Tíminn - 01.12.1976, Blaðsíða 19

Tíminn - 01.12.1976, Blaðsíða 19
Miövikudagur 1. desember 1976 19 flokksstarfið Skipulags- mál Reykjavíkur Fulltrúaráö Framsóknarfélaganna I Reykjavik, gengst fyrir fundi um skipulagsmál Reykjavikur, aö Hótel Esju, miöviku- daginn 1. des. kl. 20.30: Framsögumenn Helgi Hjálmarsson og Guðmundur G. Þórarinsson. Allir velkomnir. Borgfirðingar Framsóknarfélag Borgarfjaröarsýslu heldur fund i Brún i Bæjasveit föstudagskvöldiö 3. des. kl. 9 Dagskrá: Aðalfundarstörf. Halldór . E. Sigurðsson ráðherra flyturávarp og svar- ar fyrirspurnum. — Stjórnin. Framsóknarfélag Árnessýslu Þriðja spilakvöld Framsóknarfélags Arnessýslu verður i Arnesi föstudaginn 3. desember og hefst kl. 21.00. Þá er lokakeppni um sólarlandaferðina og einnig eru kvöldverðlaun. Fulltrúi Samvinnuferöa flytur ferðakynningu. Dans. Hljóm- sveit Gissurar Geirssonar leikur. Norðurlands- kjördæmi eystra Fundir um landbúnaðarmál veröa haldnir I Félagsheimili Húsavikurlaugardaginn 11. desember kl. 14:00 og að Hótel KEA Akureyri sunnudaginn 12. desember kl. 14.30. Frummælendur: Jónas Jónsson, ritstjóri og Björn Matthias- son, hagfræðingur. Allir velkomnir. Stjórn Kjördæmissambands framsóknarmanna. Happdrætti Eftirtalin númer komu upp i happdrættiá basar Félags fram- sóknarkvenna s.l. laugardag 27. þ.m. Nr. 17 borölampi, nr. 238 kanna, nr. 10 jólaplatti. Vinninga má vitja á skrifstofu Framsóknarflokksins Rauöarár- stig 18. FUF Reykjavik Hádegisfundur Almennur félagsfundur veröur haldinn aö Rauöarárstig 18 Reykjavik laugardaginn 4. des. kl. 12.15. A fundinum sitja fyrir svörum Þórarinn Þórarinsson ritstjóri Timans og Kristinn Finnbogason framkvæmdastjóri Timans. Allt Framsóknarfólk velkomið. Stjórnin. Kanaríeyjar Munum geta boðið upp á Kanarieyjaferðir i vetur. Hafið samband við skrifstofuna Rauðar- árstig 18. Reykjavik simi 24480. Ný bók: Leikio vio gébé Rvik. —Leikið við dauðann nefnist bók, sem Almenna bóka- félagið hefur gefið út, og er eftir hinn kunna bandariska höfund og ljóöskáld, James Dickey, en hann hefur aðeins sent frá sér þessa einu skáldsögu sem er metsölu- bók. Hér er um að ræöa spenn- andi frásögn af ævintýralegu ferðalagi fjögurra vel metinna borgarbúa, niður eftir straum- hörðu stórfljóti i Bandarikjunum, dauðann Þeir lenda i ótrúlegum ævintýr- um, m.a. i baráttu við hrotta- fengna kynvillinga, sem leynzt' hafa i'skóginum,sem fljótiö fellur gegnum, og við náttúruöflin, enda koma ekki allir lifandi úr ferð- inni. — Saga þessi hefur verið kvikmynduð og var sýnd hér á landifyrir stuttu. Þýðandi bókar- innar er Björn Jónsson, en hún er prentuð i prentsmiðju Arna Valdimarssonar. o Bókmenntaverðlaun Danmörk: Torben Broström lektor. Mogens Bröndsted prófessor. Finnland: Fil. dr. Kai Laitinen. Sven Willner rit- höfundur. ísland:NjöröurP. Njarðvik lektor. Hjörtur Páls- son dagskrárstjóri. Noregur: Dr. philos. Arne Hannevik. Leif Mæhle prófessor. • Sviþjóð: Petter Bergman rithöfundur. Per Olov Sundman rithöfundur. © Krafla athugun nánar, bæði um orsakir þessarar tæringar og hvaða ráð kunna að vera til þess að vinna gegn henni. 1 þriðja lagi hefur hlutfallið milli gufu og vatns i borholunum reynzt á annan veg, þ.e.a.s. að hlutfall gufunnar er hærra heldur en gert hafi verið ráð fyrir. Þetta bendir til þess, að dómi sér- fræðinga, að i dýpri hluta jarðhitasvæðisins, þá sé gufa og vatn saman i holrými bergsins, en þetta geti valdið tregara rennsli vegna tiltölulega mikils rúmmáls gufunnar, og kann það að vera skýringin á tiltölulega Neitar og var hann á siglingu áleiðis á Vestfjarða- mið i gær. Samkvæmt fréttum frá Bretlandi i gær er ætlun útgerðar- fyrirtækisins að togar inn komi ekki heim fyrr en að veiðiferð- inni lokinni, en henni á að ljúka 9. desember. Timinn innti Pétur Sigurðsson forstjóra Landhelgisgæzlunnar eftir því i gær til hvaða aðgerða Gæzlan myndi gripa, ef togar- inn þráaðist við að yfirgefa islenzka landhelgi. Kvaðst Pétur ekkert geta um það sagt að svo komnu. litlu rennsli úr þessum holum, svo komast séríræðingar Orku- stofnunar að orði nú um þetta vandamál. Það er þvi ljóst, að við ýmis vandamál er að etja varðandi gufuöflunina. Sum þeirra má rekja til áhrifa gosvirkninnar fyrir ári siðan. En hins vegar er rétt að hafa i huga, að boranir standa enn og mælingar á þeim oorholum, sem lokið er við, standa einnig yfir, og ég vil nota nér þau orð, sem yfirmenn Orku- stofnunar viðhöfðu i morgun i sambandi við þetta mál, að á þessu stigi máls er ástæða til að varast bæði ótimabæra svartsýni og ótimabæra bjartsýni. Það verður unnið áfram að rann- sóknum og mælingum á bor- nolunum, eins og aðstæður frekastleyfa og mun Orkustofnun þá skila skýrslu um þau mál. © Starfssvið yrði hún ekki til mikils gagns. — Að lokum sagði Björn. Ég vona að allir þingfulltrúar leggist á eitt um að gera þessa stefnu- yfirlýsingu svo úr garði, að hún sameini verkalýðshreyfinguna i baráttu komandi tima og efli hana til nýrrar sóknar að þeim markmiðum, sem hún hefur átt sér frá upphafi vega. Að lokinni ræðu forseta ASI hóf- ust umræður um stefnuyfirlýs- inguna, og komu þar fram marg- ar ábendingar um það, sem betur mætti fara, og einnig lágu frammi á þinginu álit fjölmargra félaga viðs vegar um land um stefnuy firlýsinguna. 0 1. desember þar er segir frá ólöglegu verkföllunum 1942. Milli atriða verður söngur og hljóðfærasláttur. Söng- hópur alþýðumenningar mun flytja nokkur lög og Spilverk þjóðanna mun einnig láta til sin taka. Að lokum má geta þess, að efnt hefur verið til dansleiks i Sigtúni I kvöld i tilefni dags- ins og mun Celsius sjá um fjörið. Auk Halldórs og Heiðbrár eiga sæti i 1. des. nefnd stúdenta þau örlygur Hnefill Jónsson, Kristin Jónsdóttir, Friðrik Þór Friðriksson, Pétur Tyrfings- son og Þorlákur Karlsson. 0 Á víðavangi öreigastétt, virðist bilið sifellt breikka miili hinna lægstlaun- uðu og hinna, sem hærri tekjur hafa. Stéttaskiptingin kemur einnig fram I ýmsu öðru en launamismun, t.d. forréttind- um sumra starfshópa, sem vinna að sérhæfðum verkefn- um í þjóðfélaginu. Slikt ber að forðast. —a.þ. O Fjöldi framt yrði að gera ráöstafanir til að laga stöðuna þannig að þetta endurtæki sig ekki. Það verður að búa svo að land- búnaðinum, að menn eigi möguleika á að stunda hann, þvi að ef samdráttur verður i land- búnaði, er hætt við að mörgum finnist spónn úr aski sinum tekinn. Minna má á allan þann gjaldeyri. sem iðnaðarvörur úr landbúnaðarafuröum skapa, svo og hve margir hafa vinnu við þá framleiðslu og ýmsa þjónustu við landbúnaðinn. O Tölvur gert kleift að 'koma fram leiö- réttingu á röngum, úreltum eða villandi upplýsingum um þá sjálfa? Svar: Til þessa atriðis verður tekin afstaða, jiegar mótaðar verða reglur um notkun tölvu- bankans. En ég tel sjálfsagt að svo veröi. 10. Sp. : Hvernig verður tryggt, að óviðkomandi aðilar , starfs- menn Skýrsluvéla rfkisins, tæknimenn bandariska fyrir- tækisins IBM eöa aörir þeir, sem aðgang hafa að upplýsingaminni tölvunnar, komist ekki að innihaldi tölvubanka rannsóknar- lögreglunnar? Svar: Þetta verður tryggt bæði með gæzlu búnaðarins I húsa- kynnum Skýrsluvéla og rannsóknarlögreglu, svo og meö sérstökum tæknilegum aðferöum við breytingu á merkjum i sima- linum, sérstöku lyklakerfi til að geta kallað upp minni tölvunnar og öðrum tæknilegum búnaði, sem of langt mál er að rekja, en hliðsjón verður höfð af erlendum reglum um varðveizlu slikra tölvubanka. 11. Sp.: Verða sérstakar ráð- stafan ir gerðar tii að hafa eftirlit með þvi, að upplýsingar tölvunnar verði ekki misnotaðar? Svar: Viðhafðar verða sömu varúðarráösta fa nir gegn misnotkun þessara upplýsinga og viðhafðar eru um önnur gögn lög- reglunnar og Skýrsluvéla. 12. Sp.: Telur ekki ráðherrann, að mál af þessu tagi sýni nauðsyn þess, að hér á landi, eins og viða annars staðar, verði sett löggjöf um tölvunotkun við söfnun upplýsinga um einstaklinga og persónulega hagi þeirra? Svar: Viðast hvar erlendis, þar sem tölvur hafa verið teknar I notkun á þann hátt, sem hér um ræðir, hefur verið sett viðamikil löggjöf um vernd einstaklinga gagnvart misnotkun á slikum tölvuupplýsingum. Núhefur veriö ákveðið, að samin skuli löggjöf um þessiefni hér á landi, og hefur nýlega vérið skipuö þriggja manna nefnd til þess að vinna aðundirbúningi löggjafar um meðferð efnis i tölvum, er varðar einkahagi manna, þar með um söfnun upplýsinga til varðveizlu i tölvum, um varðveizlu efnis i tölvum og um vernd gegn mis- notkun sliks efnis, svo og um skyldur þeirra manna, er starfa við rekstur á tölvum. 1 nefndinni eiga sæti dr. Armann Snævarr, hæstaréttardóm ari, sem jafnframt er formaður nefndarinnar, Hjalti Zóphoniasson, fulltrúi i dóms- málaráðuneytinu og Þorkell Helgason, dósent. Sækja tveir hinir siðarnefndu nú ráðstefnu , sem haldin er nú i Strassborg, og fjallar um vernd einstaklinga gegn misnotkun i sambandi við tölvunotkun. O Kennarar kennara skerðast sem stytting- unni nemur, þ.e. um 1/12 i 8 mánaða skólum og 2/12 i 7 mánaða skólum. Getur þetta dregið úr möguleikum á þvi að fá kennara á þessa staði. Loks má minna á, að sú óánægja með launakjör sem gætt hefur meðal margra hópa rikis- starfsmanna hefur ekki siður áhrif i kennarastétt en annars staðar, en erfitt er að meta hvaða áhrif það atriði út af fyrir sig kann að hafa á einstakar starfs- greinar. Aður en skilið er við fyrri lið fyrirspurnarinnar, er réttað geta þess að mikil fækkun varð um skeið i brautskráningu kennara við þá breytingu sem gerð var á skipan kennaranáms með lögum nr. 38/1971, um Kennaraháskóla tslands. Þannig fækkaði braut- skráðum kennurum úr 224 árið 1973 i 7 árið 1976, sem var fyrsta brautskráningarár Kennarahá- skólans. Árið 1975 útskrifuðust 22 og 1976 14. Hins vegar er fram- undan hröð aukning, sem sést á þvi að á 3. námsári (lokanáms- ári) i Kennaháskólanum eru nú 53, á 2. ári 86 og á fyrsta námsári 100. Að þvi er varðar siðari lið fyrir- spurnarinnar, um það, hvort uppi séu „einhverjar áætlanir hjá ráðuneytinu i þá átt að bæta úr þvi ástandi, er nú rikir" þá skal i fyrsta lagi minnt á þær tölur, sem siðast voru nefndar um væntan- lega fjölgun brautskráðra kennara frá Kennaraháskóla Is- lands. Gert er ráð fyrir, eins og áður hefur verið greint frá, að lagt verði fram á þessu þingi írumvarp til nýrra laga um Kennaraháskóla íslands, sem á að styrkja stöðu hans sem mið- stöðvar uppeldis-og kennslufræði i landinu. Unnið hefur verið að könnun næsta byggingaráfanga Kennaraháskóla tslands, en gifurleg þrengsli há mjög starfsemi skólans. Þá er og ráð- gert að leggja fyrir yfirstandandi þing frumvarp til laga um skil- yrði, sem uppfylla þarf til þess að verða settur eða skipaður kennari við grunnskóla og framhalds- skóla.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.