Fréttablaðið - 29.12.2005, Side 12

Fréttablaðið - 29.12.2005, Side 12
 29. desember 2005 FIMMTUDAGUR12 nær og fjær „ORÐRÉTT“ Nokkrir hestamenn huguðu að hrossum sínum í Víði- dalnum í Reykjavík í gær. Sumir járnuðu, aðrir gáfu eða mokuðu undan og enn aðrir riðu út. Sigurður Matthíasson landsliðs- maður var í hesthúsinu sínu að sinna því sem sinna þarf. Í mörg horn er að líta og ekki líður sá dagur að Sigurður fari ekki í Víði- dalinn. „Ég kem hingað bæði til- neyddur og af einskærum áhuga. Lífið er hestur,“ segir Sigurður og hlær. Á veturna sinnir hann tamningum, þjálfun og hrossa- sölu, á sumrin rekur hann reið- skóla ásamt konu sinni Eddu Rún Ragnarsdóttur og á haustin held- ur reiðskólinn áfram og við bæt- ast frumtamningar. Svo keppir hann og fer sjaldnast heim verð- launalaus. Sigurður stóð vart fram úr hnefa þegar hann fyrst fór á bak og hefur nánast verið á baki allar götur síðan. Þessa dagana eru hestamenn í þéttbýli að taka hross sín á hús eftir útigönguna frá í vor. Margir leggja mikið upp úr að gera það fyrir áramót og sumir geta vart hugsað sér að nýtt ár renni upp fyrr en hestar eru komnir úr haga. Þó var ró yfir öllu í Víðidaln- um í gær, einstaka hross var úti undir berum himni og vaklaði um í gerði sínu. Sag var borið inn í nokkur hesthús en því er mokað undir hrossin, þeim til þæginda. Þá voru smiðir að störfum enda bæði byggt nýtt og gamalt lagað í hesthúsabyggðinni. Hvers vegna í ósköpunum ekki? „Það sem ég hef mestar áhyggjur af er ef menn hanga allir á sama flek- anum. Ef það kemur gat á flekann, þá er ekki hægt að stökkva á annan fleka.“ BJÖRGÓLFUR THOR BJÖRGÓLFS- SON KAUPAHÉÐINN UM ÍSLENSKT VIÐSKIPTALÍF Í MARKAÐNUM. Svei þessum fjölmiðlum „Fjölmiðar hafa tekið gagn- rýnislaust við málflutningi [sjálfstæðismanna] og full- trúar minnihlutans sjaldan eða aldrei kallaðir til viðtals eða í umræðuþætti um málefni bæjarins.“ EYJÓLFUR BRAGASON GARÐ- BÆINGUR Í GREIN UM GARÐABÆ Í FRÉTTABLAÐINU. Rúna Helgadóttir var nýkomin úr reiðtúr úr Heiðmörk. Hún er í Árbæjarskóla og ver jólafríinu sínu í Víðidalnum. „Ég hef verið í þessu síðan ég fæddist,“ segir hún á meðan hún tekur hnakkinn af hestinum sínum. Sjálf á Rúna fjóra hesta en fjölskyldan er allt í allt með um tuttugu hross. Og fólkið hennar lætur sér ekki nægja hefð- bundna hestamennsku, hún vinnur að því að koma upp hestasundlaug í Víðidalnum sem áætlað er að verði komin í gagnið á vordögum. Slíkar laugar eru notaðar til tamninga. „Það er skemmtilegast að keppa og svo er alveg æðislegt að ríða út og vera frjáls í náttúrunni,“ segir Rúna aðspurð um hvað sé nú skemmtilegast við hestana. Þessi jólin fékk hún ekkert tengt hestum í jólagjöf en í fyrra fékk hún hnakk. Rúna ber örlítinn kvíðboga í brjósti vegna flugeldanna um ára- mót en hávaðinn og blossarnir geta farið illa í hesta. „Við kveikjum ljósin hér í hesthúsinu og stillum útvarpið, þeir róast við það,“ segir Rúna hestamaður sem er í Víði- dalnum frá morgni til kvölds dag- ana sem frí er í skóla. SINDRI, RÚNA OG ÚRAN gægjast út um dyraopið á hesthúsinu. Rúna veit ekkert skemmti- legra en að sinna hestunum sínum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Rúna Helgadóttir hefur verið í hestamennsku síðan hún fæddist: Skemmtilegast að keppa JÁRNAÐ Hjalti Guðmundsson var við járningar í Víðidalnum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA FJÖR Á BAKI Dagbjört Hjaltadóttir, Bjarki Sturlaugsson og Viggó Hjaltason skemmtu sér á baki á einum af gæðingunum í húsi Sigurðar og Eddu Rúnar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA LÍFIÐ ER HESTUR segir Sigurður Matthíasson sem hefur verið á hestbaki nánast frá fæð- ingu. Edda Rún stendur hjá. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Lífið er hestur Ugglaust vel að því kominn „Hann er ugglaust vel að því kom- inn en ég ætla svo sem ekki að taka neina ábyrgð á því,“ segir Jón Kr. Ólafsson, söngvari á Bíldudal um val Markaðarins á manni ársins í viðskiptalífinu, en Björgólfur Thor Björgólfsson varð fyrir valinu að þessu sinni. Jón fylgist ekki grannt með gangi mála í heimi viðskiptanna og veit, að eigin sögn, ekki hvernig kaupin gerast á eyrinni. „Ég botna bara ekkert í þessum peningamönnum. Það virðist sem fjórir til sex menn í okkar litla landi geti keypt heims- byggðina. Hvaðan koma allir þessir peningar til þessara manna? Ég fer ekkert ofan af því að í denn var talað um mis- og stéttaskiptingu en ég sé ekki betur en að alveg sama staða sé komin upp aftur. Það er búið að snúa mottunni við. Nokkrir menn eiga helling af peningum en hinir eiga ekkert af peningum og geta bara bitið í sig.“ Jón tekur þó fram að eflaust hafi þessir menn gert góða hluti, hann bara botni ekkert í öllum þessum peningum. SJÓNARHÓLL BJÖRGÓLFUR THOR ER MAÐUR ÁRSINS Í VIÐSKIPTALÍFINU JÓN KR. ÓLAFSSON SÖNGVARI. „Allt gott að frétta af mér, enda búin að vera extra stór jól hjá okkur“ segir Þorvaldur Árnason forstöðumaður kvikmyndadeildar hjá Sambíóunum. Annar í jólum og 27. voru tveir af stærstu dögum fyrirtækisins frá upphafi hvað varðar aðsókn. Það er auðvitað aðallega þessum gríðarstóru myndum, King Kong og The Chronicles of Narnia, að þakka en einnig spilar inn í mikil hefð fyrir því að fara í bíó um þetta leyti. Í gamla daga biðu kvikmyndahúsin með allar frumsýningar fram til annars í jólum og þá flykktist fólk í bíó. Hefðin lifir enn þó búið sé að dreifa úr frumsýningunum. Árni segist sjálfur hafa verið mjög ánægður með stórmyndirnar. „Persónu- lega var ég spenntastur fyrir King Kong. Ég sá bæði gömlu myndin frá 1933 og þá frá 1976, sem ég sá á stóra tjaldinu í Háskólabíó þrettán ára gamall, en ég verð að segja þessi nýja sé sú besta.“ Þorvaldur segir að jólin séu sennilega albesti tími ársins í bíóunum, með tilliti til aðsóknar hvern dag. „Tímabilið frá 26. og fram á þrettándann er alltaf sterkt, sterkara en sumarmyndirnar vafalaust. Tökum nýju Harry Potter-myndina sem dæmi, en hún er orðin vinsælasta mynd ársins þó hún hafi einungis verið mánuð í sýningu. Það er samt ekki skrítið í ljósi þess hún er sú langbesta til þessa. Fólk virðist virkilega njóta þess þegar gott úrval er af fjölskyldu- myndum.“. Þorvaldur sér um innkaup fyrir Sambíóin ásamt fleirum og segir að þar sé stefnan góð blanda af stór- myndunum og minni framleiðslu. „Sérstaklega eftir að við fórum að sjá um Háskólabíó höfum við reynt að vera með meira af evrópskum og sjálfstætt fram- leiddum myndum. Aðallega í gegnum kvikmynda- hátíðirnar, bæði þessar tvær stóru sem við leggjum lið og með því að vera með eins konar míní-hátíð- ir. Áhuginn fyrir svona myndum hefur aukist mikið, sérstaklega hjá ungu fólki og það var náttúrulega ótrúlegt þegar 34.000 manns létu sjá sig á hátíðinni í haust. Vandamálið er að þess- um myndum vegnar miklu betur með einhvers konar hátíðarumgjörð en ef þær eru frumsýndar í almennri sýn- ingu. Það er stundum sorglegt að sjá virkilega góðar myndir fara alveg framhjá fólki. Sambíóin stefna á nýtt bíó í Grafarvogi og Þorvaldur er bjartsýnn á komandi ár. „Við erum lengi búin að vera með bíó við Eigilshöll á teikniborð- inu og það verður að öllum líkindum farið að grafa fyrir því í ár. Grafarvogur er orðinn svo stór að það gengur ekki mikið lengur að þar vanti bíó. Svo eru fjölmargar myndir sem ég hlakka til að sjá árið 2006 og er Flags of Our Fathers þar fremst meðal jafningja“. HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? ÞORVALDUR ÁRNASON, FORSTÖÐUMAÐUR KVIKMYNDADEILDAR SAMBÍÓANNA: Albesti tími ársins í bíó ÞORVALDUR ÁRNA- SON Forstöðumaður kvikmyndadeildar Sambíóanna.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.