Tíminn - 01.12.1976, Page 8

Tíminn - 01.12.1976, Page 8
 Miövikudagur 1. desember 1976 Af 2336 kennurum í grunnskóla eru 1814 með tilski ilin réttindi — þ.e. fuilgilt kennarapróf fró Kennarahóskóla íslands, Kennaraskóla eða Hóskóla íslands. Aðrir kennarar hafa ýmiss konar menntun Nýlega lagði Helgi Seljan (Ab) fram fyrirspurn á Alþingi um kennaraskort á grunnskólastigi. Fyrirspurn Heiga var svohljóð- andi: 1. Hefur Menntamálaráðu- neytið látið framkvæma könnun á þvi, hverjarorsakir liggja til þess að svo erfiðlega gengur að fá full- menntaða kennara á grunnskóla- stiginu? 2. Eru uppi einhverjar áætlanir hjá ráðuneytinu i þá átt að bæta úr þvi ástandi, er nú rikir. Vilhjálmur Hjálmarsson menntamálaráðherra svaraði þessum fyrirspurnum Helga Seljan eftirfarandi: Þegar rætt er um kennaraskort og réttindaleysi kennara verður aö gera sér grein fyrir við hvað er átt. t allar kennarastöður sem lausar voru haustið 1976, hefur nú verið ráðið nema eina og er það eina farkennarastaðan, sem er til i landinu i Fells- og Ospakseyrar- skólahverfi i Strandasýslu. Hitt er svo, hvern starfsundir- búning þeir hafa, sem þessi störf hafa tekizt á hendur. Af 2336 kennurum i grunn- skólum eru 1814brautskráðir með fullgildu kennaraprófi frá Kennaraskóla tslands, Kennara- háskóla tslands eða Háskóla Is- lands, eða 77,7%. Hinir, þ.e. 522 eða 22,3% hafa ýmiskonar menntun, sem hér segir: 87 eða 3,7%hafa háskólapróf án uppeldis- og kennslufræði, t.d. B. A ,-prófsmenn, viðskipta- fræðingar o.fl. sem kenna flestir sérgreinar sinar, 249 eða 10,7% hafa lokið stúdentsprófi og 88 þeirra hafa lokið hluta af háskólanámi eða eru i sliku námi, 21 eða l,3%hafa verzlunar- eða samvinnuskólapróf og kenna flestir sinarsérgreinar svo sem bókfærslu og vélritun, 51 eða 2,2% hafa 1 okið iðn- eða tækninámi, búfræði- eða garð- yrkjunámi, tón- eða mynlistar- Vilhjálmur Helgi Seljan námiogkenna flestirsinarsér- greinar. 13 eða 0,6% hafa lokið fóstur- námi og kenna yngstu ár- göngum grunnskólanemenda, 91 eða 3,9%haf a flestir einungis lokið miðskóla- eða gagnfræða- prófi, en i þeim hópi eru þó nokkrir sem hafa stundað annars konar framhaldsnám en að framan greinir. Auk þess hafa margir þeirra langa starfsreynslu að baki. Eins og af þessari upptalningu sést er margt manna viö kennslu, sem hlotið hafa ýmiskonar sér- menntun en hafa ekki stundað nám i uppeldis- og kennslufræð- um. Þeir eru þvi taldir meðal „réttindalausra” kennara, enda þiótt þeir kenni flestir náms- greinar á sinu sérsviði. í þessum hópi eru t.d. viðskiptafræðingar, sem kenna viðskiptagreinar, guð- fræðingar, sem kenna kristin- fræði, auk margra B.A.- og B.S.- prófsmanna, sem kenna sinar sérgreinar. Sama gildirum ýmsa kennara i list- og verkgreinum. Að sjálfsögöu er æskilegt og til þess ætlazt, að þeir, sem við kennslu fást hafi lokið námi i upp- eldis- og kennslufræðum, en þó verður að telja mikinn mun á þvi, þegarrætterum „réttindaleysi”, hvort kennarann skorti bæði þann undirbúning og sérmenntun i kennslugrein sinni eða einungis annan þáttinn. Á árabilinu frá 1967-1976 út- skrifuðust frá Kennaraskóla ts- Umfang Geirfinnsmálsins hvati þess, að rannsóknarlögreglan fékk tölvubúnað til notkunar Það kom fram i svari ólafs Jóha nnessonar dómsmála- ráðherra I fyrirspurnartima I sameinuðu þingi i gær, að hin umfangsmikla rannsókn Geirfinnsmálsins hafi orðið hvati að þvi, að rannsóknarlögreglan fengi tölvubúnað til notkunar. Það var Ragnar Arnalds (Ab), sem gerði fyrirspurn um þetta mál og er fyrirspurn hans I mörgum liöum. Fara hér á eftir spurningar þingmannsins og svör dómsmálaráðherra við þeim: 1. Hver voru tiidrög þess, að ákveðið var, að rannsóknar- lögreglan I Reykjavik byggði upp tölvukerfi til notkunar við rannsóknarstörf sin? Svar: Tildrög þess, aö ráðu- neytiö heimlaði yfirsaka- dómaranum i Reykjavflc að afla tö lvubúnaöar fyrir rannsóknar- lögregluna I Reykjavik, eru i stuttu máli þau, að starfsmenn þeir, sem vinna aö rannsókn svonefnds Geirfinnsmáls, töldu upplýsingasafn sitt i málinu vera orðið svo umfangsmikið, að ekki fengist af þvi fullt gagn nema með þvi að koma upplýsingunum inn i tölvu. Jafnframt var ákveðið aö gera könnun á þvi, hvort ekki væri hentugt að færa nokkra þætti I upplýsingasafni rannsóknarlög- reglunnar inn I tölvukerfi, en upplýsingasafniö er i ófullkomnu kerfi, sem þarfnast endurbóta, hvort sem það er með þvi að setja það i tölvu eða á handunnar spjaldskrár. Akveðið var að gera tilraun meö tölvunotkun viö rannsókn Geirfinnsmálsins og var gerður samningur viö Skýrsluvélar rikisins og Reykjavikurborgar um tölvunotkun til reynslu og gildir sá samningur þar til I febrúar 1977, eða i 5 mánuði. Að þeim tima liönum verður tekin ákvörðun um framhald tölvu- notkunar. Niðurstaöa sú, sem þá verður tekin, verður ugglaust byggð á fenginni reynslu af notkun tölvunnar, þó að ég geti ekki fullyrt um það á þessu stigi. 2. Sp.: Hver hefur veriö og mun verða hlutverk bandariska fyrir- tækisins IBM I þessum áformum? Svar: Skýrsluvélar rikisins og Reykjavikurborgar hafa búnaö frá IBM, og er sá búnaður og annar viöbótarbúnaöur fyrir sivinnslukerfi rannsóknar- Svar: Lokaákvörðun um, hvaö fært verður i tölvu, verður tekin af ráðuneytinu að fengnum tillögum rannsóknarlögreglu og rikissaksóknara. 8. Sp.: Verður einstaklingum heimiltað krefjast þess að fá svar viö þvi, hvort nöfn þeirra eru i tölvubanka lögreglunnar, og hvað þá stendur þar? Svar: Um þetta veröa settar reglur. 9. Sp.: Verður þeim jafnframt Framhald á bls. 19. lands og Kennaraháskóla Islands 1299 kennarar með kennaraprófi. Af þeim kenna i grunnskóla á skólaárinu 1976-1977 721 eða 55,5%. Ljóst er þvi, að ef allir þessir kennaramenntuðu menn hefðu skilað sér til kennslustarfa, þá væru allar kennarastöður á grunnskólastigi skipaðar mönnum með fullum kennslurétt- indum. Fyrri liður fyrirspurnarinnar beinist að þvi, hvort mennta- málaráðuneytið hafi látið fram- kvæma könnun á þvi, hverjar or- sakir liggja til þess að svo erfið- lega gengur aö fá fullmenntaða kennara á grunnskólastiginu. Slik félagsfræðileg rannsókn hefur ekki verið gerð á vegum ráðuneytisins. Hins vegar má benda á nokkur atriði, sem likiegt er að hafi áhrif i þessu sambandi. Má þá fyrst nefna að kennara- menntun er mjög góður undir- búningur undir mörg störf og kennarar þvi eftirsóttir af ýmsum aðilum, auk þess sem ýmsir þeirra finna vafalaust að kennarastarf hentar þeim ekki, er þeir fara að fást við kennslu, þótt þeir hafi lokið kennaranámi. Það er alkunna að örðugleikar þeir.sem fyrirspurnin fjallar um, eru mestir utan helztu þéttbýlis- svæðanna, og að þvi leyti er um að ræða sams konar örðugleika og á ýmsum öðrum starfssviðum. Að þvi er kennara varöar, mun ekki vera sizt um að kenna hús- næðisskorti á mörgum stöðum og kemur þetta mjög fram við kennararáðningar. Skemmri starfstimi skóla i dreifbýli en i þéttbýli veldur þvi að árslaun Framhald á bls. 19. Ólafur Ragnar lögreglu leigður frá IBM. Skýrsluvélar eru sa'mningsaðili við IBM, en sakadómara- embættiö greiðir Skýrsluvélum endurgjald fyrir búnað og notkun. Til athugunar kemur vafalaust, hvert fyrirkomulag verður haft á þessu I framtiðinni, ef tölvu- notkun verður haldið áfram, sbr. og þaö, sem siðar verður sagt um væntanlega löggjöf. 3. Sp.: Hver er áætlaður stofn- og rekstrarkostnaður vegna þessarar tölvunotkunar? Svar.: Áætlaður stofnkostnaöur viö þann búnað, sem nú hefur verið gerður samningur um, er kr. 1.844 þúsund", en rekstrar- kostnaður á mánuði er áætlaður kr. 474 þúsund. 4. Sp.: Hvaða einstaklingar verða skráðir I tölvubanka rann- sóknarlögreglunnar? Svar:Þar sem ekki hefur veriö tekin ákvörðun um, hvaöa upplýsingar veröa færðar i tölvuna, er ekki unnt að svara þessari spurningu að svo stöddu, en þetta er eitt þeirra megin- atriða, sem taka þarf ákvörðun um I sambandi við framtiðar- notkun tölvu fyrir rannsóknar- lögregluna. 5. Sp.: Verða þar aðeins skráðir þeir, sem fremja meiri háttar afbrot eöa einnig þeir, sem t.d. eru staönir að minni háttar yfir- sjónum f umferöinni? Svar: Um þessa spurningu gildir það sama og þá fyrri, ekki hefur verið tekin ákvöröun um, hvaða upplýsingar verða færöar I tölvuna. 6. Sp.: Verða þar kannski skráðir aliir eigendur bifreiða. Svar: Bifreiöaskrá er ein þeirra skráa, sem mjög gagnlegt getur verið að hafa aðgang að I tölvu. 7. Sp.: Hver tekur ákvörðun um það, hvers konar hópar manna verða skráðir I tölvubankanum? Halldór E. Sigurðsson róðherra: Tel rangt, að stofnanir eins Póstur og sími taki að sér hlutverk, sem Tryggingastofn un ríkisins er í raun ætlað og t fyrirspurnartlma I samein- uðu þingi i gær svaraði Halldór E. Sigurðsson samgöngurdö- herra fyrirspurn frá Magnúsi Kjartanssyni (Ab) um simamál aldraðs fólks og öryrkja meö lágmarkstekjur. Fyrirspurn Magnúsar Kjartanssonar var svohljóð- andi: „Hvenær ætlar ráðherra að framkvæma þann einróma vilja alþingismanna, aö aldrað fólk og öryrkjar með lágmarkstekj- ur fái ókeypis sima samkvæmt tilteknum reglum, sbr. lög frá 16. mai 1975?” Efnislega svaraði Halldór E. Sigurðsson fyrirspurninni á þessa leið: „Reglur þær, sem háttvirtur fyrirspyrjandi minnist á eru i 12. grein laga um fjarskipti eins og hún hljóðar eftir gildistöku laga nr. 24 frá 1975. Þar segir einungis, að I reglu- gerð megi ákveða, að nánar skilgreindur þjóöfélagshópur verði undanþeginn afnotagjöld- um fyrir sima, en ákvörðun um framkvæmd alfarið lögö i hend- ur ráöherra. 1 svari mlnu við samskonar fyrirspurn á siöasta þingi skýrði ég frá þvi, að unnið væri aö at- hugun málsins, en kynnti jafn- framt sjónarmiö póst- og sima- málastjóra, sem borizt haföi ráðuneytinu. A þeim tima, sem siðan er lið- l>\ Halldór E. Magnús K. inn hefur mál þetta verið tekið til rækilegrar meðferöar, og hef ég d grundvelli þeirra gagna, sem aflað hefur verið ekki séö mér fært að nýta greint heimildarákvæði, heldur hef ég möguleika á hækkun elli- og ör- orkulifeyris til hlutaðeigandi styrkþega, er nemur sömu eöa svipaðri upphæö og hérum ræð- ir. Þau mál eru nú i endurskoö- un, og verður þessi athugun gerð samhliða þeim. Að baki þessarar ákvörðunar stendur sú sannfæring min, að fjárupphæð sú, er þjóðin greiðir þeim er minna mega sin, hvort sem er fyrir sakir sjúkdóms eöa elli, skuli á hverjum tima vera svo rifleg, að nægi fyrirþeim út- gjöldum þeirra, sem eðlileg geta taliztog almennt eru viður- kennd, en án allra skuldbind- inga um það hvernig þessu fé er varið. Sú skoöun, að einstakar stofn- anir, svo sem hljóðvarp og póst- ur og simi, eigi á einn eða annan máta að taka við hlutverki þvi sem Tryggingastofnun rikisins er markað er að minumatiröng og getur vart átt framtiö fyrir sér. Helztu rök min i þvi efni, auk þess sem hér er komið fram, eru, aö setja þyrfti á fót mjög kostnaðarsamt eftirlits- og endurskoðunarkerfi innan stofnunarinnar, kerfi sem þegar er fyrir hendi við greiöslur al- menns örorku- og ellílifeyris, og þykir vist flestum nóg komið af sliku. Einnig skal á það bent, að með hliðsjón af eöli styrks þess, erhér um ræðir, þá hníga öll rök i þá átt, að hinn almenni þjóð- félagsþegn greiði jafnt þá skuld, sem viö eigum þessu fólki aö gjalda, en ekki einungis slmnot- endur, þvf útilokaö er annað en póstur og simi verði viö gjald- skrárgerö að taka tillit til þeirra tekna er þannig féllu brott. Ég hef nú i nokkrum orðum gert grein fyrir þeirri ákvöröun minni að nýta ekki a.m.k. að sinni heimildarákvæði 12. grein- ar fjarskiptalaga. Þeirri ákvörðun er ekki beint gegn þeim þjóöfélagsþegnum sem sizt megi sin, heldur þvert á móti, þvi málum þeirra yrði bezt borgið meö riflegum lif- eyri, sem hver og einn gæti ráö- stafað að vild, auk þess sem sú leið yrði þjóöfélagslega réttlát- ust. Aö þvi er stefnt.”

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.