Fréttablaðið - 29.12.2005, Blaðsíða 29
FIMMTUDAGUR 29. desember 2005 5
Rapparinn Halldór Halldórsson
eða Dóri DNA eins og margir
kalla hann er ekki alveg búinn
að ákveða hvert áramótadressið
verður. ,,Kannski verð ég í jakka-
fötunum sem foreldrar mínir
gáfu mér dýrum dómum. Þau
eru svört og mjög plein en ég er
alveg eins og bæjarstjóri í þeim.
Annars verð ég í rapp-outfittinu
mínu þar sem ég er í bláum galla-
buxum, Jay-Z skónum mínum og
með New-era-derhúfuna mína.
Svo verð ég auðvitað í LA Lakers
official NBA-jakkanum mínum.“
Halldór segir valið fara eftir
þemanu sem verði þetta kvöldið.
,,Jakkafötin eru kannski aðeins
áramótalegri; að taka á móti nýju
ári í sparitauinu. En þar sem ég
verð að skemmta á Prikinu á góðu
hiphop-djammi þá velur maður
kannski rappdressið. Það er nátt-
úrulega ekki amalegt að vera í LA
Lakers-stöffi á áramótunum, það
eru bara heiðursmenn sem klæð-
ast því,“ segir Halldór sem verður
veislustjóri á Prikinu ásamt Önnu
Rakel Róbertsdóttur. ,,Þetta byrj-
ar upp úr miðnætti og það verður
rosaleg stemning. Síðan er aldrei
að vita nema einhver fræg rapp-
stjarna detti inn á staðinn.“
Ef Halldór velur jakkafötin
verður hann með lítinn partíhatt
og tunguflautu. ,,Þá verð ég líka
annaðhvort með silkibindið sem
amma mín gaf mér á jólunum
eða þetta svarta ef ég er að fara í
útfararstjóralúkkið. Ef ég vil hins
vegar vera sérstaklega hátíðleg-
ur slengi ég á mig rauðu bindi og
axlaböndum,“ segir rapparinn
sem verður í Mosfellsbænum yfir
sjálf áramótin. ,,Ég skála með
foreldrunum í kampavíni og tívolí-
bombu á slaginu tólf.“
mariathora@frettabladid.is
Eins og bæjarstjóri
á áramótunum
Halldór Halldórsson verður annaðhvort eins og bæjarstjóri eða rappari á áramótunum. Hann verð-
ur með foreldrunum á slaginu tólf en ætlar að skemmta á Prikinu síðar um nóttina.
Halldór í svörtu jakkafötunum á síðustu áramótum. Þá var hann með kúrekasylgju sem
hann keypti í Hollandi af bandarískum sígauna sem sagði að sylgjan kæmi beint úr villta
vestrinu.
Ekki má lengur birta myndir
af frægum fyrirsætum svo sem
Cindy Crawford og Kate Moss í
höfuðborginni Minsk.
Forseti Hvíta-Rússlands hefur
sett blátt bann við erlendum fyr-
irsætum í þarlendum auglýsinga-
herferðum. Nýju lögin sem tóku
gildi í apríl síðastliðnum hafa
valdið ringulreið hjá auglýsinga-
fyrirtækjum. Nú þurfa þau að
sýna fram á hvít-rússneskan ríkis-
borgararétt hjá þeim fyrirsætum
sem fengnar eru í auglýsingar og
hafa stórfyrirtæki eins og Renault
og L‘Oréal tekið upp á því að gera
auglýsingar án fólks.
Ennfremur hefur glundroði
myndast hjá fyrirsætuskólum
sem verða nú að sækja um sér-
stakt kennsluleyfi en ríkisstjórnin
þykir rög við að gefa það.
Þessar aðgerðir munu líklega
gefa hvít-rússneskum ríkisborgur-
um aukin tækifæri. Þrátt fyrir það
verður landið seint miðpunktur
tískuheimsins og efnilegar fyrir-
sætur frá Hvíta-Rússlandi halda
áfram að sækja til Parísar eða New
York fremur en heimalandsins.
Myndir af erlendum
fyrirsætum bannaðar
Fyrirsætan Heidi Klum.
Naomi Campbell ofurfyrirsæta.
Auglýsingaplakat með Cindy Crawford er
ekki lengur leyfilegt í höfuðborg Hvíta-
Rússlands.