Fréttablaðið - 29.12.2005, Síða 50
bio@frettabladid.is
> Ekki missa af...
Ice Harvest með þeim John Cusack
og Billy Bob Thornton. Fínasta film
noir-skemmtun um tvo hrappa sem
halda að þeir komist upp með að ræna
frá glæpaforingja. Skemmtileg flétta
með góðum leikurum og athyglis-
verðum endi. Fyrir þá sem nenna ekki
að sjá ævintýramyndir eða íslenskar
kvikmyndir.
Look, why don’t we just the cut the
shit here? We both know why I was
transferred. People think I’m crazy, in
which case, I’m fucked and nobody wants
to work with me. Or they think I’m faking
to draw a psycho pension, in which case,
I’m fucked and nobody wants to work
with me. Basically, I’m fucked.
Martin Riggs útskýrir fyrir Roger Murtaugh af hverju
hann sé ekki með neinn félaga í Lethal Weapon.
Árið sem nú er að líða hefur ekki verið auðvelt fyrir
Jennifer Aniston. Í janúar á þessu ári sótti hún um
skilnað frá eiginmanni sínum Brad Pitt og þurfti
síðan að þola stöðugt áreiti frá fjölmiðlum á meðan
Pitt lá ástfanginn í örmum Angelinu Jolie.
Leiklistin er Aniston í blóð borin. Faðir hennar, John
Aniston, lék lengi í sápuóperunni Days of Our Lives.
Móðir hennar, Nancy Dow, reyndi einnig fyrir sér í
leiklistinni með misjöfnum árangri en einbeitti sér að
uppeldi barnanna sinna eftir að hún skildi við eigin-
mann sinn. Jennifer var staðráðin í að gera leiklistina að
lifibrauði sínu en það gekk hvorki né rak á upphafsár-
um hennar. Hún fékk smáhlutverk í sjónvarpsþáttum
og tók þátt í leiksýningum. Árið 1993 var ferillinn
kominn í þrot en þá kom upp í hendurnar á henni
prufuþáttur sem bar heitið Friends Like These. Aniston
var boðið að prófa sig á hlutverki Monicu Geller en
harðneitaði og sagðist frekar vilja fá hlutverk stroku-
prinsessunnar Rachel Green. Framleiðendurnir féllust
á þessa bón hennar og það þarf varla að hafa fleiri orð
um framhaldið. Þættirnir
fengu nafnið Friends og
eru meðal vinsælustu sjón-
varpsþátta sem framleiddir
hafa verið. Aniston hafði
alltaf í hyggju að reyna
fyrir sér á hvíta tjaldinu og
hefur náð ágætis árangri á
því sviði. Henni hefur í það
minnsta tekist betur upp
en hinum í Vinunum sem vel flestir hafa þurft að sætta
sig við hlutverk í b-myndum. Hún stofnaði kvikmynda-
fyrirtæki ásamt Brad Pitt og hefur verið að færa út
kvíarnar í framleiðslu á kvikmyndum. Þau eiga það enn
sameiginlegt þrátt fyrir skilnaðinnn fræga.
Næst kom Aniston fram í kvikmyndum á borð við
Derailed þar sem hún lék á móti Clive Owen að
ógleymdri kvikmyndinni The Break Up þar sem
núverandi kærasti hennar, Vince Vaughn, leikur
stórt hlutverk.
Vinkonan sló í gegn
Þegar litið er yfir „kreditlista“
kvikmyndarinnar Rumor Has It...
er ljóst að hér hefur öllu verið
tjaldað til. Rob Reiner í leikstjóra-
stólnum og Jennifer Aniston,
Kevin Costner og Shirley MacLa-
ine í aðalhlutverkum. Þar að auki
eru George Clooney og Steven
Soderbergh meðal framleiðenda.
Sarah Huttinger stendur á tíma-
mótum í lífi sínu. Kærastinn hennar
Jeff veður eld og brennistein fyrir
hana og Sarah hefur nýlega tekið
bónorði hans. Á leiðinni í brúðkaup
systur sinnar gerir Sarah sér grein
fyrir því að hún hefur alltaf verið
utanveltu í fjölskyldu sinni, sem
elskar tennis og býr í Pasadena.
Faðir hennar hefur aldrei getað
skilið Söruh og eftir andlát móður-
innar hafa feðginin fjarlægst hvort
annað. Sarah sér því fram á að
amman, Katherine, verði eini ljósi
punkturinn í þessari veislu enda er
hún feiknalegur stuðbolti.
Það er þó varla búið að opna
kampavínið þegar sú gamla missir
út úr sér leyndarmál sem hún hafði
lofað að taka með sér í gröfina. Í
ljós kemur að mamma Söruh var
ekki öll sem hún var séð og það sé
hugsanlegt að pabbi Söruh eigi ekki
heiðurinn af getnaði hennar. Eftir
því sem Sarah grefur dýpra kemst
hún í raun um að hugsanlega sé fjöl-
skylda hennar fyrirmyndin að bók-
inni The Graduate þar sem ungur
drengur er dreginn á tálar af sér
eldri konu en er ástfangin af dóttur
hennar. Þetta veldur auðvitað Söruh
miklum sálarkvölum og hún ákveð-
ur að leita þennan unga mann uppi.
Þar sem er reykur...
Kvikmyndaleikstjórinn
Terry Gilliam verður
seint sakaður um að fara
troðnar slóðir í kvikmynda-
gerð sinni. Hann hefur
núna búið til ævintýri um
Grimm-bræðurna frægu
sem ferðuðust um og söfn-
uðu þjóðsögum.
Jakob og Will eru svikahrapp-
ar í Frakklandi. Þeir ljúga því
til að þeir geti ráðið niðurlög-
um illra álaga, stokkið nornum á
braut eða látið skrímsli hverfa.
Grimm- bræðurnir auðgast á hjá-
trú heimskra manna...eða svo telja
þeir.
Á sama tíma og stjórnvöld
komast á snoðir um óheillindi
þeirra eru Jakob og Will fengnir
í lítinn sveitabæ þar sem ungar
stúlkur hafa horfið sporlaust að
undanförnu. Að sjálfsögðu telja
bræðurnir að hér sé ekki um
neina töfra að ræða en þegar þeir
fara grenslast fyrir uppgötva
þeir að ekki er allt sem sýnist.
Ævintýrum á borð við Rauðhettu,
Öskubusku og Hans og Grétu er
síðan blandað inn í söguþráðinn
þannig að úr verður sannkallaður
töfraheimur að hætti Gilliam.
Það eru Matt Damon og
Heath Ledger sem leika svika-
bræðurna. Damon vakti fyrst
athygli fyrir handrit sitt að
myndinni Good Will Hunting
sem hann samdi ásamt fóstbróð-
ur sínum Ben Affleck. Síðan
hefur hlutskipti þeirra tveggja
verið heldur ólíkt. Damon hefur
tekist að halda sér á toppnum á
meðan ferill Affleck hefur verið
á hægri en öruggri niðurleið.
Heath Ledger er á hvers manns
vörum í Hollywood um þessar
mundir og er það ekki síst vel-
gengni Brokeback Mountain að
þakka. Þar leikur Ledger sam-
kynhneigðan kúreka á móti Jake
Gyllenhal en myndin var tilnefnd
til sjö Golden Globe-verðlauna á
dögunum. Þessi ástralski leikari
skaust upp á stjörnuhimininn
þegar hann fékk hlutverk son-
arins í The Patriot á móti landa
sínum Mel Gibson.
Leikstjórinn Terry Gilliam
verður að teljast stórstjarnan í
kvikmyndinni um Grimm-bræðr-
urna. Gilliam var eini bandaríski
meðlimur Monty Python-flokksins
og hefur yfirleitt verið utangarðs í
kvikmyndageiranum. Myndir hans
hafa þó notið mikillla vinsælda
enda hrífast margir af ótrúlegu
hugmyndaflugi hans og sérkenni-
legum stíl. Gilliam hefur misstigið
sig nokkrum sinnum á ferli sínum
en á að baki tímalausa snilld á
borð við The Fisher King og Twel-
ve Monkeys að ógleymdum kvik-
myndunum Brazil, Time Bandits og
Monty Python and the Holy Grail.
freyrgigja@frettabladid.is
GRIMM-BRÆÐURNIR Jakob og Will eru svikahrappar af guðs náð en þegar þeir komast í
kynni við alvöru galdra og álög eiga þeir úr vöndu að ráða.
Ævintýri að hætti Gilliam
COSTNER OG ANISTON Það verður uppi fótur og fit þegar upp kemst að Huttinger-fjölskyld-
an er hugsanlega fyrirmyndin að The Graduate.
JENNIFER ANISTON