Fréttablaðið - 29.12.2005, Blaðsíða 30
][
Hamraborg 1-3
200 Kópavogi
Gsm: 894 8404
Við óskum landsmönnum
gleðilegra jóla og
farsældar á komandi ári.
Þökkum fyrir viðskiptin
á árinu sem er að líða.
Starfsfólk Sericu
Á milli jóla og nýárs hafa margir nóg að gera við að koma
öllu sem þeir fengu í jólagjöf fyrir á heimilinu. Stundum verður að
fjarlægja eitthvað gamalt til þess að rýma til fyrir nýju.
Skólavörðustíg 21 • Sími 551 4050 • Reykjavík
Við óskum landsmönnum
gleðilegra jóla og farsældar
á komandi ári.
Þökkum fyrir viðskiptin
á árinu sem er að líða.
Starfsfólk Fatabúðarinnar SKIPHOLTI 21 (NÓATÚNSMEGIN)
SÍMI 561 0847
TEXTÍLGALLERY
Margt af því sem fylgir neyslu-
hlið jólanna má flokka og skila
og endurnýta, en nauðsynlegt
er að kunna réttu tökin við
flokkun á rusli.
Í anda jólanna skulum við vera
vistvæn og flokka ruslið sem
fylgdi hátíðunum áður en við
hendum því frá okkur.
Jólapappír og jólakort má ekki
setja í pappírsgáma. Sterkir litir,
gyllingar og glimmer gerir það að
verkum að pappírinn er óendur-
nýtanlegur. Pappakassar (bylgju-
pappar) sem oft eru í umbúðum
eru hins vegar gott hráefni til
endurvinnslu.
Dagblöð, tímarit og auglýs-
ingapóstur er svo flokkaður sér.
Allan prentpappír sem til fellur
á heimilinu má flokka saman og
eru hefti og smærri gormar ekki
skaðleg endurvinnslunni. Frá
prentpappírnum þarf að aðskilja
plast, gluggaumslög og merki-
miða með lími. Að sama skapi
þarf að aðskilja pappa, sem
til dæmis er í morgunkorn-
spökkum og skókössum
og öðru þvíumlíku, þykk-
an kartonpappír, ámálaðan
pappír og bækur með harðri
kápu.
Kertaafganga má einnig
endurnýta og er þeim skilað í
sérstakar tunnur á öllum end-
urvinnslustöðvum Sorpu eða á
bensínstöðvar Olís. Sólheimar
taka svo við kertaafgöngunum og
búa til ný kerti úr þeim.
Undanfarin ár hafa sveitar-
félög á höfuðborgarsvæðinu sótt
jólatré til íbúa svæðisins og
veita þau nánari upplýsingar
um hvernig og hvar það mun
fara fram. Einnig er hægt að
skila jólatrénu á endurvinnslu-
stöðvar Sorpu.
Þeir sem vilja verða fyrir-
myndarsorpflokkarar er bent á
heimasíðu Sorpu, www.sorpa.
is, þar sem finna má nákvæmar
flokkunarleiðbeiningar.
Verum vistvæn við jólafrágang
Mikið af því sorpi sem fylgir jólunum er endurnýtanlegt og mælst er til þess að fólk flokki og skili sorpinu til endurvinnslustöðva.
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI