Tíminn - 22.12.1976, Page 7
Miðvikudagur 22. desember 1976
7
Þrír ungir
fara á mót erlendis
n
Gsal-Reykjavik — Þrír ungir
skákmenn fara utan á skákmót
strax eftir jólin. Helgi Ólafsson og
Jón Þ. Árnason fara báðir á ár-
legt opið mót i Stokkhólmi, svo-
nefnt „Rilton-Cup”, sem hefst 27.
desember. Helgi fer á vegum
Skáksambands íslands, en Jón á
vegum Tafifélags Reykjavikur.
Þá fer Jónas P. Erlingsson á
Saga galdramála
á íslandi:
Galdrar og
brennudómar
gébé Rvik. — Mál og menning
hefur sent frá sér bókina Galdrar
og brennudómar eftir Siglaug
Brynleifsson. Prentsmiðjan Hól-
ar sá um prentun og káputeikning
er eftir Þröst Magnússon. A bók-
arkápu segir m.a.: „Galdrafárið
er einhver óhugnanlegast vitfirr-
ing sem yfir álfuna hefur gengið.
I þessari bók er rakin saga þess
og einnig þær hugmyndir, sem
lágu að baki galdraofsóknum,
með skirskotun til samfélags 16.
og 17. aldar. I upphafi fjallar höf-
undur um galdraöld i Evrópu al-
mennt, en meginefni bókarinnar
er saga galdramála á Islandi, frá
fyrstu galdrabrennu til hinnar
siðustu.
Bókni er 231 bls. að stærð.
Hugsa
dýrin
— ný bók eftlr
Guðmund
Þorsteinsson
frá Lundi
gébé Rvik —Hugsa dýrin? nefnist
bók eftir Guðmund Þorsteinsson
frá Lundi. Bókin hefur að geyma
frásagnir af mönnum og dýrum.
A kápu segir m ,a.: Oft tala menn
um dýrin sem „skynlausar
skepnur”, sem hagi sér eftir
eðlishvöt en ekki vegna þess að
þau geti hugsað rökrétt. 1 þessari
skemmtilegu bók, segir höfundur
margar sögur af samskiptum
manna og dýra, og leiðir sterk rök
að þvi, að dýrin séu ekki eins
„skynlaus” og sumir hálærðir
„spekingar” vilja vera láta.
Þetta er áreiðanlega kærkomin
bók öllum dýravinum, bæði
ungum og öldnum.
Bókin er 97 bls. að' stærð, og það
erbókaforlag Odds Björnssonar á
Akureyri, sem gefur hana út.
Kenni-
mark
kölska
— ný bók frá ísa-
foldarprentsmiðju
gébé Rvlk. — Kennimark kölska
nefnist nýútkomin bók hjá ísa-
foldarprentsmiðju. Lýður Björns-
son sá um útgáfuna. I inngangi
segir m.a.: „Frá þvi að sögur
hefjast, hafa menn trúað á tilvist
galdra og að þá mætti nota til
góðs eða ills. Trú þessi kemur
fram i Biblfunni og sumum ís-
lendingasögum, t.d. Eyrbyggju.
Iðkendur galdurs virðast oftast
hafa verið illa þokkaðir og oft
voru þeir ofsóttir”. Og á bókar-
kápu segir: 17. öld var öld galdra
og galdratrúar. Hér eru prentað-
ar ritgerðir um galdra eftir sr.
Pál i Selárdal og Daða Jónsson,
m.a. hið fræga verk Character
bestiæ. Höfundarnir lýsa viðhorfi
sinu til galdra og krydda frásögn-
ina'með smásögum. Setning, um-
brot og filmuvinnu annaðist
Prentstofa G. Benediktssonar og
offsetprentun og bókband Isafold-
arprentsmiðja hf. Bókin er 176
bls. að stærð.
alþjóðlegt unglingamót I Sviþjóð,
svonefnt „Hallsberg-mót”.
Hilmar Karlsson unglinga-
meistari íslands átti ekki heim-
angengt á það mót, svo að Jónas
fer ihans stað, en hann hafnaði I
2. sæti á unglingameistaramóti
Islands.
I ,,Rilton-Cup” eru há verðlaun
i boði eða 300 þúsund isl. kr. fyrir
1. s ætið og 250 þúsund fyrir 2. sæt-
ið. Helgi Ólafsson mun eiga góða
möguleika á þvi, að vinna sér
alþjóðlegan titil á þessu móti, þ.e.
siðari helming þess titils, en fyrri
helming titilsins vann hann sér á
móti I Bandarikjunum s.l. sumar.
Námskeið á
Beruf jarðarströnd
Dagana 26.-29. nóv. s.l. var
haldið að tilhlutan Ungmennafé-
lags Beruneshrepps félagsmála-
námskeið i Hamraborg. Leiö-
beinendur voru frá Egilsstöðum,
þeir Sigurjón Bjarnason, formað-
ur U.I.A., og Helgi Gunnarsson.
Námskeiðið sóttu niu konur og
niu karlar. Kennt var námsefni
félagsmálaskóla Ungmennafé-
lags íslands. Þátttakendur voru
hinir ánægðustu með námskeiöið
og sammála um að það væri m jög
gagnlegt, töldu það vekja og
styrkja áhuga fyrir félagsmálum
og hrekja á flótta ræðuskrekkinn
alþekkta.
Leiðbeiningar og kennsla I
þessu formi virðist muni henta á
fleiri sviðum og leysa úr brýnni
þörf strjálbýlisins fyrir fullorð-
insfræðslu.
Ekki verður sagt að veðurguð-
irnir hafi verið námskeiðsfólki
hliðhollir. A öðrum degi fór að
snjóa, næsta dag hvessti hressi-
lega og spillti færð svo að bæðu
þurfu menn að moka snjó og kafa
til að sækja seinasta áfanga nám-
skeiðsins.
Formaður Ungmennafélags
Beruneshrepps er ólafur Hjalta-
son á Skála.
Vf/
vi/
\f/
Vf/
M/
\t/
Sf/
\f/
I
Vf/
Vf/
Vf/
Vf/
Vf/
Vf/
Vf/
Vf/
vf/
Vf/
V|/
V/
V/
Mánaðar og Veggplattar
Skreyttir af
MAGNÚS E BALDVINSSON
l)RA- OG SKARTGRIPAVERZLUN
laugavegO
/IV
/\
/j\
/f\
/IV
/j\
/f\
/f\
/IV
/ts
/IV
/IV
/IV
t
/IV
/IV
/*\
/IV
/IV
/IV
/IV
/IV
AUÐVELDIÐ
yður
matar-
tilbúninginn
LÁTIÐ OKKUR UM ERFIÐIÐ
Jólasteikina
FÁIÐ ÞÉR HJÁ OKKUR
tilbúna í ofninn
Vanti yður eitthvað sérstakt
— þá spyrjið um verzlunarstjórann
Úrvalið er meira
en yður grunar
(§>
búðirnar
Að þjóna yður
er markmið okkar