Tíminn - 22.12.1976, Qupperneq 19
Miövikudagur 22. desember 1976
19
flokksstarfið
Happdrætti
Framsöknarfiokksins
Vinningar í happdrættinu eru 15 aö þessu sinni, kr. 1.500.000,- aö
verðmæti. Dregiö 23. des. Drætti ekki frestaö.
Skrifstofan aö Rauöarárstíg 18 er opin næstu kvöld til kl. 6.
Einnig er tekiö á móti uppgjöri á afgreiöslu Tlmans, Aöalstræti
7. og þar eru einnig miöar til sölu.
Jólatrésskemmtun
Jólatrésskemmtun Framsókn-
arfélaganna i Reykjavik verður
haldin að Hótel Sögu fimmtu-
daginn 30. desember og hefst kl.
3. Aðgöngumiðar seldir á skrif-
stofunni Rauðarárstig 18. Simi
24480.
k
8 tressless-stóllinn
Framleidandi
grindar:
Stálhúsgögn
Skúlagötu 61
Bólstrun:
Bæjarbólstrun
Skeifuhúsinu
Akranes: .
isaf jörður:
Sauöárkrókur:
Akureyri:
Nesk'aupstaður:
Seyöisf jöröur:
Reykjavik:
Sölustaöir:
Verzlunin Bjarg h.f.
Húsgagnaverzlun Isafjarðar
Verzlunin Hátún
Vörubær h.f.
Höskuldur Stefánsson
Hörðúr Hjartarson
Hibýlaprýði, Hallarmúla.
Hvíldarstóll fmSkójÍMiierwgleg0ocivönduS.
SMIÍXJUVHGI6 SI'MI 44544
KJÖRGARDI SIMI16975
Slappió af i
Stressless stólnum
og látió þreytuna
úr sál og
likama.
Ihvaða
stöóu sem
-Stressless
er alltaf jafn þægilegur. Þaó er engin tilviljun aó
Stressless er vinsælasti hvildarstóllinn á Noróur-
löndum.
Stressless erstilhreinn stóll með ekta leóri eóa
áklæói að yðar vali. Með eöa án skemils.
Þeir, sem ætla aö velja góða og vandaóa vinar-
gjöf, ættu að staldra viö hjá okkur
i Skeifunni og sannprófa gæði
Stressless hvíldarstólsins.
©Ferðamálaráð
væntanlegum var rætt viö aöila
allra sveitarstjórna á Suðurlandi,
allt frá Reykjavik til Hafnar i
Hornafirði, og voru undirtektir
mjög jákvæðar. Ég held aö menn
hafi almennt fagnað þvi, aö frum-
kvæöi væri tekið i þessum efnum
og vilji gera sitt til úrbóta.
Aöspurður kvaðst Heimir von-
ast til þess, aö i nýrri heildarlög-
gjöf sem nú er i smiðum um um-
hverfisvernd i viðtækasta skiln-
ingi, yrðu lagaákvæöi um rétt og
ákvarðanatöku hugsanlegs um-
hverfisráöuneytis, eða aðila á
vegum sveitarstjórna til að f jar-
lægja margvisleg umhverfislýti i
og við mannabyggðir.
Einn liður i umhverfiskönnun
Ferðamálaráðs var athugun á
Keflavlkurflugvelli og er þaö
skoöun nefndarinnar, aö mikilla
úrbóta sé þörf þar, bæði innan
flugstöðvarinnar og utan, eigi
völlurinn að sóma sér sem Is-
lenzkur alþjóðaflugvöllur. Hefur
þeim málum veriö hreyft við
rétta aðila I samstarfi við utan-
rikisráðuneytið.
í umhverfisnefnd Ferðamála-
ráðs íslands eiga sæti auk Heimis
Hannessonar, Arni Reynisson og
Magnús E. Guðjónsson.
® Vetrarmaður
hve lengi hún verður hér á landi,
en Lárus stakk upp á, að hún yrði
bara hjá sér fram að göngum
næsta haust og færi fyrir sig I
göngurnar, en ekki vildi Maria
lofa þvi.
Maria les mikið af islenzkum
bókum, og er þegar búin að kaupa
margar bækur sjálf. Einnig lánar
Lárus henni mikið lestrarefni.
Svo er hún iðin við að læra stökur,
og takmarkiö er, að Lárus kenni
henni eina stöku á hverjum degi.
Athugasemd
TÍMANUM hefur borizt eftir-
farandi athugasemd frá Lækna-
félagi Isiands:
Vegna fréttar i dagblaöinu
Timinn þ. 20. nóv. sl. undir fyr-
irsögninni: „Erfitt að láta
lækna sæta ábyrgð fyrir mis-
ferli þeirra i útgáfu lyfseðla”
óska læknasamtökin að taka
fram eftirfarandi:
Ariö 1972 fóru læknasamtökin
fram á það við rikissaksóknara,
að hann hlutaðist til um, að
rannsókn færi fram á sannleiks-
gildi fullyrðingar opinbers
starfsmanns i fjölmiðli um mis-
ferli i útgáfu lyfseðla. Siðar
birtust fréttir og frásagnir i fjöl-
miðlum um, að læknar stæðu i
vegi fyrir rannsókn málsins.
Öskuðu læknasamtökin þá eftir
upplýsingum hjá rikissaksókn-
ara um þann áburð.
1 svari rikissaksóknara dags.
24. janúar 1973 segir orðrétt:
,,Þá skaltekið fram, að embætti
saksóknara veit eigi til þess, að
nokkur hafi á einn eða annan
hátt reynt að tefja eða torvelda
slika rannsókn”.
Læknasamtökunum er ekki
kunnugt um, að breyting hafi á
þvi orðið.
Framangreind fyrirsögn
Timans er ummæli höfð eftir
fulltrúa rikissaksóknara. Einn-
ig segir i fréttinni, eftir sama
fulltrúa haft, að aðalorsök þessa
sé sú, „hversu vel læknarnir
standa saman og gefa litið
upp”.
Áðspurður hefur fulltrúi sá,
sem hér um ræðir, neitaö þvi, að
framangreind ummæli væru
rétt eftir höfð. Vilja læknasam-
tökin mótmæla þeirri blaða-
mennsku, sem hér er höfð i
frammi.
Að lokum er rétt að geta þess,
að rikissaksóknara hefur á ný
verið skrifað og enn itrekuð ósk
læknasamtakanna um að hraða
afgreiðslu slikra mála, sem hér
um ræðir.
—o—
Vegna þessarar athugasemd-
ar þykir mér rétt, að eftirfar-
andi komi fram:
Fyrr i þessum mánuði sendi
umræddur „fulltrúi” athuga-
semd til Timans, þar sem hann
lýsti þvi yfir, að þau ummæli,
sem i fréttinni eru eftir honum
höfð, lýsi ekki skoðunum hans.
Ég skýrði þá frá þvi, að ég
hefði hvorki bætt við ummæli
hans, eins og þau komu fram i
viðtali við mig, né heldur dró ég
úr þeim.
Ég fæ þvi ekki séö hverja á-
stæðu læknasamtökin hafa til aö
mótmæla „þeirri blaða-
mennsku, sem hér er höfð i
frammi”, eins og segir i athuga-
semd þeirra.
llalldór V aldimarsson.
Það kann að virðast erfitt
að velja góða bók í öllu
jólaflóðinu, en er það s-vo?
íslandsferðin 1907
För Friðriks konungs áttunda
og rikisþingmanna til Færeyja
og Islands. Tveir danskir blaöa-
menn, Svenn Poulsen og Holger
Rosenberg, fylgdust með kon-
ungi ög skrifuöu bók þessa sem
er um 330 bls. og I henni eru um
200 myndir.
Harpa minninganna
Minningar Arna Thorsteins-
sonar tónskálds sem Ingólfur
Kristjánsson færði i letur. í ævi-
sögu þessa aldna Reykvikings
blandast þróun fæðingarborgar
hans og afskipti hans af menn-
ingarmálum og þá sérstaklega
tónlistamálum landsmanna. —
Látleysi og góðlátleg kimni ein-
kenna frásögnina, sem iðar af
lifi og glaðværö. t bókinni eru
um 80 myndir af einstaklingum
og hópum, en Arni starfaði um
árabil sem ljósmyndari.
ÍSAFOID
í ís og myrkri
eftir Friðþjóf Nansen. t ferða-
bók þessari segir frá fræki-
legasta þætti Fram-leiðangurs-
ins norska (1893-96) þegar Frið-
þjófur Nansen fór við annan
mann frá leiðangursskipinu og
gerði tilraun til að komast á
norðurheimskautið en sneri
siðan suður á bóginn og komst
eftir fimmtán mánaða svaðilför
og mannraunir til Franz-Jósefs-
lands. Bókin er yfir 300 bls. með
fjölmörgum myndum.
Þetta eru þrjár bækur sem hafa verið ófáanlegar um langt
árabil, en eru nú til í mjög takmörkuðu upplagi
Nei, það er ekki erfitt að
velja góða bók
Isafoldarbók er góð bók