Fréttablaðið - 29.12.2005, Page 1

Fréttablaðið - 29.12.2005, Page 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI VEÐRIÐ Í DAG Sími: 550 5000 FIMMTUDAGUR 29. desember 2005 — 352. tölublað — 5. árgangur Stútfullur BT bæklingur fylgir blaðinu í dag! HVÍTA-RÚSSLAND Ofurfyrirsætur bannaðar tíska - heimili - heilsa - áramót Í MIÐJU BLAÐSINS FÍKNIEFNI Alls létust 134 fíkni- og vímuefnasjúklingar sem dvalið hafa á sjúkrahúsinu á Vogi, á fyrstu átta mánuðum þessa árs, að sögn Þórar- ins Tyrfingssonar yfirlæknis. Þess ber að geta, að þarna er um fíkni- efnaneytendur, sjúklinga sem mis- nota lyf og áfengissjúklinga að ræða. Þórarinn segir þessar tölur aðeins gefa grófa mynd af ástandinu, því dánarorsakar þeirra sem verið hafa á Vogi, séu oft lengi að berast. Þannig hafi engar tölur borist fyrir síðustu mánuði ársins. Hann bendir jafnframt á að árlega komi 17 til 18 þúsund sjúklingar á Vog og það segi sína sögu um stöðu mála. Fimmtán þeirra sem létust úr sjúklingahópnum voru 39 ára og yngri. Sá yngsti var 18 ára. Þórarinn segir ekki koma á óvart að sprautufíklar finnist látnir eftir að morfínfíkn barst til landsins í kringum 1998. Þeim sem verði henni að bráð fjölgi mjög ört. Nú séu um 50 manns í svokallaðri viðhaldsmeðferð á Vogi og þörf sé fyrir slík úrræði fyrir mun fleiri einstaklinga, en fjárveitingar til sjúkrahússins leyfi ekki meir. Umræða um málefni fíkla sem nota svokölluð ópíumefni, sem eru einkum morfínskyld efni, eða heró- ín, hefur vaxið mjög í kjölfar þess að kona á fertugsaldri og maður á fimmtugsaldri fundust látin í Reykjavík í fyrradag. Dánaror- sök þeirra er ekki ljós en þau voru bæði sprautufíklar, samkvæmt upplýsingum blaðsins. Matthías Halldórsson aðstoðar- landlæknir segir að ekki hafi verið teknar sérstaklega saman tölur yfir andlát fíkniefnaneytenda. Enda geti reynst erfitt að úrskurða dán- arorsök einungis af völdum fíkni- efna, þar sem svo margt annað geti haft áhrif samhliða þeim. ,,En þær breytingar sem verða í þessum efnum endurspeglast á Vogi,“ segir Matthías. Hann bætir við að notkun contalgins, sem er morfínskylt lyf, hafi ekki aukist að marki í lækningalegum tilgangi á undanförnum árum, samkvæmt lyfjagagnagrunni landlæknisembættisins. „Það er miklu betra eftirlit nú en áður,“ segir Matthías. „Við sendum út aðvörunarbréf til lækna ef við sjáum að einhverjir eru að ganga á milli þeirra.“ Matthías segir að af þeim lyfj- um sem flokkist undir læknislyf sæki fíklar mest í contalgin og amfetamín. Hið fyrra sé örv- andi en hið síðara vímuvaldandi verkjalyf. - jss / sjá síðu 14 134 sjúklingar hafa látist á fyrstu átta mánuðum ársins Á annað hundrað fíkni- og vímuefnaneytendur úr sjúklingahópi Vogs létust á fyrstu átta mánuðum ársins. Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi, segir ekki koma á óvart að sprautufíklar finnist látnir og þeim sem verði morfínfíkn að bráð hafi fjölgað mjög ört hin síðustu ár. Sprenging á tertumarkaði Skotkökur verða sífellt vinsælli með hverjum áramót- um, enda eru þær öruggari en flugeldarn- ir ef rétt er með farið. FÓLK 36 BJARTVIÐRI VESTAN TIL en stöku él allra austast og suðaustast. Frost 0-5 stig en frostlaust með suðurströndinni. VEÐUR 4 ÞÓRARINN TYRFINGSSON YFIRLÆKNIR Á VOGI MATTHÍAS HALL- DÓRSSON AÐSTOÐ- ARLANDLÆKNIR Fjárkúgun eða flokksvernd? „Hvað er framkvæmdastjóri Sjálfstæð- isflokksins að gera í banka- ráði Landsbanka Íslands?“ spyr Ólafur Hannibalsson. „Var það kannski gert að skilyrði fyrir einkavæð- ingu?“ Í DAG 22 MEÐAL LESTUR 12-49 ÁRA 57% 37% *Samkvæmt fjölmi›lakönnun Gallup í október 2005. Fólk undir fimmtugu velur Fréttablaðið! Siglir á Gambíufljóti Edda Rós Karlsdóttir, forstöðumaður greiningardeildar Landsbankans, fagnar fertugsafmæli sínu í dag á Kanaríeyjum. TÍMAMÓT 26 HEILBRIGÐISMÁL Lyfjastofnun varar við því að vart hafi orðið við falsútgáfu flensulyfsins Tamiflu í sölu á netinu. Skortur hefur verið á lyfinu hjá framleiðanda, en sala á því hefur margfaldast í kjölfar umræðu um fuglaflensu og mögu- legan heimsfaraldur nýs flensu- stofns. Lyfjastofnun segir að aukin eftirspurn eftir ákveðnum lyfjum auki líkur á ólögmætri verslun og jafnframt á lyfjafölsunum. „Lyfja- stofnanir í Bandaríkjunum, Taí- van, Austurríki og í Hollandi hafa fundið falsað Tamiflu sem keypt hefur verið í netverslunum,“ segir á vef Lyfjastofnunar og bent er á að netverslun með lyf sé óheimil hér á landi. „Enda er slík verslun í flestum tilvikum án eftirlits heil- brigðisyfirvalda.“ - óká Lyfjastofnun varar við svindli: Falsað Tamiflu selt á netinu LÖGREGLA Kona þurfti að bíða í tæpar tvær stundir eftir hjálp eftir að hún velti bíl sínum í þjóð- garði Snæfellsjökuls um hádeg- isbil í gær. Lélegt símasamband er á þessum slóðum. Konan slapp með minniháttar meiðsl en hún var í bílbelti. Bíllinn er hins vegar mikið skemmdur eftir veltuna. Önnur bílvelta varð á Snæfells- nesi um fimmleytið, við Enni rétt utan Ólafsvíkur. Þá missti karl stjórn á bíl sínum í vindhviðu með þeim afleiðingum að bíllinn fór tvær veltur. Maðurinn hlaut- minniháttar meiðsl og að sögn lögreglu má þakka bílbeltinu að ekki fór verr. Bíllinn er töluvert skemmdur eftir óhappið. - æþe Tvær bílveltur við Ólafsvík: Beið í tæpa tvo tíma eftir hjálp KJARAMÁL Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra kveðst undr- andi á því að fá það svar frá Kjaradómi að úrskurður hans frá 19. desember skuli standa óbreyttur. „Ég hafði gert mér vonir um það að Kjaradómur mundi bregðast við með ábyrgum hætti. Það liggur alveg ljóst fyrir að þær hækkanir sem þarna hafa orðið hafa valdið óróa og að aðil- ar vinnumarkaðarins sætta sig ekki við þetta,“ sagði Halldór á skyndifundi með blaða- og frétta- mönnum eftir að niðurstaða Kjaradóms við erindi forsætis- ráðherra lá fyrir um að úrskurð- urinn frá því fyrir jól stæði. Halldór segir að skipuð verði nefnd sérfróðra manna hið snar- asta sem falið verði að fjalla um breytingar á starfsemi Kjara- dóms og Kjaranefndar. Nefnd- inni er ætlað að endurskoða og undirbúa frumvarp til laga- breytinga sem lagt verði fyrir þingið þegar það kemur saman. Í svari Kjaradóms í gærkvöldi við beiðni forsætisráðherra um endurskoðun ákvörðunarinn- ar frá 19. desember um launa- hækkun þingmanna, dómara og fleiri, kemur fram, að dómurinn hafi þegar útskýrt forsendur ákvörðunar sinnar ítarlega og ekkert það hafi komið fram sem bendi til þess að dómurinn hafi ekki gætt lögmætra sjónarmiða við þá ákvörðun. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, segir góðra gjalda vert að hefja undirbúning lagabreytinga með skipun nefndar. Hins vegar standi óbreyttur vandinn sem skapist um áramótin þegar dómurinn tekur gildi. - jh / sjá síðu 6 Forsætisráðherra er ósáttur við afstöðu Kjaradóms og lætur undirbúa lagabreytingar: Undrast viðbrögð Kjaradóms HALLDÓR ÁSGRÍMSSON Á SKYNDIFUNDI MEÐ BLAÐA- OG FRÉTTAMÖNNUM Í GÆRKVÖLDI Forsætisráðherra undrast þá ákvörðun Kjaradóms að láta fyrri úrskurð sinn standa þrátt fyrir beiðni um endurskoðun. Hann hafi vonast til að dómurinn brygðist við með ábyrgum hætti. Viggó verður dómari Viggó Sigurðsson, landsliðsþjálfari í handknattleik, hefur tekið að sér dómgæslu í fjáröfl- unarleik fyrir ÍR á föstudag. Hann mælir með að dómarar mæti og læri hvernig eigi að dæma. ÍÞRÓTTIR 40 FR ÉT TA B LA Ð IÐ /E . Ó L. ALLIR LITIR HAFSINS ERU KALDIR Ný íslensk spennu- þáttaröð á RÚV Kvikmyndin verður ekki sýnd hér á landi FÓLK 46

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.