Tíminn - 01.12.1976, Qupperneq 7
Miðvikudagur 1. desember 1976
7
Fjórða þing Rafiðnaðarsambands íslands:
Uppbygging atvinnuveg-
anna getur ein tryggt at-
vinnu og afkomu launþega
Vegna siendurtekinna fullyrð-
inga Röntgentæknafélags íslands
idagblöðum um að röntgentækn-
ar vinni nákvæmlega sömu störf-
in og röntgenhjúkrunarfræðingar
vill Félag röntgenhjúkrunarfræö-
inga taka fram eftirfarandi:
Röntgenhjúkrunarfræðingar
hafa lokið sérnámi i röntgen-
myndatöku og röntgenlækning-
um að loknu 3ja ára almennu
hjúkrunarnámi. Röntgentæknar
hafa hins vegar aðeins lokiö sex
mánaða sjúkraliðanámi og 2ja
ára námi i röntgenmyndatöku.
Röntgenhjúkrunarfræöingar hafa
þannig hlotiö miklu meiri mennt-
un i liffærafræði, sjúkdómsfræöi,
lyf jafræði og almennri meðhöndl-
un sjúklinga heldur en röntgen-
tæknar. Þess vegna hafa röntgen-
hjúkrunarkonur leyfi til aö
sprauta sjúklinga og til lyfja-
gjafa, en til sliks hafa röntgen-
tæknar ekki leyfi, enda ekkert
lært i lyfjafræði. Auk þess má
benda á, að vegna þess að
röntgentæknar hafa aðeins sér-
hæft nám i röntgenmyndatöku,
hafa þeir ekki menntun til að
vinna við stórar „sterilar” rann-
sóknir, t.d. hjartáþræðingar.
Af þessu er augljóst, aö
röntgenhjúkrunarfræðingar eru
hæfir til ýmissa starfa á röntgen-
deildum, sem röntgentæknar eru
ekki. Við visum þvi á bug þeirri
fullyrðingu RTÍ, aö röntgentækn-
ar vinni nákvæmlega sömu störf-
in og röntgenhjúkrunarfræðing-
ar.
1 yfirlýsingu RTl, sem birtist i
dagblöðum nú i vikunni, segir
m.a. að eina krafa röntgentækna
séusú aö laun þeirra séu ,,færö til
samræmis við laun þeirrar stétt-
ar, sem við vinnum viö hliðina á”.
Ef þetta er röksemd fyrir kröfu
um hærra kaup, er þá ekki sjálf-
sagt að krefjast þess að fá sömu
laun og læknarnir, sem bæði
röntgentæknar og röntgen-
hjúkrunarkonur vinna við hliðina
á?
25. nóv. 1976
F.h. Félags röntgenhjúkrunar-
fræðinga
Nanna Friðgeirsdóttir
Námskeið fyrir verðandi
leiðsögumenn
F.I. Reykjavik. — Akveðið hefur
verið, að Ferðamálaráð íslands
efni til námskeiðs fyrir verðandi
leiðsögumenn erlendra ferða-
manna i innanlandsferðum.
Námskeiðiö stendur yfir frá
janúar til mai 1977. Þeir, sem
hafa hug á að sækja framangreint
námskeið, geta gefið sig fram á
skrifstofu Ferðamálaráðs Is-
lands, Skúlatúni 6, Reykjavik,
simar 15677 og 27488.
1 skrifstofu Ferðamálaráðs
liggja frammi umsóknar-
eyðublöð, ásamt námsskrá og
öðrum frekari upplýsingum um
námskeiðið. Námskeiöiö fer fram
i húsaky nnum Háskóla Islands og
verða haldin tvo daga i viku á
kvöldin og eftir hádegi á laugar-
dögum.
A undanförnum árum hefur
verið mjög mikil aðsókn að leiö-
sögumannanámskeiðum og verð-
ur nU eins og áöur að takmarka
þátttakendur viö húsrýmiö.
Umsóknarfrestur um þátttöku i
námskeiðinu er til 6. des. n.k.
Aðalvinningurinn I Happdrætti Hjartaverndar 1976 var Mazda bifreið station 4 dyra og kom vinningur-
inn á miöa nr. 37796. Hér á myndinni er frú Hjördis Kröyer fulltrúi Hjartaverndar aö afhenda hinum
heppna eiganda Þóri Baldurssyni, Tjaldanesi 13, Garöabæ happdrættisvinninginn.
F.I. Reykjavfk. — A fjórða þingi
Rafiðnaðarsambands Islands,
sem fór fram i Reykjavik dagana
20.-21. nóv. s.l. voru gerðar ýmsar
ályktanir um kjara- og atvinnu-
mál, menntamál, löggildingar-
skilyrði, vinnulöggjöfina og
stefnuyfirlýsingu ASI.
Telur þingið launamál is-
lenzkra launþéga með öllu
óviðunandi, enda séu kjör verka-
fólks á tslandi lægri en þekkist f
nálægum löndum. Bendir þingið á
i framhaldi þessara staöreynda,
að viöþæraðstæður óöaveröbólgu
og kjaraskerðingar, sem rikt hafi
og riki hér á landi, geti aöeins
markviss uppbygging atvinnu-
veganna tryggt atvinnu og af-
komu launþega.
Efling verkmenntunar er að
dómi þingsins grundvallarskil-
yrði fyrir þvi, að hér á landi kom-
ist á sú iðnvæöing, sem er for-
senda bættra lifskjara þjóðarinn-
ar. Þingið fordæmir þau vinnu-
brögð menntamálaráöuneytisins,
að stinga undir stól itarlegum
tillögum fulltrúa vinnumarkaðar-
ins um átak i endurskipulagingu
verkmenntunar á framhalds-
skólastigi, en láta þess I stað
hefja áróðursherferð fyrir hug-
myndum embættismanna, sem
settar eru fram án nokkurra sam-
ráða viö atvinnulifiö.
Þingiö telur fráleitt, a,ö próf frá
Raftæknideild T.í. sé krafizt af
þeim rafvirkjum sem sjálfstæöan
atvinnurekstur stunda, og telur
rafvirkjastéttina búa þar við allt
önnur skilyrði en aörar iönaðar-
mannastéttir.
Lýst er yfir eindreginni and-
stöðu viö framkomnar tillögur
um breytingar á gildandi lögum
um stéttarfélög og vinnudeilur.
Einnig telur þingið timabært, að
ASl skilgreini meö stefnuyfirlýs-
ingu meginhlutverk og markmiö
sambandsins I efnahagslegu-, fé-
lagslegu- og menningarlegu til-
liti nánar en gert er I gildandi
lögum þess.
Formaður Rafiönaðarsam-
bands Islands er Magnús Geirs-
son.
Ný bók eftir Hammond
Innes
gébé Rvlk— Til móts við hættuna
nefnist ný bók, sem þýdd hefur
verið á íslenzku eftir brezka met-
söluhöfundinn Hammond Innes.
Þetta er tiunda bók höfundar,
sem þýdd er á islenzku. Sagan,
sem gerist að mestu i háfjöllum
Noregs, segir frá æsilegum átök-
um og er geysispennandi út i
gegn. Aödáendur Hammond Inn-
es hafa án efa beðiö með óþreyju
eftir nýrri bók frá honum, og þeir
veröa svo sannarlega ekki fyrir
vonbrigðum, nú fremur en endra-
nær.
Þýðandi er Aifheiður Kjartans-
dóttir, en prentsmiðjan Setberg
prentaöi.
Yfirlýsing fró Félagi
r öntg enh j ú kr u n a rf ræð i n g a
FÁLKIN N
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670
Framkvæmdastjórn SUF
Taka ber upp
persónukjör með
valkostum
Mó-Reykjavik — Á fundi Fram-
kvæmdarstjórnar Sambands
ungra framsóknarmanna, sem
haldinn var um helgina, var svo-
hljóðandi samþykkt gerð:
„Framkvæmdastjórn SUF. lýs-
ir ánægju sinni meö það sam-
starf, sem tekizt hefur með sam-
tökum ungra framsóknarmanna,
jafnaðarmanna og sjálfstæðis-
manna um skipan kjördæma og
kosningalaga.
Framkvæmdastjórnin lýsir
eindregnum stuðningi sinum viö
þær hugmyndir samstarfsnefnd-
ar þessara þriggja samtaka, að
taka beri upp persónukjör meö
valkostum og fella niður upp-
bótarþingsæti.
Við útfærslu hugmyndanna
leggur framkvæmdastjórnin
áherzlu á, að ekki er nauösyn, að
öll kjördæmi hafi jafnmarga
þingmenn, enda mega þau ekki
vera óeðlilega viðviðáttumikil.
Einnig þarf að tryggja rétt
þeirra, sem fjarri miðstöðvum
valdsins búa með hærra vægi at-
kvæða en i tillögu nefndarinnar er
gert ráð fyrir.
HMV
Sjónvarpstæki
HIS MASTER’S VOICE sjónvarpstæki eru heimsþekkt gæðavara
meðáratugs reynslu á íslenskum markaði.
Fást með 20” og 24”skjá. Fást einnig víða um land.
Góð greiðslukjör.