Fréttablaðið - 14.01.2006, Síða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 550 5000
LAUGARDAGUR
14. janúar 2006 — 13. tölublað — 6. árgangur
Stærsta
útsalan
er hafin!
Engin vændiskona
í Hollywood
Kínverska leikkonan Ziyi
Zhang sló í gegn í Crouch-
ing Tiger, Hidden Dragon
en leikur nú í Memoirs of
a Geisha sem bráðum
verður frumsýnd.
VIÐTAL 36
Veldu
það
besta
FBL 1x9 forsíðukubbur
Græna byltingin
Eru ungir Íslendingar
að hætta að borða kjöt?
Er siðferðislega rangt að
borða dýr?
HELGAREFNI 46
FRIÐJÓN SVEINBJÖRNSSON
Safnaði fyrir bíl
á einu ári
bílar ferðir heilsa
Í MIÐJU BLAÐSINS
Hefur trú á Arnóri
Alfreð Gíslason, fyrrum þjálfari
Arnórs Atlasonar hjá
Magdeburg, hefur trú á
því að Arnór geti vel leyst
stöðu vinstri skyttu hjá
landsliðinu á EM í Sviss.
ÍÞRÓTTIR 48
VEÐRIÐ Í DAG
SERGEY S. GUSHCHIN
Spilar rússneskt
reggí og rapp
Rússar fagna nýju ári á Kaffi Kúltúra
FÓLK 54
DOMINIK MOLL
Sagður vera hinn franski
David Lynch
Lemming var frumsýnd á frönsku kvikmyndahátíðinni
VIÐTAL 24
SKEMMTANIR Kvenfélag Húsavík-
ur heldur sitt árlega þorrablót á
Hótel Húsavík í kvöld en hefð er
fyrir því að blótið sé haldið áður
en þorri gengur í garð. „Húsvík-
ingar eru mjög blótglaðir og ekki
óalgengt að menn fari á þrjú til
fimm þorrablót á hverju ári og
þess vegna dugar þorrinn okkur
ekki,“ segir Friðrika Baldvins-
dóttir, formaður kvenfélagsins.
Hún segir blótið stærstu
skemmtun ársins á Húsavík og
vinsældir þess séu slíkar að hús-
næðið dugi ekki lengur. „Tæplega
400 miðar seldust upp á sjö mínút-
um og færri kom st að en vildu,“
segir Friðrika. - kk
Kvenfélagskonur á Húsavík:
Þjófstarta
þorravertíðinni
ÁFRAM ÉL á vestan- og sunnan-
verðu landinu en bjart austan til. Frost
0-8 stig, kaldast inn til landsins.
VEÐUR 4
Frumkvöðull úr ritstjórastól
Jónas Kristjánsson sagði starfi sínu
sem ritstjóri DV lausu í gær eftir mikla
orrahríð. Á löngum og umdeildum
ferli hefur hann innleitt ýmsar nýjung-
ar í íslenska blaðamennsku.
MAÐUR VIKUNNAR 12
LÖGREGLA Ökumaður strætisvagns
lést eftir harkalegan árekstur á
Sæbrautinni í gær. Tækjabíl þurfti
til að ná manninum út úr vagnin-
um. Ökumenn tveggja vörubíla og
fólksbíls sluppu án meiðsla.
Starfsfólk og stjórn Strætó er
harmi slegin vegna hins hörmu-
lega umferðaslyss: „Tildrög
slyssins eru óljós, en vagnstjór-
inn var einn í bílnum þar sem
hann hafði lokið áætlunarakstri
og var að ferja strætisvagn-
inn að athafnasvæði Strætó bs.
við Kirkjusand. Hugur allra
hjá Strætó er hjá fjölskyldu
félaga okkar og við vottum
aðstandendum hans sorgar- og
samúðarkveðjur,“ segir í yfir-
lýsingu frá framkvæmdastjóra
fyrirtækisins. Slysið varð með
þeim hætti að strætisvagninn
keyrði utan í gámaflutningabíl
á leiðinni norður Sæbrautina.
Vagninn lenti síðan aftan á flutn-
ingabíl. Hann rakst einnig utan í
fólksbíl, að sögn lögreglu.
Slysið varð um tuttugu mínút-
ur yfir níu og var Sæbrautin lokuð
í um tvo og hálfan tíma.
Maðurinn sem lést var um sex-
tugt. Hann var kvæntur og átti
uppkomin börn. Hann hefur ekið
strætó í tæp sex ár. - gag
Banaslys varð í hörðum árekstri fjögurra bíla á Sæbraut:
Strætisvagnabílstjóri lést
FRÁ SLYSSTAÐ Maðurinn sem lést hafði
ekið strætisvagni í sex ár. Hann var kvæntur
og átti uppkomin börn. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
ÍRAN, AP Íransstjórn hótaði því í
gær að hindra aðgang eftirlits-
manna og binda enda á annað
samstarf við Alþjóðakjarnorku-
málastofnunina ef deilunni um
kjarnorkuáætlun Írana verður
vísað til öryggisráðs Sameinuðu
þjóðanna. Forseti landsins lýsti
því yfir að það myndi ekki láta
þvingunaraðgerðir SÞ hafa nein
áhrif á sig.
Íransstjórn tók þessa hörðu
afstöðu er ráðamenn Evrópu og
Bandaríkjanna unnu að því að
afla fylgis við þá ráðstöfun að láta
málið koma til kasta öryggisráðs-
ins. Undir þá viðleitni tók Kína-
stjórn hins vegar ekki; hún varaði
við því að það gæti aðeins orðið til
þess að gera illt verra. - aa
Deilt um kjarnorkuáætlun:
Íranar hóta að
slíta samstarfi
SVARA FULLUM HÁLSI Ali Asghar Soltanieh,
nýr sendiherra Írans hjá Alþjóðakjarnorku-
málastofnuninni, talar í Vín í gær.
INNFLYTJENDUR Toshiki Toma, presti
innflytjenda á Íslandi, barst í gær
bréf heim til sín þar sem hann er
beðinn um að hætta að berjast
fyrir réttindum nýbúa á Íslandi
og er þar meðal annars sagt að
nýbúar á Íslandi séu „hvimleitt
fyrirbæri“ sem ekki eigi heima í
íslensku samfélagi.
Toshiki Toma, sem hefur
verið kröftug rödd í réttindabar-
áttu innflytjenda hér á landi, var
brugðið þegar hann las bréfið og
taldi það særandi og ekki til þess
fallið að bæta samskipti Íslend-
inga við útlendinga sem byggju
hér á landi.
Í bréfinu stóð meðal annars
að það færi japönskum manni
afar illa að berjast fyrir réttind-
um fólks af erlendum uppruna og
hann ætti að halda sig til hlés þar
sem orð hans og rödd myndi ekki
gera neitt gagn fyrir útlendinga,
sem hvort eð er væru ekki vel-
komnir hér á landi.
Toma hefur einu sinni fengið
líflátshótunarbréf heim til sín
en það gerðist árið 2001. Eftir
það segist hann ákveðinn í því
að þegja ekki yfir því þegar störf
hans eru trufluð með sjónarmið-
um þröngsýnna manna sem ala á
ranghugmyndum um útlendinga
hér á landi.
„Ég er mjög reiður yfir þessu
bréfi og tek það nærri mér. Ég
ætla mér ekki að þegja yfir því
þegar gert er lítið úr nýbúum hér
á Íslandi. Þetta snýst í sjálfu sér
ekki um Íslendinga eða innflytj-
endur, heldur mannréttindi og
réttlætiskennd. Umburðarlyndi
þarf alltaf að vera í hávegum haft
hjá fólki en því miður eru ein-
staklingar í samfélaginu sem láta
stjórnast af öðru en kurteisi og
siðlegri hugsun,“ sagði Toma.
- mh
Presti hótað og sagt
að halda sig til hlés
Toshiki Toma, japönskum presti innflytjenda, barst í gær bréf þar sem segir að
útlendingar á Íslandi séu „hvimleitt fyrirbæri“ í íslensku samfélagi. Toma er
beðinn í bréfinu um að halda sig til hlés. Toma segir bréfið vera hótun.
TOSHIKI TOMA MEÐ BRÉFIÐ Toma segist
ekki tilbúinn að láta hótunarbréf yfir sig
ganga. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
SEKTAÐ Í SNJÓÞYNGSLUM Það voru erfiðar starfsaðstæður fyrir stöðumælaverði í gær ne þeir þurftu að hafa mikið fyrir því að sinna störf-
um sínum. Hér sést samviskusamur stöðumælavörður við Tryggvagötu vera að athuga hvort viðkomandi sé búinn að borga. Mikill snjór á
götum borgarinnar gerði vegfarendum á höfuðborgarsvæðinu erfitt fyrir í allan gærdag. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI