Tíminn - 19.11.1976, Qupperneq 20
Áuglýsingasími
Tímans er
LEIKFANGAHÚSIÐ
Skólavörðustig 10 - Sími 1-48-06
Fifher Price leikjong
eru hetmsjrceg
Brúðuhús
Skólar
Benzinstöðvar
Sumarhús
Póstsendum
Flugstöðvar
Bílar
^ALLAR TEGUNDIR - -
FÆRIBANDAREIAAA
FYRIR
' Lárétfa
færslu
Einnig: Færibandareimar úr
ryöfríu og galvaniseruöu stáli
ÁRNI ÖLAFSSON & COv
40088 a* 40098 —
„AAikið
auka
frá
Portú-
_in
gal
segir Ólafur Jóhannes-
son, viðskiptardðherra,
en íslendingar kaupa
lítið frá Portúgal
en selja þeim mikið
til þess að
Gsal-Reykjavik. — A fundinum gafst tækifæri til 'að ræða við
portúgaiska embættismcnn vum viðskipti landanna, en þau eru ákaf-
lega mikilvæg fyrir okkur, sagði ólafur Jóhannesson viðskiptaráð-
herra. sem nýkominn er heim af ráðherraíundi EFTA I Lissabon. —
Fyrstu niu mánuði þessa árs hafa Portúgalir keypt af okkur vörur fyrir
6.583 milijónir króna, en sömu mánuði fluttum við inn vörur frá
Portúgal fyrir 211 milijónir kr. Portúgaiir leggja að sjálfsögðu mikla
áherzlu á það, að hér verði breyting á, sagði viðskiptaráðherra.
FRA RADHERRAFGNDI EFTA — A myndinni sjást fulltrúar íslands á fundinum, t.f.v.
Kornelius Sigmundsson, varafastafulltrúi tsiands hjá EFTA, Haraldur Kröyer, fastafulltrúi ts-
lands hjá EFTA, ólafur Jóhannesson, viðskiptaráöherra og aðalfulltrúi tslands á fundinum, og
Þórhallur Asgeirsson ráðuneytisstjófi i viðskiptaráöuneytinu.
-- Það kom ennfremur fram i
ræðum ráðherra á fundinum, að
vegna þess, að efnahagsástandið i
Portúgal er ákaflega erfitt og þeir
búa við stórkostlegan viðskipta-
halla — veröi af þeirra hálfu lögð
áherzla á það, að kaupa fyrst og
fremst af þeim löndum, sem
kaupa vörur af þeim. Það hefur
verið reynt mikið af hálfu tslend-
inga aðauka innflutning frá Portú-
gel og viðskiptaráöuneytið hefur
reynt mikið til þess en það hefur
gegnið treglega af ýmsum ástæð-
um.
Ráðherra sagöi aö islenzk
fyrirtæki hefðu fengið uppgefin
nöfn á portúgölskum fyrir-
tækjum, sem þau hefðu siðan
skrifað til — t.d. hefði Samband
isl. samvinnufélaga sýnt áhuga á
að ná viðskiptum við Portúgala —
„EFTA hefur
verið hvati fyrir
okkar iðnað"
Gsal-Reykjavik — Þaö er al-
mennt taliö að við höfum haft
gagn af þvi aö vera i Friverzlun-
arbandalagi Evrópu, að þvi leyti
til, að þaö hefur veriö hvati fyrir
okkar iðnað. Hins vegar erum við
enn á aölögunarstigi, þannig að
tollarnir eru núna 40%, en lækka
um næstu áramót niöur I 30%.
Þessi eru orð ólafs Jóhannes-
sonar viöskiptaráðherra i samtali
við Timann i gær um ráðherra-
fund EFTA-rikjanna, sem
haldinn var i Portúgal, 11. og 12.
nóvember s.l. undir forsæti
viðskiptaráðherra Portúgals,
Antonio Barreto. Ólafur
Jóhannesson var aðalfulltrúi ís-
landsá fundinum, en meöhonum
sátu fundinn þeir Þórhallur As-
geirsson ráðuneytisst jóri,
Haraldur Kröyer, fastafulltrúi Is-
lands hjá EFTA og Kornelius Sig-
mundsson varafastafulltrúi.
Ráðherrafundir EFTA, Fri-
verzlunarbandalags Evrópu, eru
haldnir tvisvar á ári og var
fundurinn að þessu sinni haldinn i
höfuöborg Portúgals, Lissabon.
Ólafur Jóhannesson viðskipta-
ráðherra sagði, að sérstaklega.
hefði verið fjallað um málefni
Portúgals á þessum fundi. Mikill
hluti fundartimans heföi farið I
umræður um efnahagserfiðleika
Portúgals og aðstoð hinna EFTA-
rikjanna við landið.
Iðnþróunarsjóður fyrir Portú-
gal, sem stofnaður var á vegum
EFTA, hefur nú tekið til starfa og
hefur þegar veitt fyrsta lán sitt.
Einstök EFTA-riki hafa einnig
veitt Portúgal margvíslega efna-
hags- og tækniaðstoð.
Auk málefna Portúgals var á
fundinum rætt um ástand efna-
hags- og viðskiptamála i heimin-
um. Komu fram áhyggjur yfir
þvi, að hin hagstæða þróun efna-
hagslifsins i hinum stærri rikjum
hefði stöövazt i bili, og töldu ráð-
herrarnir vafasamt, að hagvöxt-
ur myndi aukast aftur á næstunni
nema tíl kæmu sérstakar ráð-
staíanir, einkum i stærstu iðn-
aðarríkjunum, til þess aö örva
eftirspurn og fjárfestingu og
draga úr atvinnuleysinu. Meö
viðeigandi aðgerðum hefur
sumum EFTA-rikjunum tekizt að
stemma stigu við atvinnuleysi,
enda þótt það hafi sums staðar
haft i för með sér óhagstæöan
greiöslujöfnuð við útlönd.
A fundinum var lögð áherzla á
mikilvægi þess að halda verð-
bólgunni i skefjum.
Þá fjallaði ráðherrafundurinn
um samstarfið innan EFTA og
framtiðarhlutverk samtakanna. í
þvi sambandi var ákveðiö að efna
til sérstaks fundar Ráðgjafa-
nefndar EFTA, ásamt fulltrúum
frá rikisstjórnunum, til að ræða
áfra mhaldandi efnahagssam-
starf Evrópu. Ráögjafanefndina
skipa fulltrúar frá ýmsum sam-
tökum atvinriulifsins og af Islands
hálfu eru i nefndinni fulltrúar frá
Alþýðusambandi Islands, Félagi
isl. iðnrekenda, Sambandi isl.
samvinnufélaga, Verzlunarráöi
Islands og Vinnuveitendasam-
bandi Islands.
Akveðið erað fundur Ráðgjafa-
nefndarinnar veröi haldinn i
Stokkhólmi 14. og 15. febrúar á
næsta ári.
en treglega hefði gengið að fá
svör.
Timinn innti ráðherra eftir þvi,
hvort hann hefði sagt
portúgölskum ráðamönnum frá
þessum vandkvæðum i viötölum
sinum við þá og hvaða skýringu
þeir hefðu gefið. Ólafur sagði, að
hann hefði fært þetta i tal við þá,
en engin sérstök svör heföu komið
við þvi. — Iðnaður er i uppbygg-
ingu og sköpun i Portúgal, og það
getur verið að sú sé ástæðan að
einhveriu leyti. Það er tiltölulega
skammt siðan breytt var um
stjórnarformið, og þetta er að
smákomast i eðlilegt horf, sagði
hann.
Að sögn Ólafs framleiða
Portúgalir ýmsar vörur, sem Is-
lendingar gætu keypt af þeim s.s.
veiðarfæri, skófatnað, þurrkaða
ávexti, vefnaðarvörur og fleira.
— Við ætluðum að nota þessa
ferð, sagði viðskiptaráöherra, til
þess sérstaklega að ræða við-
skipti við Portúgal, og það tókst
að nokkru leyti, en þó ekki i þeim
mæli, sem við hefðum viljað, þvi
að viðskiptaráðherra Portúgals
og aörir portúgalskir embættis-
menn voru mjög uppteknir végna
fundarins.
Portúgal nýtur vaxandi vin-
sælda sem ferðamannaland, og
Framhald á bls. 19.
II
„Topp'
fundur
hjó EFTA
Gsal-Reykjavik — Að sögn
ólafs Jóhannessonar viö-
skiptaráöherra var ákveðið á
EFTA-fundinum i Lissabon,
að cfna til svokallaðs ,,topp
fundar” Efta-rikjanna og mun
hann væntanlega verða hald-
inn i Vin 20. mai n.k. Ólafur
sagði, að þaö væri aö frum-
kvæði Austurrikismanna. sein
ákveðið hefði verið aö efna til
þessa fundar, en á hann
myndu mæta forsætisráðherr-
ar og EFTA-ráöherrar
aðildarrikjanna.
— A þessum „topp-fundi”
veröa rædd mál, sem varða
EFTA og samband þess við
Efnahagsbandalag Evrópu
(EBE) auk samhanda EFTA
viö ýmsa aöra aöiia. sagöi
ólafur.
„Topp-íundur” hefur ekki
verið haldinn á vegum EFTA
vfv,r-
PALLI OG PESI
v * « • IIIC9LU >
trésmiðir.
— Hvað ertu að
rugla?
— Jú, þeir slá svo
marga varnagla.