Tíminn - 01.12.1976, Page 5
Miövikudagur 1. desember 1976
5
r ÞeirerumeöHtiö
senditækifaliöidóti
k sinu! Sem égsetti
Ég veit fljótlega
hvar þaö er sem
Punja heldur >
Geiri handtekur tvo
eyöimerkurþjófa, en lofar
þeim siöan aö
sleppa!
’paðtókst!'
Núeltiégþá til
herbúða Punja!
Auka ber
fræðslu
um
eðli og
verkanir
vímugjafa
F.I. Reykjavik.— Islenzkir ung-
templarar gengust fyrir nám-
skeiði „Viðhorf til vimugjafa”
með nemendum úr Voga- og
Vörðuskóla dagana 12.-15. nóv.
s.l. Var námskeiðið haldið i ölfus-
borgum og voru þátttakendur alls
29auk tveggja leiðbeinenda. Aöur
en lagt var af stað úr Reykjavik
var komið við hjá F'ikniefnadeild
lögreglunnar, þar sem tækifæri
gafst til að sjá helztu tegundir
fikniefna og fræðzt um starfsemi
deildarinnar.
I ályktun nemendanna kemur
fram, að fjölga beri verulega
mannafla i Fikniefnadeild lög-
reglunnar og bæta skuli tækjakost
hennar eftir þörfum. Fjármagn
sem tekið er við sölu eða kaup á
fikniefnum eigi að renna til
rannsóknar á fikniefnamálum og
hal'i lögreglan frjálsari hendur
viö þær rannsóknir en nú er.
Þyngja skuli refsingar fyrir
smygl og sölu fikniefna og herða
beri eftirlit með útgáfu lyfseðla á
róandi lyfjum.
Einnig benda nemendurnir á,
að reglugerð um bindindis-
fræðslu, sem gefin var út árið
1956, sé löngu úrelt, og þvi sem
næst engin lræðsla eigi sér stað i
skólum um eðli og verkanir vimu-
gjafa. Sú fræðsla eigi fyrst og
fremst að vera hlutlæg og draga
fram raunveruleikann t.d. með
hjálp kvikmynda.
Formaður 1UT er Halldór
Arnason.
HINN 26. nóvember 1976 afhenti
Niels P. Sigurðsson Rudolf
Kirchschlaeger, forseta Austur-
rikis, trúnaðarbréf sitt sem
sendiherra Islands i Austurriki.
Utanrikisráðuneytið,
Reykjavik, 29. nóv. 1976.
Sinfóníuhljómsveit íslands:
Hafliði Hallgrímsson ein-
leikari á næstu
hljómleikum
gébé Rvik — Fimmtudagskvöld 2.
desember n.k. heldur Sinfóníu-
hljómsveit tslands tónleika f Há-
skólabiói kl. 20.30. Einleikari á
tónleikunum er Hafiiöi Hail-
grfmsson cellóleikari, en á efnis-
skrá er m.a. verk eftir Hafliöa,
sem nefnist Hoa-Haka-Nana-Ia,
og einleikari í þvi verki er Gunnar
Egilsson, en Hafliöi hefur til-
einkaö Gunnari þetta verk sitt.
Þá eru einnig á efnisskránni
sellókonsert eftir Saint-Saens og
sinfónia nr. 4 eftir Bruckner.
Stjórnandi er Páll P. Pálsson.
Hoa-Haka-Nana-Ia eða „Brotn-
andi öldur” tónverk Hafliða,
fjallar um höggmynd, sem er af
frumstæðum risa og er varðveitt I
safninu Museum of Mankind i
London.
— Tónverkið fjallar um æfin-
týralega stemn ingu i safninu
þegarenginn er á ferli, og er m.a.
hugleiðing um höggmy ndina, sem
er frá Páskaeyjum i Kyrrahafi.
Hafliði Hallgrimsson, lauk
burtfararprófi I sellóleik frá Tón
listarskólanum i Reykjavik 1962.
Hann stundaði siðan nám i Róm,
lék með Sinfóniuhljómsveit ís-
lands og helt siðan til London til
framhaldsnáms. Þar hefur hann
starfað siðan hann lauk prófi viö
kennslu, sem einleikari og hefur
viða komið fram. Hafliði leggur
einnig stund á tónsmiöar. Hann
hefur að undanförnu feröazt með
kammerhljómsveitum Yehudi
Menuhins og Daniels Barenboim
viða um heim.
Hafliöi Hallgrfmsson, selióleikari.
Hafnfiröingar og nágrannar geta nú fagnaö þvl aö nú hefur tekiö til starfa bflaþjónusta f Hafnarfiröi,
þar sem aöstaöa er til þvotta á bilum og til minni háttar viðgeröa.
Bflaþjónustan er til húsa aö Dalshrauni 20 (bak viö Fjarðarkaup) í björtu og rúmgóöu húsnæöi. Sam-
tals er aðstaöa fyrir 9-10 bíla innifeinu.
Sem fyrr segir þá er þarna aðstaða til þvotta ogviögeröa. Verkfæri eru á staönum og veröur úrval
þeirra aukiö smám saman. Umsjónarmenn munu veita tilsögn I viögeröum sé þess óskaö. Einnig
veröur þarna til söiu bón og ýmsir smáhlutir.
Fyrst um sinn veröur opiö frá klukkan 19 til 22 virka daga, en kl. 9 til 21 á laugardögum og sunnudög-
um. Stefnt er aö þvi aðopna fyrr á daginn mjög fljótlega. Eigendur Bflaþjónustunnar Dalshrauni 20 eru
þeir Erlendur A. Erlendsson og Ægir Björgvinsson.
Skrúfan tekur stakkaskiptum
gébé Rvik — Skrúfan, málgagn
vélskólanema, hefur nú tekið
miklum stakkaskiptum, og I leiö-
ara blaösins, sem nýkomiö er út,
segir, að þaö breytist úr þvf aö
vera skrautrit, sem komi út einu
sinni á ári — á Skrúfudaginn — I
þaö aö veröa málgagn Vélskólans
og vélstjórastéttarinnar I heild.
Er því áætlað að blaöiö komi út
nokkrum sinnum á ári, og veröur
þaö I fimm þúsund eintaka
upplagi og dreift ókeypis til
nemenda og vélstjóra.
Með breyttri útgáfu blaðsins,
hefur aukizt áhugi vélskólanema
á að skrifa i blaðið en hugmyndin
er að safna saman á einum stað
þeim upplýsingum og fróöleik,
sem talið er að varði vélstjóra á
hverjum tima, segir i leiðara
blaðsins, sem ritstjóri þess,
Kristján Kristjánsson skrifar.