Tíminn - 05.08.1976, Page 3
Fimmtudagur 5. ágúst 1976.
TÍMINN
3
Mun meiri notku n á svartolíu
en eðlilegt er á [ >essum tíma
— segir Önundur Ásgeirsson, forstjóri Olíuverzlunn-
ar, en d föstudag er væntanlegt sovézkt olíuskip,
þannig að enginn skortur á að þurfa að koma til
Patreksf jörður:
240 þúsund krónum stolið
þjófurinn hefur náðzt og skilað þýfinu
MÓL-Reykjavlk. — Aðfaranótt
siðastliðins mánudags var brotizt
inn i mjólkurstöðina á Patreks-
firði og stolið þaðan stórfé bæði i
seðlum og ávisunum. Seinna
sama dag var tuttugu og tveggja
ára gamall maður handtekinn og
viðurkenndi hann að hafa fram-
kvæmt verknaðinn.
Maðurinn, sem starfaði við
mjólkurstöðina, brauzt inn á
skrifstofu stöðvarinnar og komst
ofan i læsta skúffu, þar sem rúm-
lega 1,5 milljónir króna voru
geymdar. Þjófurinn tók þó ein-
ungis með sér um 240 þúsund
krónur i seðlum og ávisunum.
Eftir að hafa verið handtekinn,
gat hann visaö lögreglunni á seöl-
ana, en ávisanirnar hafði hann
brennt.
Einhverjar skemmdir munu
hafa orðið á eignum mjólkur-
stöðvarinnar.
Að sögn Svavars Júliussonar,
kaupfélagsstjóra á Patreksfirði,
þá hefur ekkert veriö um innbrot
og aðra þjófnaði á Patreksfirði að
undanförnu, ef innbrotið slöast-
liðinn mánudag er undanskiliö.
gébé Rvik — Við eigum enn þá
nokkur hundruð tonn af svart-
oliu i tönkum hér og sovézkt
oliuskip er væntanlegt um há-
degi á föstudag, þannig að það
ætti ekki að þurfa að verða
neinn skortur á svartoiiu, sagði
Önundur Asgeirsson, forstjóri
Oliuverzlunar islands i gær. ön-
undur sagði, að yfirleitt væri
áætlað 3-4mánuði fram I timann
um svartoliunotkunina, hann
sagði einnig, að undanfarið
hefði notkun verið mun meiri en
eðlilegt megi teljast á þessum
árstima, og átti þar fyrst og
fremst við hinar fjölmörgu
loðnuverksmiðjur viða um land
sem að undanförnu hafa fengizt
við loðnubræðslu svo sem
kunnugt er af fréttum.
— Það er aðallega á Siglufirði,
sem svartoliuskorturinn
er mestur, en þeir ættu samt að
eiga oliu fram á sunnudag,
mánudag og ef allt stenzt áætl-
un, ætti Kyndill að geta verið
kominn þangað með oliu að-
faranótt sunnudagsins, svo
þetta ætti að sleppa þótt tæpt
verði, sagði önundur.
Rússneska oliuskipið kemur
til Reykjavlkur um hádegi á
föstudag og mun svartolíunni þá
verða skipað út I Kyndil, sem
þegar mun halda norður á bóg-
inn.
Aðalástæðan fyrir þvi að svo
litlu munar að svartolluskortur
yrði hér, er sú að sovézka oliu:
skipinu seinkaði verulega
hingað til lands, af einhverjum
ástæðum, Þá var alls ekki
reiknað með allri þessari svart-
ollunotkun I loðnuverksmiðjun-
um vlða um landiö, en sem
kunnugt er, hefur loönu verið
landaö bæði austanlands og
noröan, og á margar Faxaflóa-
hafnir, en notkun verksmiðj-
anna á svartoliu er mjög mikil.
Fargjöld SVR:
BORGARRÁÐ SAM-
ÞYKKIR AÐ BIÐJA
UM 20% HÆKKUN
ASK-Reykjavik. — Við fengum
ekki samþykkta þá 35% hækkun
sem farið var fram á i marz
mánuði, heldur aðeins 25%, en til
þessa hafa ekki skilað sér nema
um 20% af henni. Fargjaldatekjur
voru á fjárhagsáætlun reiknaðar
um 375 milljónir, ogþá var miðað
við 35%, en siðan hafa orðið t.d.
launahækkanir sem nema um
10%, sagði Eirlkur Ásgeirsson
forstjóri SVR. — Þvi var það á
fundi borgarráðs i gær samþykkt
að fara fram á við verðlagsyfir-
völd að fargjöld strætisvagnanna
verði hækkuð um 20% að meðal-
tali.
Þá sagði Eirikur að fengist
þessi 20% hækkun þá væri gert
ráð fyrir að hægt væri að komast
hjá aö fá öllu meiri styrk frá
Reykjavikurborg en gert er ráð
fyrir á fjárhagsáætlun SVR.
Þar til þessi hækkunarbeiðni
hefur hlotið afgreiðslu verðlags-
yfirvalda, þá verður sölu 1000
króna farmiðaspjalda hætt. Hins
vegar veröa 500 króna spjöldin
svo og farmiðar barna og aldr-
aðra seldir áfram. Sagði Eirlkur
að þetta væri gert til að koma i
veg fyrir svipaða sölu miða og i
vor, en þá tapaði SVR mikið á
hamstri fólks.
Forsetahjónin, forsætisráðherra
og borgarstjóri voru meðal áhorf-
enda, er sovézkt fimleikafólk
sýndi listir sbiar I Laugardals-
höllinni á þriðjudagskvöld. Þarna
komufram margfaldir meistarar
og Olympiufarar frá Montreal,
m.a. gullverðlaunahafinn Nelli
Kim, og i hópi karlanna Alexand-
er Krysin, sem er einn þriggja
manna I heiminum, sem hefur
þrefalt heljarstökk af svifrá á
valdi s&iu.
Að lokinni sýningunni stóðu
áhorfendur allir á fætur og hylltu
fimleikafólkið vel og lengi, en
þetta var fyrsta sýning þeirra af
þremur.
Timamyndir G.E.
Skipakaup erlendis
frd í athugun
MOL-Reykjavik. — Það liggja
engar upplýsingar á lausu um
að þetta að svo stöddu, svaraði
Björn Tryggvason, aðstoðar-
bankastjóri við Seðlabankann,
þegar Timinn hafði samband
við hann i gær og spurðist fyrir
um rannsókn þá, sem Seðla-
bankinn lætur nú framkvæma á
kaupum á skipum erlendis frá.
Vildi Björn ekki segja til um
fjölda þeirra tilfella, sem rann-
sökuð eru, né heldur hvenær
skipakaupin heföu farið fram.
Þá spurði Timinn og um það,
hvort einhverjar sérstakar
skipategundir væru undir smá-
sjánni, en öllu var svarað á
sama veg.
Sakadómsrannsókn Grjótjöt-
unsmálsins svonefnda er nú á
lokastigi og verður málið vænt-
anlega sent saksóknara til á-
kvörðunar I vikunni.
ís dreifir
loðnunni
gébé-Rvik — Samkvæmt
upplýsingum frá Andrési
Finnbogasyni, loönunefnd,
hafði enginn loðnubátur til-
kynnt um veiöi seinni hluta
dags i gær, og átti hann ekki
von á að það yrði. Flestir
þeirra báta sem nú stunda
loðnuveiði, en þeir eru um 25
talsins, eru á loðnumiðunum
norður af Horni, en þeir
munu hafa fært sig eitthvað
vestar á siðasta sólarhring,
þar sem Ishrafl rak yfir
veiöisvæöiö á mánudag og
loðnutorfurnar dreifðust
mjög. Reynt var að kasta á
loðnu I gærdag, en veiöin
varö lltil eða engin.