Fréttablaðið - 29.12.2005, Síða 14
29. desember 2005 FIMMTUDAGUR14
fréttir og fróðleikur
Á annað hundrað fíkni-
og vímuefnaneytendur
úr sjúklingahópnum á
Vogi létust á fyrstu átta
mánuðum þessa árs. Sá
yngsti var átján ára.
Eitt hundrað þrjátíu og fjórir fíkni-
og vímuefnaneytendur úr hópi
sjúklinga sem hafa verið til með-
ferðar á sjúkrahúsinu Vogi létust á
fyrstu átta mánuðum ársins 2005.
Fimmtán þeirra voru 39 ára og
yngri. Sá yngsti var átján ára, en sá
næstyngsti nítján ára.
Þetta segir Þórarinn Tyrfings-
son, yfirlæknir á Vogi. Hann segir
ekki koma á óvart að sprautufíkl-
ar finnist látnir, eftir að bera fór á
morfínfíkn hérlendis, eins og gerð-
ist í fyrradag þegar kona á fertugs-
aldri og maður á fimmtugsaldri
fundust látin í Reykjavík. Dánaror-
sök þeirra er ekki ljós en þau voru
bæði sprautufíklar, samkvæmt
upplýsingum blaðsins.
„Þessi ópíumlyf eru mjög hættu-
leg,“ segir Þórarinn. „Þol fíklanna
er oft breytilegt og þeir geta lent í
því að fá það mikla öndunarhömlun
að þeir látist þess vegna. Þá hægir
á önduninni, hún verður síðan
nokkrum sinnum á mínútu þar til
menn hætta að anda. Þá deyja þeir
úr súrefnisskorti.“
Dauðsföll vegna ópíumeitrunar
„Fram til 1995 fengum við nánast
ekkert dauðsfall vegna ópíumeitrun-
ar, það er af völdum morfíns, heró-
íns eða þessara sterku verkjalyfja,“
heldur Þórarinn áfram. „Í skýrslum
frá rannsóknarstofu Háskólans í
lyfjafræði var ekki getið um nein
dauðsföll af þeim ástæðum. Nú hefur
þetta aukist, fyrst og fremst eftir að
morfínfaraldurinn fór af stað hér á
landi upp úr 1998. Það þarf ekki að
koma mönnum á óvart. Það er mjög
áberandi að þeir sem eru að deyja úr
okkar hópi deyja mjög ungir, marg-
ir fyrir fertugsaldurinn. Það eru
talsverð afföll úr þessum hópi sjúk-
linga. Við fundum sárlega fyrir því
um og eftir árið 2000 hvað við vorum
að missa marga úr okkar hópi. Þá
vorum við að fara inn í breytt ástand
með tilkomu morfínfíknarinnar.“
Í ársskýrslu SÁÁ fyrir árið 2004
kemur fram að nýir sprautufíklar
sem komu á Vog á því ári og notuðu
morfín voru 47. Þá höfðu alls 769
einstaklingar greinst með ópíum-
efnavanda á síðustu tíu árum. Nýju
tilfellin af ópíumefnafíkn höfðu
aldrei verið fleiri en 2004, þegar
þau voru 117 talsins.
Í júní 2005 kemur enn fram hjá
talsmönnum Vogs að ópíumfíklum
fjölgi stöðugt. Fíkn í lyf sem ávísað
er af læknum sé orðinn aðalvandi
7-10 prósenta þeirra sem komi á
sjúkrahúsið. Um sé að ræða róandi
og örvandi ávanalyf og sterk verkja-
lyf, ópíumefni eða morfínefni.
„Þess vegna höfum við lagt svo
mikla áherslu á viðhaldsmeðferðina
við ópíumefnunum því aðalkostur
hennar er að fækka dauðsföllum hjá
ungu fólki, auk þess að koma í veg
fyrir að það smitist af lifrarbólgu
C og öðrum sýkingum,“ segir Þór-
arinn. „Einnig minnka félagsleg
vandamál og oft ná menn nokkuð
eðlilegri félagslegri virkni, jafnvel
svo mikilli að hægt er að tala um að
þeir gjörbreytist og séu orðnir edrú.
Viðhaldsmeðferðin gengur því mjög
vel sem slík, þótt ekki sé mikið um
það rætt.“
Tæplega fimmtíu í viðhaldsmeð-
ferð
Nú eru tæplega fimmtíu manns í
viðhaldsmeðferð á Vogi. Þórarinn
segist hafa reiknað það út að það
spari útskriftir á 150 þúsund töflum
af contalgini á ári. Ekki eru nema
tvö ár siðan þessi hópur sjúklinga
var þrjátíu manns, en hefur farið
hraðfjölgandi. Og alltaf bætast nýir
fíklar við.
„Þessi meðferð er engu að síður
öll í uppnámi,“ heldur Þórarinn
áfram. „Það hafa ekki fengist til
hennar þeir fjármunir sem þarf.
Það er ekki einu sinni að við fáum
lyfjakostnaðinn greiddan. Engu að
síður er viðhaldsmeðferðin það eina
sem getur komið í veg fyrir dauðs-
föll af þessum toga. Það er ein af
meginröksemdunum fyrir því að
halda þessari meðferð úti.“
Hann segir flesta morfínfíklana,
sem noti að mestu contalgin, koma
á Vog af höfuðborgarsvæðinu. Auk
contalginsins noti þeir örvandi efni
í bland.
„Síðan fáum við alltaf menn frá
útlöndum, einkum Amsterdam og
Kaupmannahöfn, sem eru margir
hverjir að koma úr heróínneyslu.
Heróínið hefur borist hingað í mjög
litlum mæli með einstaklingum en
það hefur aldrei farið nema í næsta
nágrenni við þá svo vitað sé. Það
hefur aldrei, að ég viti, farið að
neinu magni á markað hér.“
FRÉTTASKÝRING
JÓHANNA SIGÞÓRSDÓTTIR
jss@frettabladid.is
Fyrsta gervihnettinum í Galileo-verkefni Evrópu-
sambandsins var skotið á loft í vikunni. Verkefn-
ið er svar Evrópu við GPS-staðsetningartækni
Bandaríkjamanna en mun verða samhæft því
kerfi að fullu þegar fram líða stundir.
Hvað er Galileo?
Evrópa þarfnast gervihnattastaðsetningartækn-
innar óháð öðrum og tilgangur Galileo-verkefnis-
ins var að koma slíku kerfi á fót í samstarfi en jafn-
framt samkeppni við hina bandarísku GPS-tækni
sem mjög hefur rutt sér til rúms víða um heim,
þar á meðal hér á Íslandi.
Hvernig virkar þetta?
Staðsetningartæknin virkar á þann hátt að hægt
er að staðsetja hvað sem er hvenær sem er með
mikilli nákvæmni alls staðar í heiminum og er slík
tækni þegar orðin mörgum ómetanlegt hjálpar-
tæki. Besta dæmið er um jeppamenn hér á landi
sem nýta sér tæknina til að staðsetja sig nákvæm-
lega uppi á hálendinu. Skiptir þá engu hvort skyggni
er gott eður ei. En tæknin eykur einnig öryggi annars
staðar. Margar bifreiðar eru með slíka tækni og þau
er hægt að nota til að leiðbeina fólki um bestu leið-
irnar. Tæknin er mikið notuð í flugi og á sjó af sömu
ástæðum.
Hver er framtíðin?
Um nokkurt skeið hafa verið uppi hugmyndir um að
taka gjald af ökumönnum fyrir hvern ekinn kílómetra,
meðal annars í Bretlandi og á Íslandi. Slíkar mæling-
ar yrðu framkvæmdar að öllu leyti með slíkum stað-
setningartækjum og engin leið að svindla. Ekki er úr
vegi í framtíðinni þegar verð á hverju einstöku tæki
verður orðið lágt að til að mynda bændur setji slík
tæki á búfénað þegar rekið er til fjalla. Þannig er hægt
að tryggja að eftirlegukindur verða engar á haustin.
FBL GREINING: GALILEO-VERKEFNIÐ
Svar Evrópu við GPS
SPRAUTUFÍKLAR Morfínfíknin sem hélt innreið sína hér á landi í kringum aldamótin breytti vondu ástandi margra fíkla í verra. Margir
látast hér á landi á ári hverju af öndunarhömlun sem þessi eiturlyf valda.
ÞÓRARINN TYRFINGSSON Yfirlæknirinn á
Vogi segir stórt skarð höggvið í sjúklinga-
hópinn á þessu ári.
134 sjúklingar af Vogi létust
fyrstu átta mánuði ársins
FJÖLDI GREINDRA ÓPÍUM- OG MORFÍNFÍKLA
Fjöldi greindra morfínfíkla sem sprauta í æð á sjúkrahúsinu Vogi 1994- 2004
Konur Karlar Alls Látnir Konur Karlar
Misnotkun morfíns 27 89 126 4 1 3
Morfínfíkn 44 102 146 10 4 6
Morfíntilfelli alls 71 191 272 14 5 9
Fjöldi greindra ópíumfíkla á sjúkrahúsinu Vogi 1994- 2004
Konur Karlar Alls Látnir Konur Karlar
Misnotkun ópíumefna 91 201 292 14 0 14
Ópíumefnafíkn 209 268 477 33 10 23
Ópíumtilfelli alls 300 469 769 47 10 37
22.693
1997 1999 200520032001
SVONA ERUM VIÐ
FJÖLDI ÍBÚA Í KÓPAVOGI SÍÐUSTU ÁR
Heimild: Hagstofa Íslands
24.291
25.352
26.468
Fuglar taldir
Um háveturinn fer iðulega fram fugla-
talning sem Náttúrustofnun Íslands
stendur fyrir. Jóhann Óli Hilmarsson,
fuglafræðingur og ljósmyndari, tekur
þátt í talningunni.
Hvernig fer fuglatalning fram og
hvenær?
Þetta er miðsvetrartalning, hún fer
fram um það leyti sem dagarnir eru
stystir, oftast milli jóla og nýárs.
Hverjir sjá um talninguna?
Hver sem vetlingi getur valdið tekur
þátt, áhugamenn sem atvinnumenn,
enda ekki það mikið um fuglafræð-
inga á landinu. Fólk sem vill hjálpa
við talninguna setur sig einfaldlega í
samband við Náttúrustofnun..
Hvaða áhrif hafa niðurstöðurnar?
Talningin getur gefið mjög góða mynd
af sveiflum og og tegundasamsetn-
ingu, sérstaklega ef sama fólkið telur
sama svæði mörg ár í röð.
SPURT OG SVARAÐ
FUGLATALNING
Jóhann Óli Hilmarsson