Tíminn - 22.12.1976, Blaðsíða 1

Tíminn - 22.12.1976, Blaðsíða 1
Sýslumannsembættið í Borgarnesi skal borið út — sjá bak x „ Jængir? Áætlunarstaðir: Bíldudalur-Blönduós-Búðardalur Flateyri-Gjögur-Hólmavík Hvammstangi-Rif-Reykhólar Sigluf jörður-Stykkishólmur Súgandaf jörður Sjúkra- og leiguflug um allt land Símar: 2-60-60 oq 2-60-66 290 . tölublað—Miðvikudagur22. desember—60. árgangur J BARÐA BRYNJUR Sfðumúla 21 — Sími 8-44-43 LANDVELAR HF „Geri mig ánægðan með svör bankanna, a.m.k. í bili" — segir Hrafn Bragason umboðs- dómari í ávísanakeðjumálinu Gsal Reykjavík— Ég er búinn aö fá þessi svör f rá bönkunum og ætli ég geri mig ekki ánægðan með þau í bili að minnsta kosti, sagði Hrafn Bragason um- boðsdómari í ávisana- keðjumálinu í samtali við Timann í gær. Hrafn kvað annars litið að frétta af gangi rannsóknarinn- ar, búið væri að visu að vinna úr upplýsingum af tékkunum i Seðlabankanum og gata þær á spjöhl fyrir tölvuúrvinnslu. Hrafn sagði, að hann vildi litið tjá sig um það, hvort hann væri farinn að sjá fyrir endann á rannsókninni, en kvaöst myndi efna til fundar með fréttamönnum milli jóla og nýárs og greina þar frá gangi rannsókparinnar. 4 Því miður — rauð jól í ár HV-Reykjavik.— Þvi miður, litlar likur á jólasnjó i ár, en þó má alltaf vona, enda þarf litið að breytast til að ein- hver föl komi á jörð. — Þetta voru viðbrögð Veðurstofunnar i gærkvöldi, þegar við inntum eftir þvi hvernig jólaveðrið yrði. Mestar likur eru taldar til þess að veðrið haldist eins og það var i gær — rólegt og sviptingalaust. 1 það minnsta gerir nýjasta spáin, sem nær fram á Þorláks- messu, ekki ráð fyrir breytingum. Þá er að hafa það. Rauð jól i ár. Enda hefur verið litið um snjó það sem af er vetri. Varla að fót hafi á fest. Timamynd Róbert. Átta milliónir innheimt m* lé+tJL C!— atfL!^! sektmnor, sem er Ql ll|d diguroimi einungis refsiupphæð HV-Reykjavík — Það er misskilning- ur, að í þessari sex miiljón króna sekt, sem Sigurbjörn Ei- riksson var dæmdur til að greiða, felist söluskattur, eða önnur opinber gjöld þau, er hann hefur komizt hjá að greiða. Þarna er einvörðungu um að ræða refsisekt, en innheimtur þær, sem staðið hafa gegn honum, halda áfram sinn veg, sagði Haraldur Henrýsson, saka- dómari, i viðtali við Tímann i gær. Auk þeirrar sex milljón króna sektar, sem um ræðir, verður Sigurbjörn þvi að greiða, eftir sem áður, rúmlega átta millj- ónir króna f vangoldin op- inber gjöld. Þar er um að ræða krónur 3.484.694.00 i vangoldinn söluskatt, sem hann var ákærður fyrir að hafa dregiö und- an á timabilinu 1. janúar 1970 til 1. október 1972, svo og krónur 4.745.499.00 i tekjuskatt og útsvar, sem hann var ákærður fyrir að hafa komizt hjá að greiða með þvi að van- rækja að telja fram til skatts fyrir skattárin 1970 og 1971. Þá var Sigurbirni einn- ig gefið að sök að hafa vanrækt skil til skatt- stjóra á lögboðnum skýrslum, það er launa- framtölum um starfslaun i veitingahúsum þeim, sem hann rak árin 1970 og 1971, þar á meðai laun framreiðslumanna. Sam- tals námu laun þessi krónum 29.598.605.00. Þessi upphæð er þó ekki skatlur, sem hann hefur svikið undan, eins og viða hefur verið talið, vegna misskilnings. Viðkom- andi starfsfólk gaf þessi iaun sin upp til skatts á réttum tima, og i dómi þeim, er felldur var yfir Sigurbirni i sakadómi Reykjavikur siðastliðinn mánudag, segir að hið opinbera hafi ekki borið skaða af þessari vanrækslu. Ekki tekið tillit til óska vagnstjóra SVR — sjó Víðavang bls. 3

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.