Fréttablaðið - 29.12.2005, Side 10

Fréttablaðið - 29.12.2005, Side 10
10 29. desember 2005 FIMMTUDAGUR Tegund Ver› me› afslætti Pathfinder XE beinskiptur 3.590.000,- Pathfinder SE beinskiptur 3.950.000,- Pathfinder SE sjálfskiptur 4.090.000,- Pathfinder LE sjálfskiptur 4.590.000,- Pathfinder LE IT 4.790.000,- F í t o n / S Í A Sævarhöf›a 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opi›: Mánudaga – föstudaga kl. 9:00-18:00 og laugardaga kl. 12:00-16:00 ÉG ÆTLA EKKI A‹ HANGA INNI Í VETUR 7 manna, cruise control, spólvörn, skri›vörn, regnskynjari og miklu meira. PATHFINDER NISSAN SKIPT_um landslag Gagnasafn opnað Bókasafn Reykja- nesbæjar hefur opnað netaðgang að gagnabanka safnsins um Suðurnes í tilefni þess að fyrsta tölublað mán- aðartímaritsins Faxa kom út fyrir 65 árum. Á vef bæjarins kemur fram að meginuppistaðan sé tilvísanir í greinar og fréttir í Faxa. Að auki muni í honum vera valdar heimildir um Suðurnes úr bókum og tímaritum. Slóðin er www. reykjanesbaer.is/bokasafn. SVEITARSTJÓRNARMÁL LÖGREGLA Skemmdir voru unnar á þremur stöðum á Suðurnesjum um hádegisbilið í fyrradag. Lögreglan í Keflavík segir að rétt fyrir klukkan tólf hafi borist tilkynning um að brotin hafi verið rúða í útihurð í Reykjaneshöllinni í Njarðvík. Örfáum mínútum fyrr var tilkynnt um að brotnar hefðu verið fimm rúður í valtara sem geymdur var við bílaþjónustu í Grindavík. Þá var klukkan tólf til- kynnt um veggjakrot á suðurhlið Samkaupa í Njarðvík. Á staðnum fundust úðabrúsar. Ekki er enn vitað hvaða skemmdarvargar voru þarna á ferðinni. - óká Ófundnir skemmdarvargar: Rúðubrot og málað á vegg FANNFERGI Í KÓREU Mikið hefur snjóað á Kóreuskaga að undanförnu og hafa opinberir starfsmenn vart haft undan við að hreinsa götur og torg. Fólk hefur látist vegna kuldans og mikið rask hefur orðið á skólastarfi. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Fjölskyldan hornsteinninn Átta af hverjum tíu íbúum Argentínu segja fjölskylduna vera hornstein samfélagsins enn þann dag í dag samkvæmt könnun Gallup þar í landi. Er þetta svipað hlut- fall og hjá öðrum þjóðum Rómönsku Ameríku. Mafían að störfum Ofbeldi fer vaxandi á götum Buenos Aires. Morðum og skipulögðum tilræðum fer fjölgandi og telur lögreglan í borginni að upp- gangur sé á ný innan raða argentínsku mafíunnar. ARGENTÍNA KITGUM, AP Lýtaaðgerðir hafa gefið fórnarlömbum limlestinga í Úganda nýja von. Enginn veit hversu margir hafa þar orðið fyrir barðinu á uppreisnarmönnum Byltingarhers drottins, sem staðið hafa fyrir bardögum í norðurhluta landsins síðastliðin nítján ár. Sabina Abwo er eitt fórnar- lambanna, en uppreisnarmenn- irnir skáru eyru hennar og varir af andlitinu. Abwo var tekin til fanga er hún var að safna eldiviði í grennd við flóttamannabúðir og taldi að ætlun uppreisnarmann- anna væri að drepa hana. Þess í stað var hún hins vegar send afskræmd til baka, öðrum sem ekki studdu ríkisstjórnina víti til varnaðar. Skurðirnir hafa að sjálfsögðu valdið fórnarlömbum þeirra mikl- um þjáningum. Mikil skömm þjak- ar fólkið og ryk og flugur komast í eyru þeirra auk þess sem þau eiga í miklum vandræðum með að borða og drekka. Nú hefur fólkinu hins vegar borist hjálp, en fyrr í þessum mánuði fóru teymi sjálfboðaliða á vegum alþjóðlegu samtakanna Læknar án landamæra, hollenskra stjórnvalda og læknasamtaka til Úganda. Þá voru varir græddar á fimmtán sjúklinga með skurðað- gerð, en teymin munu í kjölfarið koma til landsins á þriggja til sex mánaða fresti til þess að veita sjúklingum eftirmeðferð og gera fleiri aðgerðir. Ekki er vitað hversu lengi verkefninu verður haldið áfram, en það veltur á fjármögnun þess og því hversu margir sjúklingar gefa sig fram. Að minnsta kosti tuttugu manns hafa þegar sóst eftir því að fá lækningu, en einungis var hægt að gera að sárum fimmtán þeirra fyrsta kastið þar sem búnaður er af skornum skammti. Byltingarher drottins er talinn hafa numið um 25 þúsund börn brott frá fjölskyldum sínum og eru börnin meðal annars notuð sem bardagamenn eða kynlífsþrælar. Börnin eru meðal annars neydd til þess að skera eyru eða varir af fólki og þeim síðan sagt að þau fái aldrei aftur samþykki samfélaga sinna eftir að hafa framið slíkan voðaverknað. helgat@frettabladid.is Lýtaaðgerðir gefa nýja von Uppreisnarmenn hafa skorið eyru og varir af fjölda fólks í langvinnri borgarastyrjöld í Úganda. Lýta- læknar hafa nú gert aðgerðir á fimmtán manns. FÓRNARLAMB UPPREISNARMANNA Sabina Abwo er ein þeirra sem misstu eyru og varir í borgarastyrjöld sem geisað hefur síðastliðin nítján ár í norðurhluta Úganda. FRÉTTABLAÐIÐ/AP FERÐAMÁL Formaður Félags leið- sögumanna segir brýnt að sett verði lög sem skilyrði leiðsögumenn til að vera með starfsleyfi. Þróun síðustu ára kalli mjög svo eftir þessu. „Það hafa sennilega allir leið- sögumenn hér á landi lent í því að með fyrsta hópnum, sem verið er að leiðsegja, komi hópstjóri sem punktar allt vel hjá sér og tekur eftir öllu sem fram fer,“ útskýrir Ásta Óla Halldórsdóttir, formaður félagsins. „Svo þegar næsti hópur kemur þylur þessi hópstjóri það sem hann lærði af leiðsögumannin- um fyrir ferðamennina og þar með finnst þeim þeir ekki þurfa leið- sögumann lengur.“ Þessir hópstjórar eru á mjög lágum launum sem leiðsögumenn geta ekki keppt við, segir Ásta Óla, en þeir beita síðan öðrum brögðum til að drýgja tekjur sínar. „Svo selja þeir margir hverjir miða á söfn á mun hærra verði og taka mismun- inn sjálfir. Einnig láta þeir borga matinn fyrir fram og fara svo fram á afslátt á veitingastöðunum og aftur er kominn nokkur mismunur sem þeir geta stungið í vasann,“ segir Ásta. Hún segir einnig kominn kurr í rútubílstjóra sem verði að fylgja hörðum reglum og vera með ýmis leyfi upp á vasann en svo komi erlendir ökumenn í unnvörpum með stóra hópa sem ekkert eftirlit sé haft með. - jse Formaður Félags leiðsögumanna vill að lög verði sett um starfsleyfi: Segir leiðsögumenn einnota FERÐAMENN Á ÍSLANDI Íslenskir leiðsögu- menn þjálfa upp hópstjóra sem síðan gera leiðsögumenn óþarfa í augum þeirra sem að ferðunum standa.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.