Tíminn - 22.12.1976, Qupperneq 10

Tíminn - 22.12.1976, Qupperneq 10
10 Mifivikudagur 22. desember 1976 Heyrt, séð og lesið...... Fríða Björnsdóttir skrifar Dagblöðin gefa út sjónvarps- dagskrá i hverri viku. i henni er ýmisiegt skemmtiefni, auk upp- talningar á dagskráratriöum. Hér er krossgáta tileinkuð Á hverfanda hveli. Sjónvarpið er harður húsbóndi Auglýsingarnar eru í 9 mínútu af hverjum 60 Hvorki meira né minna en 110 milljónir fylgdust með Clark Gable og Vivien Leigh á sjónvarpsskerminum. Er eftirsóknarvert að geta valið á miili átta sjónvarps- stöðva með mismunandiefni frá klukkan sex á morgnana og allt fram yfir tvö á nóttunni, aö minnsta kosti sumar nætur? 1 fljótu bragði svöruðu eflaust fiestir þessu játandi á tslandi eftir að hafa ekki haft nema eina sjónvarpsstöð og hana aö- eins nokkra klukkutfma á dag, og ekki einu sinni alla daga vik- unnar, né alla mánuði ársins. Eitt sé ég þó strax gott við að- eins eina stöð, og það er, að fjöl- skyldan þarf ekki að skiptast i ótal andstæða hópa, sem ekki geta komið sér saman um, hvaða stöð eigi nú að velja hverju sinni. Slikt stríð hlyti óneitanlega að hefjast á Islandi strax og dagskrár sjónvarpsins yröu fleiri en ein, og á meöan ekki er hægt að hafa nema eitt sjónvarpstæki fyrir hvert af- notagjald. Hins vegar er þetta ekki svo mikið vandamál til dæmis hér um slóöir, þvi fá held ég séu þau heimili, sem aðeins eiga eitt sjónvarp. Þar, sem böm eða unglingar eru á heimil- um, eru tækin oft á tiðum jafn mörg og heimilisfólkiö, — hver og einn hefur sjónvarp i sinu herbergi. Hér borga menn ekkert af- notagjald, þar sem aug- lýsingarnar I sjónvarpinu standa straum af öllum kostn- aði, og auk þess er það ekki óyfirstiganleg fjárfesting að kaupa sér sjónvarpstæki, þvi þau kosta aðeins litið brot af þvi, sem þau kosta á Islandi. Það er hægt að kaupa sér litið sjónvarp fyrir ca 25 þúsund krónur, og siöan fer verðið stig- hækkandi eftir stærð, og þó ekki siður eftir umbúðunum. Þúsund dollara litstjónvarp, sem kost- aði um 190 þúsund krónur, eftir gengi dollarsins i dag, er rokna mubla, sannkallað stofustáss. Það er sem sagt hægt að fá sjón- varp við hvers manns hæfi. Auglýsingar í stað afnotagjalda Já, hér losnar fólkið viö af- notagjaldið, og fær auglýsingar i staðinn. Ekkert hef ég á móti auglýsingunum, aðeins ef þær kæmu ekki á versta augnabliki i hverjum einasta þætti og hverri einustu kvikmynd, sem sýnd er. Auglýsingar eru venjulega á fimmtán minútna fresti og yfir- leitt fara um það bil 9 minútur af hverjum klukkutima i aug- lýsingar. Auglýsingar geta ver- ið fræðandi, af þvi að það er ýmislegt sem þær sýna manni. Sumir halda þvi lika fram, að þærséu tilgóðs, verði tilþess að ' taugaspennan slakni, þegar horft er á hryllings- eða glæpa- myndir, og i hryllilegasta atrið- inu er allt I einu klippt á og aug- lýsing kemur um tannkrem, hnetusmjör eða snjósleða. Ég hef ekki heyrt sálfræðinga segja álit sitt á þessu sem hvild fyrir taugarnar, og ef til vill er þetta . rétt ályktað, þótt auglýsendur séu áreiðanlega ekki að hugsa um taugarnar i okkur, þegar þeir velja auglýsingunum stað i dagskránni. Fyrir nokkru var sýnd á einni sjónvarpsstöðinni, NBC, kvik- myndin Gone With the Wind, eða A hverfanda hveli, eins og hún heitir vist á islenzku. Þetta er kvikmynd, sem fólk hefur flykkzt til að sjá, hvenær, sem hún hefur verið sýnd i kvik- myndahúsum, allt frá þvi hún var gerð, áriö 1939. Aðal- leikararnir eru Clark Gable, sem leikur Rhett Butler, Vivien Leigh i hlutverki Scarlett O’Hara, Olivia De Havilland sem Melanie, og Leslíe Howard lék mann hennar. Reiknað var með, að hvorki meira né minna en 110 milljónir manna myndu horfa á kvikmyndina i sjón- varpinu. Hún var sýnd i tvennu lagi, á sunnudags- og mánu- dagskvöld, og sýningartiminn var þrir klukkutimar annaö kvöldið og tveir hitt. A hverri klukkustund voru auglýsingar i 9 1/2 minútu. Þessar auglýsing- ar voru sannarlega ekki á neinu afsláttarverði. Þær voru tvisvar sinnum dýrari heldur en það, sem gerist um auglýsingar i beztu dagskrártimunum venju- lega, og hver minúta var seld fyrir 235 þúsund dollara, eða milli 44 og 45milljónir islenzkra króna, hafi ég margíaldað rétt. Fyrir þessi tvö kvöld hefur NBC þvi fengið 11 milljónir og 162 þúsund dollara i auglýsinga- tekjur eða um tvo milljarða isl. króna. Siðan þurfti sjónvarps- stöðin að greiða fimm milljónir dollara fyrir kvikmyndina, en eftir stóðu samt sex milljónir dollara i hagnað fyrir þessi tvö kvöld. Þetta eru eiginlega tölur, sem venjulegur íslendingur skilur ekki, og heyrir tæpast nema, þegar verið er að tala um hallann á þjóðarbúinu eða ein- hverjar Kröflu- eða Sigöldu- framkvæmdir! Vildi ekki sjá sina eigin mynd Aðeins ein stórstjarna úr kvikmyndinni A hverfanda hveli, er enn á lifi, og er það Oli- via de Havilland. Hún lét hafa það eftir sér iblaðaviðtölum, að hún myndi alls ekki horfa á myndina i sjónvarpinu. — Aug- lýsingarnar eiga alveg eftir að eyðileggja hana, sagði leikkon- an. — Sjónvarpsstöðvarnar hafa eyðilagt hverja stórmyndina af annarri, með þvi að drita aug- lýsingunum niður með fárra minútna millibili. Það hefur enginn ánægju af að sjá góöa kvikmynd, hlutaða i sundur á þennan hátt, sagði Olivia de Havilland. En þrátt fyrir það, að hún horfði ekki á myndina, gerðu það sem sagt um 110 milljónir manna. Er það stærri hópur, en nokkru sinni áður hef- ur horft samtímis á sjónvarps- dagskrá. Hæstu tölur til þessa voru, þegar Ben Hur var sýnd- ur, en 86 milljónir munu hafa horftá hann og svo Guöfaðirinn með 84 milljónir áhorfenda. Sjónvarpsefnið hækkar í verði Miklir peningar fara i gerð sjónvarpsdagskránna, og ný- lega var sagt frá þvi i blöðum, að á dagskrárárinu 1976-1977 myndu sjónvarpsstöðvarnar eyða 875 milljónum dollara i gerð nýs dagskrárefnis, og er það 25% aukning frá árinu 1975- 1976. Kostnaðaraukinn er sagð- ur eiga rætur sinar að rekja til verðbólgu og hækkaðra launa. Klukkustundardagskrá, sem kostaöi i fyrra 250 þúsund doll- ara kostar nú um 300 þúsund dollara. 1 sambandi við launakostnað- inn dettur mér i hug, að mikið var skrifað um þaö fyrir nokkru að tveir sjónvarpsþulir og dag- skrármenn fluttust milli sjón- varpsstöðva. Annar fór frá stöð sinni og fékk um 100 þúsund dollara i árslaun i nýja starfinu, en sá, sem tók við af honum.átti að byrja með 60 þúsund dollara árslaun, en hækka svo um 5000 dollara eftir eitt ár. Sá meö hærri launin fær þvi um 19 millj- ónir i árslaun og hinn 11 til 12 milljónir. Sæmilegt árskaup það. Kapall kostar 1100 krónur Afnotagjald greiða menn hér ekkert, fyrir þær stöðvar, sem þeir ná á venjulegan hátt með loftnetum einum saman. En til þess að hægt sé ab ná stöðvum frá Bandarikjunum þarf meiri tilfæringar en loftnet. Það þarf að hafa svokallaðan „cable” eða kapal, sem lagður er inn i húsið eins og simalina. Fyrir slikan kapal greiðir fólk tæpa 6 dollara á mánuði, eða um 1100 krónur. Þegar ég i upphafi tal- aði um, að hér væri hægt aö velja á milli að minnsta kosti átta sjónvarpsstöðva, voru þær meðtaldar, sem nást einungis á kapal. Það er þvi tekið fram sem hlunnindi, ef þú tekur á leigu ibúð, að i henni sé kapall, og ekki þurfi að greiða hann sér- staklega, heldur séu afnotin af honum innifalin i leigunni. Auð- vitað hlýtur þó að vera gert ráö fyrir þessum kostnaði i út- reikningum leigunnar, svo trú- lega borgar fólk ekki miklu minna fyrir kapalinn þótt hann sé innifalinn i heildarleiguupp- hæðinni. Sjónvarpið er harður húsbóndi Ég lét að þvi liggja hér i upp- hafi, að sjónvarpið gæti verið harður húsbóndi. Það er þó sannarlega rétt. Sumirsegja ef- laust, að þá vanti viðkomandi aðeins sjálfstjórn, eða uppeldi barnanna á heimilinu sé ekki sem skyldi, ef þau séu látin ráða, hvað horft er á. En maöur getur tæpast láð börnum að þau langi til þess aö fylgjast með mörgu af þvi efni, sem þeim er ætlað. Allt er lika upp úr þvi lagt, að það séu framhaldsþætt- ir, og missi barnið af þætti veit það ekki, hvernig hetjan hefur komizt úr klóm óvinarins, eða 1/2 hvað annað, sem það nú hefur verið. Mikið er um teiknimyndir fyr- irbörn, og virðast þær það efni, sem börn, og reyndar fullorðnir lika, verða seint leið á. Má i þvi sambandi benda á, hversu áhugi fyrir teiknimyndablöðum er alltaf mikill, og minnkar ekki. Roy Rogers.Lone Ranger, Get Smart, Læknastúdentarnir og svo Söngelska fjölskyldan og önnur fjölskylda The Brady Bunch eru lika efni, sem börn kunna að meta. Glæpaþættir eru margir og þeirra á meðal bæði McCloud og Colombo, sem is- lenzkir sjónvarpsáhorfendur þekkja vel. En nú litur helzt út fyrir, að eitthvað sé farið að halla undan fæti fyrir glæpa- þáttunum. Ekki er þó vist, hvernig fer, en athuganir i Bandarikjunum hafa sýnt, að fólk er farið að forðast vörur, sem auglýstareru i mestu hryll- ingsþáttunum, og sumir hrein- lega neita að kaupa vörur, sem auglýstar eru i myndum eins og McCloud og Colombo eða öðrum álika. Taka sjónvarpið framyfir föðurinn Það er alltaf stöðugt verið að gera skoðanakannanir i Banda- rikjunum, og i einni slikri kom fram, að nálægt 50% ungra bama vilja heldur hafa sjón- varpið en föður sinn hjá sér. Könnunin var gerðá 156 börnum á aldrinum 4 til 6 ára. Fyrst voru þau spurð hversdagslegra spurninga, til þess eins að róa þau, og fá siöan sem eðlilegustu Sunday "isk- ©—Uncle Waldo 7:30 33— Dwayne Frien/ CD—Gerald Derst’ #;■>. (^rQð) ©-Volce Of Th x 8:00 O CD—Scsanr 33—Re\ Iluir xmo/*æ ClD-Jcrry F *30Q®^Kr„, JPt v. v, s,° 33— I^eroy Jenkins (33—Kelifiious Ilall 8:55 O ®)—Ouvcrture El Horairc 9:00 CJ (X) O—Meetlng P AnÆS’ghSShÍl,1 w,thnRcverc„d J. ‘* 0®-Unlvers|ty Of The \\*J \ / OE^-Iiay „f Oisco.^ V‘° A r"i. n,°to (33—Oral Hobcrts - O(3)—ITinee Nolr <J TfSeV*0 ,vWcS ouc 0®-T„umai (Vend.) rsy-^vsO'0^* „ ' !®-News - ^C. M(33—Noonday ® O-Noon Show ÖCSpShippy (Mcrc.) ar!~To»l>Jh.(rÞt) O ®— Trince Noir (Jcu.) ““------------------ Sþ° ns OPP°' V.* -«««• SJJaw €»CIíS-'í0' , rt)-Voui Bear dST/7 Livcstock Rcport ”)—Farm Markcts ''fy ^ >0^ ' -Wealher A JÖfó. V, -Woman’s Wo Q/n/ /7 %3>'e \ 5, Hér er lltiö sýnishorn af þvi efni, sem sýnt er á hinum ýmsu sjónvarpsstöðvum. Sjónvarpsdagskráin fylgir dagblöðunum á laugardögum. Hún er jafnstór um sig og Heimilistiminn og 48 blaðslður að stærð.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.