Fréttablaðið - 29.12.2005, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 29.12.2005, Blaðsíða 46
 29. desember 2005 FIMMTUDAGUR30 menning@frettabladid.is ! Kl. 21.00Á styrktartónleikum fyrir fórnarlömb jarðskjálftans í Pakistan, sem haldnir verða í Austurbæ, koma fram Jagúar, Milljónamæringarnir ásamt Bogomil Font og Páli Óskari, Ragnheiður Gröndal, Stefán Hilmarsson og Eyjólfur Kristjánsson, Dúndurfrétt- ir, Cynic Guru, Helgi Rafn ásamt Twisted Reality Show, Brynhildur Guðjónsdóttir, Shadow Parade, Pétur Ben, Myst, Leaves og Jón Ólafsson. > Ekki missa af ... ... sýningu Guðrúnar Veru Hjartardóttur, Velkomin(n) í mannheima, og sýningunni Aðföng Listasafns Reykjavík- ur 2002-2005, en báðum lýkur þeim í Hafnarhúsinu á morgun. ... sýningunni Ný íslensk myndlist II sem nú stendur yfir í Listasafni Íslands. ... barokktónleikum í Fríkirkjunni annað kvöld þar sem tónlistar- hópurinn Reykjavík barokk flytur barokktónlist frá Englandi. ���������������������������������� ���������� ��������������������������� ����������� ������������������������������������������������������������� ������������������������������������������ ������������������������������� ��������������������������������������������������������������������������������������������� ��������� ��������������������������������������������������������������� ����������������������������� ������������������������������������������������� ��� ��������� ������������������� ������������������������������������ ��������������� ������������ ����������������������������������������� � ������������ �������������� �� ����������� Stóra svið SALKA VALKA Su 8/1 kl. 20 Su 22/1 kl. 20 Fi 26/1 kl. 20 WOYZECK Í kvöld kl. 21 UPPSELT Fö 30/12 kl. 21 Lau 7/1 kl. 20 Su 15/1 kl. 20 Lau 21/1 kl. 20 Su 29/1 kl. 20 KALLI Á ÞAKINU Su 8/1 kl. 14 Su 15/1 kl. 14 Lau 21/1 kl. 14 Su 22/1 kl. 14 CARMEN Fi 12/1 kl. 20 FORS. miðav. 2.000- kr Fö 13/1 kl. 20 FORS. miðav. 2.000- kr Lau 14/1 kl. 20 FRUMSÝNING UPPSELT Fi 19/1 kl. 20 Fö 20/1 kl. 20 Fö 27/1 kl. 20 Lau 28/1 kl. 20 Nýja svið/Litla svið MANNTAFL Su 8/1 kl. 20 Lau 14/1 kl. 20 SÍÐUSTU SÝNINGAR! ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR Í kvöld kl. 20 AUKASÝNING UPPSELT Fö 30/12 kl. 20 AUKASÝNING UPPSELT BELGÍSKA KONGÓ Lau 7/1 kl. 20 Su 15/1 kl. 20 Fö 20/1 kl. 20 Lau 28/1 kl. 20 GLÆPUR GEGN DISKÓINU EFTIR GARY OWEN. Í SAMSTARFI VIÐ STEYPIBAÐSFÉLAGIÐ STÚT Fi 12/1 kl. 20 FRUMS. UPPS. Fö 13/1 kl. 20 Lau 21/1 kl. 20 Su 22/1 kl. 20 GJAFAKORT GEFÐU EFTIRMINNILEGA UPPLIFUN GJAFAKORT Í BORGARLEIKHÚSIÐ GILDA ENDALAUST Fim. 29. des. örfá sæti laus Fös. 20. jan. Lau. 21. jan. Gleðileg jól! HVAÐ? HVENÆR? HVAR? DESEMBER 26 27 28 29 30 31 1 Fimmtudagur ■ ■ TÓNLEIKAR  17.00 Bubbi Morthens, Sálin hans Jóns míns, Jónsi, Skítamórall, Nylon, Heiða, Hildur Vala, Heitar lummur, Paparnir og fleiri tónlistarmenn koma fram á tónleikum til styrktar Styrktarfélagi krabbameinsjukra barna í Háskólabíói.  21.00 Styrktartónleikar fyrir fórna- lömb jarðskjálftans í Pakistan verða haldnir í Austurbæ í samstarfi við Kópavogsdeild Rauða krossins. Fram koma Jagúar, Milljónamæringarnir ásamt Bogomil Font og Páli Óskari, Ragnheiður Gröndal, Stefán Hilmarsson og Eyjólfur Kristjánsson, Dúndurfréttir, Cynic Guru, Helgi Rafn ásamt Twisted Reality Show, Brynhildur Guðjónsdóttir, Shadow Parade, Pétur Ben, Myst, Leaves og Jón Ólafsson.  21.00 Pétur Ben, Karl Henry, Beggi, Haukur Heiðar, Bob Justman, Kristur og Svavar Knútur koma fram á tónleikum á Gauki á Stöng til þess að heiðra minningu Elliotts Smith.  23.00 Brylli (Brynjar Jóhannsson) heldur tónleika ásamt hljómsveit á Dillon. ■ ■ LISTAHÁTÍÐ  20.00 Eldhús eftir máli, leikverk Völu Þórsdóttur, sem hún hefur unnið upp úr smásögum Svövu Jakobsdóttur, verður frumsýnt í Þjóðleikhúsinu í leikstjórn Ágústu Skúladóttur. ■ ■ TÓNLIST  22.00 Helgi og hljóðfæraleik- ararnir ætla að halda tónleika í Laugarborg í Eyjafjarðarsveit. Upplýsingar um viðburði og sýningar sendist á hvar@frettabladid.is ekki síðar en sólarhring fyrir birtingu. Á morgun ætlar tónlistar- hópurinn Atón að frumflytja fjögur ný verk á tónleikum í Iðnó. Í lokin ætlar hópurinn að sprella svolítið. „Við verðum með óvænt sprell í lokin á tónleikunum,“ segir Berglind María Tómasdóttir flautuleikari, sem kemur fram á tónleikum í Iðnó annað kvöld ásamt félögum sínum í Atón. Á undan sprellinu, sem engar upplýsingar fást um hvað felst í, ætlar hópurinn að frumflytja verk eftir Önnu S. Þorvaldsdóttur, Guð- mund Stein Gunnarsson, Ólaf Björn Ólafsson og Charles Ross. „Þessi verk eru öll skrifuð fyrir okkur, nema reyndar verkið hans Charles, en hann er að skrifa annað verk fyrir okkur núna.“ Hópinn skipa að þessu sinni, auk Berglindar, þau Ingólfur Vilhjálms- son á klarínett, Snorri Heimisson á fagott, Ingi Garðar Erlendsson á básúnu, Tinna Þorsteinsdóttir á píanó, Páll Ivan Pálsson á rafbassa, Ólafur Björn Ólafsson á slagverk og Áki Ásgeirsson á trompet og tölv- ur. „Samsetningin er alltaf aðeins breytileg,“ segir Áki. „Í þetta skiptið erum við með rafbassa og trommur, hljóðfæri sem eru meira notuð í rokktónlist, en það opnar ýmsa möguleika.“ Næst kemur Atón fram á Myrk- um músíkdögum, sem að venju verða haldnir í febrúar á nýju ári. „Þar frumflytjum við ennþá fleiri verk. Við erum óð í að frumflytja ný verk,“ segir Bergljót. Allt frá upphafi hefur Atón haft það markmið að frumflytja ný tónverk. Hópurinn var stofn- aður sumarið 1998 af nokkrum ungum tónlistarmönnum í tengsl- um við Hitt húsið. „Við fengum vinnu í eitt sumar við að spila á vegum borgarinnar. Í raun og veru vorum við einn af fyrstu skapandi sumarhópum Hins húss- ins, eins og þetta er kallað í dag.“ Hópurinn kom síðan saman á hverju sumri allt til ársins 2001 og hélt tónleika þar sem frumflutning- ur nýrra verka var jafnan uppistað- an í dagskránni. „Síðan fórum við í frí og gerðum ekkert 2002 og 2003,“ segir Áki, en árið 2004 var farið af stað aftur og síðan þá hefur starf- semin vaxið og eflst. Tónleikahald er ekki lengur bundið við sumar- tímann, og nú er utanlandsferð á dagskránni. Í apríl verður haldið til Kaliforníu þar sem leikið verður á alls oddi, Árið 2004 hlaut Atón tilnefningu til Íslensku tónlistarverðlaunanna sem bjartasta vonin. ■ Við erum óð í ný verk Hinn bráðefnilegi píanóleikari Víkingur Heiðar Ólafsson, sem vakið hefur mikla athygli og margir hafa áhuga á að fylgjast með, mun spila verk eftir Moz- art á hátíðartónleikum Rótarý- hreyfingarinnar í Salnum 8. janúar næstkomandi. Tónleikarnir eru haldnir til að fagna nýju ári og eru jafn- framt helgaðir Wolfgang Ama- deusi Mozart í tilefni þess að á nýja árinu verða liðin 250 ár frá fæðingu þessa mikla snillings. Tvennir tónleikar verða í Salnum sunnudaginn 8. janúar, þeir fyrri hefjast klukkan 16 en þeir síðari eru haldnir klukkan 20 og seldist strax upp á fyrri tónleikana. Einnig koma fram á tón- leikunum ung og glæsileg sópransöngkona, Margrét Sig- urðardóttir, er hlotið hefur lof- samlega dóma, hinn góðkunni Blásarakvintett Reykjavíkur og Jónas Ingimundarson, píanó- leikari og stjórnandi tónleik- anna. Víkingur H. Ólafsson hlaut í fyrra hin eftirsóttu tónlist- arverðlaun Rótarý og hefur síðan stundað framhaldsnám í Bandaríkjunum. Tónlistarverð- laun Rótarý árið 2006 verða veitt á hátíðartónleikunum og mun hinn nýi verðlaunahafi bætast í hóp þeirra er þar flytja list sína. Ár Mozarts rennur upp ATÓN ÆFIR SIG Í gær voru félagar í Atón á æfingu fyrir tónleikana í Iðnó. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.