Fréttablaðið - 29.12.2005, Blaðsíða 58
29. desember 2005 FIMMTUDAGUR42
Fiskbúðin Hafrún
Skipholti 70
Sími 553 0003
Fiskbúðin Vör
Höfðabakka 1
sími 587 5070
Fiskbúðin Árbjörg
Hringbraut 119
Sími 552 5070
Stór
humar
Risarækja, Hörpuskel,
Túnfiskur, Laxaflök
Áramótaveisla sælkerans
FÓTBOLTI Steven Gerrard, fyrirliði
Evrópumeistara Liverpool, segist
aldrei hafa kynnt öðrum eins sig-
urvilja og er nú hjá Liverpool frá
því að hann hóf að leika með lið-
inu. Hann segir að liðið geti ennþá
náð Chelsea að stigum í baráttunni
um Englandsmeistaratitilinn.
„Þegar ég lít í augun á strák-
unum í búningsklefanum sé ég
sigurviljann. Vonandi skilar það
okkur einhverjum titlum í hús á
þessari leiktíð,“ segir Gerrard.
„Það má segja að liðið sé nú orðið
að gengi sem hungrar í medalíur
og bikara. Allir vilja fleiri titla
– og fullt af þeim! Ég held að við
getum enn unnið deildina. Ef litið
er á stigatöfluna sést að við erum í
tánum á Chelsea og Man. Utd. Allt
getur gerst,“ segir Gerrard.
- vig
Steven Gerrard:
Sigurviljinn er
gríðarlegur
STEVEN GERRARD Vill bæta við titlum í ár.
FÓTBOLTI Argentínski leikstjórn-
andinn Juan Roman Riquelme hjá
Villareal á Spáni er nú sterklega
orðaður við Inter Milan. Hinn 27
ára gamli Riquelme er góðvinur
Esteban Cambiasso og er sagður
vilja ólmur spila við hliða hans á
miðju Inter. Þá er Riquelme auk-
inheldur af flestum talinn alltof
góður leikmaður til að spila í miðl-
ungsliði á borð við Villareal.
Forráðamenn Inter eru að
leita að arftaka Juans Sebasti-
an Veron sem leikur á miðju, en
hann ætlar að snúa til heimalands
síns Argentínu eftir núverandi
leiktíð. Ljóst er að félagið þarf að
reiða fram væna fúlgu til að fá
Riquelme frá Villarel en hann er
samningsbundinn félaginu til árs-
ins 2009.
Juan Roman Riquelme:
Á leið til Inter
eftir tímabilið?
JUAN ROMAN RIQULEME Hefur verið frábær
hjá Villareal eftir að hann kom til liðsins frá
Barcelona.
FÓTBOLTI Forráðamenn Real Madr-
id eru sagðir ætla að gera tilraun
til að fá vængmanninn Albert
Luque aftur til Spánar en hann
var keyptur til Newcastle frá
Deportivo í sumar. Til þess ætla
þeir að nota danska miðjumann-
inn Thomas Gravesen auk 800
milljóna króna.
Real Madrid og Newcastle:
Gravesen fyrir
Luque?
Enska úrvalsdeildin:
ARSENAL-PORTSMOUTH 4-0
1-0 Dennis Bergkamp (7.), 2-0 Jose Antonio Reyes
(13.), 3-0 Thierry Henry (37.), 4-0 Thierry Henry,
víti (43.).
BIRMINGHAM-MAN. UTD 2-2
0-1 Ruud Van Nistelrooy (5.), 1-1 Jamie Clapham
(13.), 1-2 Wayne Rooney (54.), 2-2 Walter Pandi-
ani (78.).
MAN. CITY-CHELSEA 0-1
0-1 Joe Cole (79.).
NEWCASTLE-CHARLTON
Leiknum var frestað.
WBA-TOTTENHAM 2-0
1-0 Nwankwo Kanu (23.), 2-0 Nwankwo Kanu
(52.).
WEST HAM-WIGAN 0-2
0-1 Jason Roberts (43.), 0-2 Henri Camara (45.).
FULHAM-ASTON VILLA 3-3
1-0 Brian McBride (13.), 1-1 Luke Moore (29.), 2-
1 Heiðar Helguson, víti (32.), 2-2 Liam Ridgewell
(60.), 3-2 Brian McBride (61.), 3-3 Liam Ridgewell
(76.).
BLACKBURN-SUNDERLAND
Leiknum var frestað.
BOLTON-MIDDLESBROUGH
Leiknum var frestað.
EVERTON-LIVERPOOL 1-3
0-1 Peter Crouch (11.), 0-2 Steven Gerrard (18.), 1-
2 James Beattie (52.), 1-3 Djibril Cisse (47.).
Enska 1. deildin:
STOKE-LEEDS 0-1
Hannes Sigurðsson var á varamannabekk Stoke
City.
READING-LEICESTER 2-0
Ívar Ingimarsson var í byrjunarliði Reading en
Brynjar Gunnarsson á bekknum. Jóhannes Karl
Guðjónsson var í byrjunarliði Leicester. Brynjar
skoraði seinna mark Reading.
ÚRSLIT GÆRDAGSINS
FÓTBOLTI Veðrið spilaði stóra rullu
í enska boltanum í gærkvöldi
en þremur leikjum var frestað
vegna veðurs. Leik Newcastle og
Charlton var frestað af öryggis-
ástæðum en leikjum Blackburn og
Sunderland og Bolton og Middles-
brough var frestað þar sem völl-
urinn var hreinlega frosinn.
Íslendingarnir Heiðar Helgu-
son og Eiður Smári Guðjohnsen
voru báðir í byrjunarliðum sinna
liða og Heiðar Helguson skoraði
annan leikinn í röð fyrir Fulham
úr vítaspyrnu. Vonandi að Heiðar
sé að fá aukið sjálfstraust en hann
er loksins að fá verðskuldað tæki-
færi með liði Fulham eftir að hafa
fylgst með af bekknum framan af
vetri.
Borgarslagur Everton og Liver-
pool á Goodison Park var sá leik-
ur sem vakti hvað mesta athygli
í gær. Gestirnir byrjuðu mikið
mun betur og Crouch og Gerrard
komu Liverpool í þægilega stöðu í
leikhléi. Heimamenn mættu síðan
grimmir til síðari hálfleiksins og
James Beattie kom Everton fljót-
lega inn í leikinn á ný. Þetta var
fyrsta markið sem Liverpool fær
á sig í ansi mörgum leikjum.
Djibril Cisse kom síðan Liver-
pool til bjargar skömmu síðar með
fínu marki og eftir það gátu gest-
irnir leyft sér að bakka nokkuð og
halda forskotinu. Everton-menn
reyndu hvað þeir gátu til að jafna
en höfðu ekki erindi sem erfiði.
Manchester United hvarð fyrir
miklu áfalli í gær en strákarnir
hans Sir Alex máttu illa við því
að tapa stigum gegn Birmingham
sem þeir og gerðu. Stuðningsmenn
félagsins gleðjast þó yfir því að
Ole Gunnar Solskjær spilaði sinn
fyrsta leik fyrir aðallið félagsins í
marga mánuði.
Chelsea neitar að gefa nokkuð
eftir og sigraði með marki Joes
Cole sem kom úr frákasti eftir
skot Eiðs Smára sem fór af velli á
83. mínútu.
henry@frettabladid.is
Liverpool vann borgar-
slaginn gegn Everton
Það var líf og fjör í enska boltanum í gærkvöld en þremur leikjum var frestað
vegna slæms veðurs. Heiðar Helguson skoraði aftur fyrir Fulham.
TVÖ MÖRK Í RÖÐ Heiðar Helguson skoraði
annan leikinn í röð fyrir Fulham og aftur úr
vítaspyrnu. Brian McBride sést hér fagna
honum. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
SJÓÐHEITUR Steven Gerrard fagnar hér marki sínu gegn Everton ásamt Xabi Alonso og
leiðist ekki lífið. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES