Tíminn - 19.11.1976, Blaðsíða 17
Föstudagur 19. nóvember 1976
17
Snillingur Klempel
skaut FH á bólakaf
skoraði 13 mörk hjá FH-ingum og
Slask sigur 22:20
FH-ingar réöu ekki við hina frábæru vinstrihandar-
skyttu/ Pólverjanna Jerzy Klempel, þegar þeir mættu
WKS Slask Wroclaw í Evrópukeppni meistaraliða i
Laugardalshöllinni í gærkvöldi. Snillingurinn Klempel
var algjörlega óstöðvandi — hann skoraði 13 mörk og
FH-ingar réðu ekkert við hann, þrátt fyrir að þeir reyndu
að láta „skugga" elta hann um allt í síðari hálf leiknum.
Þessi frábæri leikmaður, sem
gerði FH-ingum lifið leitt, er
mesti handknattleiksmaður, sem
hefur sést á fjölum Laugardals-
hallarinnar, siðan Gunnlaugur
Hjálmarsson var og hét. Klempel
GEIR HALLSTEINSSON....
er hér stöðvaður á siðustu
stundu. Það er Klempel sem
sést i bakið (nr. 5) á.
Timamynd Gunnar.
,,Við mættum þarna
hópi af villidýrum”
Danir óhressir yfir HM-leik Portúgala gegn þeim í Lissabon
„Ekkiknattspyrna,heldur strið”,
sagði I fyrirsögn eins af stærstu
dagblöðum Kaupmannahafnar I
gær, eftir að Danir höfðu tapað
landsleik sinum i Portúgal 1-0.
Leikurinn, sem fór fram i Lissa-
bon i fyrrakvöld, vai4-Jiöur i
heimsmeistarakeppninni i ár.
t einu dönsku blaðanna, Tabloid
B.T., sagði i gær: ..Leikurinn var
harður af hálfu beggja liða,
spilaður var lélegur fótbolti, með
áminningum, brottrekstri af velli
og kilingum, þegai/ verst lét.
Hann liktist meir styrjöld en
knattspyrnu”.
Ekstra Bladet ;tók i svipaðan
streng, en það birti myndir frá
leiknum á forsiðu, með eins orðs
fyrirsögn: „Hneyksli”.
Ein myndanna sýndi einn af
sóknarmönnum Portúgala, Fern-
andes, þar sem hann hélt Per
Roentved, einum af sóknarleik-
mönnum Dana, kverkataki.
önnur mynd sýndi danskan leik-
mann koma miklu sveifluhöggi,
— með vinstri hendi — á höfuð
portúgalsks leikmanns.
Haft er eftir dönsku leikmönn-
unum, að dómarinn, Abdelka
Aouissi, hafi dæmt heimamönn-
um mjög i ' vil, og að
Portúgalirnir hafi leikið eins og
geðbilaðir menn.
Niels Christen Holmström, sem
leikur með franska liðinu
Bordeaux, sagði eftir leikinn: —
Við mættum þarna hópi af villi-
dýrum. Þetta var suður-
evrópskur fótbolti eins og hann
gerist verstur. —
— Ef dómarinn sneri sér við til
þess að horfa á mark Portúgal-
anna, áttum við alltaf á hættu, að
i okkur væri sparkað, eða við
værum slegnir, jafnvel þótt við
værum ekki með boltann, bætti
hann við.
Erik Hyldstrup, aðalritari
danska knattspyrnusambands-
ins, sagði i gær aö Danir myndu
kæra dómgæzlu ddmarans i
leiknum til alþjóða-knattspyrnu-
sambandsins (FIFA).
Siðari hálfleikur leiksins var
sýnu harðari en hinn fyrri og var
þá einum leikmanna Portúgala
visað af leikvelli, en þrir aðrir,
þar af tveir Danir, fengu áminn-
ingu.
er geysileg skytta — fjaður-
magnaður og snöggur leikmaður,
með mikinn stökkkraft. Hann
munaði ekki um að stökkva upp
langt fyrir utan punktalinu, og
senda knöttinn þaðan i neta-
möskva FH-inga. Klempel skor-
aði 13 mörk, eins og fyrr segir —
það hjálpaði honum mikið, að
Birgir Finnbogason var ekki i
essinu sinu i FH-markinu.
Þetta einstaklingsframtak
Klempel varð FH-ingum að falli.
FH-ingar náðu sér ekki fullkom-
lega á strik i leiknum, en leikur
þeirra byggðist mest á þeim
Viðari Simonarsyni og Geir Hall-
steinssyni, sem áttu góöa kafla.
Viðar hélt FH-liðinu á floti i fyrri
hálfleik, en þá var hann afkasta-
mikill og skoraði 5 mörk, en i
siðari hálfleiknum vaknaði Geir
til lifsins — hann skoraði þá 6
mörk, en hafði ekki tekist að
skora eitt einasta i fyrri hálfleik.
Evrópuleikurinn var jafn i fyrri
hálfleiknum og var staðan 9:9 i
leikshléi. Slask-liöið tók siðan
leikinn i sinar hendur i upphafi
siðari hálfleiksins og náðu þá
fljótlega 5marka (19:14) forskoti.
FH-ingar vöknuðu þá við vondan
draum og settu á fulla ferð. Geir
náði þá að sýna marga af sínum
gömlu, góðu sprettum — og undir
hans stjórn náðu FH-ingar að
jafna (20:20) þegar 6 minútur
voru til leiksloka. En það dugði
þeim ekki — Pólverjarnir
skoruðu tvö siðustu mörkin og
tryggðu sér sigur 22:20.
Það er ekki að efa, að FH-ingar
hefðu unnið sigur á Pólverjunum,
ef þeir hefðu náð að sýna sinar
Sigmundur Ó.
Steinarsson
IÞROTTIR
réttu hliðar, og ef markverðirnir
hefðu varið eitthvað af skotum
Pólverjanna. Mörk FH-liðsins
skoruðu Geir 6, Viðar 6(1), Þór-
arinn 3, örn 2, Guðmundur Arni 1,
Janus 1 og Kristján 1.
— SOS
Þeir
þurfa að
standa í
ströngu...
18-manna
landsliðshópur
valinn
Kristján Sigmundsson, hinn
ungi og efnilegi markvÖrður hjá
Þrótti, er nú kominn i landsliðs-
hópinn i handknattleik, sem
byrjar að æfa af fullum krafti
undir stjórn Januzar Cherwinsky,
landsliðsþjálfara, og undirbúa sig
fyrir HM-keppnina i Austurrlki.
Þeir 18 leikmenn, sem skipa
landsliðshópinn, eru:
Jón Karlsson...........Valur
Bjarni Guðmundsson.....Valur
Þorbjörn Guðmundsson.... Valur
GeirHallsteinsson.......F.H.
Viðar Simonarson .......F.H.
Þórarinn Ragnarsson....F.H.
Ami Indriðason........Grótta
ViggóSigurðsson......Vikingur
BjörgvinBjörgvinsson. .Vikingur
Þorbergur Aðal
steinsson...........Vikingur
Magnús Guðmundsson.. Vikingur
Ólafur Einarsson.....Vikingur
AgústSvavarsson.........l.R.
SigurðurSveinsson ...Þróttur
Gunnar Einarsson.....Haukar
BirgirFinnbogason.......F.H.
ÓlafurBenediktsson.....Valur
Kristján Sigmundsson ... Þróttur
Hörður Sigmarsson úr Haukum
var valinn i hópinn, en hann gaf
ekki kost á sér, þar sem hann
stendur i ströngu námi.
—SOS
Mörg verkefni framundan hjá landslíðinu í handknattleik:
„Ef strákarnir standa sig vel
þá er hæpið að gera breytingar með því að kalla ,,útlendingana" heim, segir Karl Ben.
— Við munum undirbúa lands-
liðið eins vel fyrir Heims-
meistarakeppnina í Austurriki,
eins og við getum, sagði Sigurður
Jónsson, formaður H.S.Í. þegar
hann kynnti undirbúning lands-
iiðsins fyrir biaöamönnum i gær,
en. undirbúningurinn fyrir HM-
keppnina er einhver mesti undir-
búningur, sem islenzkt landsiið
hefurfengið fyrir stórkeppni, fyrr
eða siðar. Sigurður sagði, að það
yrðu 59 landsliðsæfingar hjá
landsliðinu, undir stjórn Januzar
Cherwinsky, landsliðsþjáifara —
14 landsleikir og 10 opinberir
æfingaleikir.
Januz mun byrja að þjálfa
landsliðið af fullum krafti um
helgina, enþá verða 6 æfingar hjá
landsliðinu i Reykjavik og
Hafnarfirðí, en siðan verður
haldið áfram af fullu fram að HM-
keppninni i Austurriki, og æft og
leikið nær daglega, og suma dag-
ana tvisvar sinnum á dag. Januz
er mjög ánægður með æfingapró-
grammið, sem hefur verið sett
upp. Hann sagðist leggja mikið
upp úr þvi, að æfingasókn leik-
manna verði 100%, þvi að það
væri ekki hægt að halda full-
komnar æfingar, nema að allir
landsliðsmennirnir legöu hart að
sér og mættu.
Januz mun einnig taka nokkra
leikmenn (7) i séræfingar, þar
sem ýmis atriði og leikbrellur
verða æfðar — eins og gegnum-
brot, og hvernig bezt er að skora
mörk úr hornum. Þá er hann með
markverði á séræfingum —
þrisvar i viku.
„Útlendingarnir”
— Það er ekki ákveðið, en
hugsanlegt, að „útlendingarnir”
verði notaðir i HM-keppninni,
sagði Birgir Björnsson, formaður
landsliðsnefndarinnar i hand-
knattleik, þegarhann var spurður
um þaö, hvort þeir handknatt-
leiksmenn, sem leika með
erlendum liðum, verði kallaðir
heim i landsleikina sem fram-
undan eru.
Birgir sagði, að Januz hefði
áhuga á að fá að sjá „útlending-
ana” leika, og gæti svo farið, að
þeirfengju tækifæri tilað spreyta
sig i V-Berlin um áramótin, þegar
landsliðið tekur þar þátt i
fjögurra liða keppni.
Karl Benediktsson landsliðs-
nefndarmaður, sagði, að þeir
leikmenn, sem nú þegar hafa
verið valdir, fengju sina eldskirn i
þeim landsleikjum, sem eru
framundan gegn Dönum og A-
Þjóðverjum. Ef við stöndum
okkur vel i þeim leikjum, þá er
engin ástæða til að gera stór-
breytingar á landsliöinu. En ef
við töpum aftur á móti stórt, og
sóknarleikurinn hjá okkur verður
ekki beittur, þá getur svo fariö, að
leikmennirnir sjálfir og við, sem
sjáum um landsliöið, leitum eftir
styrk frá „útlendingunum”, sagöi
Karl.
Karl sagði, aö þetta myndi allt
skýrast eftir leikina gegn Dönum
og A-Þjóðverjum, þá sjáum viö
hvar við stöndum. Þá sagöi Karl,
að það kæmi sterklega til greina
að kalla nokkra „útlendinga”
heim i janúar, og láta þá spreyta
sig gegn Pólverjum og Tékkum.
,,Okkar sterkasta 115 i
HM”
Birgir sagði, að stefnan hjá
Januzi landsliðsþjálfara væri sú
að móta sterkt lið hér heima með
þeim leikmönnum, sem væru til
staðar —ogað sjálfsögðu yrði allt
gert til að landsliðið yrði nógu
sterkt fyrir B-liða keppnina i
Austurriki i febrúar.
Á þessú sést, að það verður nóg
að gera hjá landsliðsmönnum
okkar fram að HM-keppninni.
Þeir leggja hart að sér, og von-
andi eiga þeir eftir aö uppskera
mikið 1 samræmi við þá vinnu,
sem þeir leggjaá sig, undir stjórn
Januzar, halda merki íslands á
lofti. —SOS