins
vegna fengið sér fri og
var þvi mikill hluti
þeirra við sina vinnu
þennan sjómannadag,
sem og aðra.
Auk þessa eru svo þeir
sjómenn, sem i landi eru
á hátiðisdegi sinum,
jafnan settir i að
skemmta öðrum lands-
mönnum með erfiðum
kappróðrum, kappleikj-
um, hópsiglingum á