Fréttablaðið - 29.12.2005, Blaðsíða 52

Fréttablaðið - 29.12.2005, Blaðsíða 52
 29. desember 2005 FIMMTUDAGUR36 FRÉTTIR AF FÓLKI Spjallþáttastjórnandinn Oprah Winfrey komst heldur betur í hann krappan á þriðjudag. Var hún á leið frá Los Angeles til Chicago ásamt heitmanni sínum þegar brestur kom í rúðu á einkaþotu hennar rétt eftir flugtak. Varð flugmaðurinn að snúa vélinni við og lenda aftur í Los Angeles vegna þessa. Sluppu allir í vélinni við meiðsli. Grunur lék á að fugl hefði flogið á glugga vélarinnar en sá möguleiki var útilok- aður seinna meir. Grunur leikur á að um þreytu í glerinu hafi verið að ræða. Leikkonan Tori Spelling, sem gerði garðinn frægan í þáttunum Beverly Hills 90210, hefur nú gengið upp að altarinu. Hinn heppni er leikarinn Dean McDermott. Hittust þau við tökur á kvikmynd sem þau léku bæði í Toronto í Kanada. ,,Við erum svo hamingjusöm og ástfangin“ sagði húnn í sjöunda himni. Fyrir utan leik sinn í þáttaröð- unum um unglingana í Beverly Hills er Spelling þekktust fyrir að vera dóttir kvikmyndafram- leiðandans forríka, Aarons Spelling. Leikkonan ástralska, Nicole Kidman, varði, að sögn, jólunum hjá kær- astanum sínum, sveitasöngvaranum Keith Urban, og fjölskyldu hans í Nashville. Þessi 38 ára leikkona kyndir því undir þær sögusagnir að samband þeirra sé alvarlegra en þau vilja vera láta. Parið hittist fyrst í janúar síðastliðnum í galakvöld- verði í Los Angeles þar sem þekktir Ástralar voru verðlaunaðir. Hafa þau verið saman æ síðan. STÓR HUMAR aðeins 3900 kr/kg. GLÆNÝ ÝSUFLÖK LÚÐUSNEIÐAR, LÚÐUFLÖK TÚNFISKUR OG LAX. opið alla laugardaga 10-14 Pete Doherty, söngvari Baby- shambles, ætlar að taka til í einka- lífi sínu á næsta ári og vinna aftur ástir ofurfyrirsætunnar Kate Moss. Moss hætti með Doherty fyrr á árinu vegna eiturlyfjavanda hans. Þetta kemur fram í viðtali sem breska ríkisútvarpið, BBC, tók við hann á dögunum. Doherty seg- ist ætla að snúa lífi sínu til betri vegar með hjálp tónlistarinnar. Ætlar hann ekki að sóa góðum tækifærum í lífinu á sama hátt og George heitinn Best. „George Best var frægur fyrir fótboltahæfileika sína en lenti síðan í algjöru rugli. Hjá mér verður þetta akkúrat öfugt,“ segir Doherty. Doherty hefur ekki í hyggju að segja fjölmiðlum nánar frá sam- bandi sínu og Moss. Hefur hann þegar eytt ástarbréfum sínum til hennar svo þau komist ekki í rangar hendur einhvern daginn. Einnig óttast hann að dagbækur hans lendi í röngum höndum en hann hefur enn ekki viljað eyði- leggja þær. Doherty vill bæta sig PETE DOHERTY Vandræðagemlingurinn breski ætlar að taka til í einkalífi sínu á næsta ári. Það var rólegt um að litast á flug- eldasölum borgarinnar í dag, enda rétt verið að opna. „Þetta byrjar alltaf rólega og eykst svo jafnt og þétt þegar nær dregur gamlársdegi,“ segir Dagbjartur Brynjarsson hjá Björgunarsveit Hafnarfjarðar.“ Flugeldarnir sem björgunar- sveitir landsins selja eru hann- aðar fyrir íslenskan markað og er innblástur fyrir nafngiftirn- ar sóttur í íslensku fornsögurn- ar. „Flugeldaúrvalið köllum við vopnabúrið,“ segir Bragi Björns- son, flugeldasérfræðingur Hjálp- arsveitar skáta. „Þar er lásboginn stærstur og mestur. Hann er eins og tívolíbomba, falleg stjarna sem springur með miklum látum og litadýrð. Hnífurinn lika vinsæll, þrískipt og skemmtileg raketta en svo kaupa menn líka atgeir, spjót og sverð.“ Stærstu skotkökurnar eru kall- aðar bardagar. Þeirra stærstir eru Ingólfsbardagi og Örlygsstaða- bardagi. Bardagarnir eru eins mismundandi og þeir eru margir; sumir leggja meiri áherslu á lita- dýrð en aðrir á hávaða. „Þetta er í rauninni bara lítil flugeldasýn- ing,“ segir Dagbjartur. „Enda hafa terturnar slegið í gegn og rjúka út hjá okkur.“ Sömu sögu er að segja af skotkökunum sem bera nöfn fornkappanna, til dæmis Grettir og Gunnar á Hlíðarenda og segir Bragi að það færist sífellt í auk- ana að fjölskyldur og nágrannar taki sig saman og leggi í púkk fyrir veglegri flugeldaveislu. Bragi segir að karlar og konur leiti yfirleitt ekki eftir því sama í flugeldum. „Konur hafa meira gaman af litadýrð en karlarnir eru fyrir hávaða. Í ár bjóðum við upp á tertu sem á að höfða til kvenna og við köllum Þórunni hyrnu. Hún er hjartalaga og skartar mörgum litum.“ Braga finnst það góður siður að vísa til fornsagnanna í nafngiftum flugeldanna. „Það myndast skemmtileg stemning. Fólk kemur ár eftir ár og biður um Guðríði eða Gretti. Það er líka auð- veldara að muna nöfnin á flugeld- unum með þessu móti.“ Það er jákvæð þróun, að mati Sigrúnar A. Þorsteinsdótt- ur sviðsstjóra slysavarnasviðs Landsbjargar, að skotkökurnar verða sífellt vinsælli. „Gegnum- gangandi eru þær öruggari en flugeldarnir svo lengi sem fólk fer eftir leiðbeiningum. Það er meiri hætta á að flugeldur fari á hliðina og skjótist í átt að fólki en skotkaka, en það verður að gæta þess að undirlagið sé slétt.“ Sigrún segir að reyndar valdi skotkökur oft slysum en það stafi oftar en ekki af fikti. „Það er vin- sælt meðal unglinga að rífa þær í sundur og safna púðrinu saman í öfluga sprengju og af því hafa orðið ljót slys. En sé leiðbeining- um fylgt og fólk sýnir aðgát eru kökurnar að jafnaði öruggari en flugeldarnir. ■ Örlygsstaðabardagi á áramótum ÁRIÐ SPRENGT Í BURTU Það er gott, að mati Sigrúnar Þorsteinsdóttur, að skotkökurnar sækja í sig veðrið því þær eru öruggari en flugeldarnir. BRAGI BJÖRNSSON Segir nokkurn mun á þeim flugeldum sem höfða til karla og kvenna. FRÉTTABLAÐIÐ/ VALLI Flugeldasölur landsins opnuðu í gær eins og ráða mátti af háum hvellum víða um bæ. Bergsteinn Sigurðsson kannaði hvað er efst á baugi í vopna- búrum björgunarsveitanna þetta árið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.